Tíminn - 04.03.1988, Page 4
4 Tíminn
Föstudagur 4. mars 1988
FRAMSÓKNARFÉLAGANNA Á AKRANESI
Wess
LAUGARDAGINN
12.3.8B
HÚSIÐ VERÐUR OPNAÐ KL. 19,30
HEIÐURSGESTIR:
STEINGRÍMUR HERMANNSSON
OG EDDA GUÐMUNDSDÓTTIR
VEISLUSTJÓRI:
ATLI FREYR GUÐMUNDSSON
SKEMMTIATRIÐI:
SÖNGFLOKKURINN OKTÍVA
OG HLJÓMSVEITIN GEIMSTEINN
LEIKUR FYRIR DANSI
TRYGGIÐ YKKUR MIÐA TÍMALEGA í SÍMUM:
GUDNI 12899, BJÖRN 12560, SIGRIDUR 12360 E.KL. 19
ALLIR fff
VELKOMIMIR
FELAG UNGRA FRAMSOKNARMANNA A AKRANESI
Útboð
Tilboð óskast í smíði síðari áfanga Póst- og
símahúss í Keflavík-Njarðvík, þ.e. lokafrágangur
innan húss. Verktími er frá 1. apríl til 15. júní n.k.
Útboðsgögn verða afhent á Fasteignadeild Pósts
og síma, Pósthússtræti 5, Reykjavík, og hjá
stöðvarstjóra Pósts og síma í Keflavík, gegn
skilatryggingu kr. 10.000.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Umsýsludeildar,
Landssímahúsinu í Reykjavík, fimmtudaginn 17.
mars n.k. kl. 11.00 árdegis.
Póst- og símamálastofnunin
BLIKKFORM
Smiðjuvegi 52 - Sími 71234
Öll almenn blikksmíðavinna, vatnskassavið-
gerðir, bensíntankaviðgerðir, sílsalistaráalla
bíla, (ryðfrítt stál), og einnig nælonhúðaðir í
öllum litum.
Póstsendum um allt land.
______(Ekið niður með Landvélum)_
Umboðsmenn
óskast
Tímann vantar umboðsmenn á eftirtalda staði:
Húsavík, Dalvík, Neskaupstað og Seyðisfjörð.
Upplýsingar í síma 91-686300.
Til sölu
100 paraðar minkalæður.
Upplýsingar eftir kl. 7 á kvöldin í síma 96-43916.
Héraðsþing H.S.K. haldið um síðustu helgi í Félagslundi
Bændaglíma Suður-
lands vakti athygli
Jón Helgason ráðherra í ræðustól. Við hlið hans þingforsetarair Ingibjörg
Marmundsdóttir og Helgi Stefánsson og hinumegin Guðmundur Kr.
Jónsson, form. HSK. Fremst Unnur Stefánsdóttir.
Héraðsþing H.S.K. var haldið um
síðustu helgi, dagana 27. og 28.
febrúar, í Félagslundi í Gaulverja-
bæjarhreppi. Um 90 fulitrúar sátu
þingið, stjórn sambandsins og all-
margir gestir.
Þrjú ný félög gengu í H.S.K. á
þessu þingi: Knattspymufélagið ERN-
IR á Selfossi, Knattspyrnufélagið
ÆGIR - Starfssv. Eyrarb., Stokks-
eyri, Þorláksh., ÍÞRÓTTADEILD
Hestam.félagsins Sleipnis, Selfossi
og Flóa.
Þrjátíu og sex aðildarfélög eru nú
í Héraðssambandinu Skarphéðni
með um 4000 félaga.
íþróttirnar voru umfangsmesti
þátturinn í starfi H.S.K. á síðasta ári
og bar þar hæst hin glæsilega þátt-
taka og eftirminnilegi árangur sem
félagar í Skarphéðni náðu á lands-
móti ungmennafélaganna á Húsavík
sl. sumar. í vandaðri ársskýrslu sem
lögð var fram í byrjun héraðsþings-
ins er greint frá hinu fjölþætta og
þróttmikla starfi sem fer vaxandi
með hverju árinu.
Helstu mál sem þingið tók til
umfjöllunar og afgreiðslu voru
íþróttamál, fjármál og framtíðar-
skipan félagsstarfsins.
Samþykkt var áminnig til alþing-
ismanna, foreldra og ungmennafé-
laga, „...vegna framkomins bjór-
frumvarps á Alþingi, að neysla
áfengis og vímuefna og íþróttastarfs
fer ekki saman...“
Að kvöldi fyrri þingdagsins var
kvöldvaka í umsjá Umf. Samhygðar.
Þar fór m.a. fram BÆNDAGLIMA
SUÐURLANDS, - önnur í röðinni
haldin í minningu Sigurðar Greips-
sonar, glímukappa, heiðursfor-
manns H.S.K. og skólastjóra
íþróttaskólans í Haukadal.
Keppendur voru 10 í hvoru liði,
Reykjavíkurúrvali glímukappa,
heimabóndi Ólafur H. Ólafsson og
H.S.K., heimabóndi Már Sigurðs-
son.
Var glíman knálega sótt og varin
og bragðfimir glímugarpar drógu
ekki af sér, enda óspart hvattir af
áhugasömum áhorfendum. Yfir-
dómari var Rögnvaldur Ólafsson,
en glímustjóri Hafsteinn Þorvalds-
son. Hann flutti ávarp og minntist
Sigurðar Greipssonar með hlýhug
og virðingu í upphafi bændaglím-
unnar.
Lauk henni á þann veg að heima-
menn fólu gestum sínum úr Reykja-
vík SIGURÐARBIKARINN til
varðveislu í eitt ár (bikarinn er gjöf
frá U.M.F.Í.). Verðlaunaskjöl frá
Í.S.Í. hlutu keppendur allir að leiks-
lokum.
Á kvöldvökunni fór einnig fram
afhending verðlauna - árlegt
„Sleifarmót" H.S.K., „Þvottakon-
ur“ sungu og Gísli Halldórsson,
bóndi flutti frumort ljóð. Einnig
sýndu skólabörn - yngstu félagarnir
í Umf. Samhygð, einn þátt úr Gullna
hliðinu, eftir Davíð Stefánsson.
Vésteinn Hafsteinsson, Selfossi, var
kjörinn ÍÞRÓTTAMAÐUR
ÁRSINS, hlaut hann 102 stig (frjáls-
ar íþróttir), Magnús Már Ólafsson,
Þór, hlaut 85 stig (sund) og Þórdís
Gísladóttir, Selfossi, hlaut 79 stig
(frjálsar íþróttir).
Umf. Selfoss hlaut flest stig sam-
tals á sl. ári 183. Umf. Hrunamanna
hlaut 119 stig og Umf. Laugdæla
91,5 stig.
Sigurvegari á Sleifarmótinu og
handhafi sleifarinnar frægu þetta ár
er Unnur Stefánsdóttir, Samhygð.
Héraðsþinginu lauk síðdegis með
afgreiðslu mála og stjórnarkjöri, síð-
ari þingdaginn. Einnig var þá slegið
á „léttari strengi“ - og tilnefndur
„Matmaður þingsins", Halldóra
Gunnarsdóttir, Umf. Baldri Hr.
Forveri hennar frá síðasta ári færði
henni góða gjöf í tilefni dagsins.
Héraðsþing þetta mun vera það
fjölmennasta í sögu H.S.K. frá upp-
hafi - var mjög vel undirbúið og bar
glöggt vitni um það þróttmikla starf
sem unnið er að á vegum H.S.K. og
ungmennafélaganna á Suðurlandi
um þessar mundir.
Meðal gesta er ávörpuðu þingið
var Jón Helgason, landbúnaðarráð-
herra, Eggert Haukdal, alþingis-
maður, forystumenn Ungmenna-
sambands íslands og íþróttasam-
bands íslands og margir fleiri.
Formaður H.S.K. var endurkjör-
inn Guðmundur Kr. Jónsson, Sel-
fossi.
Framkvæmastjóri er Halldóra
Gunnarsdóttir, Skeggjastöðum.
Stjas.
Stund milli stríða. Félagar í Háskólakómum hvfla raddböndin á æflngu í Tjamarbíói nýverið.
Háskólakórinn meö tónleika í Langholtskirkju:
Forspilið að Disneyrímum
Næstkomandi sunnudag, 6. mars,
kl. 21.00 heldur Háskólakórinn sína
árlegu tónleika í Langholtskirkju.
Efnisskrá tónleikanna er fjöl-
breytt. Sungin verða nokkur lög úr
Disneyrímum eftir Árna Harðarson,
stjórnanda kórsins, sem hefur samið
tónlist við samnefndar rímur Þórar-
ins Eldjárns. Þess má geta að Hásk-
ólakórinn flytur Disneyrímur í heild
sinni á síðustu dögum marsmánaðar.
Á tónleikunum syngur kórinn ein-
nig: „Waka“ eftir Jónas Tómasson,
„Tvö smálög“ eftir Karólínu Eiríks-
dóttur og lög úr „Raddir á daghvörf-
um“ eftir Kjartan Ólafsson, sem
kórinn frumflutti fyrir tveimur árum.
Að auki verða sungnir madrigalar
og stúdentalög. óþh