Tíminn - 18.09.1988, Síða 7
Laugardagur 17. september 1988
11 ■ ri'rrwr'iTi ■
HELGIN W 7
1-----------
I BETRI SÆTUM
JLU
illll
illl.
ilIllBP U
BLACK WIDOW - SVARTA EKKJAN
Hún giftist til
fjár og drepur
Aðalhlutverk: Debra Winger og Theresa
Russell Leikstjóri: Bob Rafelson
Þetta er hörku spennumynd sem
er vel þess virði að eyða kvöldstund
yfir. Leikkonurnar tvær, þær
Debra Winger og Theresa Russell
komast vel frá sínum hlutverkum.
Þó finnst mér að Theresa ætti að
hugsa betur um línurnar. Full feit
til að standast samanburð við
Debru þegar þær stöllur eru létt-
klæddar í hinum ýmsu atriðum
myndarinnar. En þetta var útúr-
dúr.
Svarta ekkjan er nafn á baneitr-
aðri köngulló sem velur sér maka
og drepur hann eftir eðlun. Myndin
dregur nafn sitt réttilega af þessu
baneitraða skorkvikindi.
Svarta ekkjan fjallar um óvenju-
lega og mjög svo dularfulla konu.
Hún velur sér fórnarlamb, með
það að markmiði að giftast, drepa
og auðgast.
Stjörnugjöf: ★ ★ ★
... A Ml «
INGS W!PCW@»I
SHE MATES AND SHE KILLS,
Miðaldra milljónamæringar eru
eftirlæti svörtu ekkjunnar. Hún
spinnur vef sinn af mikilli natni og
ekki fyrir neinn venjulegan mann
að sjá í gegnum hann. Theresa
Russell er sannfærandi í hlutverk-
inu.
Eirðarlaus starfsmaður dóms-
málaráðuneytis Bandaríkjanna, er
vinnur að rannsókn hinna ýmsu
glæpaverka fyllist þeirri þráhyggju
(að því er yfirmenn hennar halda)
að tengja megi saman dauðsföll
nokkurra manna. Með mikilli fyrir-
höfn og eftirgrennslan kemst
Debra Winger á spor ekkjunnar.
Só slóð er hættuleg og áður en hún
veit af er hún föst í neti svörtu
ekkjunnar.
Toppurinn á myndinni er endir-
inn, eins og vera ber. Hann er
óvæntur og þú hefur gaman af
honum.-ES
„TOPP TUTTUGU"
1.( 1) Hentu mömmuaf lestinni (Háskólabíó)
2. ( 7) Princess Bride (J.B. Heildsala)
3. ( 6) Kæri Sáli (Háskolabíó)
4. ( 5) Nornirnarfrá Eastwick (Steinar)
5. ( - ) Dragnet (Laugarásbíó)
6. ( 2) NoWayOut (Skífan)
7. ( - ) BlackWidow (Steinar)
8. ( 4) Revengeof The Nerds #2 (Steinar)
9. ( 8) SummerSchool (Háskólabíó)
10.(15) EyeofTheTiger (Myndbox)
11. ( 3) The Bourne Indentity (Steinar)
12. ( 9) SomeKindofWonderful (Háskólabíó)
13.(14) ThreeFortheRoad (Steinar)
14.(18) MadetoOrder (Steinar)
15.(11) TheSqueeze (Steinar)
16.(16) Full Metal Jacket (Steinar)
17.(12) The Pick-up Artist (Steinar)
18. ( - ) QuietCool (Skífan)
19. (-) AmazingStories//5 (Laugarásbíó)
20.(10) WindmillsofTheGods (J.B. Heildsala)
INVASION OF THE BODY SNATCHERS:
Stjörnugjöf: ★ ★ V2
Ðlómafrjóin taka yfir
Aðalhlutverk: Donald Sutherland, Brooke
Adams, Leonard Nimoy, Jetf Goldblum og
Veronica Cartwright
Leikstjóri: Philip Kaufman
Myndband: Steinar hf.
Að undanförnu hef ég horft á
nokkrar myndir af þessum toga,
þ.e. myndir um það sem „gæti“
gerst í framtíðinni, þó svo að engin
þeirra hafi á nokkurn hátt líkst
þessari. Strax í byrjun myndarinn-
ar náðist upp nokkur spenna og
ekki er hægt að segja annað en
manni hafi orðið hrollkalt svona
við og við, þannig að ég mæli með
peysu þegar horft er á myndina.
Invasion of the body Snatchers
fjallar annars um innrás geimvera
á jörðina, (þó svo að það komi
ekki beint fram). Verurnar eru
svolítið öðruvísi en við eigum að
venjast þar sem þær vaxa upp úr
litlum rauðum blómhnöppum, sem
allt í einu fara að vaxa á trjánum.
Donald Sutherland og Brooke
Adams vinna bæði hjá heilbrigð-
ismálaráðuneytinu. Þau fer að
gruna að ekki sé allt með felldu
með eiginmann Brooke, svo og
fjölmarga aðra sem þau umgang-
ast. Þau fara að grennslast fyrir um
hlutina og komast að raun um að
hér er meira en lítið skrítið á
ferðinni. Verurnar sem koma út úr
blómhnöppunum taka á sig manns-
mynd og innan skamms verður
ógerningur að greina á milli venju-
legra manna og þessara óboðnu
geimvera, nema geimverurnar
öskra mjög sérkennilega þegar
mannleg vera verður á vegi þeirra.
Þegar aðeins þrjár mannlegar ver-
ur eru eftir, virðist ekkert geta
komið í veg fyrir að óþekktu
verurnar geti yfirtekið jörðina.
Ekki verður farið nánar út í endi
myndarinnar sem er hreint frábær
og kemur áhorfandanum þægilega
á óvart.
Myndin er að mörgu leyti mjög
vel gerð, sérstaklega þegar verurn-
ar eru að vaxa út úr blómhnöppun-
um. Þá er leikurinn mjög góður á
köflum, en mér finnst Veronica t
Cartwright vera ósannfærandi og '
stundum of geðveikisleg í leik
sínum. -ABÓ
HELL CAMP:
Hver segir að konur
geti ekki verið töff?
Aðalhlutverk: Tom Skerrlt, Lisa Eichorn,
Anthony Zerbe, Richard Roundtree
Leikstjóri: Eric Karson
Myndband: Skífan
Þrammandi herkonur fyrir utan
ráðstefnusali Nordisk forum í Osló
þótti mörgum ekki beinlínis í anda
þeirrar jafnréttisbaráttu sem rekin
hefur verið á undanförnum áratug-
um. Hins vegar þættu slíkar konur
eflaust litlir bógar miðað við þá
herkonu sem er í aðalhlutverkinu í
kvikmyndinni Hell Camp. Myndin
sú hefur allt það til brunns að bera
sem stríðsmyndir jafnan hafa, bar-
daga, líkamlega áreynslu, góðu
mennina (konuna), vondu menn-
ina, skothríð, eld, o.s. frv. Munur-
inn er hins vegar sá að ein af aðal
hetjunum í myndinni er kona,
meira að segja falleg kona, sem
lendir mitt í þrekraunum herm-
Stjörnugjöf = ★★ V2
anna. Barátta hennar við að verða
meðtekin í þetta karlasamfélag
leiðir síðan til þess með hrjúfum
hætti að atburðarásin tekur óvænta
stefnu og verður aðal spennugjafi
myndarinnar. Þessi kona er það
sem oft er kallað verulega töff.
Söguþráðurinn er í stórum drátt-
um sá að hópur bandarískra her-
flugmanna, þar á meðal áður-
nefndur kvennmaður, lætur skrá
sig í erfiðasta námskeið sem boðið
er upp á af bandaríska hernum.
Allir hafa sínar ástæður fyrir því að
fara í þennan kúrs. Enginn þeirra
gerði sér þó grein fyrir því að í
námskeiði þar sem tilgangurinn er
að læra að láta óvininn í frum-
skógunum ekki ná sér og að brotna
ekki saman ef hann gerir það, yrði
meðferðin á þátttakendum eins og
raunin varð á.
í heild má segja að þessi mynd
sé bara þokkaleg af stríðsmynd að
vera og spennan helst nokkuð vel
út myndina. -BG
Athugasemd
Meinleg villa komst einhvena
hluta vegna inn á síðuna „í betri
sætum“ um síðustu helgi, sem
verður að leiðrétta. í stjömugjöfinni
fyrir The Right Stuff féllu tvær
stjömur niður. The Right Stuff fékk
3 Vfe stjömu, en ekki eina og hálfa
eins og misritaðist Beðist er vei-
virðingar á mistökunum.