Fréttablaðið - 17.02.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 17.02.2009, Blaðsíða 6
6 17. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR ALÞINGI Viðbúið er að frumvarpið um breytingar á yfirstjórn Seðla- bankans taki breytingum frá því sem nú er áður en það verður sent úr viðskiptanefnd Alþingis til ann- arrar umræðu. Meðal annars er rætt um að koma á aðstoðarbanka- stjóra fyrir þann eina bankastjóra sem kveðið er á um í frumvarpinu. Ekki er víst að það verður afgreitt í dag eins og hugur formanns nefnd- arinnar stóð til. Seðlabankanum hafði verið veittur frestur til að skila umsögn um frumvarpið til gærdagsins og bjuggust nefndarmenn við því í gær að sá frestur yrði virtur. Bankastjórar Seðlabankans, þeir Davíð Oddsson og Eiríkur Guðna- son, voru í gær boðaðir á fund nefndarinnar í dag til að svara fyr- irspurnum um umsögn bankans. Fjöldi hagfræðinga og annarra sérfræðinga kom fyrir nefndina í gær. Þeir gera allir athugasemdir við frumvarpið eins og það lítur út, en athugasemdirnar eru af ólíkum toga og ganga mislangt. Ein athugasemdin lýtur að hæfn- iskröfum til seðlabankastjóra, sem almenn samstaða mun vera um innan nefndarinnar að breyta, en í frumvarpinu er gert ráð fyrir meistaragráðu í hagfræði. Þá hafa verið gerðar tölu verðar athugasemdir við skipulag pen- ingastefnunefndar og skipunar- tíma bankastjóranna. Meðal ann- ars hefur verið rætt um að breyta honum úr sjö árum í fimm. Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í viðskiptanefnd, segist ekki trúa því að unnt verði að afgreiða frumvarpið úr nefnd- inni í dag eins og til stóð. Til þess sé málið ekki nægilega þroskað. Hann vísar jafnframt á bug ásök- unum stjórnarliða þess efnis að sjálfstæðismenn vilji tefja málið. Það að þeir hafi verið tilbúnir til að mæta á aukafundi í nefndinni vitni um annað. Álfheiður Ingadóttir, formaður nefndarinnar, vill ekki segja til um það hvenær nefndin afgreiðir frumvarpið. Það vill Lúðvík Berg- vinsson, fulltrúi Samfylkingar- innar, ekki fullyrða um heldur, en segir það þó hugsanlega geta orðið á miðvikudag. stigur@frettabladid.is Aðstoðarbankastjóra kannski bætt í ný lög Nær öruggt er að gerðar verði breytingar á seðlabankafrumvarpinu, sem óvíst er hvort afgreitt verður úr nefnd í dag. Geir Haarde sakaði forsætisráðherra um að ljúga og leyna gögnum frá AGS á þingi í gær. Tölvupóstsamskipti hrekja það. SEÐLABANKINN Davíð Oddsson og Eiríkur Guðnason hafa verið kallaðir fyrir viðskiptanefnd í dag. Þeir munu sitja í Seðlabankanum þar til ný lög um bankann taka gildi. Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálf- stæðisflokksins í viðskiptanefnd, hefur sent Jóhönnu Sigurðar- dóttur bréf þar sem hann óskar eftir upplýsingum um samskipti forsætisráðuneytisins við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn vegna seðlabanka- frumvarpsins. Birgir segir í bréfinu að treg- lega hafi gengið að fá upplýsingar um þessi samskipti á vettvangi viðskiptanefndar og að fullyrðingar í málinu virðist að einhverju leyti stangast á. „Mér hefur þótt vera mikil tilefnis- laus leynd og pukur í sambandi við þetta mál – sérstaklega hvað varðar samskiptin við AGS. Mér finnst nauðsynlegt að ákveðnir þættir þar skýrist,“ segir Birgir, aðspurður um tilgang upplýsingaleitarinnar. Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í gær spurði svo Geir H. Haarde eftirmann sinn á forsætis- ráðherrastóli um sama mál – hver væri ástæða leyndarinnar á fyrsta bréfinu frá AGS og hvort ekki stæði til að opinbera þær ábendingar. Hann hefði sent AGS fyrirspurn um málið og svar sjóðsins hefði verið á þá leið að ákvörðunin um trúnað hefði verið íslenskra stjórnvalda. Forsætisráðuneytið sendi fjöl- miðlum afrit af samskiptum sínum við AGS í gær. Þar virðist koma skýrt fram að AGS hafi krafist þess, skil- yrðislaust, að efni fyrstu ábending- anna væri algert trúnaðarmál. SJÁLFSTÆÐISMENN TORTYGGJA JÓHÖNNU Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is A T A R N A Létt og lipur. Kirsuberjarauð. Stillalegt afl mótors frá 300 upp í 1800 W. Sjálfinndregin snúra, hleðsluskynjari. 3 lítra poki. Vinnuradíus: 8 m. Vinnuhollt handfang. Stillanleg lengd á sogröri. Ryksuga VS 01E1800 14.900Tilboðsverð: kr. stgr. (Verð áður: 17.900 kr.) Thermalrúllur 8x8cm8x8c , 5stk í pakka. 199kr stykkið Fyrirtækja þjónusta PÖNTUNARSÍMI 550 4111 Ti lb oð ið g ild ir út fe br úa r 2 00 9 T B W A \R ey kj av ík \ S ÍA \ 0 94 19 7 DÓMSMÁL Kalla þurfti til lögreglu í dómsal Héraðsdóms Vesturlands nýverið, til að handtaka sakborn- ing sem veittist að dóttur sinni þar. Um var að ræða konu sem áður hafði verið ákærð fyrir að reyna að stinga sambýlismann sinn með flökunarhnífi, þannig að hann hlaut áverka í andliti og á hand- legg. Konan var dæmd í átján mán- aða fangelsi. Þar af voru fimmtán skilorðsbundnir. Maðurinn og konan höfðu verið í sambúð og eignast eina dóttur 1994. Þau slitu fljótlega samvist- ir eftir fæðingu barnsins sem ólst upp hjá móður sinni. Maðurinn var að sækja dóttur sína til vinkonu hennar en þar var fyrrverandi sambýliskonan fyrir. Hún lagði til mannsins með flök- unarhnífnum með fyrrgreindum afleiðingum. Við yfirheyrslur bar konan að maðurinn hefði ætlað að sækja dóttur þeirra án síns leyfis og því hefði hún ákveðið að nota hnífinn. Þegar langt var liðið á aðalmeð- ferð málsins stóð til að leiða dóttur konunnar fyrir dóminn til skýrslu- gjafar. Lögum samkvæmt átti hún rétt á að skorast undan því, sem hún og gerði. Þá veittist konan að henni, svo handtaka varð þá fyrr- nefndu. Sérfræðingar mátu hana sakhæfa. DÓMSALUR Fátítt er að handtaka þurfi sakborning sem er fyrir dómi. Einstakur atburður í Héraðsdómi Vesturlands: Kona handtekin í dómsal Á Jón Baldvin Hannibalsson að verða formaður Samfylkingar- innar? Já 29,7% Nei 70,3% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ætlar þú að flytja af landi brott vegna kreppunnar? Segðu skoðun þína á Visir.is STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður Alþing- is hefur komist að þeirri niður- stöðu að þáverandi forstjóri Trygg- ingastofnunar ríkisins (TR) hafi brotið gegn rétti svæfingalæknis með því að tjá sig um meinta sekt hans í tryggingasvikamáli. Lækn- irinn var síðar sýknaður í málinu. TR hafði kært lækninn fyrir tugmilljóna þjófnað. Eftir að hér- aðsdómur sýknaði hann tjáði Karl Steinar Guðnason, þá forstjóri TR, sig um málið í fjölmiðlum. Sagði hann niðurstöðuna hlægilega og hann tryði ekki öðru en að málið ynnist í Hæstarétti. Þegar fréttamaður spurði hann hvort skapast hefði einkennileg staða hjá stofnuninni vegna máls- ins svaraði hann: „Ja, hvernig er það á vinnustað ef einstaklingur stelur tug eða tugum milljóna? Á að dæma viðkomandi til þess að vera áfram í starfi bara? Þó að vinnu- veitandi vilji láta hann fara?“ Læknirinn kvartaði yfir ummæl- unum til umboðsmanns og taldi forstjórann brjóta með þeim á rétti sínum − hann hefði enda verið fund- inn saklaus í málinu fyrir dómi. Umboðsmaður fÉllst á rök lækn- isins og segir ummæli Karls Stein- ars ekki samræmast reglum. Hann segir það dómstóla að ákveða hvort stofnunin sé mögulega skaðabóta- skyld vegna málsins. - sh Umboðsmaður Alþingis um forstjóra Tryggingastofnunar: Forstjórinn braut á rétti læknis TRYGGINGASTOFNUN Karl Steinar var á þessum tíma forstjóri TR. FRÉTTABLAÐIÐ / PJETUR HEILBRIGÐISMÁL Lyfjakostnaður sjúkratrygginga nam 9.287 millj- ónum króna árið 2008 og hafði kostnaðurinn aukist um 2.233 milljónir frá fyrra ári. Það sam- svarar 32 prósenta aukningu. Helsta ástæðan fyrir þessari hækkun er fall íslensku krónunn- ar gagnvart erlendum gjaldmiðl- um. Kostnaður hefur aukist mest vegna lyfja við sársjúkdómi og maga- og vélindisbakflæði, eða um 203 milljónir. Kostnaður vegna magalyfsins Nexium nam 554 milljónum árið 2008 sem er aukning um 129 milljónir frá fyrra ári. - shá Sjúkratryggingar: Lyf hækkuðu um 32 prósent KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.