Tíminn - 18.09.1988, Qupperneq 3
T
Laugardagur 17. september 1988
HELGIN
3
'i
„Augafullir erum við í kvöld, og
alla næstu viku!“
Frá vinstri: Lárus Halldórsson
Dalvík, Stefán Friðgeirsson
Dalvík, Sigurður Eiðsson bóndi
Hreiðarsstaðakoti og Einar Hall-
grímsson bóndi Urðum
í ár sá Pálmi Stefáns., margfrægur
norðlenskur spillemann, og félagar
um fjörið. Þegar líða tók á ballið
fóru að streyma svitalækir niður
veggi Höfða. Einhver orðaði það
svo að ballið hefði verið svo helvíti
gott að húsið hefði einfaldlega grátið
af gleði.
Gamanið var víðar en inn í svíng-
andi Höfðanum. Undir húsvegg
drógust saman ungir elskendur og
tóku eina létta Amorsyrpu. Ekki
nóg með það. Leikurinn barst í
brekkurnar suður undir á. Par gátu
ástföngnu pörin leikið sér í friði fyrir
sterkum ljóskösturum varða lag-
anna.
Aftur að fara í göngur?
Hætta verður leik þá hæst hann
stendur segir einhversstaðar og það
gilti einnig um þetta dúndur réttar-
ball. Enn einar göngur og réttir voru
'að baki með öllu tilfallandi kryddi.
Menn geta strax farið að undirbúa
sig fyrir næsta ár, eða hvað?
Eins og áður segir verður fjárstofn
í Svarfaðardal felldur á þessu hausti
vegna riðuveiki. Næsta haust verður
því fátt um kindur í Svarfaðardal.
Mönnum ber þó lagaleg skylda til að
kemba öll gangnasvæði, með öðrum
orðum að fara í fjárlausar göngur.
Það verður að koma í ljós hvort
mönnum tekst að ári að halda upþi
þessari velþekktu svarfdælsku
réttarstemmningu án kinda. Ef að
líkum lætur verður það ekki neinum
vandkvæðum bundið. Þeirri hug-
mynd hefur verið hreyft að halda
minningarhátíð íslensku sauðkind-
arinnar í Tungurétt haustið 1989.
Góð hugmynd og vert að athuga
gaumgæfilega. Pví er hér með slegið
föstu að á haustdögum 1989 verði,
eins og segir í bragnum góða,:
Kneifað vín á Krosshóli, daðrað við
dætur byggðarlagsins á Tungurétt og
haugfullt stóð á Höfðaballi!
Unga fólkið hafði einna mestan
áhuga á sölulúgucn kvenfélagsins
Tilraunar. Fyrir innan lúgurnar
kenndi ýmissa grasa, pylsur, kók,
prins og kúlur, hreinlega allt sem
góðri sjoppu sæmir!
Hær., Steingrím á Sökku, Steingrím
heitinn gangnaforingja á Ingvörum,
Ríkharð í Bakkagerði eða Friðjón í
Kjötbúðinni?
Svið og hangikjöt
á hverjum bæ
Þegar líða tók á daginn fór fólk að
tínast í burtu af Tungurétt. Flestir
notuðust við bílana, aðrir við þarf-
asta þjóninn og enn aðrir við tvo
jafnfljóta. Sumir héldu til síns heima
og tóku að undirbúa dansiball á
Höfða en gleðimennimir fylktu liði
á bæi, sýndu sig og sáu aðra.
Hinn klassíski íslenski matseðill,
með hangikjöt og svið í öndvegi, er
í heiðri hafður í Svarfaðardal um
gangnahelgi. Til að krydda matinn
eru síðan tíðum bornar fram dýrar
guðaveigar, viskí, koníak eða
vodka.
Hratt flýgur stund og tekið er að
rökkva í sveitinni. Þau fáu fjalla-
lömb, sem komu af fjalli í fylgd með
mæðrum sínum, bíta grænt gras á
túnum og auka á birgðavanda Jóns
Baldvins, ráðherra fjármálá.
Mannfólkið undirbýr sig hinsveg-
ar fyrir gangnaball á Höfða, snotru
samkomuhúsi í landi Hóls í Svarfað-
ardal.
Iðandi síldir í síldartunnu
Þetta rómaða ball, sem Ung-
mennafélagið Atli sér um, er eina
samkundan sem efnt er til á árinu í
þessu húsi. Öll önnur böll og sam-
komur í Svarfaðardal eru haldin í
Þinghúsinu á Gmnd.
Höfðaballi er ekki hægt að lýsa
með orðum. Það þarf að upplifa.
Hljómsveitinni er komið fyrir í öðr-
um enda hússins en síðan hreyfast
„síldimar“ hægt og rólega á dans-
gólfi „síldartunnunnar" í takt við
tónaflóð.
-
/jm
Nú getur þú
eignast hlut
í góðum banka
Nýir hluthafar
Forkaupsréttur núverandi hluthafa til kaupa úr hlutafjárútboði
ársins 1988 rann út í ágúst s.l.
Takmörkuð fjárhæð er enn óseld og nú gefst nýjum aðilum
kostur á að eignast hlutabréf í bankanum.
Ávinningur
Eigendur Alþýðubankans eru launafólk, félög þess og stofnanir,
um 900 talsins. Bankinn hefur vaxið og eflst á síðustu árum og
verður æ betur búinn til að sinna því megin verkefni sínu að
þjóna launafólki í landinu. Auk þess halda hlutabréf í Alþýðu-
bankanum verðgildi sínu vel, þau njóta skattfríðinda og gefa
arð - eru því góð fjárfesting.
Hægt er að skrifa sig fyrir hlut í öllum afgreiðslum bankans.
Nánari upplýsingar veitir aðalbókari í síma 91-621188.
Notaðu þetta tækifæri. Taktu þátt í eflingu
eigin banka - það er þinn hagur.
Alþýðubankinn hf
Reykjavík, Akranesi, Akureyri, Blönduósi og Húsavík.