Tíminn - 04.03.1988, Side 11
Föstudagur 4. mars 1988
Tíminn 11
ilinilillll iprúttir iiii:viMiiiih.iiiiiiiiiiii!ii'v;:iiiiiiiiiiiH:j'iiiiiiiiii;i^iiiiii;iiii;;';;iiiiB^^ í;||||||||||!|viiiiiiiiii!i:i-11111111:1.;i!iiiiiiiin::i;lllllllli|•^lllllllll;niiiiiiii^viiiiiiiiiiir'iiiiiiiiiiiiii^iiiiiiiiH/iiiiiiiiiiiiiJiiiiiiiiiiiii^jiiiiiiiiiiiiíiiiiiiiB^^ .....................................................................................................
ÍR-ingar eiga framundan erfiðan
útiieik í 8-liða úrslitum bikarkeppn-
innar í körfuknattleik á mánudag-
inn. Þá verður síðari leikur þeirra
gegn UMFG, í Grindavík. Liðin
skiidu jöfn í Seljaskólanum í gær-
kvöldi, 63-63, eftir mikinn hasar og
læti, og byrja þvi á sama stað í seinni
leiknum og þeim síðarí, á núlli.
Grindvíkingar komust yfir einu
sinni í leiknum í gærkvöldi, 2-0.
Eftir það höfðu heimamenn foryst-
una en Guðmundur Bragason jafn-
aði leikinn þegar 10 sekúndur voru
til leiksloka og ÍR-ingum tókst ekki
að bæta við.
Hraðinn í þessum leik var gífur-
legur, hávaðinn óskaplegur, mistök-
in ótalmörg og áhorfendur skemmtu
sér hið besta. Bæði lið léku ágætan
varnarleik, ÍR-ingar svæðisvörn og
Grindvíkingar maður-á-mann og
bæði lið sýndu oft á tíðum skemmti-
leg tilþrif í sókninni. Það er að segja
þegar þeir gáfu sér tíma til að staldra
við í sókn. Mikinn hluta leiksins var
alls ekkert stillt upp heldur þeyst í
hraðaupphlaup í báðar áttir. Inn á
milli komu kaflar þar sem leikmenn
hittu mjög vel en á heildina var
hittnin ekkert sérstök.
Karl Guðlaugsson stjórnaði leik
ÍR-inga af öryggi og skoraði mikið
úr hraðaupphlaupum. Jón Örn
Guðmundsson var einnig öruggur
og Ragnar Torfason lék vel í fyrri
hálfleik. Hjá Grindavík fór Guð-
mundur Bragason á kostum í síðari
hálfleik og átti teiginn bókstaflega
einn í vörninni. Hann tók ógrynnin
öll af fráköstum. Rúnar Árnason og
Eyjólfur Guðlaugsson áttu einnig
góða spretti.
Helstu tölur: 0-2, 5-2, 5-5, 9-9,16-11, 20-13,
26-19, 26-25, 28-27, 33-27 - 36-30, 41-39,
50-40, 55-48, 55-54, 61-54, 61-59, 63-59, 63-
63.
Stigin, ÍR: Karl Guðlaugsson 19, Jón Örn
Guðmundsson 16, Ragnar Toríason 13, Bjöm
Steffensen 10, Jóhannes Sveinsson 5, Vignir
Hilmarsson 2. UMFG: Rúnar Árnason 15,
Guðmundur Bragason 14, Eyjólfur Guðlaugs-
son 10, Hjálmar Hallgrímsson 6, Jón Páll
Haraldsson 5, Steinþór Helgason 5, Ólafur
Þór Jóhannsson 4, Guðlaugur Jónsson 2.
Dómarar: Jón Otti ólafsson og Ómar
Scheving, góðir.
UMFN.a-UBK 96-51 (47-27)
Frá Margréti Sanders fréttaritara Tímans
í Njarðvík:
Leikurinn var jafn í byrjun en
Njarðvíkingar sigu jafnt og þétt
framúr. Eftir mjög góðan leik í
upphafi síðari hálfleiks höfðu Njarð-
víkingar algjöra yfirburði þrátt fyrir
að allir þeirra varamenn spiluðu
talsvert og þeir sigruðu 96-51, með
55 stiga mun. Það má því hiklaust
fullyrða að Blikarnir eru úr leik.
Bræðurnir Gunnar, Teitur og
Sturla Örlygssynir spiluðu allir með
Njarðvíkurliðinu og skoruðu allir,
samtals 33 stig. Jafnræði var með
liðsmönnum Njarðvíkinga í þessum
leik en Hannes Hilmarsson var best-
ur í liði UBK.
Helstu tölur: 23-13, 30-19. 41-23, 47-27 -
61-27, 76-39, 87-47, 96-51.
Stigin, UMFN.a: Teitur örlygsson 16, Val-
ur Ingimundtuson 16, Ami Lárusson 12,
Helgi Rafnsson 12, Ellert Magnússon 10,
Sturla örlygsson 9, Hreiðar Hreiðarsson 8,
Friðrik Ragnarsson 7, Gunnar örlygsson 6.
UBK: Hannes Hilmarsson 17, Guðbrandur J.
Stefánsson 10, Kristján Rafnsson 8, ólafur
Adolfsson 6, óskar Baldursson 4, Sigurður
Bjamason 4, Kristinn Albertsson 2.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og Jóhann
Dagur Bjömsson. Slakir.
UMFN.b4iaukar 51-71 (27-33)
„Gömlu mennirnir" náðu foryst-
unni í upphafi leiks en Haukar
komust yfir fyrir hlé og voru yfir eftir
það. Það var gaman að sjá hversu
sprækir Njarðvíkingarnir eru enn en
úthaldið brást þeim þó er á leið.
Þorsteinn Bjarnason (knattspyrnu-
markvörður ÍBK) var bestur í b-liði
UMFN en Henning Henningsson
hjá Haukum.
Framarar fjær
falldraugnum
Frá Jóhannesi Bjarnasyni á Akureyri:
Framarar sigruðu Þórsara með 34
mörkum gegn 20 í fallbaráttuleik á
Akureyri í gærkvöldi. Þórsarar voru
tæpast með í þessum leik sem var
nánast alger einstefna að marki
þeirra. Framarar voru greinilega
ákveðnir í að tryggja sér bæði stigin
og strax á fyrstu mínútum var orðið
ljóst hvert stefndi. Framarar skiptu
öllu byrjunarliðinu útaf í síðari hluta
seinni hálfleiks en það skipti engu
máli, munurinn jókst jafnt og þétt.
Leikurinn í heild var ekki mikið
fyrir augað, til þess voru yfirburðir
gestanna allt of miklir.
Birgir Sigurðsson spilaði ekki síð-
ustu 18 mínúturnar en skoraði eigi
að síður 12 mörk. Þórsarar voru
afleitir svo ekki sé meira sagt en
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson var
skárstur.
Helstu tölur: 2-0, 4-1, 9-2, 12-5, 14-8, 16-8
- 34-20.
Mörkin, Fram: Birgir Sigurðsson 12, Atli
Hilmarsson 9, Hannes Leifsson 6(4), Júlíus
Gunnarsson 2, Egill Jóhannesson 2, Sigurður
Rúnarsson 2, Ragnar Hilmarsson 1, Hermann
Bjömsson 1. Jens Einarsson varði 13(1) skot
en Guðmundur Arnar Jónsson 5. Þór: Sigur-
páll Ámi Aðalsteinsson 8(4), Erlendur Her-
mannsson 3, Gunnar Gunnarsson 2, Jóhann
Samúelsson 2, Hörður Sigurharðarson 1,
Kristján Kristjánsson 1, Sigurður Pálsson 1,
Ingólfur Samúelsson 1, Sœvar Amason 1.
Staðan: FH 27 stig, Valur 24, VOángur 18.
UBK 17, Stjaman 16, KR 13, Fram 11, KA 10,
tR 10, Þór 0.
Helstu tölur: 2-2, 13-6, 15-15, 22-22, 27-33,
- 34-37, 34-46, 41-51, 51-71.
Stigin, UMFN.b: Þorsteinn Bjarnason 22,
Júlíus Valgeirsson 7, Stefán Bjarkason 6,
Brynjar Sigmundsson 5, Gunnar Þorvarðar-
son 4, Gunnar Guðmundsson 4, Guðsteinn
Ingimarsson 3. Haukar: Henning Hennings-
son 20, Ivar Asgrímsson 15, Pálmar Sigurðs-
son 12 (allar þriggja stiga), Skarphóðinn
Eiríksson 9, Tryggvi Jónsson 6, Rúnar Guð-
jónsson 4, Sveinn Steinsson 3, Ingimar Jóns-
son 2.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og Jóhann
Dagur Bjömsson. Slakir.
- HÁ
Barátta ■ háloftunum en eins og oft
áður er það Guðmundur Bragason
sem nær að teygja sig í knöttinn,
hér á undan Birgi Steffensen. Hann
átti stórleik, einkum í vörninni, í
SÍðarí hálfleik. 'iímamynd l'jelur.
Bikarkeppnin í körfuknattleik, 8-liða úrslit:
Islandsmotið í handknattleik, 1. deild:
Byrjað á núlli í
seinni leiknum
- ÍR-ingar og Grindvíkingar skildu
jafnir í miklum baráttuleik í Seljaskóla
Molar... molar...molar...molar...molar...molar...molar...molar...
■ÁTAKÍ
LANGHLAUPAÞJÁLFUN
Stjórn FRÍ hefur ákveðið að
gera sérstakt átak í að efla íslenska
millivegalengda- og langhlaupara
á næstu árum. Er þetta þáttur í
þeirri viðleitni stjómar FRI að efla
frjálsíþróttir í landinu. Verður val-
inn hópur hlaupara sem fá sérstaka
aðhlynningu og þjálfarí verður val-
inn til að hafa umsjón með
hópnum. Liður í átakinu er þátt-
taka í erlendum víðavangs- og
götuhlaupum og hefur stjórnin
ákveðið að senda sveit til þátttöku
í Víðavangshlaupi heimsins í Stav-
angrí í Noregi vorið 1989 en það er
heimsmeistaramót í víðavangs-
hlaupum.
■FIMM KEPPA í VER0NA
Stjóm FRÍ hefur í tengslum við
það átak sem sagt er frá hér að ofan
tilkynnt þátttöku fimm manna
sveitar í götuhlaup á ftalíu 28. maí
n.k. Er þar um að ræða Evrópubik-
arkeppni í götuhlaupi þar sem
hlaupnir eru 16 km á götum Ver-
ona. Þrír fyrstu hlauparamir í
hverju liði teljast þar til stiga í
sveitakeppni liðanna.
■NM UNGLINGA í
BADMINT0N
íslendingar verða meðal þátttak-
enda á Norðurlandamóti unglinga
í badminton sem hefst í dag í
Tönsberg í Noregi. Keppnin hefst
með landskeppni þar sem
Norðmenn, Finnar og Islcndingar
keppa innbyrðis og eiga íslending-
ar góða möguleika á sigrí þar. Tvö
efstu liðin úr þeirrí keppni dragast
síðan á móti Dönum eða Svíum.
Sigurvegarar þeirra viðureigna
keppa um Norðurlandameistaratit-
ilinn í liðakeppni og mun vera talið
nær öruggt að þar verði um Svia og
Dani að ræða. I einstaklingskeppn-
inni er Njáll Eysteinsson talinn
eiga besta möguleika fslending-
anna. Auk hans keppa á mótinu
Jón Zimsen, Óli Zimsen, Birna
Petersen, öll úr TBR, og Berta
Finnbogadóttir og Hafdís Böðvars-
dóttir úr ÍA.
■SKEMMTISK0KK
HÁSKÓLANS0G
STJÖRNUNNAR
Skemmtiskokk Háskóla fslands
og útvarpsstöðvarinnar Stjörnunn-
ar fer fram á morgun, laugardag,
og hefst kl. 14.00 við aðalbyggingu
Háskóla ísiands. Öllum er heimil
þátttaka gegn greiðslu 100 kr.
skráningargjalds. Hlaupnir verða
5 km í einstaklings og sveitakeppni.
Skráning fer fram kl. 12.00-13.30
samdægurs.
■ARSENALKLÚBBUR
Arsenalklúbburinn á íslandi hef-
ur undanfarin 4 ár staðið fyrir
hópferðum á knattspyrnuleiki til
Lundúna í þeim tilgangi að svala
knattspyrnuþorsta landans í svart-
asta skammdeginu. Nú er enn
haldið af stað og liggur leiðin á
Wembley þar sem horft verður á
úrslitaleik Arsenal og Luton í
deildabikarkeppninni 24. apríl.
Arsenalklúbburinn hefur í sam-
vinnu við Flugleiðir skipulagt ferð-
ina og fengið 20 miða í sæti. Farið
verður laugardaginn 23. apríl og
komið heim þriðjudaginn 26. apríl.
Verð kr. 21.750.- (flug, hótel,
morgunmatur) og 800 kr. miðinn.
Allar upplýsingar á skrífstofutíma
hjá Suðurgarði á Selfossi s. 99-
1666.
■EVRÓPUMEISTARA-
MÓT G0LFKVENNA
Á AKUREYRI
Ákveðið hefur verið að halda
eitt af opnum mótum golfsam-
bands atvinnumanna í kvenna-
flokki á Akureyri dagana 4.-7.
ágúst n.k. Kostnaðaráætlun hljóð-
ar upp á 5,5 milljónir króna og þar
af nemur verðlaunafé 3,5 milljón-
um. Búist er við að allt að 80 af
bestu golfkonum heims taki þátt í
mótinu jafnframt því sem íslenskar
konur hafa þátttökurétt nái þær 5
í forgjöf. Það verður því væntan-
lega mikið um að vera í ágúst á
Jaðarsvellinum sem mun vera
nyrsti viðurkenndi golfvöllur í
heimi.
■ÓLAFUR LEIKUR
MEÐKR
Ólafur Viggósson knattspyrnu-
maður hefur ákveðið að ganga til
liðs við KR-inga. Ólafur hefur
fram til þessa leikið með Þrótti
Neskaupstað. Hann var í unglinga-
landsliðinu ■ fyrra og hefur leikið 8
u-18 landsleiki og 7 u-16. Ólafur
var markahæstur í liði Þróttar N. í
fyrrasumar, skoraði 10 mörk.
■ÍÞRÓTTAFERDIR
TIL ÚTLANDA
Ferðaskrifstofan Úrvai efnir á
næstunni til tveggja íþróttaferða.
Sú fyrrí er til Chicago þar sem
fylgst verður með NBA-körfubolt-
anum. Fararstjóri er Finar Bolla-
son. Chicago Bulls leika tvo leiki
meðan á heimsókninni stendur,
fyrst gegn LA Lakers og síðan
gegn San Antonio Spurs sem Pétur
Guðmundsson leikur með. Seinni
ferðin er knattspymuferð til
Stuttgart. Þar verður Ingólfur
Hannesson fararstjóri og verður
horft á leik Stuttgart, sem Ásgeir
Sigurvinsson leikur með, og Wer-
der Bremen.