Tíminn - 17.01.1988, Side 3
Sunnudagur 17. janúar 1988
Tíminn 3
INNLENDIR ATBURÐIR
Heldur meira mun veiöast
af rjúpu í ár en á síöasta ári.
Ástæðan er frekar hagstæöari
veöurskilyrði en fjölgun í
stofninum.
Verð á loðnuafurðum batnar
á þessu ári.
Drifið veröur í því aö stofna
nýjan stjórnmálaflokk á árinu,
kenndan viö verkalýð.
íslensk kvikmynd vekur
mikla athygli á kvikmyndahátíð
( Frakklandi.
Sverrir Hermannsson fær
bankastjórastöðu.
íslendingar ákveða að
hætta hvalveiðum.
Gengi krónunnar verðurfellt
um miðjan febrúar.
íslendingar lyfta sér uPP
um nokkur sæti í Eurovision-
keppninni.
Alvarlegum giæpum
tengdum eiturlyfjum fjölgar
verulega á árinu.
Alvarlegum
umferðarslysum fækkar um
helming á þessu ári.
Eining innan
Sjálfstæðisflokksins fer heldur
vaxandi.
Ferðamönnum tii
íslands fjölgar um 15%.
Mánuðirnir febrúar-'mars
munu verða mjög harðir, óvenju
snjóþungir.
Stigið verður skref í því að
gera Reykjavík að miðstöð
friðar og sátta.
Farið verður þess á leit við
Ólaf Ragnar Grímsson að hann
Landinn sækir sig
í Evrópukeppni
sjónvarpsstöðva.
Hundaæði sprettur
upp á íslandi.
Nú verður reistl
nýtt álver i grennd
við Straumsvík.
reyni aö koma á sáttum milli
Irana og íraka.
Tekin verður ákvörðun um
frekari virkjanir, vegna nýja
álversins.
Hugmyndir um orkusölu
til Bretlands fá jákvæða
umfjöllun.
Nokkur eldsumbrot verða
á Kröflusvæðinu.
Jarðhræringar haida
áfram á Suðurlandi, mun meiri
en þessi órói sem varð árið
1987.
Söluhorfur á refa- og
minkaskinnum frá íslandi eru
alls ekki nógu góðar á þessu ári.
Upp kemur hundaæði á bæ
austur á landi; dreifist þessi
sjúkdómur nokkuð með refum.
Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, verður
endurkjörin, mótframboðslaust.
Líkur eru á að haffs verði við
strendur landsins í ár.
Gjaldþrotamálum
mun fara fjölgandi.
Sjóslysum mun fjölga á
árinu.
Skemmtistaður
brennur í Reykjavík, manntjón
hlýst af.
Valur verður fslandsmeistari
í knattspyrnu.
FH verður íslandsmeistari í
handknattleik.
íslenska
handknattleikslandsliðiö nær
einu af 3 efstu sætum í Seoul.
Heildarafli fiskveiða
verður meiri en nokkru sinni fyrr.
ERLENDIR ATBURÐIR
Stjórn Schluters í
Danmörku fer frá.
Leiðtogaskipti verða í
Kína.
Corazon Aquino verður
steypt af stóli á Filippseyjum.
Iranar ná borginni Basra.
Olíuverð á heimsmarkaði
hækkar á þessu ári.
Thatcher verður sýnt
banatilræði.
Keisaraskipti verða i
Japan.
Jarðskjálfti leggurborgir
og bæi í rúst í Kaliforníu.
Stórt flugslys verður í
Bandaríkjunum.
Járnbrautarslys
verður í Frakklandi.
Ronald Reagan fellur frá
rétt áður en kjörtímabili hans
lýkur.
George Bush verður kjörinn
forseti Bandaríkjanna.
Ráðstefna verður haldin
um deilumál Palestínumanna
og ísraela.
Grænlenska
landstjórnin nær samningum við
bandarísk hernaðaryfirvöld um
greiðslu vegna amerískra
herstöðva.
Tilraun verður gerð til
byltingar á Tyrkiandi.
Samningar um bann við
notkun efnavopna og
sýklavopna nást á árinu.
Stöðugleiki kemst á
dollarann.
Stefanía prinsessa frá
Monaco giftir sig á árinu.
Sambúð
Bandaríkjamanna og
Kúbumanna batnar á þessu ári.
Skriður kemst á iausn
Palme-morðsins.
Framhald
kvikmyndarinnar Back to the
Future (Aftur til framtíðar) eftir
Spielberg verður mest sótta
mynd vestan hafs á þessu ári.
Ástandið í Suður-Afrtku
versnar á þessu ári.
Tii beinna átaka kemur milli
bandaríska flotans og íranskra
byltingarvarða.
Reagan er þó ekki feigur...
„Júdas“ spáir að hann faili
frá (embætti.
Verða keisaraskipti í Japan?
Myndin er af hinum aidna
keisara Hirohito.
Bobby Fischer kemur nú aftur fram í sviðsljósið.
Andstaða við stefnu
Gorbatsjovs fer vaxandi innan
stjórnarkerfis Sovétríkjanna.
Hínn duiarfulli Paul Watson
snýr aftur.
Aukin samvinna
Bandaríkjamanna og Rússa
meö þátttöku Evrópsku
geimvísindastofnunarinnar mun
hefjast á árinu.
Undirritaður verður
samstarfssáttmáli um
sameiginlega mannaða
geimferð sem fyrirhuguð verður
um aldamót.
OvenjU miklirþurrkargeisa
í Afríku.
Stiórnarbylting
gerð í Argentínu.
verður
Friðarviðræður
hefjast milli ísraelsmanna og
Jórdana. Árangur verður
nokkur.
Terry Waite, sendimaður
bresku biskupakirkjunnar,
sleppur úr gíslingu.
Rajiv Gandhi,
forsætisráðherra Indlands,
neyðist til þess að segja af sér.
Bobby Fischer kemur aftur
fram í sviðsljósið.
Slæmt kjarnorkuslys verður
í Bandaríkjunum.
Leiðtogaskipti verða í
Chile.
Aðskilnaðarsamtök
Baska ráða af dögum mjög
háttsetta spánska persónu.
Idi Amin verður í sviðsljósinu
í ár.