Tíminn - 31.05.1988, Blaðsíða 20

Tíminn - 31.05.1988, Blaðsíða 20
Sparisjóösvextir á tékkareikninga meö hávaxtakjörum SA ÍSLANDS HF Auglýsíngadeild hannar auglýsinguna fyrir þig Ókeypis þjónusta 686300 Tíminn m ^ v V '* • "" liniinn HRESSA KÆTA Gestir vínveitingahúsa að ærast vegna hávaða: Útkeyrðir af djöfulgangi 1 1 9 Þrátt fyrir að rannsóknir Vinnueftirlits ríkisins fyrir fjór- um og sjö árum, hafi leitt í ljós að hávaði á skemmtistöðum er vel yfir settum hávaðamörkum, hafa eigendur skemmtistaða ekk- ert aðhafst í málinu. Vinnueftir- litinu berast sífellt kvartanir frá gestum skemmtistaðanna sem eru orðnir útkeyrðir af djöful- ganginum, en keyrt hefur um þverbak á síðustu árum. Nýjasta dæmið er frá síðustu helgi, en þá voru lætin orðin svo mikil, að starfsfólk skemmtistað- arins var farið að ganga á gesti og biðja þá um að kvarta yfir hávað- anum við yfirmennina. Hörður Bergmann, upplýs- inga- og fræðslufulltrúi Vinnueft- irlitsins, sagði í samtali við Tím- ann í gær, að hann hefði að vísu ekki enn fengið neina kvörtun frá þessum ákveðna skemmtistað. Hann benti hins vegar á, að á árunum 1981 og 1984 hefðu verið gerðar hávaðamælingar á sex stórum og vinsælum skemmti- stöðum í Reykjavík. „Það kom í Ijós, að af þcim 22 starfsmönnum á þessum skemmtistöðum sem báru háv- aðaskammtamæla, unnu allir í hávaða sem mældist yfir 85 deci- bel að meðaltali. Þrír af hverjum fjórum unnu í hávaða sem var yfir 90 decibel,“ sagði Hörður í samtali við Tímann í gær. Sett hávaðamörk fyrir starfs- fólk er 85 decibel og allur hávaði þar fyrir ofan er talinn skaðlegur fyrir heyrnina. Þannig kveða regl- ur á um að starfsfólk megi ekki vinna í hávaða sem er yfir 85 decibel, nema þá með heyrnar- hlífar. Annars verði að minnka hávaðann. Að sögn Harðar ber þó nokkuð mikið á því að gestir skemmti- staða hafi samband við Vinnueft- irlitið og kvarti yfir hávaða, en slíkum kvörtunum er ekki sinnt, þar sem eftirlitið starfi fyrir starfs- fólkið, en gestir eru þar inni í mesta lagi í nokkrar klukku- stundir. Þeirra vettvangur væri því annars staðar. -SÓL Verður þetta algeng sjón? Þjónn ber drykki á borð með heyrnar- lilífar vegna djöfulgangsins. (Timinn: Gunnar) Stanley Kubrickósátturviö íslenskaútgáfu „Full Metal Jacket“: Neitar útgáfu á textuðu eintaki Leikstjórinn heimsfrægi, Stanley Kubrick, sem á að baki myndir eins og A Clockwork Orange og The Shining, neitaði nýverið að samþykkja íslenska myndbandaút- gáfu á nýjustu mynd sinni, Full Metal Jacket, eða Skothylkinu, eins og rnyndin heitir á íslensku, eftir að hafa skoðað textað eintak. Kubrick, sem er annálaður sér- vitringur innan kvikmyndaheims- ins, krafðist þess að fá sent textað eintak út áður en hann samþykkti útgáfuna. Hann neitaði hins vegar að samþykkja íslensku útgáfuna. Hann vill ekki að þýðanda, út- gefanda eða framleiðanda á íslandi sé getið og þá var hann líka ósáttur við textunina. Hann vill ekki að textinn komi á undan eða eftir að orðið er sagt, heldur á textinn að koma þegar viðkomandi segir hann. Fyrst hafði hann krafist að myndin yrði textuð í Bandaríkjun- um, en þegar útskýrt var að stafir eins og þ,ð,ö og æ þyrftu að vera til staðar, féll hann frá þeirri kröfu. fslenski þýðandinn hefur því set- ið með sveittan skallann síðustu daga við að breyta þýðingunni í samræmi við kröfur Kubricks og er gert ráð fyrir að eintak númer tvö fari utan á morgun. 5amþykki hann það heldur ekki, er líklegt að Steinar hætti við útgáfu á mynd- inni. Til marks um stífni Kubricks og sérvisku, má geta þess að hann hefur enn þann dag í dag ekki samþykkt að mynd hans, A Clock- work Orange, verði gefin út á myndbandi í Bretlandi. Ástæðan er sú að þegar myndin var sýnd á sínum tíma fékk hún slæma dóma hjá breskum gagnrýnendum. Það hefur hann enn ekki fyrirgefið, og samþykkir því ekki útgáfu í Eng- landi, Skotlandi, Wales eða írlandi og er frekar illa við að gefa myndir sínar út í löndum sem eru nálægt Bretlandi. -SÓL Auglýsing fyrir „Skothylkið“. Ýmislegt bendir til að hún komi ekki í bráð á myndbandaleigur. ASÍ hyggst leita álits hjá Alþjóöa vinnumála- stofnuninni á lagasetningu ríkisstjórnarinnar: Samþykktu Genfarför Miðstjórn ASf hefur samþykkt að fara með lagasetningu ríkisstjórnar- innar, þar sem samningsréttur verkalýðsfélaganna er takmarkaður, fyrir Alþjóða vinnumálastofnunina. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, sagðist í gær eiga von á því að það yrði gert á næstu dögum. Ásmundur lýsti því yfir í gær í kjölfar formannafundar ASÍ að þess yrði krafist af ríkisstjórninni að hún afturkalli lagasetninguna svo að frjáls samningagerð yrði endur- heimt. Sagði hann að verkalýðsfé- lögin um land allt muni búa sig undir að fylgja þeirri kröfu eftir ef ríkis- stjórnin lætur sér ekki segjast. „Formannafundur ASI fordæmir ósvífna árás ríkisstjórnarinnar á samningsrétt verkalýðsfélaganna og þá kjaraskerðingu sem henni fylgir.“ Svo hljóðar ályktun sem formenn aðildarfélaganna samþykktu á fundi sínum í gær. Formennirnir töldu að með síend- urteknum lagaboðum um kjara- skerðingu og afnám samningsréttar væri verkalýðshreyfingin svipt að- stöðu til þess að sinna á eðlilegan hátt því meginhlutverki sínu að semja um kaup og kjör. „Þannig er grafið undan trausti félagsmanna á samningagerð og þar með trausti þeirra á verkalýðsfélögunum. Slíkar aðgerðir eru því alvarleg atlaga að félagafrelsinu." Námsmaður týndur Ekkert hefur spurst til íslensks námsmanns í Texas í Bandaríkjun- um í tvo og hálfan mánuð. Pilturinn, sem er 25 ára, hefur verið við nám í North Texas University. Hann brá sér í frí til Kaliforníu en þaðan hringdi hann í skólafélaga sinn í Texas og bað hann um að símsenda sér peninga svo hann kæm- ist til baka með flugi. Bíl hans hafði verið stolið, ásamt öllum skilríkjum hans. Peningarnir voru sendir en ekkert hefur spurst til piltsins. Síðast sást til bíls hans í smábæ, sem er 3 km frá landamærum Mexíkó. Lög- reglan í Bandaríkjunum hefurdreift upplýsingum um piltinn um öll Bandaríkin og Kanada.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.