Tíminn - 19.05.1988, Blaðsíða 3

Tíminn - 19.05.1988, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 19. maí 1988 Tíminn 3 v K y f .* Bein Gísla Þorlákssonar biskups og Grou Þorleifsdottur, konu hans, flutt til rannsóknar í Reykjavík: Fundu hjörð Galdra- níkamsleifar Hóla- biskupa og biskupafrúa hafa verið færðar úr sameiginlegri gröf þeirra undir kirkjugólfinu að Hólum í Hjalta- dal og fluttar suður í Reykjavík til aldursákvörðunar og grein- ingar. Upphaflega lágu þær ekki í sömu gröf, en þeim hefur að öllum líkindum verið safnað þar saman þegar hin nýja kirkja var reist rétt fyrir 1760. Hólakirkju er um þessar mundir verið að endurbæta að innanverðu og færa í upprunalegt horf. Vænst er að því ljúki í september á þessu ári og hefja megi framkvæmdir við hana utanverða á næsta ári. Nýverið var komið niður á kist- una, þegar grafið var fyrir hita- og loftræstistokkum framan við kórinn og fram með norðurveggnum. Trú- legt er að grafir biskupa og annars tignarfólks séu undir nær allri kirkj- unni. Sr. Sigurður Guðmundsson, vígslubiskup að Hólum, segir, að beinin verði aftur jarðsett undir kirkjunni að fornleifarannsókn í Reykjavík lokinni. Hólabiskupahjörð hefur áður ver- ið ónáðuð. Galdra-Loftur nam við Hólaskóla frá árinu 1716 til 1722. í þann tíma vakti hann biskupana upp, því að hann girntist Rauð- skinnu, - þá mögnuðu galdrabók, sem Gottskálk biskup grimmi lét grafa með sér undir kirkjunni 1520. Sneri Loftur blessunarorðunum og faðirvori upp á andskotann, svo að kirkjan hrikti öll og lék á reiðiskjálfi, en allir hinir gömlu biskupar stigu úr gröfum sínum og ávörpuðu hann. Þegar Loftur hugðist særa Gottskálk grimma til að láta af hendi Rauð- skinnu við sig lá við sjálft að kirkjan sykki undan særingarstefunum. Varð þá til bjargar, að lagsmaður Lofts sem fylgdi honum í kirkjuna tók í sama bili í klukkustrenginn og hringdi bjöllunum. Hvarf allt þá ofan í gólfið. Síðar var hróflað við gröfunum við byggingu nýju kirkjunnar, breyt- ingar á henni seint á nítjándu öld og aftur nú, þegar gerð er tilraun til að færa kirkjuna nær sinni upphaflegu mynd. Mjöll Snæsdóttir, fornleifa- fræðingur hjá Þjóðminjasafninu, sá um fomleifagröft á Hólum, en fleiri grafir en þessi eina verða ekki rann- sakaðar. Til þess vantar fé. Grjót verður því lagt í gólfið undir eins og það hentar. „í lítilli holu, sem við grófum, sáum við merki um fjórar grafir þétt saman, en hreyfðum aðeins eina,“ segir Mjöll. „Þar var mikil og heilleg kista með nokkrum skrautskjöldum og í henni voru bein sex rnanna." Ein beinagrindin lá í réttri legu á kistubotni en önnur bein voru safn og sem fyrr segir líklega flutt í kistuna við breytingarnar. í tvo skildi af níu alls, sem sumir voru máðir, höfðu upphafsstafir í nafni hinna látnu verið grafnir. Þar var skjöldur með stöfunum GTD og ártalinu 1660, sem má ætla að geti verið Gróa Þorleifsdóttir, fyrsta kona Gísia Þorlákssonar biskups, sem var þríkvæntur, en 1660 er dánarár hennar. Þá bar annar skjöid- ur upphafsstafi biskups sjálfs, HGTs, - herra Gísli Þorláksson. Teiknuð mynd af biskupi og konum hans er á fimm þúsund króna seðilsins. Sr. Sigurður Guðmundsson, vígslubiskup að Hólum í Hjaltadal, í anddyri Hólakirkju, þar sem gólfíð allt hefur Það fylgdi því einkennileg tilfínning að handfjatla morknaðar fjalir úr kÍStum Hólabiskups. (Timinn: Pjetur) „Það er afar sennilegt, að skildirn- ir eigi við það fólk, sem á bein í kistunni," segir Mjöll. „Tveir skildir, verið grafíð upp. sem voru sömu stærðar og skildir Gróu og Gísla biskups, höfðu ekki áletrun en voru einvörðungu með kristilegu skrauti. Mér dettur í hug, að þeir hafi fylgt hvorum hinna skjaldanna. Enn voru leifar af tinskildi, sem var ilia farinn, en á honum mátti sjá að letrað hafði verið ANNO 1710. Það er dánarár Björns Þorleifssonar biskups og ekki óhugsandi að hann eigi einhver þau bein, sem flutt höfðu verið í kistuna. Ekki er vitað hver upphaflega var grafinn í þessari kistu og lá í réttri legu.“ - Hafa biskupar vitjað fornleifa- fræðingsins í draumi og viljað láta færa bein sín aftur í vígða mold að Hólum? „Nei,“ svarar Mjöll, „og ég held þeir hafi ekki birst Hólamönnum heldur." þj 15 ára drengur á seglbretti í vand- ræðum milli Akraness og Reykjavíkur: Velktist í sjó í sex klukkutíma -Fimmtán ára drengur lenti í mestu vandræðum í gærdag, er hann hugðist ieika sér á seglbretti fyrir utan Akranes. Drengurinn kunni nefnilega ekki nógu mikið fyrir sér í íþróttinni og hraktist á haf út og endaði för sína í Reykjavík, liðlega sex klukkustundum eftir að hann hélt frá Iandi. Drengurinn iagði af stað um hádegisbil frá Akranesi, en til hans sást frá Akraborginni um klukkan 15. Stuttu síðar voru skyidmenni hans farin að hafa áhyggjur af honum og var skipulögð lcit hafin skömmu síðar. Að sögn Sigurþórs Gunnarsson- ar, varaformanns sjóflokks björg- unarsveitarinnar Ingólfs. héldu alls níu bátar á haf út til að leita að drengnum. Tveir bátar fóru frá Akranesi, fjórir frá Reykjavík, einn frá Kjalarnesi, einn frá Sei- tjarnarnesi og einh frá Sandgcrði. Héldu bátarnir upp á Kjalarnes og hófu þar breiðleit. Hringt var á alla bæi á Kjalarnesi og talað við alla báta sem voru á svæðinu. Um klukkan hálf sjö kom síðan tilkynning frá fiskibúti á leið til Reykjavíkur, en drcngurinn hafði þá húkkað sér far mcð bátnum síðuslu mílurnar. Verðkönnun Tilboð óskast í ca. 10.000m2 af túnþökum vegna Gatnamálastjórans í Reykjavík. Túnþökurnar skulu vera lausar við húspunt. Annað illgresi eins og snarrótarpuntur má ekki vera yfir 5% af flatarmáli þeirra. Túnþökurnar skulu afhentar á brettum víðsvegar um borgina. Tilboð berist skrifstofu vorri eigi síðar en miðviku- daginn 25. maí n.k. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 Aðalbókari Staða aðalbókara við embættið er laus til umsókn- ar. Frekari upplýsingar um starf og starfskjör veitir undirritaður. Umsóknum um starfið skal skila á skrifstofu mína fyrir 16. júní n.k. Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli 16. maí 1988 Umboðsmenn óskast Tímann vantar umboðsmenn á eftir- talda staði: Dalvík, Húsavík og Ólafsvík. Upplýsingar í síma 686300 (Afgreiðsla Ólöf).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.