Tíminn - 18.09.1988, Síða 8

Tíminn - 18.09.1988, Síða 8
 -f H hf "1 f 8 I HELGIN I Laugardagur 17. september 1988 Laugardagur 17. september 1988 m HELGIN » liðnum fjórum árum hefur hún tekið slíkan fjðrkipp að keppendafjöldinn hefur tvöfaldast á ári hverju. l’að er rneira að segja komið landslið í glímu. því við höfum tekið upp samskipti við „Alþjóðasamband keltneskra fangbragða” (IFCW) og keppum við Skota. Bretóna og aðra í þeirra greinum. Ætlunin er að mót í þessum fangbrögöum verði háð hér á Islandi 1990 og þá verði glíman einnig nteð. Keltnesk fangbrögö eru skyld íslensku glímunni. þótt okkar glíma hal'i þróast alveg sjálfstætt og t.d. þekkist glímubeltið ekki nema hjá okkur. Sérstaklega finnst mér gleöilegt að þaö eru nú ekki aðeins karlmenn sem glíma. heldur er kvenfólkið farið að taka þátt í þessu með okkur. Á grunnskólamóti í glímu sem hald- iö var í vetur með 70 keppendum voru bæði strákar og stelpur. Já, og þegar ég í vetur var að kenna glíinu í minni gömlu heimasveit, voru stelpurnar þar í meirihluta. TilSeoul Jú. nú liggur leiðin á Ólympíuleik- ana í Seoul og ég er tlokksstjóri frjálsíþróttafólksins. Við erum sjö talsins og er þetta næststærsti hópur- inn í einni grein. Frjálsíþróttamenn hafa líka alltaf verið með og mjög oft stærsti hópurinn þegar íslending- ar liafa sent menn til leikanna. Það eru sex keppendur í köstum - fimm karlar og ein kona - sem eru í hópntim og svo ein kona, sem keppir í hlaupum. Ja. ég held aö við hljótum ;iö binda mestar vonir við Einar Vilhjálmsson spjótkastara, sem nú er hókaöur í fjórða sæti á heimslista í sinni grein og hefur oftar en einu sinni boriðsiguroröafþekkt- ustu erlendum spjótkösturum. Næst- ur er . Vésteinn Hafsteinsson, kringlukastari, en hann er á skrá yfir 20 bestu kringlukastara í heinti á þessu ári. Annars eru keppendur okkar allir mjög frambærilegt keppnisfólk, enda eru lágmörkin hjá íslensku Ólympíunefndinni Itærri en alþjóða- lágmörkin. Loks má ekki gleyma því að það er dagainunur á frammistöðu mánna og mikið er undir því komið að keppendur séu í besta fornti, þegar á hólminn er komið. I>ví gerum við okkur vonir um að okkar fók geti orðiö fyrir framan miðjan hóp, ef allt fer að óskum, en það er árangur sem vel má viö una. Við mununt ekki Itika við að blanda okkur í toppinn og ef okkar menn verða í sínu besta formi - eða betra - þá getur allt gerst. Afreksmennirnir eru okkur ákaflega mikilvægir 7 segir Jón M. ívarsson, varaformaður Frjálsíþróttasambands íslands, en hann hefur nú skrásett hundrað síðna afrekaskrá Ungmennafélagsins Samhygðar. Jón M. ívarsson lagði löngum stund á ýmsar greinar frjáls- íþrótta - einkum hlaup á milli- vegalengdum. (Tímamynd Pjetur) „Ja, ég held að við hljótum að binda mestar vonir við Einar Vil- hjálmsson," (Tímamynd Pjclur) frjálsíþróttamanna í hverri grein fyr- ir Frjálsíþróttasambandið og kom hún út árið 1985. En nú býst ég við að gera hlé á þessu um sinn. Félagsstörfum hef ég líka sinnt mikið innan Frjálsíþróttasambands- ins þar sem ég er varaformaður og einnig í Glímusambandinu, en þar hef ég verið í stjórn nokkur ár. Glíman hafin til vegs á ný Ég hef þó ekki setið við skrifborð- ið alla tíð. Ég stundaði á yngri árum einkum hlaup á millivegalengdum, og síðar hóf ég keppni í blaki og glímu qn hana hef ég kennt allnokk- uð. Já, ég er mikill áhugamaður um glímu. Hana lærði ég hjá Sigurði Greipssyni í Haukadal og er líklega sá eini af hans nemendunt, sem enn „tek í belti", eins og við segjum. Leið mín inn í glímukeppni var þó nokkuð óvenjuleg, því ég byrjaði ekki að keppa í glímu fyrir alvöru fyrr en fyrir þrem árum. Þaðatvikað- ist þannig að það vantaði keppendur á glímumót hjá Héraðssambandinu Skarphéðni, en ég var þá fram- kvæmdastjóri þess. Ég gaf mig því fram og náði þokkalegum árangri, þótt raunar hefði þá ræst úr og engan keppanda vantaði. Þar með lá svo leið mín inn í Glímusambandið. Það er ánægjulegt -að geta skýrt frá því að nú er glíman á uppleið að » nýju, eftir að hafa verið í ansi mikilli lægð fyrir nokkrum árum. Á síðast SSAPJ SUNNY Flestir eiga sér einh.ver áhugamál og auðvitað er það misjafnt hvernig menn komast í kynni við þau og hve sterkum tökum þau grípa menn. En oftast er neistans að leita til æskuáranna, að minnsta kosti ef um áhugamal er að ræða sem menn leggja svo að segja allt í sölurnar fyrir. Viðmælandi okkar hér er maður sem ekki hefur sparað tíma né fyrirhöfn þegar áhugamál hans hafa verið annars vegar, en þau eru íþróttir og þá frjálsíþróttir fyrst og fremst. Maðurinn er Jón M. ívarsson, núverandi varafor- maður Frjálsíþróttasambands (slands og flokkstjóri þess sjö manna frjálsíþróttahóps, sem til Seoul í S,- Kóreu að taka þátt í Olympíuleikunum. Nei, þessi áhugi er ekki nýr. Hann var enn strákur austur í Flóa, þegar hann fékk uppljómunina. En hvernig atvikaðist þetta? „í minni æskusvcil, Gnulvcrjabæj- arhrcppi, siarfar ungmcnnalélagiö Samhygö, scm á þcssu ári cr orðið 80 ára gamalt og því á ég þcnnan áhuga aö þakka," scgir Jón M. ívarsson. Ég cr í hópi ótal margra. scm fyrst kynntust íþróttum þar og láta cnn ckki deigan síga, hcldur liafa haldið tryggö viö sitt gamla félag þótt viö höfum flust á mölina. Þótt þarna sé um að ræða lítið félag í fámcnnri sveit, þá hcf ég gaman af að scgja frá því að það á nú þrjá afreksmenn innan sinna vébanda og cinn af þcim cr Olympíufari núna, Pétur Guðmundsson, kúluvarpari. Mcð okkur cr líka Unnur Stcfáns- dóttir, sem cr clst í landsliðinu í frjálsíþróttum, cn aldrci bctri cn nú. Þriðji félaginn í landsliðinu cr Ingi- björg ívarsdóttir. Já, félagið hcfur stöðugt vcrið starfandi og það hcfur óncitanlcga vcrið mikil driffjöður fyrir það að reglulega hafa verið haldin keppnismót við nágrannafé- lagið Vöku, scm cr jafn gamalt, og héldu félögin saman sitt fimmtugasta mót í röð nú í sumar. Þess má geta að í tilcfni af því var cfnt til öldunga- móts, þar scm meðal kcppcnda var Stcfán Jasonarson, fyrrum formaður NBSSAN SUNNY ER FAANLEGI ISUNNY 3JA DYRA - SUNNY 4RA DYRA, BfÐI FRAMHJÓLA- OG FJÓRHJÓLADRIFIN SUrlNIY 5 DYRA - SUNNY COUPÉ, SPORTBÍLL, SUNNY SKlTBlLL, BÆÐI FRAMHJÓLA- OG FJÓRHJÓ OG ADRIFINN VER FRA KR. 517.000,- AFGREITT STRAX - JAFNVEL A MEÐAN ÞU I 3JA ÁRA ÁBYRGÐ PJALLAÐU VIÐ OKKUR ÞVl KJÖRIN ERU HREINT BILASYINING LAUGARDAG OG SUNNUDAd KOMDU OG ENDANLEG KL. 2-5 ÐUR Ingvar Helgason sýningarsalurinn, Rauðagerði Ö) 91-3 35 60 Samhygðar, helsti upphafsmaður mótanna og í fullu fjöri enn, eins og menn vita. Afreksmenn ómetanlegir Já, þarna kviknaði áhuginn og það sem ýtti cnn frekar undir hann var heimsókn Vilhjálms Einarssonar til okkar, en hann hafði þá unnið silfurverðlaunin í þrístökki á ÓL t' Melbourne árið 1956. Hann ferðað- ist víða um land á eftir til þess að kynna frjálsíþróttir, sýndi kvik- myndir og þrístökk. Þcgar hann heimsótti okkur þarna og við sáum þessa hetju, sem svo mikill ljómi lék um, vorum við strákarnir alveg utan við okkur af hrifningu. Þetta sannaði mér hve afreksmennirnir eru mikil- vægir til þess að glæða íþróttaáhug- ann. Það fór þó svo að starf mitt að íþróttamálum hefur meira snúist um fræðilegu hliðina, „statistikina", ef ég má orða það svo. Ég byrjaði á því fyrir all mörgum árum að skrá afrek í frjálsíþróttagreinum og nú á afmæli Samhygðar kom úr afrekaskrá fé- lagsins 1908-1988, sem ég tók saman. Ég byrjaði á henni fyrir átta árum og hafði alltaf stefnt að því að hún kæmi út á afmælisdegi félagsins nú í ár og það tókst mér. Þetta er hundrað síðna rit og ég veit ekki hve langan tíma þetta hefur tekið, en hann er mikill. En um slíkt hugsar maður minna, þegar áhuginn og viijinn er með. Þetta er svipað því og þegar menn leggjast í ættfræðigrúsk, enda hefur undanfarið allur minn tími utan vinnu farið í þetta, en ég er trésmiður að iðn. Áður hafði ég að vísu unnið slíka afrekaskrá fyrir Héraðssambandið Skarphéðin og kom sú skrá út 1984. Síðar tók ég saman afrekaskrá tuttugu bestu. 4'Wí; SMJÖRLÍKISGERÐ • SÍMI 96-21400 ■ AKUREYRI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.