Tíminn - 14.07.1988, Page 12
12 Tíminn
FRÉTTAYFIRLIT
STETTIN — Mikhail Gorbat-
sjov leiðtogi Sovétríkianna
heimsótti skipasmíðastöðina í
Stettin, en þar er eitt sterkasta
vígi hinna ólöglegu verkalýðs-
samtaka Samstöðu. Gorbat-
sjov fékk kurteislegar móttökur
hjá verkamönnunum, en marg-
ir þeirra yfirgáfu salarkynni
áður en Gorbatsjov hafði lokið
ræðu sinni.
TEL AVIV — Ríkisútvarpið í
ísrael sagði að herréttur hefði
stytt fangelsisdóm liðsforingj-
ans Charlie Danino sem stöðv-
aði ekki undirmenn sína er þeir
grófu fjóra Palestínumenn lif-
andi í þorpinu Kafr Salem í
febrúarmánuði. Danino hafði
fengið fjögurra mánaða dóm,
en þarf aðeins að sitja inni í tvo
mánuði.
FRANKFURT — Líbaninn
Mohammed Ali Hammadi sem
sakaður er um fluarán og morð
sagði réttinum að hann hefði
tvisvar smyglað sprengiefnum
inn í Vestur-Þýskaland, en
neitaði því að hann tilheyrði
hinum öfgafullu Hizbollah sam-
tökum í Líbanon.
NIKÓSÍA — Mir-Hossein
Mousavi forsætisráðherra ír-
ans gaf lítið út á ósigra íranska
hersins á vígstöðvunum að
undanförnu, en sagði að
undanhald iranska hersins á
tveimur stöðum væri aðeins
tímabundið og í undirbúningi
sé stórsókn sem muni gera út
um stríðið. Talsmaður írakska
hersins í Bagdad sagði að
sveitir íraka hefðu náð bænum
Halabja á norðurvígstöðvun-
um á vald sitt, auk þess sem
írakar hefðu sótt 40 km inn í
íran í suðurhluta landins.
S.Þ. — George Bush varafor-
seti Bandaríkjanna mun mæla
fyrir hönd Bandaríkjastjórnar
þegar Öryggisráð tekur fyrir
skotárás Bandaríkjamanna á
írönsku farþegaþotuna yfir
Hormuzsundi.
MOSKVA — Spenna jókst
enn í Kákasusríkjum Sovét-
ríkjanna eftir að héraðsstjórnin
í Nagorno-Karabakh hafði lýst
því yfir að héraðið hefði slitið
sambandi við Azerbaijan og
væri nú sjálfstætt hérao innan
Sovétlýðveldisins Armeníu.
MONROVIA — Líberískir
hermenn komu í veg fyrir að
fyrrum varaforseti landsins, J.
Nicholas Podier næði að kom-
ast út úr landinu ásamt 11
skæruliðum er honum fylgja.
Podier er sakaður um að hafa
undirbúið misheppnað valda-
rán árið 1984.
Fimmtudagur 14. júlí 1988
ÚTLÖND .. ■' - : /v ^ ... ... .. . .. T;- ... ,,,r. ... .. ;
Hliðiö inn á Helleniok herflugvöllinn utan viö Aþenu. Bandaríkjuntenn þurfa að hverfa frá þessari mikilvægu herstöð
sinni iim mitt ár 1990 ef ekki næst samkomulag við grísk stjórnvöld.
Suður-Líbanon:
Blóðið
rennur
íbar-
dögum
Blóðið rann í Suður-Líbanon í
gær þegar ísraelskir hermenn og
liðsmenn í suður-líbanska hernum
áttu í hörðum átökum við skæruliða
hinna öfgafullu Hizbollah samtaka.
Skæruliðarnir höfðu hreiðrað um sig
í þorpi rétt norðan við öryggisbelti
það er ísraelsmenn hafa lýst yfir að
sé meðfram landamærum ísraels.
ísraelar og skjólstæðingar þeirra
beittu skriðdrekum, þungvopnuðum
bifreiðum og þyrlum í átökunum, en
tilgangur þeirra var að flæma Hiz-
bollah menn á brott. Að minnsta
kosti þrír Hizbollahmanna munu
ekki hörfa frá bænum, því þeir féllu
í átökunum. Sömu örlög hlaut einn
lermaður úr liði ísraelsmanna.
Bandarískir hermenn
burt frá Grikklandi
Gríska ríkisstjórnin hefur krafíst þess að Bandaríkjamenn loki
herstöðvum sínum í Grikklandi og eiga síðustu bandarísku her-
mennirnir að vera komnir úr landi um mitt ár 1990. Bandaríkjamenn
hafa fjórar stórar herstöðvar staðsettar á Grikklandi auk þess sem
bandarískir hermenn eru staösettir á tuttugu minni varðstöðum í
landinu.
Að undanförnu hafa farið fram
viðræður milli grískra og bandarí-
skra stjórnvalda um áframhaldandi
veru bandarísks herliðs á Grikkl-
andi, en niiverandi herstöðvarsamn-
ingur rennur út um næstu áramót.
Segja Grikkir að viðræðurnar hafi
siglt í strand og því er Bandaríkja-
mönnum gefinn sautján mánaða
frestur til að hypja sig, eftir að
núverandi samningur rennur út.
Alls munu vera um 3700 banda-
rískir hermenn í Grikklandi, flestir
þeirra á mikilvægum herflugvelli
Bandaríkjamanna nærri Aþenu og
flotastöð á grísku eyjunni Krít.
Forsætisráðherra Grikklands,
Andreas Papandreou, sem hét því
að loka bandarískum herstöðvum á
Grikklandi þegar hann var fyrst
kjörinn árið 1981, sagði að ríkis-
stjórn sín myndi halda þó áfram
viðræðum við Bandaríkjastjórn.
Hingað til hafa viðræður ekki mjak-
ast neitt þrátt fyrir að átta sinnum
hafi verið sest niður við santninga-
borðið.
Grikkir hafa viljað gera her-
stöðvasamning sem feli það í sér að
Bandaríkjamenn taki afstöðu með
Grikkjum í deilunni við Tyrki um
svæði í Eyjahafi. Á það hafa Banda-
ríkjamenn ekki getað fallist, enda
treysta þeir mjög á Tyrki og hafa
sjálfir herstöðvar í Tyrklandi.
Talið er ólíklegt að samkontulag
náist um nýjan herstöðvasamning
fyrir þingkosningarnar sem fram fara
í Grikklandi í júní á næsta ári, þar
sem Papandreou geti ekki bakkað í
þessu máli, án þess að sýna frant á
einhvern ávinning.
Bandaríkjamenn eiga ekki aðeins
í erfiðleikum með herstöðvar sínar í
Grikklandi. Herstöðvasamningur
þeirra á’Filippseyjum ernú að renna
út og hefur gengið treglega að fá
hann endurnýjaðan.
EB kaupir
appelsínur
af Palest-
ínumönnum
Fimm lönd Evrópubandalags-
ins hafai gert kaupsamning á
appelsínum og öðrum sítrus-
ávöxtum við Palestínumenn sem
búa á hernumdu svæðunum á
Gaza. Gert er ráð fyrir að Palest-
ínumenn selji 16 þúsund tonn af
þessum safaríku landbúnaðaraf-
urðum, án milligöngu ísraelskra
útflutningsfyrirtækja sem hingað
til hefurveriðskilyrði. Með þessu
vilja Evrópubandalagsríkin
reyna það hvort hugur fylgi máli
hjá ísraelskum stjórnvöldum,
sem gefið hafa í skyn að Palest-
ínumenn geti sjálfi.r selt vörur
sínar til útflutnings.
Ný hryðju-
verkasam-
tök bera
ábyrgðina
Áður óþckkt hryðjuvcrka-
amtök Palestínumanna í Líbanon
segjast bera ábyrgð á hinni grim-
mtlegu árás sem gerö var á gríska
farþegaferju á mánudag og kost-
aði níu manns lífið.
„Samtök pfslarvotta alþýð-
uuppreisnarinnar í Palestínu,
Abu Jihad Unit, gerðu skyndi-
árás á tugi Sfonista, bandarískra
óg breskra hermanna um borð í
gríska skipinu „Borg Poros",
sagði í yfirlýsingu samtakanna.
Yfirlýsingin var vélrituð á ar-
abísku og send til alþjóðlegrar
fréttastofu í múslímska hluta
Vestur-Beirút.
Hópurinn sagöi ódæðið vera
endurgjald „fyrir dráp og útrým-
ingaárásir glæpasamtaka banda-
rískra gyðinga í Palcstínu, Lfban-
on og á Persaflóa og hefnd fyrir
heimskulega baráttu og stuðning
brcska forsætisráðhcrrans við
glæpi gyðinga".
í yfirlýsingunni sagði cinnig að
árásin á farþcgaferjuna „væri
ckki bcint að hinni vinsamlegu
grísku þjóð...".
Sovétríkin:
Blankheit Kanans
há útflytjendum
Bandarísk fjárlög koma nú í veg fyrir að nær fímmhundruð
Sovétmenn, flestir Armenar, sem fengið hafa leyfí frá sovéskum
yfírvöldum, geti yfírgefíð Sovétríkin. Heilu armensku fjölskyldurnar
hafa selt allar eigur sínar eftir að hafa fengið brottfararleyfí, en eru
nú á vergangi í Moskvu vegna þess að fjárveiting Bandaríkjaþings
sem ætluð var til þess að greiða götu Sovétmanna er hugðust flytja
til Bandaríkjanna er upp urin.
Er ljóst að næstu sovésku útflytj-
endurnir sem fá landvistarleyfi í
Bandaríkjunum komast ekki þangað
fyrr en í nóvember þegar fjármagn
verður tiltækt á ný. Er þetta mjög
neyðarlegt fyrir Bandaríkjamenn
sem hamrað hafa á því að stjórnvöld
í Sovétríkjunum veiti þegnum sínum
ferðafrelsi.
„Við sofum á lestarstöðvum og í
almenningsgörðum," sagði Gevork
Akhparyan sem beið fyrir utan
bandaríska sendiráðið í Moskvu
ásamt áttatíu öðrum Armenum sem
fengið hafa leyfi til að flytja úr landi.
„Hvað getum við gert? Við seldum
allt sem við áttum. Við höfum enga
vinnu heima. Ég ætla að segja þeim
að við getum ekki farið aftur til
Jerevan."
Gevork yfirgaf Jerevan ásamt fjöl-
skyldu sinni eftir að bandaríska
sendiráðið hafði sent honum bréf
þar sem fjölskyldan var boðuð til
Moskvu í viðtal, áður en þau héldu
til Bandaríkjanna. En þegar til
Moskvu kom voru dyr sendiráðsins
þeim læstar.
Sendiherra Bandaríkjanna í
Moskvu, Jack Matlock sagði blaða-
mönnum að við þessu væri ekkert að
gera, þegar peningarnir til þessa
liðar væru upp urnir gæti sendiráðið
því miður ekkert gert.
Á sama tíma beið Gevork með
þriggja ára dóttur sinni og sex öðrum
fjölskyldumeðlimum fyrir utan send-
iráðið og vonaði að kraftaverkið
gerðist. Ef ekki þann dag, þá þann
næsta. En ekkert bendir til að auka-
fjárveiting til þessa mála fáist, svo
Gevork og fjölskylda hans þarf að
líkindum að bíða fram í nóvemb-
ermánuð. Það er vonandi að haustið
verði milt.
UMSJÓN: