Fréttablaðið - 17.02.2009, Side 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Páls Baldvins
Baldvinssonar
Álfélaginu á Íslandi er ekki lengur rótt. Álverð fer hríð-
fallandi á heimsmarkaði og
grynnkar stöðugt í vösum sem
geta lánað stórfyrirtækjum og
smáþjóðum milljarða til að byggja
ný álver og orkuver sem gefa af
sér ódýra orku á þriðjaheims-
verði fyrir málmbræðslur. Það er
tekið að súrna í augum álvinanna
íslensku og þá styttist þráðurinn.
SAMT þreyja þeir þorrann.
Áfram skal haldið framkvæmd-
um í Helguvík þótt orkan sé ekki
fengin enn, draumurinn á Bakka
fjarlægist stöðugt enda heima-
menn teknir að leita uppi nýja
möguleika: Þeistareykjasvæðið
skal eyðilagt. Fjármögnun á verk-
smiðju nyrðra og orkuveri fjarri,
en þingmenn sem hafa kokgleypt
áltrúna arga þá bara: hún skal
rísa samt.
FRÚ Ólöf Nordal, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, brást illa
við þegar á það var minnt í tilefni
af fyrirspurn hennar um frekari
framkvæmdir í álbræðslum: „Það
kæmi sko manni hennar ekkert
við að hún væri að spyrjast fyrir
um það,“ þrátt fyrir að hennar
mæti bóndi sé forstjóri Alcoa á
Íslandi og einn helsti erindreki
félagsins um nýjar bræðslur hér.
Áhugi frúarinnar á bræðslum var
honum alveg óviðkomandi, þótt
stærstur hluti framfærslu þeirra
hjóna komi úr sjóðum félagsins.
Nei, það voru engin tengsl þar
á milli. Hún var búin að gleyma
öllu um vanhæfni skyldra aðila til
að meta mál sem einhver kenndi
henni þó á sínum tíma í lögfræð-
inni. Svona getur stutt seta á þingi
leikið besta fólk: það gleymir
skils mun sóma og skammar.
ÓLÖF Nordal er algerlega van-
hæf til að fjalla á opinberum
vettvangi og þingi um öll mál er
snerta framtíð áliðnaðar á Íslandi
meðan bóndi hennar er í vinnu hjá
stærsta álframleiðanda í heimi.
Henni ætti aftur að vera ljúft og
skylt að sinna öðrum málum, eins
og til dæmis vernd náttúruvéa −
ekki bara gæta að vernd þeirra
fyrir stundarhagsmunum, heldur
líka langtímahagsmunum. Nema
henni sé „andskotans sama“. Það
væri gott fyrir kjósendur í Reykja-
vík að vita það, því hingað er hún
flutt með heimili sitt. Góðærið á
Austfjörðum dugði sumsé ekki til
að halda forstjórafrúnni eystra í
álblómanum sem þar spratt svo
snögglega og hvarf jafnhratt.
„Kemur mann-
inum mínum
ekkert við“
Í dag er þriðjudagurinn
17. febrúar 48. dagur ársins.
9.16 13.42 18.09
9.08 13.26 17.46
Faxafeni 5, Reykjavik og Skeiði 1, Ísafirði
Opi› virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 11-16
Fermingartilboð 2009
heilsurúm
Aðeins
kr. 10.330,- á mán.
vaxtalaust í 12 mán.
Fermingartilboð kr. 117.440,-
Stærð 120x200 cm. Fleiri stærðir í boði.
Chiro standard
heilsurúm
Aðeins
kr. 11.987,- á mán.
vaxtalaust í 12 mán.
Fermingartilboð kr. 136.640,-
Stærð 120x200 cm. Fleiri stærðir í boði.
Chiro Deluxe
heilsurúm
Aðeins
kr. 12.665,- á mán.
vaxtalaust í 12 mán.
Fermingartilboð kr. 144.640,-
Stærð 120x200 cm. Fleiri stærðir í boði.
Opið 07 til 02
Lyfja Lágmúla
- Lifið heil
www.lyfja.is