Tíminn - 17.01.1988, Page 11

Tíminn - 17.01.1988, Page 11
Sunnudagur 17. janúar 1988 Tíminn 11 SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL lofa telpunni að horfa á sig hátta. Kausler kvaðst vita mætavel, að hann hefði gert miklu meira en það. Við ítarlegar yfirheyrslur játaði Rairdon að hafa fróað sér einum 20 sinnum fyrir framan telpuna, en daginn eftir hætti hann undanbrögð- um og viðurkenndi að hafa haft við hana samfarir allt að 60 sinnum á undanförnum fimm árum. Petta hafði gerst í útihúsum að mestu, en þó stöku sinnum inni, þegar enginn annar var heima. Næstu daga kom Rairdon oft til lögreglunnar og ræddi morð dóttur sinnar. Stundum sagði hann sem svo: Ég gæti hafa gert það, en man bara ekkert eftir því. Einu sinni fóru lögreglumenn með honum á staðinn, þar sem Sarah Ann hafði sést sein- ast. Hann lýsti fyrir þeim „einkenni- legri tilfinningu“ um staðinn og kvaðst líka fínna hana þar sem líkið fannst. En þegar hann var spurður beint um morðið, svaraði hann: Ef ég hefði gert það, hefði ég einmitt gert það svona. Það var ekki fyrr en 12. ágúst, eftir samtal við sálfræðing, að John Rairdon sagði lögreglunni, að hann myndi eftir að hafa myrt Söruh Ann, hann bað um að það yrði skýrt fyrir vinum hans í Underwood, hvernig svona lagað hefði getað gerst. Hann sagðist ekki muna allt í smáatriðum, en þó að hann hefði tekið telpuna upp í bílinn, þegar hún var á heimleið úr skólanum, ekið með hana að yfirgefnum bóndabæ, þar sem hann reyndi að hafa við hana samfarir. Þegar hún andæfði, kvaðst hann hafa tekið stóran al úr verkfærakassa sínum og stungið telpuna með honum í kviðinn, háls- inn og handieggina. Ég býst við að ég hafi drepið hana með alnum, sagði hann. Ég man að ég sá Söruh alblóðuga í grasinu. Líklega hef ég reynt að hafa mök við hana, en hún ekki viljað það. Síðan faldi hann líkið í útihúsi, en kom aftur seinna um kvöldið og sótti það og ók með það að framræslu- skurðinum, þar sem það fannst síðar. Þann 14. ágúst, eftir fimm daga strangar yfirheyrslur, var John Rair- don formlega ákærður fyrir morðið á dóttur sinni, Söruh Ann. Þá var gert opinbert, að lagt hefði verið hald á al úr verkfærakassa hans og að fundist hefði áverki á kviði líksins. Farið var með Rairdon í fangelsi í Fergus Falls og 100 þúsund dollara trygging sett. Mikill úlfaþytur varð í Underwo- od, þegar fréttist um ákæruna. Blað- ið með hryllingssögunni, sem fannst í skólabók Söruh, var afhent lög- reglustjóra og kona gaf sig fram, sem þekkti Söruh Ann vel og sagði að hún hefði gefið í skyn, að eitthvað væri ekki eins og ætti að vera um hagi sína. Ekki hafði hún þó tilgreint neitt sérstakt. Ættingjar Johns Rairdon sögðu lögreglunni, að hann væri alls ekki viss um, hvort hann hefði myrt telpuna. Óskiljanlegt væri, hvers vegna hann hefði játað. Hann vissi þó vel, að hann hefði haft mök við hana og það eitt nægði til lífstíðar- fangelsis. Hvers vegna hefði enginn tilkynnt að hafa séð bílinn hans við bóndabýlið? Þetta var dráttarbíll og mjög áberandi. Hefði hann ekki líka verið ataður blóði, eftir að hafa borið líkið inn í húsið? Hann var í sömu fötunum allan daginn, en hvergi var blóð að sjá. Þá hefðu sporhundar leitað við bóndabýlið fáum dögum síðar, en ekki fundið blóð. Þegar réttarhöldin hófust, í janúar 1986, lýsti Rairdon sig sekan um kynferðislega misnotkun dóttur sinnar, en ekki að hafa myrt hana. Sækjandinn sagði í ræðu sinni, að eftir fimm ára misnotkun, hefði Sarah Ann verið farin að átta sig á að þetta var ekki rétt og seinustu tvo mánuðina hefði hún vísað þreifing- Faðir Söruh, John Rairdon, gekk rösklega fram við leitina að henni, en sitthvað miður fallegt um hagi hans skaut upp kollinum. um föður síns á bug. Hann hefði þó ekki hætt, en hún jafnan svarað til, að hún vildi vera eðlileg telpa eins .ogaðrar. Þann 20. maí hefði Rairdon farið að sækja hana í skólann, ekið að býlinu og þar reynt að koma fram vilja sínum. Þegar telpan neitaði og til átaka kom, hefði Rairdon seilst eftir alnum úr kassa sínum og keyrt hann í kvið telpunnar. Þá lést Sarah Ann Rairdon. Við réttarhöldin kom sitthvað fram, m.a. að Sarah Ann hafði stundum spurt föður sinn, hvers vegna hún þyrfti að gera þetta með honum og hann þá svarað að það væri vegna þess að hann væri sjúkur maður. Fréttamaður bar að hafa spurt Rairdon hvort hann héldi að morðingi dóttur hans fyndist ein- hverntíma og hann þá svarað að varla liði á löngu og þá yrði allir hissa. Þá kom fram vitni, sem kvaðst hafa séð dráttarbíl Rairdons standa við auða býlið um hálf sjöleytið. Vitnið kvaðst ekki hafa gert sér grein fyrir þýðingu þess, fyrr en eftir að Rairdon var handtekinn. Rairdon hélt fast við það allan tímann, að hann myndi ekki eftir að hafa tekið telpuna upp í bílinn, eða hvernig hann fór með líkið í skurðinn. Sannanir voru þó nægar til að fullvissa kviðdóm um að hann væri í raun morðinginn og sækjandi sagði að það væri einkennileg tilvilj- un, að hann hafði misst minnið einmitt þær 45 mínútur, sem öllu máli skiptu. Þann 21. febrúar var John Rair- don sekur fundinn um morð að yfirlögðu ráði. Hann sýndi engin svipbrigði fyrst, en brosti síðan og spurði lögfræðing sinn, hvers vcgna hann væri ekki dæmdur strax. Það gerðist ekki fyrr en mánuði síðar og dómurinn hljóðaði upp á lífstíðar- fangelsi, með möguleika á náðun eftir 17 ár. BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 |ytökuf mmiri Vegna lækkunar á dollar að undanförnu hefur verðið á Chevrolet Monza SL/E og Monza Classic lækkað verulega. Komið og kynnist ríkulega búnum Monza bílunum með því að fara í reynsluakstur og kynnast frábærum aksturseiginleikum og mýkt. Verð frá kr. 529.000.-.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.