Tíminn - 27.05.1988, Blaðsíða 12

Tíminn - 27.05.1988, Blaðsíða 12
12 Tíminn Föstudagur 27. maí 1988 FRÉTTAYFIRLIT BEIRÚT — Sýrlenskar her- sveitir munu halda inn í hinn stríðshrjáöa suðurhluta Beirút- borgar og stilla þar til friðar eftir Íriggja vikna átök Hizbollah reyfingarinnar sem íranar styoja og Amal hreyfingarinnar sem Sýrlendingar styðja. Sýr- lenski herinn hefur beðið átekta í tvaer vikur samkvæmt samkomulagi Sýrlendinga og Irana, á meðan reynt hefur verð að ná samkomulagi hinna stríðandi trúbræðra. Þar sem hvorki hefur gengið né rekið í þeim málum munu Sýrlending- ar nú taka málin í sínar hendur líkt og þeir gerðu í vesturhluta Beirútborgar í fyrra. HANOI - Utanríkisráðherra Víetnam Nguyen Co Thach mun ræða við bandaríska embættismenn um framtíð þeirra háttsettu manna stjórnar og hers Suður-Víetnams sem verið hafa í haldi frá því Víet- namstríðinu lauk. Embættis- mönnum þessum hefur nýlega verið sleppt úr endurhæfingar- búðum. MOSKVA - Forysta sovéska kommúnistaflokksins hefur samþykkt tillögur um að kjörnir embættismenn í Sovét- rikjunum fái aðeins að gegna sama embættinu í tvö fimm ára kjörtímabil. Gert er ráð fyrir að þessi regla gangi yfir allt embættismannakerfið sem kjörið er, allt frá hinum lægstu og upp í toppembættismenn. Tillögurnar verða lagðar fyrir þing sovéska kommúnista- flokksins sem kemur saman í júnímánuði. MOSKVA - Sovéska þingið samþykkti ný lög um sam- vinnurekstur eftir að hafa neytt stjórnina til að gefa eftir í skattamálum. JÓHANNESARBORG- Tværsprengjursprungu I Pret- oríu höfuðborg Suður-Afríku í gær, en þá voru 40 ár liðin frá því Þjóðarflokkurinn sem nú er við stjórn, komst til valda. Fjór- ar konur særðust í sprenging- unni. BRUSSEL - Varnarmála- ráðherrar NATO hafa beðið Itali um að taka við 72 banda- rískum F-16 orrustuþotum sem átt hafa bækistöð á Spáni. Þessi beiðni kemur í kjölfar áskorunar Bandaríkjamanna um að Natoríkin jafni þá byrði að hafa vígvélar staosettar I löndum sínum. WASHINGTON - Banda- ríkjamenn munu leita eftir til- lögum frá ríkjum Rómönsku Ameríku um það hvernig koma skal Noriega frá völdum í Pan- ama. Þessi ákvörðun Banda- ríkjamanna kemur í kjölfar þess að viðræður við Noriega um að hann láti af völdum, runnu út í sandinn. BAHRAIN - íranskir hrað- bátar réðust á skip á Hormuz- sundi. Skipið sem siglir undir fána Líberíu er rúmlega 15 þúsund tonn að stærð. ÚTLÖND lllllll! Illilllllll Illlllllllllll Sandinistar og Kontrar halda áfram friðarviðræðum: Suður-Afríka: Enn hylja klæðin vopn í Níkaragva Tveir hvítir óeirðalögreglu- þjónar í Suður-Afríku voru í gær dæmdir til dauða fyrir að pynta og myrða svartan ungling í óeirð- um sem urðu í Lingelihle þorpi fyrir tveimur árum. í óeirðunum voru svartir ung- lingar teknir höndum af suðurafr- ísku óeirðalögreglunni og þeir pyntaðir. Einn þeirra, hinn átján ára gamli Stuurman, var svo illa limlestur eftir pyntingarnar, að lögregluforinginn sem stjórnaði lögreglusveitinni skipaði fyrir að hann yrði „tekinn af“. Annar lögreglumaðurtók því unglinginn niður að árbakka, skaut hann í höfuðið og henti líkinu í ána. Lögregluforinginn og lögreglu- maðurinn voru báðir dæmdir til dauða og verða hengdir fyrir morðið. Eru þetta fyrstu hvítu lögreglumennirnir í Suður-Afr- íku sem verða teknir af lífi fyrir glæpi framkvæmda á meðan þeir sinna skyldustörfum frá því kyn- þáttaóeirðir tóku að brjótast út að ráði í Suður-Afríku árið 1984. Bæði Sandinistastjórnin og Kontraskæruliðar hafa lýst því yfir að þeir muni ekki grípa til vopna á meðan á friðarviðræðum stendur þó vopnahlé renni út. Þessir Kontraskæruliðar geta því slappað af og nýtt sér aðstoð Bandaríkjamanna í friði. Sandinistastjórnin í Níkaragva og Kontraskærulidar hafa lýst því yfír að hvorugur aðilinn muni grípa til vopna eftir að núverandi vopnahlé rennur út og friðarviðræður standa yfír. Þrátt fyrir að enn sé hyldýpi á milli þessara stríðandi afla í friðarviðræðunum í Níkaragva, þá hafa leiðtogar þeirra lýst yfir að þeir stefni að því að borgarastyrjöldinni í landinu verði formlega lokið ekki seinna en í septembermánuði og að þá liggi fyrir undirritað friðarsamkoinulag. Samninganefnd Kontramanna ræðna við leiðtoga Sandinistastjórn- kom til Managva, höfuðborgar Ník- aragva, á miðvikudag til friðarvið- Verður fjórði fundur Reagans og Gorbatsjovs hatdinn í haust?: Reagan aftur til í tuskið Ronald Reagan Bandaríkja- forseti gaf í skyn að hann væri einu sinni enn til í tuskið með Mikail Gorbatsjov Sovétleiðtoga og vilji gjarnan halda leiðtoga- fund í haust til að skrifa undir samkomulag um fækkun lang- drægra kjarnavopna. Reagan er nú í opinberri heimsókn { Hclsinki á leið sinni til ieiðtoga- fundarins í Moskvu sem hefst á sunnudaginn, en Ijóst er að ekki næst að ganga frá samningi um fækkun langdrægra kjarnavopna fyrir þann tíma. Á leiðtogafundinum í Moskvu, scm verður sá þriðji í röð- inni, verða fjögur máiefni efst á baugi. Það eru af- vopnunarmál, strfðsátök víðs vegar um heiminn, þá sérstaklega í Mið-Austur- löndum og í sunnanverðri Afríku, - en að undan- förnu virðist hafa þokað í samkomulagsátt í Afríku, - atmenn samkipti stór- veldanna tveggja og að lok- um mannréttindamál. Gert er ráð fyrir að; Reagan muni koma inn á mannréttindamál í ræðum sínum í Finnlandi, enda er Finnland táknrænt í því sambandi þar sem Banda- rfkjamenn hafa mjög barist fyrir því að Sovétmenn héldu mannréttindaákvæði Helsinkisáttmálans. Forseti Bandaríkjanna hefur ekki sótt Sovétríkin heim frá því Richard M. Nixon þáverandi Banda- ríkjaforseti hélt til Sovét- ríkjanna í opinbera heim- sókn árið 1974. arinnar. Helstu leiðtogar Kontra eru í samninganefndinni og tekur harð- línumaðurinn Enrique Bermudez nú í fyrsta sinn þátt í viðræðunum við Sandinista, en Bermudez gagnrýndi vopnahléssamkomulag það sem Kontrar gerðu við Sandinistastjórn- ina á sínum tíma. Bermudez var háttsettur innan þjóðvarðliðs Sóm- ósas forseta á sínum tíma. Sandinistar hafa lagt fram friðar- tillögur sem eru mjög á skjön við þær tillögur sem Kontrar lögðu fram í síðustu viku. Sandinistar hafa þó fallist á tímasetningar þær er Kontr- ar gerðu ráð fyrir í sínum tilögum. Sandinistar vildu áður að friður kæmist á í júnímánuði og að Kontrar legðu þá niður vopn. Nú hafa þeir fallist á að stríðið taki ekki formleg- an endi fyrr en í september. Gera þeir ráð fyrir að sumarið verði notað til viðræðna um pólitískar umbætur í landinu sem báðir aðilar geti sætt sig við og að vopnin verði kvödd og Kontrar haldi inn í þjóðlíf Níka- ragva að nýju eftir það. Mikill fjöldi Kontraliða sem haft hafa aðsetur sitt á afmörkuðum svæðum í Níkaragva hefur að undan- förnu haldið til Hondúras til að njóta efnahagsaðstoðar Bandaríkja- manna, en samkvæmt vopnahlés- samkomulaginu mega Bandaríkja- menn aðstoða Kontra í öllum þátt- um öðrum en hernaðarlegum. Kem- ur þetta mörgum Kontranum vel þar sem matvæli og vistir voru víða af skornum skammti hjá þeim. ÚTLÖND UMSJÓN: Hallur Maqnússon BLAÐAMAÐU Drápu eigin mann í stad skæruliða Indverskir lögreglumenn í Punjabhéraði gerðu þau afdrifaríku mistök þegar þeir voru að eltast við skæruliða Shíka, að skjóta einn félaga sinn til bana og særa sex aðra í misgripum. Reagan Bandaríkjaforseti sem er á leið til Moskvu til viðræðna við Gorbatsjov vill gjarnan hitta hann enn á ný í haust. Lögreglan f Chandigarh, höfuð- stað Punjab, sagði að atvikið hefði átt sér stað á miðvikudag þegar lögreglan var að elta uppi skæruliða Shíka við borgina Juluundur, en að undanförnu hafa herskáir Shíkar myrt fjölda hindúa í hefndarskyni fyrir árás indverskra sérsveita á Gullna hofið í Amritsar. Tveir hópar sérþjálfaðra lögreglu- manna áttu í eftirförinni og hóf annar hópurinn skotárás á menn sem þeir töldu vera flýjandi Shíka og felldu einn mann. Svo óheppilega vildi til að hinir flýjandi Shíkar voru lögreglumenn úr hinum hópnum sem komnir voru á slóð skærulið- anna. Sá hópur brást ókvæða við skotárásinni og svaraði í sömu mynt og særði þá sex lögreglumenn til viðbótar. Lögreglan í Punjab hefur lagt til atlögu við skæruliða Shíka víðs veg- ar um Punjabhérað og byggir á upplýsingum sem nokkrir þeirra Shíka er tóku Gullna hofið í Amrits- ar herskildi á dögunum hafa gefið um félaga sína. Annar lögreglumað- ur lét lífið í árás á skæruliða Shíka og tveir Shíkar hafa fallið. Lögreglan hefur nú mjög öfluga gæslu um Gullna hofið til að koma í veg fyrir að vopnaðir Shíkar taki það herskildi að nýju. Pílagrímar sem halda til hofsins eru ferjaðir í hópum og er gerð vopnaleit á þeim áður en þeir halda inn í hofið. Umsjónarmenn Gullna hofsins sem er heilagasti staður Shíka í Punjab, hafa neitað að undirrita yfirlýsingu um að þeir banni vopna- burð í hofinu. Talsmaður nefndar- innar sagði að slík yfirlýsing yrði ekki gefin fyrr en leiðtogum Shíka sem nú eru í fangelsi verði sleppt úr haldi. Hvítar löggur dæmdar í gálgann Sérsveitir lögreglunnar í Punjab gera alvarleg mistök:

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.