Tíminn - 31.05.1988, Blaðsíða 2

Tíminn - 31.05.1988, Blaðsíða 2
2 Tíminn Þriðjudagur 31. maí 1988 MEIRIVAXTAMUNUR HJÁ EINKABÖNKUM Ríkisbankarnir hafa boðið upp á 1 til 3% lægri vexti á útlán en einkabankarnir síðustu tvo mánuð- ina. Eftir töluverðar sveiflur á vöxtum í febrúarmánuði og framan af marsmánuði komst stöðugleiki á vaxtakjör sem haldist hafa í stórum dráttum óbreytt síðustu tvo mán- llði. Ef gögn Seðlabankans um vaxta- kjör bankanna eru skoðuð, hafa orðið litlar breytingar frá 1. apríl til 21. maí. Svo dæmi séu tekin af útlánsvöxtum bankanna eru for- vextir á víxlum nú 30% hjá Búnað- arbankanum og Landsbankanum en 31% hjá Samvinnubankanum og Alþýðubankanum, 31.5% hjá Útvegsbankanum, Iðnaðarbank- anum og sparisjóðunum og 32% hjá Verzlunarbankanum. Vextir af yfirdráttarlánum eru 33% hjá ríkisbönkunum en fara upp í 36% hjá einkabönkunum. Af almennum skuldabréfum eru vext- irnir lægstir hjá Búnaðarbankan- um, 31%, en fara upp í 34% hjá hinum bönkunum. Útlánsvextir einkabankanna hafa ekki lækkað síðan 1. apríl en þeir hafa hins vegar hækkað í sumum tilfellum. Þótt kjör ríkis- bankanna séu því hagstæðari á þessu sviði virðast þau ekki hafa skilað sér í auknum viðskiptum. Fólk er ef lil vill ekki jafn meðvitað um muninn á útlánsvöxtum og muninn á innlánsvöxtum. Umræð- an hefur að undanförnu að mestu leyti snúist um vaxtakjör á innláns- reikningum en þar bjóða einka- bankarnir í sumum tilfellum upp á heldur hærri vexti. Munurinn er þó minni en gengur og gerist með útlánsvextina. Vaxtamunurinn virðist því almennt meiri hjá einka- bönkunum. Sem dæmi um vexti á innlánum eru vextir á almennum sparisjóðs- bókum 18% hjá Búnaðarbankan- um, Samvinnubankanum og spar- isjóðunum. Iðnaðarbankinn er með 18.5%, Landsbankinn, Út- vegsbankinn og Verzlunarbankinn með 19% og Alþýðubankinn með 20%. Svipaður munur er á öðrum innlánum en ríkisbankarnir bjóða upp á heldur hærri vexti á óbundn- um skiptikjarareikningum. JIH Verðbréfaviðskipti Samvinnubankans: Ný skulda- bréf Lindar Verðbréfaviðskipti Samvinnu- bankans standa nú að nýju útboði skuldabréfa fyrir fjármunaleigufyr- irtækið Lind hf. Boðin eru út bréf að fjárhæð 100 miljónir króna, og er nafnverð þeirra 100 og 500 þúsund krónur. Þau eru með einum gjald- daga í lok lánstímans sem getur verið 2-5 ár. Bréfin eru án nafnvaxta og kemur raunávöxtun þeirra fram í afföllum frá nafnverði, en þau eru seld miðað við 11% raunávöxtun. Þá eru bréfin með endursöluábyrgð Samvinnubankans sem skuldbindur sig til að selja þau innan tveggja vikna, komi fram ósk um slíkt. -esig Ferskfisksölur erlendis: Hæsta karfaverð síðan í janúar í síðustu viku fékkst heldur betra verð fyrir íslenska fiskinn en í marg- ar vikur þar á undan. Þannig seldi Ögri RE tæp 100 tonn af karfa í Þýskalandi, og hefur ekki fengist hærra verð fyrir karfa þar í landi síðan fyrstu söluvikuna í janúar. Ögri var eina skipið sem landaði í Þýskalandi og scldi hann 343,1 tonn í Bremerhaven í síðustu viku á 18,16 milljónir króna. Meðalverðið var 52,93 krónur. Af karfa voru 99,4 tonn, sem fóru á 96,03 krónur hvcrt kíló og hefur aðeins einu sinni verið hærra í Þýskalandi á þcssu ári. Það var fyrstu söluviku í janúar, en þá fengust 98,01 króna fyrir kílóið. 237,4 tonn voru af grálúðu, sem fór á 34,37 krónur og loks voru 6,3 tonn af blönduðum afla, sem fór á 72,25 krónur. Þau voru hins vegar tvö skipin sem scldu í Bretlandi í vikunni sem leið. Gnúpur GK seldi 128,1 tonn í Hull fyrir 9,3 milljónir, eða 72,96 krónur hvert kíló. Ottó Wathne NS seldi 134,9 tonn í Grimsby á 9,6 milljónir, eða hvert kíló á 70,97 krónur. Skipin seldu samtals 263 tonn á 18,92 milljónir, eða 71,94 krónur hvert kíló. 195,3 tonn voru af þorski, sem fór á 72,96 krónur. 39,4 tonn voru af ýsu sem fór á 88,60 krónur. 12,8 tonn voru af ufsa sem fór á 29,39 krónur og mun mi'nna var af öðrum tegund- um. Loks voru síðan seld tæp 505 tonn af fiski í gámum til Bretlands fyrir 38.1 milljón. Meðalverðið var 75,47 krónur. 164,2 tonn voru af þorski sem fór á 76,85 krónur. 163,3 tonn voru af ýsu sem fór á 85,65 krónur. 97.2 tonn voru af kola sem fór á 60,34 krónur og 60,4 tonn voru af blönduðum afla sem fór á 84,39 krónur. -SÓL 50 ára afmæli Sjómannadagsins: Fjölbreytt efni í Sjómannadagsblaði Reglur um skráningu hlutabréfa á Verðbréfaþingi íslands: Slökkviliðsmenn bera út hluti úr Dalsgarði, eftir að eldur hafði komið þar upp á laugardag. Til hægri sést lögreglumaður á tali við íbúann. Tímamynd: Pjetur. Eldsvoði í Mosfellsdal: Bjargað af reykköfurum Eldur kom upp í íbúðarhúsinu Dalsgarði í Mosfellsdal á laugar- dag. Slökkviliðið í Reykjavík var kallað á staðinn og fóru reykkafar- ar inn í húsið. Þar var fyrir íbúi hússins og var hann sofandi. Reykkafararnir björguðu mannin- um út úr húsinu, og varð honum ekki meint af. Talsverður reykur hafði myndast í húsinu og gekk greiðlega að slökkva eldinn. Ekki er enn ljóst hvað olli eldsvoðanum, en unnið er að rannsókn málsins. -SÓL Minnst 20 milljóna hlutafé skilyrði Fimmtugasti og fyrsti árgangur Sjómannadagsblaðsins, hátíðar- blaðs sjómannastéttarinnar, er ný- kominn út. Blaðið er gefið út af Sjómannadagsráði í Reykjavík og Hafnarfirði á Sjómannadaginn ár hvert. Sjómannadagsblaðið er nú rúm- lega tvöfalt að stærð, alls 232 blað- síður að lengd, í tilcfni af 50 ára afmæli Sjómannadagsins sem haldið verður hátíðlegt með margvíslegum hætti, dagana 3. til 5. júní. Fjölmikið af fróðlegu efni er í blaðinu. Má þar nefna ávörp forseta íslands, biskups íslands, forsætisráð- herra, sjávarútvegsráðherra og sam- gönguráðherra. Pétur Sigurðsson, formaður Sjómannadagsráðs, rekur 50 ára sögu Sjómannadagsins og lýsir hinni miklu uppbyggingu sem Sjómannadagurinn hefurstaðið fyrir í öldrunarmálum. Sagt er frá sögu Sjómannadagsráðs og rekstri fyrir- tækja Sjómannadagsins. „Ég þakka ykkur heiðurinn, vinir mínir“, er yfirskrift á ræðu sem Ólafur Thors hélt er hann veitti viðtöku gullkrossi Sjómannadags- ins, æðsta heiðursmerki Sjómann- adagssamtakanna, fyrstur manna. Ýmsir sem hafa ort, málað eða samið tónverk um sjómenn, segja frá. Þetta er aðeins brot af því efni sem birtist í blaðinu, en það verður selt í lausasölu út um allt land á Sjómannadaginn 5. júní. Auk þcss er því dreift í stærstu bókaverslanir á höfuðborgarsvæðinu. Allur ágóði af sölu blaðsins rennur sem fyrr til samtaka Sjómannadagsins, en þau hafa sem kunnugt er staðið fyrir uppbyggingu Hrafnistu-heimilanna í Reykjavík og Hafnarfirði. Ritstjórar blaðsins eru Garðar Þorsteinsson (ábyrgðarmaður) og Jakob F. Ásgeirsson. Bólusetning gegn heilahimnubólgu í dag (þriðjudag), kl. 17:30- 19:00, heldur dr. L. Barretto frá Toronto, erindi í Domus Medica um árangur bólusetningar gegn Haemophilus Influenzae (heila- himnubólgu) á 2ja mánaða börn- um ogeldri í Kanada. Fyrirlestur- inn er á vegum landlæknis og borgarlæknisembættanna. Allir sem starfa við ungbarna- og mæðraeftirlit eru velkomnir. Stjórn Verðbréfaþings Islands hefur nýlega afgreitt reglur um skráningu hlutabréfa og er þingið nú rciðubúið til að taka umsóknir um skráningu til meðferðar. Meðal skil- yrða um skráningu cr það að fyrir- tæki sem gefur út hlutabréf hafi minnst 20 millj. kr. hlutafé, minnst 65 millj. kr. bókfært eigið fé og að lágmarki 15% hlutafjárins í eigu fleiri en 50 aðila. Þótt búist sé við að mörgum kunni að þykja reglurnar strangar t.d. varðandi upplýsingar um fyrirtækið, fullyrða stjórnar- menn að þær kröfur sem reglurnar gera séu tiltölulega hóflegar þegar borið er saman við erlenda markaði í hæsta gæðaflokki. Stjórn Verðbréfaþingsins telur líklegt að ýmsar breytingar þurfi að eiga sér stað áður en mikil viðskipti verða með hlutabréf. t.d. aukin þátttaka stærri fjármagnsaðila svo sem lífeyrissjóða og verðbréfasjóða. Áhugi núverndi eigenda fyrirtækja til að afla sér eiginfjár með almennu útboði þurfi einnig að aukast. Skatt- areglur varðandi fjárfestingu í hlutabréfum og öðrum fjárhagsleg- um sparnaði þurfi að samræma og fyrirtækin sömuleiðis að opnast al- menningi meira en nú er. ítarlegar upplýsingar um fyrirtæk- ið, þ.e. starfsemi þess, stærstu eig- endur, reikninga og fleira, verða að fylgja umsóknum um skráningu. í gagnkvæmum samningi verður fyir- tækið að skuldbinda sig til að gefa Verðbréfaþinnginu jafnóðum upp- lýsingar um atriði sem áhrif geta haft á markaðsverð bréfanna, svo sem um ársuppgjör og hlutaársuppgjör, breytingar á samþykktum. kosning- ar. greiðslu arðs og fleira. Níu aðilar hafa fengið aðild að Verðbréfaþingi íslands: Fjárfesting- arfélagið, Kaupþing, Landsbankinn, Seðlabankinn, Útvegsbankinn, Verslunarbankinn, Verðbréfavið- skipti Samvinnubankans, Sparisjóð- ur Hafnarfjarðar og Verðbréfamar- kaður Iðnaðarbankans. Aðilar að Verðbréfaþingi fslands eru nú 9 talsins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.