Tíminn - 31.05.1988, Síða 13

Tíminn - 31.05.1988, Síða 13
Þriðjudagur 31. maí 1988 Tíminn 13 Gagnkvæmt eftirlit með tilraunasprengingum langdrægra kjarnorkuflauga rætt á fundi leiðtoga stórveldanna: Líklegt er talið að Ronald Rea- gan forseti Bandaríkjanna og Mikhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi undirriti samkomulag um tilrauna- sprengingar langdrægra eldflauga áður en fjórða fundi leiðtoganna lýkur, að sögn bandarískra og sovéskra liernaðarsérfræðinga. Samkomuiag það sem um er rætt nær tii og fellur að því samkomu- lagi um tilraunasprengingar sem fyrircr. Nýjasamkomulagiðmundi skylda stórveldin til að tilkynna hvort öðru fyrirfram um tilraunas- prengingar langdrægra eldflauga á landi og sprenginga úr kafbátum. Sovéski talsmaðurinn Gennady Gerasimov sagði að í dag yrði að öllum líkindum tilbúið uppkast að samkomulaginu um langdrægar eidflaugar. “Þctta er gott skref,“ sagði talsmaðurinn. Bandarískir hemaðarsérfræðingar tóku undir orð Gerasimov sem komu fram á fundi sem haldinn var í gær á öðrum degi leiðtogafundarins. Reagan og Gorbatsjov. Samkvæmt upplýsingum frá Gcrasimov og talsmanni Hvíta hússins Marlin Fitzwater þá áttu lciðtogarnir 90 mínútna fund með hclstu ráðgjöfum sínum þar sem cinkum var rætt um takmörkun vígbúnaðar almennt. „Þeir ræddu um fyrri tiilögur og bentu á að báðar þjóðirnar væru að nálgast hvor aðra í þessu máli,“ sagði Fitzwater. Bandarískir og sovéskir sér- fræðingar sögðu að á fundinum væri einnig að vænta minniháttar samkomulags um sannprófun kjarnorkuvopnatilrauna. Leið- togarnir vonast einnig til að þeir nái einhverjum árangri hvað varð- ar að skera niður varabirgðir lang- drægra kjarnorkuvopna um helm- ing í hvoru landi um sig og sagt cr að eitthvað hafi þokast í samkomu- lagsátt í þeim efnum. Reagan og Gorbatsjov munu að áuki staðfesta þeirra fyrra samkomulag unt með- aldrægar kjarnorkueldflaugar á morgun, miðvikudag en leiðtog- arnir undirrituðu það samkomulag í Washington á sfðasta fundi sínum. Sérfræðingar þjóðanna beggja hafa komið saman til funda þrisvar sinnum síðan Reagan kom til Moskvu á sunnudag, en áætlað er að þeir hittist aftur í dag til að reyna að afmarka núverandi ágreining um takmörkun lang- drægra kjarnorkuvopna. Gerasimov sagði að leiðtogarnir kæmust að öllum líkindum að mál- amiðlun um mikið ágreiningsmát þar með talið reglur um „eruise“ flugskeyti og einnig sagði hann að vænta mætti einhvers samkomu- lags um hreyfanlegar eldflaugar. Fitzwater og Gerasimov sögðu að ríkin tvö væru á öndverðum meiði um það hvað varð til þess að viðræður risaveldanna urn iang- drægar eldflaugar fóru út um þúfur á Reykjavíkurfundinum. Bæði ríkin telja ógerlegt aðsam- komulag um takmörkun langdræg- ra kjarnorkueldflauga náist á þess- um fundi leiðtoganna en sam- kvæmt Gerasimov þá vilja Sovét- menn að gengið vcrði frá sam- komulaginu áður en Reagan fer frá sem forseti Bandaríkjanna í janúar á næsta ári. Þórarinn Þórarinsson: Bandaríkin, Sovétríkin og Evrópa þurfa að vinna saman Athyglisverð frétt birtist í Morg- unblaðinu síðastliðinn laugardag (28. maí) um skýrslu Alþjóðaherm- álastofnunarinnar. Þar segir í upp- hafi: „Hættan á klofningi vofir yfir Atlantshafsbandalaginu ef það endurskoðar ekki stefnu sína and- spænis öldu nýrra afvopnunartil- lagna frá Sovétmönnum. Vestræn- um þjóðum er ögrað en jafnframt opnast margvíslegir möguleikar. Vestræn ríki mega ekki vera svo upptekin af ögruninni sem í þessu felst að þau glati tækifærinu, scgir í árlegri skýrslu Alþjóðahermála- stofnunarinnar í London (IISS), sem birt var á fimmtudag. í skýrslunni segir að viðleitni Míkhaíls Gorbatsjovs til að endur- skoða utan- og innanríkisstefnu Sov- étríkjanna sé einkum að þakka að árið 1987 var ár þíðunnar í samskipt- um austurs og vesturs. Hápunktur ársins í þessu tilliti var leiðtogafund- urinn í desember, sem einkenndist af gagnkvæmum velvilja. f fyrsta kafla skýrslunnar þar sem fjallað er um horfur í alþjóðamálum segir að engum dyljist að grundvalla- rbreytingar hafi mótast á síðasta ári. Þróun heimsmála virðist vera að taka nýja stefnu en enginn getur þó sagt til um hvert hún leiðir. Heimur sem skipst hefur í tvær andstæðar fylkingar er að taka á sig fleiri myndir. Það sem einu sinni taldist einlit ógnun af kommúnisma er nú að leysast upp í frumhluta sína, segir í skýrslunni. Andspænis afvopnunarfrumkvæði Sovétmanna ættu vestræn ríki nú að endurskoða stefnu sína varðandi samskipti austurs og vesturs og reyna sjálf að sýna frumkvæði til að stuðla að traustara alþjóðakerfi. Samning- urinn um útrýmingu meðaldrægra flauga og horfur á frekari niður- skurði á kjarnorkuvopnum þjóna þessu markmiði. Nú virðist mögu- legt að sæta lagi á öllum sviðum. Vert er til dæmis að skora á Sovét- menn að fallast á ójafnan niðurskurð hefðbundinna vopna í Evrópu með tölulegt jafnvægi að leiðarljósi. Sov- étmenn hafa sýnt að þeir vilja fá ráðrúm til að leysa úr efnahagsvand- ræðum heima fyrir.“ Þá segir í skýrslunni samkvæmt frásögn Mbl., að bregði vestræn ríki ekki skjótt við, geti Gorbatsjov gengið á lagið og aukið frumkvæði sitt, sem stuðlað gæti að klofningi innan Nató. Við þetta má bæta því, að það virðist þegar ljóst, hvert þetta nýja frumkvæði Gorbatsjovs mun verða. f grein eftir einn af fréttaskýrendum rússnesku fréttastofunnar APN, sem birtist í blaði hennar 29. apríl síðast- liðinn, er þetta rakið. Höfundur greinarinnar heitir Nikolaj Shshlin. Fyrirsögn hennar er: Sameiginleg örlögSovétríkjanna, Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu. Efni greinarinnar er á þessa leið: „Eftir fáeinar vikur hittast aðalrit- ari miðstjórnar rússneska Kommún- istaflokksins og forseti Bandaríkj- anna aftur, í þetta sinn í Moskvu. Það verður fjórði fundur leiðtog- anna á tveimur og hálfu ári, og sýnir það að töluverður árangur hefur orðið, bæði í Moskvu og Washington síðan fyrsti fundur leiðtoganna var haldinn í Genf. Dagskrá fundarins í Moskvu er vel kunn. Þar verður rætt um tak- mörkun vígbúnaðar, fyrst og fremst árásarvígbúnaðar, svæðishundnar deilur, mannréttindi og tvíhliða tengsl ríkjanna. En ef það er enginn vafi á um hvað verður þarna rætt, er þó talsverð tvísýna á hvað út úr viðræðunum kemur. Ég vil þó benda á að viðræður Sovétríkjanna og Bandaríkjanna eru ekki mál þessara stórvelda ein- na. Ástandið í alþjóðamálum hefur einnig áhrif á þær. Sovétríkin og Bandaríkin verða að samræma að- gerðir sínar vilja bandamanna sinna, Varsjárbandalagsins öðrumegin og Nató hinumegin. Og Evrópa getur ekki gert sig ánægða með hlutverk hlutlauss áhorfanda meðan á viðræð- um Sovétríkjanna og Bandaríkjanna stendur. Vestur- og Austur-Evrópa hafa sínum eigin hagsmunum að gegna. og þeir fléttast inn í viðræður Sovét- ríkjanna og Bandaríkjanna. Geta þær látið sig engu varða hvort víg- búnaður í álfunni verður takmarkað- ur, hvort sem um er að ræða kjarn- orkuvígbúnað eða hefðbundinn? Auðvitað ekki, Evrópa fagnaði INF samningnum. En það nægir ekki Evrópu að losa sig við sovéskar og bandarískar eldflaugar. Sá tími er að koma að Evrópa verður að hugsa um fleiri en sjálfa sig, og fara að huga að sínum eigin vígbúnaði. Nú er tækifæri til að fækka verulega í herjum og skera niður hefðbundinn vígbúnað frá Atlantshafi til Úral, en hvort þetta tækifæri verður notað veltur verulega á frjálsum vilja og öflugum aðgerðum allra þjóða Evrópu. Evrópubúar eru allir jafnáhyggju- fullir vegna ástandsins sem ríkir víðsvegar um heim. Evrópa, með sín víðfeðmu tengsl við allar þjóðir heims, fylgist grannt með ástandinu í Mið-Austurlöndum, í Suður- Afríku, í Mið-Ameríku og öðrum eldfimum svæðum heimsins. Enginn er þar sigurvegari, allir tapa, þar á meðal Evrópubúar, þegar hitnar í kolunum í svæðisbundnum deilum. Míkhaíl Gorbatsjov hafði mjög rétt fyrir sér þegar hann sagði að næst á eftir kjarnorkuvánni væru það „vandamál suðurs og norðurs sem ógnuðu siðmenningunni": „Afvopn- un til þróunar" er lykillinn að lausn margra mála sem þróunarlöndin standa nú frammi fyrir. Iðnvæddu ríkin, hvaða þjóðfélagskerfi sem þau hafa, hefðu fyrir löngu átt að taka höndum saman um að stuðla að þróun „þriðja heimsins", sem enn líður undir oki fyrrverandi nýlendu- tíma. Gamli heimurinn, með sínar ríku mannúðar- og lýðræðishefðir, með sínar mannréttindayfirlýsingar og víðtæku tengsl milli ríkja sem búa við ólík þjóðfélagskerfi, gæti gegnt þarna veigamiklu hlutverki. Það var í Evrópu sem Helsinkisáttmálinn var gerður. Ef hann væri þróaður áfram væri þar komið gott fordæmi fyrir allar þjóðir heims. Þórarinn Þórarinssun Evrópubúar sitja við sama borð í stjórnmálum, efnahagsmálum og menningarmálum, og þeir þróa mannleg samskipti sameiginlega. Þeir búa einnig á sameiginlegu heim- ili. Það er ekki hægt að segja að dyr Evrópu séu öðrum þjóðum lokaðar. Vestur-Evrópa er skipulagslega tengd Bandaríkjunum, og Sovétrík- in ætla sér ekki að reka neinn fleyg milli Vestur-Evrópu og Bandaríkj- anna. Allt slíkt er hreinn hugarburð- ur ef ekki blátt áfram lygi. Sovétríkin vilja efla tengsl sín við allar þjóðir Evrópu, sem og allan heiminn. En ef maður hugar að væntanleg- um leiðtogafundi, er hægt með vissu að segja, að Evrópa verður ekki sniðgengin í þeim viðræðum sem þar fara fram, heldur tekið fullt tillit til afstöðu hennar. Við lifum í fjöl- breyttum heimi, þar sem uppi eru margvíslegar skoðanir, og þar sem á margvíslegan hátt er tekið á pólitísk- um málum. En þessi heimur er jafnframt heildstæður, og það er ekki hægt að leysa nein af vandamái- um hans nema maður taki tillit til hagsmuna nágranna sinna, jafnt og sinna eigin." Hér lýkur grein hins rússncska fréttamanns. I tilefni af henni, er ekki úr vegi að minna á að hugmynd- in um samvinnu Bandaríkjanna, Sovétríkjanna og Vestur-Evrópu er ekki ný. í raun byggðist Marshall- hiáloin á henni. Hún var að vísu fyrst og fremst hugsuð til viðreisnar Vestur-Evrópu, en ríkjum Austur- Evrópu stóð opið að eiga aðild að henni. Tékkar og Pólverjar vildu þiggja boðið, og Molotof utanríkis- ráðherra Sovétríkjanna fór til við- ræðu við fulltrúa Bandaríkjanna, ásamt 86 manna sendinefnd. Þátt- takan í Marshallhjálpinni fólst ekki aðeins í samskiptum við Bandaríkin, heldur einnig í samstarfi Evrópu- ríkja innbyrðis. Stalín taldi það skilyrði vera andstætt efnahagskerfi kommúnistaríkjanna. Hann hafnaði því aðild Sovétríkjanna og lét önnur Austur-Evrópuríki gera hið sama. Með því glataðist tækifæri, sem hefði getað lagt grundvöll að víð- tækri samvinnu Bandaríkjanna, Sovétríkjanna og allra Evrópuríkja. Slík samvinna gæti hafa breytt allri heimsmyndinni. f stað slíkrar sam- vinnu magnaðist kalda stríðið og tvískipting Evrópu í austur og vestur varð enn meiri en áður. Nú er ekki meginatriðið að deila um hverjum þetta var að kenna, heldur að taka upp þráðinn aftur á nýjum og heppi- legum grundvelli. Þótt Bandaríkin og Sovétríkin séu kölluð risaveldi, standa þau að veru- legu leyti á brauðfótum og áhrif þeirra fara dvínandi víða um heim, sbr. Afganistan og Mið-Ameríku. Jafnframt vex upplausn og óöld víða um heim, sér í lagi geta Bandaríkin, Sovétríkin og Vestur-Evrópa lítið breytt þessu. Öðru máli gegnir, ef þessir aðilar gætu tekið höndum saman og haft sameiginlega forustu, t.d. um viðreisn í þriðja heiminum. Leiðtogafundurinn í Moskvu ber ekki þann árangur, sem til var ætlast í upphafi varðandi samdrátt og út- rýmingu langdrægra kjarnork- uvopna. En risaveldin mega samt ekki gefast upp. Skynsamlegasti næsti áfangi í afvopnunarmálum gæti verið samningur um takmörkun hefðbundinna vopna og herafla. Hann gæti líka reynst stórt spor í þá átt að samfylkja Bandaríkjunum, Sovétríkjunum og Vestur-Evrópu til víðtækari viðreisnar á sviði al- þjóðamála yfirleitt.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.