Tíminn - 14.07.1988, Síða 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 14. júlí 1988
VERDUR HÖRPUDISKUR
NÆSTA ELDISGREININ?
Guðrún G. Þórarinsdóttir sjávarlíffræðingur hefur fengið
styrk úr rannsóknasjóði að upphæð 2,2 milljónir til tilrauna-
eldis á hörpudiski, Chlamys Islandica. Tilraunaeldið fer fram
á Breiðafirði og við Yatnsleysuströnd, en Hafrannsóknar-
stofnun er samstarfsaðili Guðrúnar. Hún áætlar að það taki
þrjú ár að rækta hörpuskelina upp í matfisk.
Tilraunin verður í raun tvíþætt til
að byrja með. í fyrsta lagi verða
settar út lirfugildrur til að safna
hörpudisklirfunum. Eftir ár verða
gildrurnar teknar upp og þá eiga að
vera komnar litlir hörpudiskar sem
síðan verða ræktaðir áfram í búrum.
í öðru lagi verður einnig veidd
undirmálsskel, um það bil ársgömul,
og um 1 sm að stærð. Þessi skel
verður síðan sett í ræktunarbúr sem
komið verður fyrir á mismunandi
dýpi. Guðrún sagði að mánaðarlega
mundi hún taka búr sem staðsett
hefðu verið á þrennskonar mismun-
andi dýpi til að fylgjast með vextin-
um.
í sumar fer eldið eingöngu fram á
Breiðafirði. Búrin verða sett þar,
sagði Guðrún vegna þess að á Vatn-
sleysuströnd eru ekki sömu náttúru-
legu mið eins og á Breiðafirði. „Þar
verður lirfunum safnað, en síðan
næsta sumar mun ég flytja hluta
þeirra á Vatnsleysuströnd. Þar er
hlýrri sjór og þá er ætlunin að
fylgjast með því hvort hitastig sjávar
hafi einhver áhrif. Hvort það flýti
vexti þeirra, hvort hitinn sé of mikill
fyrir dýrin eða hvers vegna villtur
hörpudiskur lifir ekki við sunnanvert
land.“
Guðrún sagði að aðilar við Breiða-
fjörð hefðu mikinn áhuga á að fara
út í eldi á hörpudiski, þegar þessu
rannsóknarverkefni væri lokið og
það gæfist vel. Markaðsverð á
hörpudiski er frekar lágt í dag,
miðað við hvað það hefur verið á
undanförnum árum. Guðrún sagði
að þrátt fyrir að talað væri um að
markaðsverð væri lágt, þá væri þetta
í raun fokdýr matur. Það hefur sýnt
sig, sagði Guðrún með allan ræktað-
an skelfisk að hann er kjötmeiri og
auk þess bragðbetri en villtur, þann-
ig að hann ætti að gefa meira af sér
í krónum talið.
Til tilraunaeldisins hefur Guðrún
80 búr sem rúma um 8000 ársgamlar
skeljar og 85 lirfusafnara. -ABÓ
Þjóðhagsstofnun spáir enn meiri vaxtahækkunum þegar líður á árið:
Slegist um lán á
75-80% „vöxtum“
Þjoðhagsstofnun spáir enn meiri vaxtahækkunum þegar liour á ario:
Slegist um lán á
75-80% „vöxtum“
Þóll v»*l»-, »ff»IU o* »nn»r Unlókuko'tnaðiir w nu almrnnl
kominn upp í 75-80% á ári virðút það ekki f*U eyftvluglaða
Idendinga frá auknum lánlökum. nero» «ður ti. Ve*lir o* annar
lántökukostnaður vegna viðskiplavisla sem menn eru »ð selja t
bönkunum þeua dagani, og vella siðan á undan sér með nýjum
víslum mánaðarlega, svara lil 75-80% koslnaðar á ári. samkva-ml
dsrmum sem Tirniun fékk reiknimeislara í einum bankanna lil að
sU á fyrir si|> i gar. I þessum dtrmum var miðað við algengar
visilupphnðir (50-100 þus.l en kostnaðarhlulfallið g*li orðið
mun h*rra ef um smáupphvðir v*ri að neða.
Pessar „vsilaprösenlur- (75- fari ( vanskil Póll hér séu lekin
80% og þar yfir) þurfa h*ði fynr- clxmi af vlxilkostnaði (vðxlum.
laeki og ekki siður þcir sem kaupa UmAkukoslnaði og/cða affnllum
.lcikfðngin- sfn með afborgunum ogsiimpilgjöldum)geiallnlakend-
að grciða. auk þess sem vcrslanir ur sem sknfa undir skuldab-cf ckki
sem hoðið hafa honum (cins og
fjðlda annarra landsmanna) hóka-
l.(HX) kröna mánaðarlcgum af-
horgunargrciðsium. Dankamaður-
inn varaði sig hms vcgar á þvi -
- að hann garii*þurfi að horga
300-350 kröna innhcímluþriknum
grciðslu. þ.e. selji fynrlxki (höka- vcrt ui
úlgáfa i t*ssu dcmi) skuldahrCfið þcssu
Póll hagfi.cðin kcnni að
vexlir dragi úr eflirspum cflir
um og laði f<Uk lil sparnaðar vc
larpast sCð að sú hagfrarðikcr
gildi varðandi Islendinga.
Þráll fyrir gifurlcga háa
upplýsir þjöðhagssiofnun að i
innlánsslofnana hafi aukisl
llán það scm
cða vfxlan
Aðcms ir
ARI HÆKKUNAR RAUN-
VAXTA.
Það scm þjöðin cyðir I cr að
Þann 5 miltjarða króna
ur þvf að fjármagna m
iluþóknunin g*li
fiafþcssum I2milljörð-
Vegna mistaku við uppsctningu á
meginmáli forsíðufréttar Tímans í
gær sem gerði hana illskiljanlega á
stórum köflum endurbirtum við þá
frétt hér í heild sinni. Lesendur eru
beðnir velvirðingar á þessum
tæknilegu mistökum.
Þótt vaxta-, affalla og annar
lántökukostnaður sé nú almennt
kominn upp í 75-80% á ári virðist
það ekki fæla eyðsluglaða íslend-
inga frá auknum lántökum, nema
síður sé. Vextir og annar lántöku-
kostnaður vegna viðskiptavfxla
sem menn eru að selja í bönkunum
þessa dagana, og velta síðan á
undan sér með nýjum víxlum mán-
aðarlega, svara til 75-80% kostnað-
ar á ári, samkvæmt dæmum sem
Tíminn fékk reiknimeistara í ein-
um bankanna til að slá á fyrir sig í
gær. í þessum dæmum var miðað
við algengar víxilupphæðir (50-100
þús.) en kostnaðarhlutfallið gæti
orðið mun hærra ef um smáupp-
hæðir væri að ræða.
Þessar „vaxtaprósentur" (75-
80% og þar yfir) þurfa bæði fyrir-
tæki og ekki síður þeir sem kaupa
„leikföngin" sín með afborgunum
að greiða, auk þess sem verslanirn-
ar hafa í þeim tilfellum þá oft bætt
á höfuðstól lánsins þóknun fyrir
pappírsvinnu og þá áhættu sem
þær taka af því að bréfin/víxlarnir
fari í vanskil. Þótt hér séu tekin
dæmi af víxilkostnaði (vöxtum,
lántökukostnaði og/eða afföllum
og stimpilgjöldum) geta lántakend-
ur sem skrifa undir skuldabréf ekki
reiknað með að slcppa mikið
betur.
Bankamaður sem Tíminn talaði
við minntist t.d. á farandbóksala
sem boðið hafa honum (eins og
fjölda annarra landsmanna) bóka-
flokka til kaups með „aðeins" um
1.000 króna mánaðarlegum af-
borgunargreiðslum. Bankamaður-
inn varaði sig hins vegar á því - sem
margir aðrir gera kannski ekki - að
hann gæti þurft að borga 300-350
króna innheimtuþóknum á hverja
1.000 króna mánaðargreiðslu, þ.e.
setji fyrirtæki (bókaútgáfa í þessu
dæmi) skuldabréfið eða víxlana til
innheimtu í banka. Aðeins inn-
heimtuþóknunin gæti því farið yfir
4.000 kr. á ári af 12 þús. króna
bókapakka, auk allra verðbóta og/
eða vaxta og annars lánakostnaðar
vegna afborgunarkaupanna.
Þótt hagfræðin kenni að háir
vextir dragi úr eftirspurn eftir lán-
um og laði fólk til sparnaðar verður
tæpast séð að sú hagfræðikenning
gildi varðandi íslendinga.
Þrátt fyrir gífurlega háa vexti
upplýsir Þjóðhagsstofnun að útlán
innlánsstofnana hafi aukist tölu-
vert umfram innlán það sem af er
þessu ári, eða um 3.000 milljónir
króna.
Þótt háir innlánsvextir séu einnig
í boði er Þjóðhagsstofnun afar
vondauf um að landsmenn auki
sparnað. („Þar sem ekki er gert ráð
fyrir breytingum í sparnaðarhneigð
heimilanna er spáð sömu einka-
neyslu í ár og í fyrra“, segir í nýrri
þjóðhagsspá.) Þvert á móti er talið
líklegt að samkeppnin um lánsfé
muni enn harðna þegar líður á
árið, sem leitt gæti til enn frekari
hækkunar raunvaxta.
Það sem þjóðin eyðir í er að mestu
innfluttur varningur. Sú mikla eyð-
sla sem Þjóðhagsstofnun telur
fyrirsjáanlega þýðir að innflutning-
urinn verður um 5.000 milljónum
króna (20.000 kr. á hvern Islend-
ing) meiri en það sem landsmenn
fá fyrir útflutninginn. Þann 5 mill-
jarða króna halla verður því að
fjármagna með erlendu lánsfé, til
viðbótar þeim 12.000 milljóna
króna erlendum langtíma-
lántökum, sem áður var búið að
áætla. Þó svo að áætlanir standist
um að notaóafþessum 12milljörð-
um til afborgana eldri lána, sýnist
ljóst að erlendu skuldirnar svífi vel
yfir 100.000 milljónir á þessu ári.
-HEI
Stór könguló lenti á öxl ískaupanda:
Tarantúla á
ferð í Eden?
Henni brá heldur betur í brún
stúlkunni sem keypti sér ís í Eden í
síðustu viku, þegar eitthvert flykki
lenti á öxlinni á henni.
„Vinkona mfn stirðnaði upp og
sagði að það væri könguló á öxlinni
á mér. Eg þoli ekki köngulær og
spratt á fætur og veifaði höndunum
og sópaði kvikindinu af öxlinni á
mér,“ sagði stúlka sem varð fyrir
þeirri óskemmtilegu reynslu að stór
könguló, sem jafnvel gæti verið
tarantúla, hvíldi sig á henni.
Að sögn sjónarvotta var könguló-
in jafn stór og þegar langatöng og
þumalfingur mynda hring og dökk
að lit.
„Ég get vel skilið að konur verði
hræddar við slíkt. En hér er ekkert
innandyra sem ekki er til í íslenskri
náttúru. Við gerum allt til að hafa
hér hreint. Það eru fáir staðir jafn
fjölsóttir og Eden og ef um árásir
meindýra væri að ræða, þá væri ég
löngu orðinn gjaldþrota,“ sagði
Bragi Einarsson eigandi Eden í sam-
tali við Tímann.
Árni Einarsson, líffræðingur, var
hins vegar ekki jafn sannfærður og
Bragi.
„Þetta er ekki íslensk könguló.
Stærsta íslenska köngulóin er fjalla-
könguló og hún er á stærð við
krónupening. Hún er hins vegar
gráleit og með hvítan kross á bak-
inu,“ sagði Árni.
Hann sagði að það gerðist iðulega
að útlenskar köngulær slæddust með
blóma- og ávaxtasendingum til
landsins, en þær hafa ekki náð
fótfestu, að því er hann best vissi.
Tarantúlur hafa slæðst hingað
nokkrum sinnum, en þær eru jafn
stórar og sjónarvottar lýsa
köngulónni í Eden og dökkbrúnar.
„Það er ekki óhugsandi að um
tarantúlu hafi verið að ræða. Hún
hefur þá komið með sendingu sunn-
an úr löndum," sagði Ámi.
Þessar köngulær eru ekki hættu-
legar, þó þær geti bitið. Bitið sjálft
er hins vegar ekki hættulegt, þó
óþægilegt sé.
Tarantúlur hafa jafnan vakið óhug
meðal manna og ófáar hrollvekjur
hafa notað þá tegund til að hræða
bíógesti. Fólk getur hins vegar hugg-
að sig við að svona „útlenskar"
köngulær lifa mjög stutt hér á landi.
Leiðrétting
Tímanum hefur verið bent á, að í
frétt um, að elding hafi lostið tvær
kýr á Svarfhóli um síðustu helgi, hafi
bærinn verið settur í skakka sveit.
Hann var sagður í Leirársveit, en
hið rétta er, að Svarfhóll er neðar-
lega í Svínadal í Strandahreppi.
Tíminn þakkar ábendinguna og
biðst velvirðingar á mistökunum.
Miðum
hraða
ávallt við
aðstæður
lUMFERÐAR
Práð