Tíminn - 31.05.1988, Síða 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 31. maí 1988
Auglýsing frá
Landbúnaðarráðuneytinu
til þeirra aðila sem hyggja á sauðfjárslátrun á
komandi hausti, svo og annarra sláturleyfishafa.
Samkvæmt lögum nr. 30/1966 skal hver sá aðili
sem slátrar sauðfé, eða öðrum fénaði hafa til þess
tilskilin leyfi, og fullnægja ákveðnum kröfum varð-
andi meðferð, skoðun og mat á sláturafurðum.
Samkvæmt lögum sem samþykkt voru á Alþingi
nú í vor, getur ráðherra „þar sem brýn nauðsyn
krefur, tímabundið leyftslátrun í sláturhúsum, sem
ekki eru svo úr garði gerð að löggilding geti farið
fram á þeim, ef yfirdýralæknir eða hlutaðeigandi
héraðsdýralæknir telja að slátrun og meðferð
sláturafurða geti tekist þar á viðunandi hátt“.
Með vísan til þessa hefur landbúnaðarráðuneytið
ákveðið að þeir sem hyggja á slátrun á komandi
hausti, þurfi að hafa sótt um sláturleyfi til landbún-
aðarráðuneytisins fyrir 15. júní 1988.
Yfirdýralæknir og hlutaðeigandi héraðsdýralæknir
munu í framhaldi af því veita nauðsynlegar
umsagnirtil landbúnaðarráðuneytisins. Ráðuneyt-
ið mun á grundvelli þeirra umsagna ákveða hvort
leyfi til slátrunar hjá einstökum aðilum verði veitt.
Landbúnaðarráðuneytið, 30. maí 1988.
Útboð - loftræsikerfi
Samband íslenskra samvinnufélaga, Sölvhólsgötu 4,
101 Reykjavík, óskar eftir tilboði ísmíðioguppsetningu
á loftræsikerfi fyrir skrifstofuhús að Kirkjusandi í
Reykjavík.
Tilboð óskast í eftirtalda verkþætti.
Áfangi A:
- Blikkstokkar, um 5.000 kg.
- Loftræsisamstæður, 8 blásarar um 30.000 m3/h.
- Stýrikerfi fyrir loftræsisamstæður.
Áfangi B:
- Blikkstokkar um 8.500 kg.
- Loftræsisamstæður, 2 blásarar um 45.000 m3/h.
- Stýrikerfi fyrir loftræsisamstæður.
Vinna við áfanga A skal hefjast strax og skal honum
lokið 15. des. 1988. VinnaviðáfangaBákveðstsíðar.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðiskrifstofu Sigurð-
ar Thoroddsen hf. Ármúla 4, Reykjavík, frá og með 1.
júní 1988 gegn 10.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila til VST hf., Ármúla 4,108 Reykjavík,
fyrir kl. 11.00 þriðjudaginn 21. júní 1988 en þá verða
þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
VERKFRÆÐISTOFA SIGUROAR THORODDSEN HF
ÁRMÚLI 4 REYKJAVlK SlMI 84499
ÐOÐA RAFGIRÐINGAR
Til afgreiðslu strax - Mikið úrval
Örugglega. því að Björn
bóndi kaupir aðeins það
besla og það ódýrasta
Boða rafgirðingar
'J— lang ódýrastar
Hafið samband við
sölumenn okkar
FLATAHRAUNI 29
220 HAFNARFIRÐI.
S-91. 651800
Ath. breytt heimilistang
Búvélar frá Boða — Boði hf. — Betri þjónusta
Ámoksturstæki óskast
Óska eftir að kaupa ámoksturstæki á Ford 3000
dráttarvél. Upplýsingar í síma 95-3349.
Utanríkisráðherrahjón íslands og Búlgaríu. F.v. Hr. Petar Mladenov, Edda Guðmundsdóttir, Galia Mladenova,
og Steingrímur Hermannsson. Tímamynd: Pjciur
Utanríkisráðherra
Búlgaríu í heimsókn
Utanríkisráðherra Búlgaríu. hr. Pet-
ar Mladenov og frú Galia Milade-
nova, ásamt fylgdarliði, eru stödd
hér á landi í boði Steingríms Her-
mannssonar utanríkisráðherra.
Utanríkisráðherrahjónin komu
hingað á sunnudag og borðuðu það
kvöld heima hjá þeim Steingrími
Hermannssyni og Eddu Guðmunds-
dóttur. í gærmorgun ræddi hr. Mla-
denov síðan formlega við Steingrím
Hermannsson og embættismenn í
íslenska utanríkisráðuneytinu og
hitti því næst forseta Sameinaðs
Alþingis. Síðdegis fóru búlgörsku
gestirnir í Kollafjörð og síðan í
móttöku til VigdísarFinnbogadóttur
að Bessastöðum. í gærkvöldi var
síðan formlegt kvöldboð í boði
Steingríms Hermannssonar og Eddu
Guðmundsdóttur.
í dag verður farið með gestina til
Þingvalla áður en þeir halda aftur úr
landi síðdegis.
Utanríkisráðherra Búlgaríu og fylgdarmenn ræða við íslenska utanríkisráð-
herrann og embættismenn í íslenska utanríkisráðuneytinu í gær.
Tímamynd: Pjctur
Steingrímur Ingason og Vitek Bogdanski sigruöu vorrall Eikagrills og Bylgjunnar:
15. gírí 1.
Steingrímur Ingason og Vitek
Bogdanski á Datsun 510 sigruðu í
vorralli Bylgjunnar og Eikagrills sem
fram fór á föstudag og laugardag,
þetta var önnur rallkeppni ársins
sem gefur stig til íslandsmeistara-
titilsins. í öðru sæti urðu feðgarnir
Jón Ragnarsson og Rúnar Jónsson á
Escort 2000 RS og í þriðja sæti urðu
þeir Guðmundur Jónsson og
Bjartmar Árnason á Nissan 240 RS.
Keppnin var mjög jöfn og spenn-
andi alveg til loka og skiptust þrír
keppendur á um forustuna, en hinir
keppendurnir voru aðeins nokkrum
sekúndum á eftir. Fyrir síðustu sér-
leið hafði Steingrímur Ingason að-
eins einnar sekúndu forskot á Jón
Ragnarsson. Á síðustu sérleiðinni
festist bíll Steingríms í 5. gír, en það
kom ekki að sök, því þrátt fyrir
bilunina bættu þeir tíma sinn um 16
sæti
sekúndur frá fyrri ferð. Hins vegar
sprakk hjá Jóni Ragnarssyni þegar
15 kílómetrar voru eftir af síðustu
sérleið, þannig að þeir feðgar urðu
að láta sér lynda annað sætið að
þessu sinni.
Pað voru 20 bílar sem hófu vorrall-
ið en 14 bílum tókst að komast í
endamark. -ABÓ
Vitek Bogdanski og Steingrímur Ingason að loknu vorrallinu kampakátir með 1. sætið.
(Tímamynd GE)