Tíminn - 19.05.1988, Side 5
Fimmtudagur 19. maí 1988
Tíminn 5
Fyrirspurnir viðskiptaráðherra virðast hvergi liggja formlega fyrir en:
Bankarnir svara ekki
erindi Jóns Baldvins
Viðskiptabankarnir hafa ekki svarað beiðni fjármálaráðherra,
Jóns Baldvins Hannibalssonar, og munu trúlega ekki svara þeirri
fyrirspurn beint hvernig gjaldeyriskaupum þeirra var háttað
síðustu daga fyrir gengisfellingu í síðustu viku. Segjast banka-
stjórar skilja stöðuna svo að starfsmenn fjármálaráðuneytis hafí
nú snúið fyrirspurnum sinum til gjaldeyriseftirlits Seðlabankans.
Þar á bæ mun hafa verið ákveðið þegar í fyrradag að keyra úr
tölvum eftirlitsins yfirlit um gang viðskiptanna þessa síðustu daga
fyrir gengisfellingu. Samkvæmt þeim tölum sem Tíminn hefur
afíað sér er Landsbankinn stærstur í kaupunum, Útvegsbanki
íslands hf. jafn stór gjaldeyriskaupandi og Búnaðarbankinn og
Iðnaðarbankinn er einnig mjög stór kaupandi. Þá er einnig Ijóst
að Seðlabankinn hefur orðið af um 250 milljóna króna gróða af
gengisfellingunni, ef miðað er við 10% hagnað af þeim 2,5
milljörðum króna sem runnu út þessa viðburðarríku daga.
Tilflutningur hagnaðarins í þessari lotu varð því frá Seðlabanka
til fyrirtækja og einstaklinga.
Hjá flestum viðskiptabönkunum
mun gangur mála hafa verið sá að
fyrirtæki og einstaklingar virðast
hafa keypt gjaldeyri fyrir milljarða
á miðvikudaginn og víðskiptabank-
arnir leyst út gjatdeyri hjá Seðla-
banka jafnóðum. Stafar þessi hálf-
sjálfvirka þróun af því að bankarn-
ir eru skyldugir til að viðhatda
ákveðnu gjaldeyrisjafnvægi, eigna
og skulda, innan sinna veggja.
Próun þessi leiddi til þess að veru-
lega var gengið á gjaldeyrisforða
Seðlabankans. Augljós ágóði
Seðlabankans af gjaldeyriseign
sinni við gengsfellingu varð því
hverfandi iítill og alls ekki til þess
að ná niður skuldum frá tímum
fastgengisstefnunnar. Upplýstir
forsvarsmenn fyrirtækja og ein-
staklingar hafa því orðið fyrri til að
haga seglum sínum eftir vindum
gengisbreytinganna.
Ekki liggur fyrir enn nákvæm-
lega hversu mikið hver banki um
sig leysti út af gjaldeyri hjá Seðla-
banka. Samkvæmt heimildum
Tímans mun Landsbankinn hafa
keypt fyrir um 850 milljónir þrjá
síðustu daga fyrir gengisfellingu,
Búnaðarbankinn fyrir um 500 mill-
jónir króna og Útvegsbankinn um
hálfan milljarð króna einnig. Stærð
Útvegsbankans er meðal annars
fólgin í því að Verslunarbankinn
kaupir í gegnum hann. f>að kemur
á óvart að Iðnaðarbankinn er mjög
stór kaupandi og er talið að Iðn-
lánasjóður eigi þar stærstan hlut. f
gær munu bankarnir hafa skilað
inn skýrslum um jafnvægi í gjald-
eyriseign og kemur þar fram hvort
bankarnir hafa verið að kaupa
meiri gjaldeyri heldur en þeir selja
viðskiptavinum sínum sama dag.
Að sögn bankastjóra ríkisbank-
anna mun það ekki vera gert í
Landsbanka og Búnaðarbanka.
Hins vegar vekur það furðu að
einn af minnstu og yngstu bönkum
landsins fytgi svo fast á eftir stærstu
bönkunum í innkaupunt. Gjald-
eyriseftirlit mun einnig fara yfir
skýrslur frá tollstjóra til að meta
jafnvægisreikninga.
Helgi Bergs, bankastjóri Lands-
bankans, sagði að staðan væri ein-
faldlega sú að þeir litu svo á að
formleg beiðni um upplýsingareft-
ir styttri leiðum hafi aldrei borist
°8 liggi því ekki fyrir. Þó mun
starfsmaður fjármálaráðuneytis
hafa haft samband við bankann
símleiðis og óskað eftir þessum
upplýsingum. Sagðist hann hafa
skilið það svo að fjármálaráðuneyt-
ið hafi nú snúið sér til gjaideyriseft-
irlits Seðlabankans.
Jón Adolf Guðjónssón, banka-
stjóri Búnaðarbankans, segir að
þeir hafi allir orðið mjög hissa á
fyrirspurnum ráðuneytismanna.
Hann liti svo á að engin fyrirspurn
lægi nú fyrir, hvorki formleg né
óformleg, en ráðuneytið hafi snúið
sér að því að leita upplýsinga eftir
venjulegum leiðum.
Tryggvi Pálsson, bankastjóri
Verslunarbankans, sagði að þeir
veittu að sjálfsögðu allar þær upp-
lýsingar sem áskildar eru sam-
kvæmt gjaldeyrisreglum. Sagði
Tryggvi að þeir hjá Verslunarbank-
anum hafi ekki fengið beiðni um
þessa sérstöku úttekt í gær og þeir
vissu til þess að þessar upplýsingar
lægju nú þegar fyrir í gjaldeyriseft-
irlitinu.
Sigurður Jóhannesson, forstöðu-
maður gjaldeyriseftirlits Seðla-
bankans, sagðist í gær ekki hafa
fengið neina beiðni frá fjármála-
ráðuneytinu um upplýsingar vegna
fjárstreymis í síðustu viku. Þeirhjá
eftirlitinu ynnu eingöngu að því að
fylgjast með því að lög um gjald-
eyrisviðskipti væru virt af við-
skiptabönkunum. Þeim væri t.d.
ekki heimilt að kaupa rhikið meiri
gjaldeyri en til daglegra nota gagn-
vart viðskiptavinum sínum. KB
Þóröur Friðjónsson, forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar, um biðina eftir hliðarráðstöfunum:
Hver aagur dýrkeyptur
„Það er hætt við því að gagnsemi hliðarráðstafana verði þeim mun
minni því seinna sem þær verða framkvæmdar. Hver dagur getur
skipt máli,“ sagði Þórður Friðjónsson, forstöðumaður Þjóðhags-
stofnunar, í samtali við Tímann í gær. Steingrímur Hermannsson,
utanríkisráðherra sagði að engin samstaða hafí enn náðst milli
stjórnarflokkanna um hliðarráðstafanir, og því Ijóst að enn líða
nokkrir dagar þar til hliðarráðstafanir koma til framkvæmda.
„Best hefði verið að gera þessar
ráðstafanir samhliða gengisbreyting-
unni,“ sagði Þórður. „Það er dálítið
erfitt að meta það hversu mikilvæg
tímasetningin er, það ræðst meðal
annars af því hvað verður gert þegar
þar að kemur. En væntanlega eru
aðilar efnahagslífsins núna þessa
dagana að taka ákvarðanir sem
skipta máli þegar líða tekur á árið.
Þeir eru að taka þessar ákvarðanir í
ljósi óvissu um þessar efnahagsráð-
stafanir. Þetta getur dregið úr gagn-
semi ráðstafananna."
Eins og fyrr segir hafa stjómar-
flokkarnir ekki enn náð neinu sam-
komulagi um hliðarráðstafanirnar.
„Það er brýnast að þeir komi sér
saman um sínar aðgerðir. Það er
vonandi að það fari að takast," sagði
Steingrímur Hermannsson í samtali
við Tímann í gær. Hann sagðist gera
ráð fyrir áframhaldandi viðræðum
næstu daga. Ríkisstjórnarfundur
hefur verið boðaður í dag og þar
verður málið væntanlega rætt.
Það slitnaði upp úr viðræðum
milli ríkisstjórnarinnar og ASÍ í gær.
„Það kom mér ekki á óvart,“ sagði
Steingrímur „Staðreyndin er sú að
það er afar erfitt, ef ekki útilokað,
fyrir verkalýðshreyfinguna að svara
þeim spurningum sem fyrir hana
hafa verið lagðar um ógerða samn-
inga. Það er erfitt fyrir hana að
semja um afnám rauðra strika, sem
var reyndar alls ekki byrjað að tala
um. Eg mundi fagna því fyrstur
manna ef það næðist allsherjar
samstaða með verkalýðshreyfingu
Þórður Friðjónsson, forstððnmaður
Þjóðhagsstofnunar.
Steingrímur Hermannsson, formað-
ur Framsóknarflokksins.
og aðilum vinnumarkaðarins um
efnahagsmálin. Það hefur því miður
ekki tekist hingað til,“ sagði Stein-
grímur. Að sögn hans náðist ekki
samkomulag við ASÍ um neinar
aðgerðir en hann vonaðist til þess að
viðræðurnar yrðu teknar upp aftur.
ASÍ gaf út yfirlýsingu í gær eftir
að slitnað hafði upp úr viðræðunum.
„Fulltrúar ASÍ og landssamband-
anna innan þess ítrekuðu vilja sinn
til efnislegra viðræðna við ríkis-
stjórnina um það hvernig skuli
bregðast við þeim vanda sem við er
að etja,“ segir í yfirlýsingunni.
“Ríkisstjórnin hafnaði hins vegar
slíkum viðræðum nú og gerði það að
skilyrði áframhaldandi viðræðna að
umræður snúist einvörðungu um
ákvæði kjarasamninga. Umræðum
um aðra þætti er vísað frá, að svo
stöddu... Alþýðusambandiðharmar
þessa afstöðu ríkisstjórnarinnar því
öll eigum við mikið undir því að vel
takist til og breið samstaða náist í
þjóðfélaginu um þær aðgerðir sem
gripið verður til.“ JIH
Eldsvoði í Mjóddinni:
ÍKVEIKJA?
Slökkviliðið í Reykjavík fékk
klukkan 17.38 í gær tilkynningu frá
lögreglu um að húsið Álfabakki 10
væri alelda. Fjórir bílar fóru á stað-
inn ásamt sjúkrabifreið. Efsta hæð
hússins hægra megin var þá alelda,
en sú staðreynd að eldur var líka
kominn upp yst til vinstri í húsinu,
þó að tvö óbrunnin þil væru þar á
milli, bendir ótvírætt til að um
íkveikju hafi verið að ræða.
Slökkvistarfinu var að mestu lokið
rétt fyrir klukkan 18.30 og þegar
slökkviliðið var að ganga frá búnaði
sínum, kom tilkynning um annan
eldsvoða, að þessu sinni í þvottahúsi
ríkisspítalanna að Tunguhálsi. Þar
hafði kviknað eldur milli laga í þaki
og leikur grunur á að kviknað hafi í
út frá rafmagnsofni. Tókst með snar-
ræði að forða stórbruna. -SÓL
Talsverðar skemmdir urðu á húsn-
æðinu að Álfabakka 10. Tíminn Gunnar.