Tíminn - 27.05.1988, Blaðsíða 5

Tíminn - 27.05.1988, Blaðsíða 5
Föstudagur 27. maí 1988 Tíminn 5 Unnið að rannsókn á þætti legionnaires í nokkrum dauðsföllum lasburða fólks: Hermannaveiki orðið vart á íslenskum sjúkrahúsum Á undanförnu einu og hálfu ári hafa veriö staðfest 8 tilfelli af hermannaveiki (legionnaires) á fjórum spítölum hér á landi. Nú er unnið að rannsókn á því hvort þó nokkur nýleg dauðsföll á einni af sjúkrastofnun höfuðborgarsvæðisins megi rekja til her- mannaveiki. Guðjón Magnússon, aðstoðarlandlæknir, sagði í samtali við Tímann að menn teldu ekki útilokað að þarna væru tengsl á milli. Hann sagði það Ijóst að ekki væri um að ræða algenga bakteríu á íslenskum sjúkrastofnunum. „Þetta lýsir sér ekki eins og víða erlendis þar sem hermannaveikibakterían hefur borist í gegn um loftræstikerfí og heilbrigt fólk þannig veikst af hermannaveikinni,“ sagði Guðjón. Aðstoðarlandlæknir sagði að mál þetta væri nú á mjög viðkvæmu stigi þarsem verið væri að rannsaka það á umræddri sjúkrastofnun. Hann sagði sýni hafa verið tekin, en niðurstöður úr greiningu þeirra lægju enn ekki endanlega fyrir. „Það er ekki talið að um hermannaveiki sé að ræða í öllum þessum tilfellum, en rannsóknin beinist að því hvort hún hafi hugsanlega átt þátt í ein- hverjum þessara dauðsfalla," sagði Guðjón. Hann sagði að til umræðu hafi komið í upphafi rannsóknarinnar að loka umræddum spítala, en það sé ekki lengur inni í myndinni, vegna þeirra upplýsinga sem þó þegar liggi fyrir. Hermannaveiki er tiltölulega ný- uppgötvaður sjúkdómur sem í sinni alvarlegustu mynd lýsir sér í heiftar- legri lungnabólgu sem getur leitt til dauða. Sjúkdómurinn var fyrst greindur í Fíladelfíu í Bandaríkjun- um árið 1976. Á ráðstefnu sem fyrrverandi hermenn sátu á hóteli við Bond Street, veiktust tæplega 200 manns af þessari veiki og dregur hún nafn sitt af þessum atburði. í ljós kom að bakterían dreifðist í gegnum loftræstikerfi í anddyri hótelsins. Síðan hefur verið staðfest að veikin hafði blossað upp áður á nokkrum stöðum án þess að menn gerðu sér grein fyrir því að um hermannaveiki var að ræða. f grein í Læknanemanum fyrir u.þ.b. fimm árum um hermanna- veikina eftir þá Sigurð B. Þorsteins- son og Ólaf Steingrímsson lækna, kemur fram að sjúklingar með skert- ar varnir eru margfalt líklegri til að sýkjast en heilbrigðir einstaklingar. í þeirri grein kemur einnig fram að veikin er greind með blóðvatnsprufu og þegar greinin var skrifuð var ekki vitað um tilfelli veikinnar hér á landi. Lokaorð höfunda eru þau að „sjúkdómurinn greinist hér aldrei nema menn viti af honum og geri þær rannsóknir, sem nauðsynlegar eru til að útiloka hann.“ Ekki tókst að ná tali af greinarhöfundum í gær. Smitunarleið hermannaveikinnar er óljós en talið er að auk loftræsti- kerfa geti hún borist með vatnslögn- um og bendir flest til að svo sé í þessum tilfellum hér á landi. Loks má geta þess að á Lyflækna- þingi íslands sem haldið verður á ísafirði í byrjun næsta mánaðar mun hermannaveiki á íslandi m.a. verða til umræðu. BG/ABÓ/óþh. íbúar Árborgarsvæðisins svokallaða, Eyrarbakka, Stokkseyrar, Þorlákshafnar og nágrannasveitarfélaganna, bíða opnunardags nýrrar brúar yfir Ölfusárósa með eftirvæntingu. Ekki er Ijóst á þessari stundu hvenær sá dagur muni koma, en miðað er við að 1. ágúst nk. verði öllum framkvæmdum lokið við sjálfa brúarsmíðina svo og 8 km veg frá brúnni að Þorlákshafnarvegi. Þá er einungis eftir lagning varanlegs slitlags á þennan vegarkafla. Ölfusárbrúin verður fullfrágengin um 370 m löng og breidd akbrautar er um 6,5 m. Að vonum eru sveitarstjórnar- menn á Árborgarsvæðinu nú þegar famir að spá í hvaða áhrif tilkoma brúarinnar hefur á þróun þess, m.a. hvort möguleiki sé á auknu samstarfi byggðarlaganna. í því skyni er áformaður fundur sveitarstjórnar- manna á þessu svæði í næstu viku. Magnús Karel Hannesson, oddviti á Eyrarbakka, segir aukna eftirspurn hafa verið eftir húsnæði á Eyrar- bakka að undanförnu, hvort sem það tengist tilkomu nýju Ölfusár- brúarinnar eða ekki. „Það má kannski frekar tengja aukna eftir- spurn eftir húsnæði þekktri húsnæð- isþörf á landsbyggðinni. Hér seljast hús án þess að þau séu auglýst og fá færri en vilja. Hitt er svo annað mál að við gerum okkur vonir um að brúin hafi þau áhrif að eftirspurn eftir lóðum til nýbygginga aukist hér,“ segir Magnús Karel. Tilkoma brúarinnar mun að sögn Magnúsar Karels skipta sköpum fyr- ir bæði Stokkseyri og Eyrarbakka með öflun hráefnis, en til þessa hefur þurft að flytja mest allt hráefni fiskvinnslufyrirtækja á þessum stöð- um um langa leið frá Þorlákshöfn upp Ölfus og í gegn um Selfoss. Hvað brúin kann síðan að þýða fyrir aðra atvinnuuppbyggingu á þessum stöðum er óskrifað blað. Þó má ætla að ferðamenn muni í vax- andi mæli breyta út af venjubundn- um Þingvallarúnt og aka þess í stað „Árborgarrúntinn", yfir Ölfusár- brúna og í gegnum Eyrarbakka og Stokkseyri. Magnús Karel segir að ekki sé að marki farið að huga að uppbyggingu ferðamannaþjónustu á Eyrarbakka. Hann upplýsti þó að ákveðnar hreyfingar væru í þeim efnum, án þess að greina frekar frá þeim að svo stöddu. Magnús segir það ljóst að með tilkomu Ölfusárbrúarinnar myndist hringur: Þorlákshöfn-Hveragerði- Selfoss-Stokkseyri-Eyrarbakki. „Þetta gefur möguleika á meiri hreyfanleika vinnuafls milli þessara þéttbýlisstaða en áður,“ segir Magnús. Hann segir þetta vera mjög mikilvægt fyrir Eyrbekkinga og Stokkseyringa vegna atvinnudeyfðar þar á haustmánuðum. „Á þessum sama tíma hefur verið mjög mikið að gera í Þorlákshöfn og skortur á vinnuafli. Því má segja að þarna opnist sá möguleiki að flytja fólk á milli þegar þess gerist þörf. Þetta er eitt þeirra atriða sem þarf að huga vel að,“ segir Magnús Karel Hannes- son. Samkvæmt upplýsingum Árna Kristjánssonar, tæknifræðings hjá S.H.-verktökum, sem steypir upp nýju brúna yfir Ölfusárósa, er gert ráð fyrir að þeirra verkþætti verði lokið í síðasta lagi um miðjan júlí. Þá verður eftir lítilsháttar vegagerð sitt hvoru megin brúar, þ.e. að ýta að landstöplum brúarinnar. Auk þessa sjá S.H.-verktakar um grjót- vörn við brúna. Að sögn Árna er skiladagur verksins í heild þann 1. ágúst í sumar. Þessa dagana er undirverktaki S.H.-verktaka, Sveinbjórn Runólfs- son, að hefja byggingu vegar frá Ölfusárbrúnni að Þorlákshafnar- vegi. Sá vegur er um 8 km langur. Sveinbjörn tjáði Tímanum í gær að hann gerði fastlega ráð fyrir því að áætlanir stæðust og vegurinn yrði tilbúinn á tilsettum tíma, þ.e. 1. ágúst nk. Þá verður reyndar eftir lagning slitlags á þennan 8 km vegar- spotta. óþh Slysavamafélag íslands: Landsþing sett í dag 22. landsþing Slysavarnafélags tslands verður sett í Súlnasal Hót- els Sögu klukkan 3 síðdegis í dag að aflokinni guðsþjónustu í Nes- kirkju, en þingið stendur fram til sunnudagsins 29. maí. Verður þetta fjölmennasta þing í sögu félagsins til þessa og verður 60 ára afmælis félagsins sérstaklega minnst, en það var stofnað 1928. Fulltrúar slysavarnadeilda, björgunarsveita og unglingadeilda allsstaðar að af landinu munu sitja þingið og verður fjallað um þá fjölmörgu og viðamiklu mála- flokka sem snerta félagsstarfið, bæði hvað varðar slysavarna- og öryggismál og jafnframt störf og búnað félagsins. Fjöldi erlendra gesta frá níu þjóðum mun sitja ráðstefnuna í tilefni af afmæli félagsins. Þetta eru samstarfsaðilar SVFÍ er sinna fyrst og fremst slysavarna- og björgunarstörfum á sjó, en SVFI hefur verið aðili að þessum al- þjóðasamtökum allt frá árinu 1932. Á þinginu verða tilkynnt úrslit í ritgerða og teiknisamkeppni sem fram fór meðal barna í öllum grunnskólum landsins. Einnig verður yfirgripsmikil sýning á ým- iskonar björgunarbúnaði sem sveitir félagsins hafa til umráða, bæði hvað varðar leitir og björgun á sjó og á landi og gefst almenningi tækifæri á að skoða þessi tæki, en þau verða til sýnis við hlið Hótels Sögu á svæðinu við Suðurgötu og verða björgunarsveitarmenn á svæðinu til að leiðbeina og útskýra fyrir gestum hinn margvíslega tækjakost. -ABÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.