Tíminn - 14.07.1988, Síða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 14. júlí 1988
Útflutningur á óunnum afla takmarkaður við 600 tonn:
LÍÚ vill meira magn
og styttri stjórnun
Utanríkisráöuneytiö hefur nú ákveðið aö takmarka útflutning á
óunnum þorski og ýsu, þannig að vikulegur útflutningur af þessum
tegundum fari ekki yfir 600 tonn. Þarf aö sækja um leyfi til
útflutnings á óunnum fiski í gámum minnst viku áður en fyrirhugaö
er aö flytja hann út. Ráöuneytið tekur síðan afstööu til umsóknanna
og á föstudegi er umsækjendum síðan tilkynnt hve mikiö þeir megi
flytja út í vikunni á eftir. Þetta fyrirkomulag gildir um útllutning á
óunnum þorski, ýsu, karfa og ufsa til loka septembermánaðar.
ila á öllu tímabilinu," segir í tilkynn-
„Ráðuneytið mun veita útgerðum
einstakra skipa, á grundvelli þcirra
umsókna sem bárust l'yrir 7. þ.m.,
vilyrði fyrir útllutningslcyfum fyrir
helmingi þess magns sem flutt var út
af þorsk- og ýsuafla einstakra skipa
á sama tímabili í fyrra. Þeir scm slík
vilyrði fá þurfa síðan vikulcga að
óska leyfis útflutnings á tiltcknu
magni og verða leyfi til vikulegs
útflutnings bundin við 15% af út-
flutningsheimildum viðkomandi að-
ingu utanríkisráðuneytisms.
„Auðvitað er æskilcgt að ekki
þurfi opinber afskipti af útflutningn-
um. Við eigum að geta stjórnað
þessu sjálfir. Það verður liins vegar
að viðurkennast að það hcfur ekki
tekist. LÍÚ hefur stjórnað útflutn-
ingnum á skipum og það hefur
gengið vel og ágreiningslítið. bar •
hefur verið reynt að fara eftir mark-
aðsaðstæðum. Viðskiptaráðuneytið,
og nú utanríkisráðuneytiö, hafa hins
vegar stjórnað gámaútflutningnum
og það hefur farið úr böndunum og
valdiö verðfalli," sagði Kristján
Ragnarsson, formaður LÍÚ í samtali
við Tímann.
Kristján benti á að þessi stjórnun
ráðuneytisins væri tilraun og ekki
hægt að lcggja fullt mat á hana sem
slíka fyrr en reynsla væri komin á
hana.
„Þetta er tilraun og þeir miða við
síðasta ár. Þar eru verulcgir ann-
markar. Nokkur skip voru í breyt-
ingum, viðgerðum og fleiru á síðasta
ári. Sumir hafa breytt útgerðarhátt-
um og svo framvegis og það verður
'að taka tillit til þeirra," sagði
Kristján.
Útvcgsmenn eru auk þess ekki
sáttir við tímalengd stjórnunarinnar.
Þeir telja að tvcir mánuðir hefðu
verið nóg, en ráðuneytið heldur sig
við þrjá mánuði.
„Við erum líka ósáttir við magnið.
600 tonn eru of lítið. Markaðurinn
getur tekið við mun meiru á góðu
verði. Við höfum hins vegar orð
þeirra fyrir því að þetta sé ekki
niðurneglt. Það verða hliðranir,"
sagði Kristján.
Utanríkisráðuneytið hefur einnig
ákveðið að með hliðsjón af markaðs-
horfum í Evrópu á óunnum karfa og
ufsa, verði engin útllutningsleyfi
veitt vegna útflutnings á þessum
tegundum í gámum á tímabilinu 24.
júlí til 7. ágúst. Ráðuneytið mun
síðan leitast viö að fylgjast með
horfum varðandi sölu á óunnum
karfa og ufsa og grípa til frekari
takmarkana á veitingu útflutnings-
leyfa reynist það nauðsynlegt. -SOL
Farsóttir í maí:
Kvef hrjáði
911 manns
Horgarlæknir hefur sent frá sér
skrá um farsóttir í Reykjavíkur-
umdæmi í maí 1988. Úpplýsing-
arnar cru samkvæmt skýrslum 7
lækna og Læknavaktarinnar sf.
í maí hrjáði kvef og aðrar
veirusýkingar í efri loftvegum
flesta cða 911 manns. Inflúensu
fengu 212 og lungnabólgu fengu
55. 74 fengu iðrakvef, 20 háls-
bólgu af völdum sýkla og 18
fengu hlaupabólu. Þeirsjúkdóm-
ar sem aðeins komu fram hjá
einum voru einkirningasótt,
hettusótt og maurkláði. í maí
mánuði fékk enginn matareitrun,
rauða hunda mislinga eða kíg-
hósta í Reykjavíkurumdæmi.
- ABÓ
Framkvæmda-
stjóri ráðinn
Stjórn Markaðsskrifstofu Iðn-
aðarráðuneytisins og Lands-
virkjunar, sem stofnuð var í maí-
mánuði sl. með sérstökum samn-
ingi milli aðila, hefur ráðið Garð-
ar Ingvarsson hagfræðing í starf
framkvæmdastjóra skrifstofunn-
ar frá og með 1. júlí.
Garðar er fæddur 10. apríl
1937 og stundaði nám í Þýska-
landi og lauk Dipl. Volksw. prófi
frá háskólanum í Köln árið 1966.
-gs
Erlendir ferðamenn á tjaldstæðunum í Laugardal:
Landiðerfallegt
en verðlagið hátt
Útlcndingar sem leið sína lcggja
til íslands virðast á citt sáttir um að
hér ríki gífurleg dýrtíð. Erlendir
ferðamenn sem höfðu hug á að
koma til landsins í sumar hafa margir
hverjir hætt við sökum þessa og enn
aðrir sem þegar eru hingað komnir
segjast hættir við að kaupa hcr ýmsa
þá muni sem þeir hugðust kaupa
sökum gífurlega hás verðs.
Á tjaldstæðinu í Laugardal hitti
Tíminn nokkra erlenda fcrðamenn
sem dvalist höfðu hér um tíma,
nægilega lcngi til að kynnast vcrð-
inu, og spurði hvernig þcim líkaði
dvölin.
Annetta Woerner og Peter Wo-
erner eru frá Þýskalandi. Þau komu
til íslands fyrir nokkrum dögum og
hafa hug á að feröast um landið á
reiðhjólum næstu fjórar vikurnar.
„Landið cr rnjög fallcgt en verðið
á öllu hér er ótrúlega hátt. Við
heföum aldrci trúað þessu,“ sagði
Peter Woerner. Og bætti við að þau
hjónin væru hætt við að kaupa ýmsa
muni sem þau höfðu heyrt um og
haft hug á að kaupa áður cn þau
komu til landsins. „Það er víst nóg
að þurfa að fæða sig á meðan á
dvölinni stendur," sagði Annetta
Woerncr. Þau vildu þó meina að
mikil náttúrufegurð bætti upp hátt
verð og kváðust ánægð með dvölina.
Didicr Chateau, Marie Varlet og
Christophe Maitre voru tiltölulega
nýkomin til landsins frá Frakklandi.
Þau ætla að dveljast hér í 17 daga og
sögðust hafa hug á að nýta tímann í
að ferðast um landið.
Aðspurð að því hvað þeim fyndist
um verðlag á íslandi sögðust þau
hafa vitað um dýrtíðina áður en þau
komu og hcfðu því vcrið búin að
gera ýmsar ráðstafanir. „Ég var hér
fyrir tveimur árum og vissi því hvað
allt er hér hrikalega dýrt,“ sagði
Christophe Maitre. „Þess vegna
komum við með ýmislegt ætilegt
með okkur,“ bætti hann við að
lokum. IDS
Krakkarnir Didier Chateau, Marie Varlet og Cristophe Maitre voru svo forsjál að konia með ýmislegt matarkyns
með sér til landsins þar sem þau vissu fyrir um verð á hlutum hér. Timamyndir:Gunnar
Hjónin Annetta og Peter Woerner hyggjast hjóla um fsland en segjast verða
að hætta við að kaupa ýmislegt sem þau höfðu hugsað sér vegna einmuna
dýrtíöar hér á landi.
Fundað um land-
búnað í Fljótum
Kvennalistinn gekkst fyrir ráð-
stefnu um landbúnaðarmál og
landnýtingu fyrir skömmu. Ráð-
stefnan var haldin að Sólgörðum í
Fljótum. Þangað komu liðlega 40
konur víðsvegar að af landinu, en
konur á Norðurlandi höfðu veg og
vanda að undirbúningi og
framkvæmd.
Á ráðstefnunni fluttu framsögu-
erindi Ásgerður Pálsdóttir Geita-
skarði, Sigrún Helgadóttir Reykja-
vík og Ágústa Þorkelsdóttir
Vopnafirði. Einnig fjölluðu Dan-
fríður Skarphéðinsdóttir og Mál-
fríður Sigurðardóttir um byggða-
jafnvægi og Jófríður Traustadóttir
ræddi um málefni bænda og neyt-
enda, og auk þess greindu þátttak-
endur frá stöðu landbúnaðar í
sínum heimabyggðum.
Kom fram mikill uggur vegna
erfiðrar stöðu bænda og mikils
fólksflótta af vissum stöðum á
landinu.
Á ráðstefnunni kom fram sú
skoðun að víða á landsbyggðinni
geti fólk hvorki verið kyrrt eða
flutt burtu. Mismunur á fasteigna-
verði eftir því hvar eignin er
staðsett á landinu sé svo gífurlegur,
auk þess sem bújarðir með tak-
mörkuðum framleiðslurétti eru
vart seljanlegar í dag.
Að sögn þeirra sem að ráðstefn-
unni stóðu tókst hún mjög vel.
Niðurstöður hennar verða m.a.
notaðar til að móta heildarstefnu
Kvennalistans í landbúnaðar- og
byggðamálum.
Konurnar luku lofsorði á dvölina
nyrðra. Á meðan á henni stóð fóru
þær í skoðunarferð um Fljót og
nágrenni í boði Fljótahrepps og
skoðuöu m.a. fiskeldisstöð Mikla-
lax h.f. á Lambanes-Reykjum.
-öb Fljótum.