Fréttablaðið - 17.02.2009, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 17. febrúar 2009 13
Straumur hefur veitt stjórnend-
um og starfsmönnum kauprétt að
hlutabréfum í fjárfestingabank-
anum upp á 650 milljónir hluta
á viðmiðunargenginu 1,67 krón-
ur á hlut. Þetta jafngildir tæpum
1,1 milljarði króna. Gengi bréfa í
bankanum endaði í 2,53 krónum
á hlut í gær.
Rétturinn fellur í skaut stórs
hluta starfsmanna Straums hér
og á meginlandi Evrópu. Um sex
hundruð manns starfa hjá bank-
anum.
Í kaupréttarsamningunum
er miðað við
meðal gengi
hlutabréfa síð-
ustu tuttugu
viðskiptadaga.
Áður var miðað
við fimm daga.
Í tilkynningu
frá bankanum
segir að hand-
hafar kauprétt-
anna ávinni sér réttindi í þremur
jöfnum áföngum. Rétturinn gild-
ir í fimm ár og fellur niður við
starfslok. - jab
Straumur veitir
starfsfólki kauprétt
WILLIAM FALL
Verðbólga náði hámarki
sínu í janúar gangi eftir
spár IFS Greiningar og
Greiningar Glitnis. Spáð er
0,9 til 1,1 prósents hækkun
milli mánaða. Tólf mánaða
verðbólga hjaðnar veru-
lega á vormánuðum. Verð-
hjöðnun er líkleg á næstu
misserum.
Útsölulok setja mark sitt á næstu
verðbólgutölur að mati sérfræð-
inga greiningardeilda, en hún verði
18 til 18,3 prósent. Í janúar mæld-
ist verðbólgan 18,6 prósent. IFS
greining og Greining Glitnis birtu
í gær spár sínar fyrir yfirstand-
andi mánuð, en Hagstofa Íslands
birtir undir lok mánaðarins mæl-
ingu sína á verðbólgunni.
IFS greining er heldur bjartsýnni
á verðbólguþróunina, spáir 0,9
prósenta hækkun milli mánaða, en
gangi sú spá eftir verður 12 mán-
aða verðbólgan 18 prósent.
„Útsöluáhrif voru óvenju lítil í
síðasta mánuði og lækkaði verð á
fatnaði mun minna vegna þessa en
á sama tíma í fyrra. IFS greining
spáir því að að sama skapi muni
verð hækka minna nú vegna útsölu-
loka en oft áður. Að okkar mati
liggur ein mesta óvissan í þess-
um lið en vel er hugsanlegt að ein-
hverjir kaupmenn kjósi að hækka
verð umtalsvert eftir útsölur,“
segir í spá IFS Greiningar.
Greining Glitnis spáir held-
ur meiri verðbólgu og telur að
vísitalan hækki um 1,1 prósent í
febrúar. „Gangi spáin eftir mun
tólf mánaða taktur verðbólgu
verða 18,3 prósent og verðbólga
mæld með þeim hætti því hjaðna
um 0,3 prósentustig frá fyrri mán-
uði,“ segir í spánni.
Glitnir telur einnig að útsölu-
lok setji svip sinn á mælinguna,
en gert er ráð fyrir að föt og skór
hækki um ríflega 11 prósent.
„Áhrif útsöluloka á annan varn-
ing á borð við húsbúnað og tækja-
kost eru einnig nokkur. Við þetta
bætast áhrif af gengislækkun
krónu á seinni hluta síðasta árs. Á
hinn bóginn gerum við ráð fyrir að
húsnæðisliður vísitölunnar lækki
lítillega.“
Þá segir í spá Greiningar Glitn-
is að útlit sé fyrir hraða hjöðnun
verðbólgunnar þegar fram í sækir.
„Margt bendir nú til að hátindi
verðbólguskotsins sem staðið hefur
undanfarið ár sé loks náð. Ef spá
okkar um verðbólguþróun reynist
á rökum reist mun [vísitala neyslu-
verðs] hækka um tæpt prósentu-
stig samanlagt í mars og apríl.
Á sama tímabili í fyrra hækk-
aði [vísitalan] hins vegar um tæp
5 prósent, og því allar líkur á að
12 mánaða verðbólga hjaðni veru-
lega á vormánuðum.“ Áfram haldi
svo að draga úr verðbólgu og spáir
greiningardeildin því að hún verði
komin undir fimm prósent að ári
liðnu. „Á seinni hluta spátímans
teljum við að verðbólga reynist lítil
og raunar eru töluverðar líkur á að
verðhjöðnun eigi sér stað um skeið
einhvern tíma á næstu misserum.“
olikr@markadurinn.is
Í SMÁRALIND Gert er ráð fyrir ríflegri hækkun á fötum og skóm í kjölfar útsöluloka í
verðbólguspám greiningardeilda. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Verðbólgu spáð í
18 til 18,3 prósent
„Allir vilja vernda hagsmuni sína
og því dregst málið á langinn,“
segir Árni Tómasson, formaður
skilanefndar Glitnis, en sænska
fjármálaeftirlitið tók ekki afstöðu
til þess í gær hvort flytja ætti
íslenskar eignir sænska fjármála-
fyrirtækisins Moderna til heima-
haganna.
Moderna er dótturfélag Mile-
stone, félags bræðranna Karls og
Steingríms Wernerssona. Helstu
eignir sem skilanefndin horfir til
hér eru tryggingafélagið Sjóvá
og fjárfestingarbankinn Askar
Capital.
Milestone seldi Moderna allar
eignir hér í byrjun síðasta árs.
Eftir að skilanefnd Glitnis tók
félagið yfir hefur eignarhlutur
bræðranna verið færður í núll og
útséð með að þeir fái eitthvað úr
búinu.
Árni segir marga koma að máli
Moderna. Stærstu lánardrottnar
hafi samþykkt hugmyndir skila-
nefndar, sem vilji fá tíma til að
selja erlendar eignir. Sé nú beðið
eftir grænu ljósi frá sænska fjár-
málaeftirlitinu. Biðin geti tekið
marga daga, að hans sögn. - jab
HÖFUÐSTÖVÐAR SJÓVÁR Skilanefnd
Glitnis bíður eftir því að sænska fjár-
málaeftirlitið gefi græna ljósið á flutning
Sjóvár aftur heim. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Beðið eftir Svíum