Tíminn - 07.04.1988, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 7. apríl 1988
Tíminn 19
SPEGiLL
.íí!!!".................................. ............
iiiiíii
T eigen
“Glasnost“ heitir lagiö í ár, og er eftir Rolf
Lövland, - sem samdi „La det swinge“
Hann Jahn Teigen tekur nú þátt í Evrópusöngvakeppni fyrir
Noregs hönd í áttunda sinn. Hann hefur afrekað það að verða
sigurvegari í keppninni - og reyndar 4 árum síðar - að fá vera neðstur
og fá ekkert stig!
hinn norski í
Evrópusöngva-
keppni í 8. sinn!
Það var árið 1974 að Teigen tók
fyrst þátt í söngvakeppninni og söng
lagið „Hvor er du?“, sem varð þá
sigurlag. Hann sagði að allt umstang-
ið og lætin með sigurvegarann hefði
orðið hálfgert
áfall fyrir sig. Hann hefði alls ekki
gert sér grein fyrir því hvað sigurinn
hefði í för með sér.
1976
Beinagrindarbún-
ingurinn, sem
JahnTeigen söng
í vakti hneyksli,
enda hafði hann
ekki verið sam-
þykktur heima í
Noregi. Þá söng
Jahn „Vodoo“ og
vildi vera klæddur
i samræmi við
galdralagið.
- Lag sem kcmst í úrslit í söngva-
keppninni þarf að vera alveg
sérstakt. Á þremur mínútum hlustar
dómnefnd og áheyrendur á lagið og
á að gcra sér grein fyrir því. Það
verður því að vera einfalt en gríp-
andi, segir Jahn Teigen nýlega í
blaðaviðtali. Hann bætti því við, að
hann tæki þessa söngvakeppni mjög
alvarlega og hann væri ánægður með
að taka nú þátt í 8. sinn.
- Lagið mitt í ár er fínt, scgir
Jahn, og nafnið er alþjóðlegt.
„Glasnost" heitir lagið, og við vinn-
um það saman Rolf Lövland og ég,
- en það var einmitt Rolf sem samdi
sigurlagið „La det swinge“ fyrir
Bobbysocks um árið, svo ég er
vongóður.
■I082 söng hann ástardúett
JrtSS SKorgan, eo pau aoogu
mikið saman.
1978
™eð axlaböndin'utanTwf9en 1 París
Lagið var Mil n yflr PeVsunni.
fékk 0 sHgf6tter mi,“ °9 hann
l983Komfntram.
söngvakeppnm nokkrum
Wenche Myhre oy
sætum steipum-
Með eina dýrmæta pillu í
lofanum, sem hefur fært
henni bata, - en lyfið hefur
orðið svo mörgum til skaða,
að það er á bannlista.
Hlýtur lækningu
af bönnuðu lyfi
Nancy Hood er breskur unglingur sem þjáist af all sérstæðum
sjúkdómi, sem fclst í því að húð hennar þolir ekki útfjóluhláa geisla
sólarinnar og hleypur húðin upp í sársaukafullum blöðrum hvenær
sem geislar sólarinnar komast í færi við hana.
Nancy fór fyrst að finna fyrir
þessum sjúkdómi þegar hún var
10 ára gömul. f fyrstu var haldið
að hér væri um exem að ræða en
þrátt fyrir miklar rannsóknir sem
staðið hafa nær samfellt í þrjú ár
tókst læknum ekki að ráða bót á
meini hennar. Það var ekki fyrr
en leitað var til færustu sérfræð-
inga í ofnæmislækningum í Bret-
landi að uppgötvaðist að hún
væri haldin ofnæmi fyrir sólarljósi
og eina lyfið sem hægt var að gefa
henni til að halda sjúkdómnum í
skefjun var thalidomide sem
bannað var á sjöunda áratugnum
í Bretlandi og víðar. Bannið kom
til af því að sannað þótti að ef
vanfærar konur tóku lyfið, ylli
það því að barnið yrði vanskap-
að.
Árangurinn lét ekki á sér
4fstanda. Strax vikuna eftir að
Nancy hóf að taka inn lyfið varð
húðin á henni eins og hún átti að
vera undir venjulegum kringum-
stæðum. Hún þarf þó að búa við
þá óvissu að yfirvöld í Bretlandi
leggi blátt bann við innflutningi
lyfsins og hún þurfi aftur að
hverfa inn á bak við þykk glugga-
tjöldin eða að flytjast burt frá
Bretlandi til einhvers lands sem
leyfir notkun thalidomide.