Tíminn - 04.03.1988, Side 16
16 Tíminn
Föstudagur4. mars 1988
Inga Þyrf
91-641714
Arndfs
99-6396
Dagbjört
93-86665
'A AO ,
/V/ý/"//V ,yj
4* pii
(T,€7 ‘ ^
Norrænt kvennaþing
Norrænt kvennaþing verður haldið í Osló 31. júlí - 7. ágúst n.k. að
tilstuðlan ráðherranefndar Norðurlandaráðs.
LFK mun í samvinnu við miðflokkakonur á Norðurlöndunum standa
fyrir verkefni er nefnist KONUR OG STÖRF í DREIFBÝLI:
Undirbúningshópur LFK hefur tekið til starfa og eru þær sem hafa
áhuga á að taka þátt í undirbúningi og/eða koma með okkur á þingið
í Osló beðnar um að hafa samband sem fyrst við Margréti í síma
91-24480 kl. 9-12 eða einhverja úr undirbúningshópnum.
LFK
Framsóknarvist
Framsóknarvist verður haldin sunnudaginn 6.
marz n.k. að Rauðarárstíg 18 (Hótel Lind) kl. 14.
Veitt verða þrenn verðlaun karla og kvenna.
Verð aðgöngumiða er kr. 350 (kaffiveitingar inni-
faldar).
Alfreð Þorsteinsson, formaður Framsóknarfélags
Reykjavíkur, flytur stutt ávarp ( kaffihléi.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Rabbfundir LFK í kjördæmum
Landssamband framsóknarkvenna gengst fyrir rabbfundum I kjör-
dæmunum f samvinnu við konur á hverjum stað. Fundir verða sem
hér segir:
Norðurland eystra, Akureyri fimmtudaginn 3/3 kl. 20.30, að Hafnar-
stræti 90.
Húsavík, laugardaginn 5/3 kl. 14.00 í Félagsheimilinu.
Stjórnmálaviðhorfið
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Inga
Jónfna
Kópavogur miðvikudaginn 9. mars
kl. 20.30, að Hamraborg 5.
Vestmannaeyjar
laugardaginn 12. mars.
Vestfirðir, helgin 19.-
20. mars. Nánar aug-
lýst síðar.
Allar velkomnar
Unnur
Úlfhildur
Unnur
Magdalena
GuðmundurG. Þórarinsson al-
þingismaður og Finnur Ingólfs-
son, formaður Fulltrúaráðs
Framsóknarfélaganna í
Reykjavík, verða frummæl-
endur á almennum fundi
mánudaginn 7. mars n.k. kl.
20.00 að Rauðarárstfg 18
(Hótel Lind).
Guðmundur G.
Finnur
lllllllllllllllllllllll DAGBÓK illlllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
„Með álfum og tröllum"
3. bekkur Leiklistarskóla íslands frum-
sýnir í dag, föstud. 4. mars kl. 14:00,
barnaleikritið „Með álfum og tröllum"
eftir Staffan Vesterberg. Þýðandi er Úlfur
Hjörvar, leikstjóri er Kári Halldór, en
leikmynd og búninga gerði Messíana
Tómasdóttir. Ólafur Örn Thoroddsen
hannaði lýsingu.
Þetta er ævintýraleikrit um strákinn
Jóakim og ferð hans um ævintýralönd og
hulduheima.
Uppselt er á frumsýninguna í kvöld, en
laugardag og sunnudag verða tvær sýning-
ar á dag: kl. 14:00 og 16:30 og má panta
í síma 21971. í þeimsímamáfáupplýsing-
ar um sýningar næstu viku.
í 3. bekk Leiklistarskólans eru: Bára
Magnúsdóttir, Christine Carr, Elva Ósk
Ólafsdóttir, Helga Braga Jónsdóttir,
Ólafur Guðmundsson, Sigurþór Albert
Heimisson, Steinn Ármann Magnússon
og Steinunn Ólafsdóttir.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun laugardaginn
5. mars. Lagt verður af stað frá Digranes-
vegi 12 kl. 10:00.
„Laugardagsrölt Hana nú er góð byrjun
á góðri helgi fyrir unga og aldna. Sam-
vera, súrefni, hreyfing. Nýlagað mola-
kaffi," stendur í fréttatilkynningu frá
Frístundahópnum Hana nú í Kópavogi.
íslenska óperan
Sýning verður á óperunni Don Gio-
vanni eftir W.A. Mozart verður á sunnu-
dagskvöld kl. 20:00
Sýning verður á Litla sótaranum í dag,
föstudaginn 4. mars kl. 17:00 og á sunnu-
daginn 6. mars kl. 16:00.
Hlutavelta í Kópavogi
Kirkjufélag Digranesprestakalls heldur
hlutaveltu á morgun, laugardaginn 5.
mars kl. 14:00 í safnaðarheimilinu Bjarn-
hólastíg 26 í Kópavogi.
Góðir vinningar, - engin núll. Miðinn
kostar 50 kr.
„Komið og freistið gæfunnar og styrkið
gott málefni um leið,“ segir að lokum f
fréttatilkynningu Kirkjufélagsins.
Þingvallakirkja
Fjölskylduguðsþjónusta á æskulýðs-
degi kl. 14:00. Órganleikari er Einar
Sigurðsson.
Sóknarprestur
Frá Sjóminjasafni íslands
í Hafnarfirði
Frá og með 1. október verður safnið
opið um helgar kl. 14:00-18:00.
Skólafólk og hópar geta skoðað safnið
á öðrum tíma ef þess er óskað, og er hægt
að panta tíma í síma 52502 alla daga
vikunnar.
í safninu er áfram sýningin er byggir á
„fslenskum sjávarháttum" Lúðvíks Kris-
tjánssonar auk fastra safnmuna, en auk
þess er hægt að fá að sjá myndböndin
„Silfur hafsins" og „Lífið er saltfiskur".
Aðalfundur NLFR
Aðalfundur Náttúrulækningafélags
Reykjavíkur verður haldinn í Templara-
höllinni við Skólavörðuholt, á morgun,
laugardaginn 5. mars kl. 14:00.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundar-
störf, endurskoðun laga félagsins og flutt
verður erindi um lífræna ræktun. Guð-
finnur Jakobsson, garðyrkjufræðingur og
bóndi í Skaftholti, talar um lífræna rækt-
un eða framleiðslu matvæla með aðferð-
um náttúrunnar sjálfrar. Hann fjallar
einnig um kosti og galla þessarar fram-
leiðsluaðferðar, meðhöndlun matvæla,
geymslu þeirra og ómenguð matvæli.
Aðgangur er takmarkaður við þá sem
verið hafa á félagatali frá síðustu áramót-
um, eru skuldlausir við félagið eða ævifé-
lagar.
FREYR - Búnaðarblað
í þessu 3. tbl. 84. árg. af Frey er m.a.
rætt um fiskeldi og ritstjórnargreinin
fjallarum möguleika fiskeldis hér á landi.
Þá er viðtal við Óskar ísfeld Sigurðs-
son, ráðunaut B.í. í fiskeldi. Birt er
erindi sem Sveinbjörn Dagfinnsson ráðu-
neytisstjóri flutti á fundi á Hvanneyri sl.
sumar.
„Minkabúið í næsta mánuði, mars“ er
fyrirsögn á þýddri grein eftir danskan
ráðunaut í loðdýrarækt, og önnur eftir
norskan sérfræðing sem nefnist „Ábend-
ingar fyrir pörunartíma refa“.
Minnispunktar við vetrarrúning nefnist
grein Emmu Eyþórsdóttur ullarmatsfor-
manns. Einnig eru ritfregnir, bréf til
blaðsins o.fl.
Á forsíðu er mynd sem tekin er við
fóðrun á eldisfiski hjá Þórslaxi á Patreks-
firði.
Hesturinn okkar
1 forystugrein þessa blaðs kveður rit-
nefnd sú sem að undanförnu hefur séð um
útgáfu blaðsins, en önnur tekur við.
Þá kemur Annáll '87 og Kappreiðaann-
áll frá einstökum félögum víðs vegar um
landið og fylgja margar myndir. Þá er sagt
frá 38. ársþingi L.H.
Jens Einarsson skrifar greinina: Ég
skora á ykkur að ná sáttum. - Enn um val
á landsmótsstað. Leifur Kr. Jóhannesson
skrifar: Að gefnu tilefni, en greinina
skrifar hann sem svar við forystugrein
eftir Kristján Guðmundsson í 5. tbl.
Hestsins.
Forsíðumynd J.E. er tekin í Gunnars-
hólma við Reykjavík.
ÚTVARP/SJÓNVARP
Föstudagur
4. mars
6.45 Veöurtregnir. Bæn, séra Hjalti Guömundsson
flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsáriö með Má Magnússyni. Frétta-
yfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forustugreinum
dagblaðanna að loknu fróttayfirliti kl. 8.30.
Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og
9.00. Finnur N. Karlsson talar um daglegt mál
laust fyrir kl. 8.00.
9.00 Fróttir.
9.03 Morgunstund barnanna: „Sykurskrímsl-
ið“ eftir Magneu Matthíasdóttur. Höfundur
lýkur lestrinum (4).
9.30 Dagmál Umsjón: Sigrún Björnsdóttir.
10.00 Fróttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Gakktu með sjó Þáttur í umsjá Ágústu
Björnsdóttur.
11.00 Fréttlr. Tilkynnlngar.
11.05Samhljómur Umsjón: Bergþóra Jónsdóttir.
(Einnig útvarpað að loknum fróttum á miðnætti).
12.00 Fréttayfirlit. Tónlist. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfróttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist.
13.35 Miðdegissagan: nGististaðiru eftir Sol-
veigu von Schoultz Sigurjón Guðjónsson
þýddi. Þórdís Arnljótsdóttir les síðari hluta.
14.00 Fróttir. Tilkynningar.
14.05 Ljúflingslög Svanhildur Jakobsdóttir kynnir.
(Einnig útvarpað aðfaranótt miðvikudags að
loknum fróttum kl. 2.00).
15.00 Fróttir.
15.03 Þingfróttir
15.15 Þjóðarhagur - Umræðuþáttur um efna-
hagsmál (2:3). Umsjón: Baldur Óskarsson.
(Endurtekinn þáttur frá mánudagskvöldi).
16.00 Fróttir.
16.03 Dagbókln Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarplð Baldvin Píff leynilögregla er
ennþá að störfum og kemur í heimsókn ásamt
góðvini sínum Skara símsvara. Umsjón: Vern-
harður Linnet og Sigurlaug M. Jónasdóttir.
17.00 Fróttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Borodin, Fauró, Ketle-
by, Rubinstein og Strauss.
a. Dansar úr óperunni „Igor fursti“ eftir Alexand-
er Borodin. Útvarpshljómsveitin í Múnchen
leikur; Esa-Pekka Salonen stjórnar. b. Þrjár
rómönsur án orða eftir Gabríel Fauré. Kathryn
Stott leikur á píanó. c. „Á persneskum markaði"
eftir Albert Ketleby. Promenade hljómsveitin í
Lundúnum leikur. Ambrosian kórinn syngur.
Alexander Faris stjómar. d. Valse-caprice eftir
Anton Rubinstein. Leslie Howard leikurá píanó.
e. Dans glaðværu lukkudýranna eftir Albert
Ketleby. Michael Reeves leikur á píanó með
Promenade hljómsveitinni í Lundúnum. Alex-
ander Faris stjórnar. f. „Hið Ijúfa llf“, valsar op.
272 eftir Josef Strauss. Johann Strauss hljóm-
sveitin leikur; Jack Roth stjórnar.
. 18.00 Fróttir.
18.03 Hringtorgið Sigurður Helgason og Óli H.
Þórðarson sjá um umferðarþátt.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál Endurtekinn þáttur frá morgni sem
Finnur N. Karlsson flytur.
Þlngmál Umsjón: Atli Rúnar Halldórsson.
20.00 Blásaratónliat Tríó í Es-dúr op. 40 fyrir
píanó, fiðlu og hom eftir Johannes Brahms.
Christoph Eschenbach, Eduard Drole og Gerd
Seifert leika.
20.30 Kvöldvaka a. Ljóð og saga Kvæði ort út af
íslenskum fomritum. Fjórði þáttur: „Þorkell í
Hraundal" eftir Jón Magnússon. Gils Guð-
mundsson tók saman. Lesari: Baldvin Halldórs-
son. b. Elísabet Erlingsdóttir syngur lög eftir
Þórarin Jónsson. Guðrún A. Kristinsdóttir leikur
með á píanó. c. „Gekk óg yfir sjó og land" Sóra
Kristján Róbertsson les úr ným' bók sinni um
íslenska mormóna sem fluttust til Vesturheims.
d. „Greniskógurinn" tónverk eftir Sigursvein D.
Kristinsson við Ijóð Stephans G. Stephansson-
ar. Söngsveitin Fílharmonía, Sinfónluhljóm-
sveit íslands og Halldór Vilhelmsson flytja;
Marteinn H. Friðriksson stjórnar. e. Laxamýri
um aldamótin Sólveit Pálsdóttir les úr minning-
um Ólínu Jónasdóttur. Fyrsti þáttur. Kynnir:
Helga Þ. Stephensen.
22.00 Fróttir. Dagskrá morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma Sóra Heimir Steinsson
les 28. sálm.
22.30 Víanakvöld Gísli Helgason kynnir vísnatón-
list.
23.10 Andvaka Þáttur í umsjá Pálma Matthíasson-
ar. (Frá Akureyri).
24.00 Fréttir.
24.10 Samhljómur Umsjón: Bergþóra Jónsdóttir.
(Endurtekinn þáttur frá morgni).
01.00 Veðurfregnir. Næturúrvarp á samtengdum
rásum til morguns.
01.00 Vökulögin Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fróttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fróttir af
veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
7.03 Morgunútvarpið Dægurmálaútvarp með
fróttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fróttum kl. 8.00
og 9.00. Veðurfregnir kl. 8.15. Leiðarar dagblað-
anna að loknu fróttayfirliti kl. 8.30. Rás 2 opnar
Jónsbók kl. 7.45. Margvíslegt annað efni:
Umferðin, færðin, veðrið, dagblöðin, landið,
miðin og útlönd sem dægurmálaútvarpið á rás
2 tekur fyrir þennan dag sem fyrri daga vikunnar.
- Leifur Hauksson, Egill Helgason og Sigurður
Þór Salvarsson.
10.05 Mlðmorgunssyrpa Umsjón: Kristín Björg
Þorsteinsdóttir.
12.00 Á hádegi Dægurmálaútvarp á hádegi hefst
með yfirliti hádegisfrétta kl. 12.00. Sími hlust-
endaþjónustunnar er 693661.
12.20 Hádeglsfréttir
12.45 Á milll mála Umsjón: Rósa Guðný Þórsdótt-
ir.
16.03 Dagskrá Dægurmálaútvarpið skilar af sór
fyrir helgina: lllugi Jökulsson fjallar um fjölmiðla.
Annars eru stjórnmál, menning og ómenning í
víðum skilningi viðfangsefni dægurmálaút-
varpsins í síðasta þætti vikunnar í umsjáÆvars
Kjartanssonar, Guðrúnar Gunnarsdóttur, And-
reu Jónsdóttur og Stefáns Jóns Hafsteins.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Kvöldtónar Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Snúningur Skúli Helgason ber kveðjur milli
hlustenda og leikur óskalög.
24.10 Reykjavíkurskákmótið. Jón Þ. Þór segir
fróttir af 9. umferð 13. Reykjavíkurskákmótsins.
Síðan heldur Skúli Helgason Snúningi áfram.
02.00 Vökulögin Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Fróttir kl. 2.00 og 4.00 og sagt
frá veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og
6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00,
17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands
18.30-19.00 Svæðisútvarp Austurlands Umsjón:
Inga Rósa Þórðardóttir.
Föstudagur
4. mars
17.50 Ritmálsfréttir.
18.00 Engisprettan í borginni (Cricket in Time
Square) Bandarisk teiknimynd um afrek og
ævintýri engisprettu nokkurrar. Þýðandi Ragnar
Ólafsson.
18.25 Fuglalíf (Vi ser pá dyr - Fugler ved fjell og
vann) Norsk fræðslumynd um ýmsar fuglateg-
undir. Þýðandi og þulur Nanna Gunnarsdóttir.
(Nordvision - Norska sjónvarpið)
18.40 Klaufabárðarnir Tékknesk brúðumynd fyrir
börn.
18.55 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Steinaldarmennirnir Bandarískteiknimynd.
Þýðandi Ólafur B. Guðnason.
19.30 Staupasteinn Bandarískur * gamanmynda-
flokkur. Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 ÞlngsjáUmsjónarmaðurHelgi E. Helgason.
20.55 Annir og appelsínur Nemendur Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja. Umsjónarmaður Eiríkur
Guðmundsson.
21.25 Derrick Þýskur sakamálamyndaflokkur með
Derrick lögregluforingja sem Horst Tappert
leikur. Þýðandi Veturiiði Guðnason.
22.25 Skelfingarstundir (The Desperate Hours)
Bandarísk bíómynd frá 1955. Leikstjóri William
Wyler. Aðalhlutverk Humphrey Bogart, Fredric.
March, Martha Scott, Arthur Kennedy og Gig
Young. Myndin er gerð eftir sannsögulegum
heimildum og fjallar um strokufanga sem heldur
fiölskyldu sinni í helgreipum óttans. Þýðandi
Oskar Ingimarsson.
00.20 Útvarpsfréttlr í dagskrárlok.