Tíminn - 14.07.1988, Síða 7

Tíminn - 14.07.1988, Síða 7
Fimmtudagur 14. júlí 1988 Tíminn 7 Athugasemd frá Bryndísi Schram Kæri Indriði Vegna fréttar í blaði þínu í gær um að ég hafi látið símastúlkur Alþingis bjóða til afmælis míns á Hótel íslandi um síðustu helgi langar mig að biðja þig að birta eftirfarandi: Þegar ég fyrir nokkrum vikum ákvað að halda hálfrar aldar afmæli mitt hátíðlegt, fannst mér skynsam- legast að senda ekki út kort né heldur hringja í nokkra manneskju. Ég bað hins vegar skólabróður minn, ritstjóra Morgunblaðsins að birta mynd af mér í tilefni dagsins í Dagbókinni, þar sem undir stóð, að ég væri með opið hús og tæki á móti gestum á tilteknum tíma. Þannig var ég viss um að skilaboðin bærust til allra (blað allra landsmanna!) og ég kæmist hjá því að gleyma einhverj- um sem gjarnan vildu gleðja mig með nærveru sinni. Ég sver ekki fyrir það, að mamma hafi hringt í einhverjar gamlar vin- konur sínar, en að það hafi hvarflað að mér að láta símastúlkur háttvirts Alþingis standa í slíku er fáránlegt og þykir mér leitt að Albert Guð- mundsson, gamall kunningi fjöl- skyldunnar, skuli láta hafa slíkt eftir sér. ps. Eiginmaður minn hafði engin afskipti af þessu. Bryndís Schram. Frá framkv.st. Alþýðuflokks Kæri Indriði. Vegna dylgja um afmæli Bryndís- ar Schram í blaðinu þínu í dag vil ég taka fram eftirfarandi: Skrifstofur stjómmálaflokkanna vinna ýmis verk til aðstoðar þing- mönnum, m.a. að segja þeim frá eða minna þá á fundi, ráðstefnur og samkomur af ýmsu tagi. Það getur t.d. oft talist til skylduverka eða almennrar kursteisi af þingmanna hálfu að sýna hug sinn með skeyta- sendingum, blómum eða heimsókn- um við ýmsar kringumstæður í lífi samþingmanna sinna. Dæmin eru mörg og misjöfn. I mínu minni eru þau allt frá afmælisveislum til jarð- arfara þingmanna eða skyldfólks þeirra. Vegna afmælis Bryndísar Schram hringdi ég til framkvæmdastjóra stjórnmálaflokkanna og sagði þeim frá deginum og fyrirhugaðri móttöku á Hótel íslandi. Ég bað þá að tiikynna þetta þeim úr hópi sinna manna sem vegna vinskapar vildu vita. Þetta var án vitunar Bryndísar, en sjálfsögð greiðasemi við vini þeirra hjóna í öðrum flokkum. Þetta erindi mitt var sams konar og erindi framkvæmdastjóra Framsóknar- flokksins, sem fyrir örfáum vikum hringdi og sagði mér frá fyrirhugaðri afmælisveislu Steingríms Hermanns- sonar. Hann var ekki að bjóða f veislu. Hann var að láta vita af merkisdegi. Þetta var gott dæmi um fyrirhyggju og kurteisi. Ég bað einnig símaþjónustu Al- þingis að koma sams konarskilaboð- um til þingmanna Alþýðuflokksins. Á sumrin eru þingmenn víðs vegar um land á fundum, vinnustöðum og ferðalögum vegna starfa sinna. Þeir geta líka verið í fríi eins og venjulegt fólk. Á hverjum degi eru það síma- stúlkur Alþingis, sem gerst vita um ferðir þeirra. Þær taka við skilaboð- um og samviskusamir þingmenn eru í tíðu sambandi við þær. Þessi starf- semi símaborðsins er því eðlileg og sjálfsögð þjónusta og nýtist öllum sem þurfa að koma orðum til þing- manna. Allt þetta veit Albert Guðmunds- son og allt þetta veit sérhver dugandi manneskja úr hópi fréttamanna, sem njóta þessarar þjónustu Alþingis. „Frétt“ Tímans er því ótrúlegur rógur í garð konu sem hefur ekkert til saka unnið annað en að vera landsþekkt, gift umdeildum stjórn- málamanni og hafa líklega fengið fleiri vini í fimmtugsveisluna sína en þeir Albert og ritstjórar Tímans til samans. Ætti ekki einhver að biðjast af- sökunar? Virðingarfyllst, Guðmundur Einarsson, framkvæmdastjóri A Iþýðuflokksins. Athugasemd frá ritstjóra Öll Jón greiðir ölföng sín afmælis á dögum, en borgar aldrei brennivín í bændur í skuldaklöfum. t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma Jónína Sigurjónsdóttir, húsfreyja Byggðarhorni, Sandvikurhreppi, Arnessyslu sem lést 10. júlí s.l. verðurjarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 16. júlí kl. 13.30. Jarðsett verður að Laugardælum. Geir Gissurarson Gissur Geirsson Ásdís L. Sveinbjörnsdóttir Úlfhildur Geirsdóttir Sigvaldi Haraldsson Hjördís J. Geirsdóttir Þórhallur Geirsson Gísli Geirsson Ingibjörg K. Ingadóttir Brynhildur Geirsdóttir Kristján Einarsson barnabörn og barnabarnabarn. MP Mustríal HJÓLAGRAFAN SEM SKARAR FRAMÚR BUNADARDEILD ARMULA3 REVKJAVÍK SlMI 38900 DAL-BO baggavagnar ★ Dekk 850x12 ★ Rúmmál 30 rúmm. ★ Til afgreiðslu strax ★ Gott verð ★ Góð greiðslukjör FLATAHRAUNI 29 220 HAFNARFIRÐI. S-91. 651800 BOÐI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.