Tíminn - 18.09.1988, Page 11

Tíminn - 18.09.1988, Page 11
Laugardagur 17. september 1988 HELGIN W n stað. - Ég gæti varla farið að opin- bera mig, það væri kjánalegt, eftir alla fyrirhöfnina við að sleppa frá þessu, segir hann síðar. Ennfremur: - Ég vildi ekki valda neinni mannes- kju þjáningum, en þetta var mér erfitt og þegar fram í sækir mun það borga sig. Það var auðveldara fyrir mig og flesta aðra að gera þetta svona. Elvis heldur áfram: - Margt fólk hefur veitt mér tækifæri til að halda áfram, án þess að opinbera mig um of. (Óríon?) Það var mikið haft fyrir að fela mig og skömm væri að spilla því öllu á fimm sekúndum. Undir lokin segir hann: - Margir spyrja mig, hvar ég haldi til, en því get ég auðvitað ekki svarað. Staðurinn er prýðis felustaður. Alls er talað mál að snældunni um það bil 15 mínútur, en inn á milli eru „aaa“ og „huh,“ sem Elvis notaði mikið, því hann var langt frá fljúg- andi mælskur. Töluvert er um urg og sarg og hljóð á bak við, svo sem í hrannast upp. Ekki einu sinni Sher- lock Holmes hefði fundist þetta viðfangsefni auðvelt. Stundum virð- ast tilviljanirnar vera allt of margar til að geta verið tilviljanir, en fyrst líf Elvis var að miklum hluta leynd- ardómur, því skyldi dauði hans ekki halda áfram að vera það líka? Jafn- vel eftir öll þessi ár er bitist um eigur hans og enginn virðist geta sagt til um, hversu miklar þær eru. Hver er John Burrows? Stúlka í farmiðasölunni á flugvell- inum í Memphis sagði strax 16. ágúst 1977 frá því að hún hefði verið að selja manni sem var furðulega líkur Élvis farmiða til Buenos Aires. Maðurinn hét John Burrows, en það er einmitt eitt þeirra dulnefna sem Elvis notaði gjarnan þegar hann brá sér á slóðir venjulegra borgara. Skýrslur flugvallarins staðfesta miðasöluna. Er hugsanlegt að fólkið sem kom á hljómleika hjá hinum grímu- Þannig muna margir Elvis. Nú kvað hann hafa yfirskegg og vera litlu þreknari. mér rétt sisona, en ég bið það um að leggja eyrun við því sem ég hef fram að færa. Ég virði auðvitað þó einhver trúi mér aldrei. Við skulum líta á nokkur atriði enn varðandi dauða Elvis Presley. - Margir nánustu vina hans, virt- ust ekki í neinu uppnámi þegar hann átti að vera nýdáinn, segir Gail. Þar með er sagan ekki fullsögð. Hún bendir líka á að Elvis hafi á sinn hátt kvatt marga nánustu vini sína síð- ustu vikur og daga sem hann lifði. - í vikunni áður sagði hann sem svo við vin sinn: - Ég verð fallegur í kistunni. Þá faðmaði hann annan vin sinn og sagði: - Því miður getum við ekki hist framar. Um þær mundir stóð fyrir dyrum hljómleikaferð hjá Elvis, en þrátt fyrir það lét hann ekki sauma neina búninga, lét ekki gera neina áætlun um lagaval og sleppti meira að segja að láta lita á sér hárið. Það hafði hann gert árum saman til að leyna að hann var orðinn mjög gráhærður. Raunar benti allt atferli hans til þess að hann hygðist ekki koma fram opinberlega framar. Elvis talar á snældu Þessa daga var líka verið að pressa hvorki meira né minna en 20 milljón Elvis-plötur í Indianapolis. Hvers vegna í ósköpunum? Þegar hér var komið frama Elvis, var plötusala hans sáralítil og síst ástæða til að koma upp öllum þessum birgðum. Nokkrum dögum seinna, þegar frétt- ist um lát hans, var nóg til af plötum handa öllum. Það er undarlegt og ekki síður hitt að skyndilega fengust um öll Bandaríkin fjöll af áprentuð- um Elvis-bolum, sem útilokað hefði verið að framleiða á fáeinum dögum. Eins og það sem á undan er komið, eru þetta undarlegar tilvilj- anir og vangaveltur, en ekki sannan- ir um að Elvis sé á iífi og megna því síður að færa heiminum hann aftur. Þá leggur Gail fram trompið sitt: Ósköp venjulega 60 mínútna snældu. Roskin kona kom með hana til Gail seint um kvöld í fyrra. Konan var með sólgleraugu, þó skuggsýnt væri og neitaði að upplýsa annað um sjálfa sig en að hún héti Elizabeth og væri gift inn í Presley fjölskylduna. Hún sagði Gail að tekið hefði verið upp á snælduna 1981 og á henni væru brot úr símtöl- Af hverju er nafn Elvis rangt stafsett á legsteininum? um við Elvis. Rödd viðmælandans hefði hins vegar verið þurrkuð út. Gail setti snælduna í tækið sitt og heyrði að minnsta kosti afar góða eftirlíkingu af rödd Elvis, ásamt aukahljóðum á bak við og brestum í símanum. Hún hugsaði með sér að þetta væri vert frekari athugunar. Hún hljóðritaði gömul viðtöl við Elvis, svo og snælduna góðu og sendi hvorutveggja ásamt bréfi til I raddgreiningarsérfræðings lögregl- unnar í Houston í Texas, L.H. Williams. Williams beitti sömu aðferðum við rannsókn bandsins og notaðar voru í Watergate-málinu. Sú aðferð leiddi í ljós að rödd manneskju er jafn sérstæð og fingraför hennar. Williams segir: - Ég er sannfærður um að þama er um að ræða sömu röddina og á grundvelli þessara sannana ætti að fara fram opinber rannsókn á dauða Elvis Presley. Er Elvis Óríon? Nú getur hvaða Bandaríkjamaður sem er keypt snælduna og dæmt sjálfur um það sem á henni er. Á hinn bóginn getur líka næstum hver sem er tekið gömul viðtöl við Elvis og soðið eitthvað sannfærandi upp úr þeim, einkum þegar haft er í huga að talsvert er um misfellur og auka- hljóð á snældunni. Gail viðurkennir þetta allt fúslega þó Elvis tali þarna um að hann langi til að halda áfram í tónlistinni og skemmta fólki. Á einum stað segir hann orðrétt: - f stað þess að vera á eylandi, er ég eyland. Hann segir líka að hann langi til að gefa fólkinu eitthvað aftur, það hafi gefið sér svo mikið. Þessi orð gætu hafa verið tekin úr allmörgum eldri viðtölum. En það er annað og meira þarna: - Ég er ekki alveg í felum núna, það sér mig alltaf fólk, segir á einum bílvél. Nokkur löng hlé eru líka, þar sem rödd viðmælandans í símanum var áður og þar heyrist alls ekki neitt. Ef trúa má Williams, er þetta ótvírætt rödd Elvis, sem heyrist, en sagði hann þetta fyrir eða eftir 16. ágúst 1977? Auðvitað segir Gail að hann hafi talað þetta eftir á. Hvaða ástæðu hefði hann haft fyrir þann tíma til að ræða um að vera í felum? Líkkistan og nafnið Vissulega er málið dularfullt svo slagar hátt í reyfara Agöthu Christie. En legsteinninn mikli á Graceland er jafn áþreifanlegur fyrir það og árlega koma þangað 700 þúsund manns til að votta Elvis virðingu sína. Hversu margir skyldu hafa veitt því athygli að seinna nafn Elvis Aron, er á steininum skrifað Aaron. í öllum skjölum Elvis, allt frá skírn- arvottorðinu, er það skrifað Aron. Gail viðurkennir að þetta sé bara lítið atriði, en í þessu tilfelli væri nær útilokað að áletrun á Iegsteini væri röng. - Elvis var mjög hjátrúarfullur og ef hann hvílir ekki undir steinin- um, hefði hann síst af öllu viljað hafa nafn sitt kórrétt á honum. Varla væri hægt að hafa villuna öðruvísi en þetta. Gail spyr líka hvers vegna Elvis hafi breytt erfðaskrá sinni nokkrum vikum áður en hann dó? Hvernig stóð líka á að sérstök líkkista með órjúfanlegu innsigli kom með flugvél strax daginn eftir, þegar slíkar kistur þarf að panta með margra vikna fyrirvara? Hvers vegna var sú kista nær 500 kg að þyngd, þegar þær eru venjulega aðeins 350? Hvernig stóð á því að þegar einn syrgjendanna sem fékk að koma að kistunni, snerti vangaskegg líksins, datt það af og auðséð var að það hafði verið límt á? Getur verið að dularfulli maðurinn, sem fólk hefur séð í gluggum á efri hæð Graceland, sé raunverulega Elvis? Spurningarnar og undarleg atvik Hvers vegna fannst fólki likið ekkert líkt Elvis? Því var líkið 30 kg of létt, en kistan 150 kg of þung? klædda Óríon hafi séð tvo menn? Það sá mann í bol sem var blautur af svita undir höndunum, bregða sér að tjaldabaki til að fá sér vatnssopa og birtast eftir nokkrar sekúndur í þurrum bol. Var þetta sami maður- inn, eða voru þeir tveir? Var annar Jimmy Ellis og hinn Presley bak við grímurnar? Eða var þetta bara mis- sýn hjá fólkinu? Málið flækist óneitanlega æ meira. Gail viðurkennir að hvert atriði í sönnunum hennar sé lítils virði eitt sér. En séu þau öll lögð saman, verði niðurstaðan bara ein: Elvis er lifandi enn. Gail skammast sín ekkert fyrir að segja að hún verði auðug á þessu öllu, en hún sé líka komin með hreina Elvis-dellu á þessu sviði og geti alls ekki hætt. Auðvitað dreymir hana um að sanna ótvírætt að EIvis sé lifandi, en ekki verði hlaupið að því, jafnvel þó hún nái að tala við hann augliti til auglitis, ef hann vilji ekki opinbera sig. Til að auðvelda fólki að átta sig, setur Gail fram þrjár kenningar um hvað raunverulega gerðist. Hún bið- ur fólk að kynna sér þær og bera saman við þau gögn sem hún hefur undir höndum. Hún leggur áherslu á að ósköp auðveit hefði verið að framkvæma þetta á hvern veginn sem er. Fyrsta kenning: Elvis, sem var áhugamaður um lík og dvaldi gjarn- an á kvöldin í líkhúsi sjúkrahússins, fékk lánað lík. Hringt var á sjúkrabíl og tveir sjúkraliðar komu, en þeir þekktu ekki líkið sem Elvis. Engin krufning fór fram og líkinu var skilað. Önnur kenning: Breskur maður sem líktist Elvis töluvert, dauðvona af krabbameini og einstæðingur, er fluttur til Graceland og boðið að dvelja hjá Elvis þar til yfir lyki. - Það styður þessa kenningu að sögur voru á kreiki um að krabbameinslyf væru send til Graceland seinustu vikurn- ar, segir Gail. Þriðja kenning: Elvis stundaði hugleiðslu af ákafa. - Hann gæti hafa þjálfað sig til að stöðva hjart- slátt sinn nær alveg. Þess vegna gat hann þóst látinn. Síðan var einfalt að fá einn af læknum hans til að lýsa hann látinn og ganga frá málinu, segir Gail. Líkið var vaxmynd Að vísu var þá eftir að ganga frá líkinu í kistunni. Það er ekkert vandamál í augum Gail: - Þetta var einfaldlega vaxmynd, segir hún. - Margir sem sáu líkið sögðust hafa orðið hissa á að sjá svitaperlur á enni þess. Þannig lagað sést aldrei á raunverulegu líki, en vax „svitnar", rétt eins og ostur. Þarna gæti líka verið skýringin á þyngd kistunnar. Sú staðreynd að hún var 150 kílóum þyngri en þær venjulegu, gæti falist í kælikerfi til að koma í veg fyrir að vaxið bráðnaði. Gail gerir hlé á máli sínu og brosir næstum sigri hrósandi. Hún viður- kennir að eiginmaður sinn, Carm- ine, sem er sölumaður hjá stóru tölvufyrirtæki, sé orðinn dauðleiður á þessu öllu og tveir synir þeirra líka. Sjálf segir Gail að ekkert geti fengið sig til að hætta við verk sem hvergi nærri sé lokið, ekki einu sinni spurn- ingin: Ef Elvis er á lífi, hvar heldur hann sig þá? Gail deplar ekki einu sinni auga við spurninguna, hvað þá að henni bregði. - Hann býr í bænum Kala- mazoo í Michigan, svarar hún að bragði. - Þar eru íbúar 87 þúsund. Hann hefur aðalstöðvar sínar á Col- umbia Plaza-hótelinu. Ég hefnokkr- um sinnum hringt þangað og spurt eftir John Burrows. í fyrsta skiptið var mér sagt að hann væri á fundi og síðan fékk ég það svar, að hann væri ekki til viðtals. Síðan hefur mér verið sagt að sá maður sé alls ekki til á hótelinu. í Kalamazoo er óskráð símanúmer undir nafni John Burrrows. Óþarfi er að taka fram að Gail hefur heyrt frá mörgu fólki í Kala- mazoo sem segist hafa séð Elvis. Öllum ber saman um að hann sé unglegri og mun grennri en fyrir 11 árum, um það bil 85 kíló. - Hann gekk með alskegg á tímabili en er nú búinn að raka sig, nema hvað hann er með snyrtilegt yfirskegg og vanga- skegg og vel greiddur. Hann sést stökusinnum íverslunum íbænum. Snýr Elvis aftur? Þegar hlustað er á öll rök Gail, er ekki hægt að verjast spurningunni um hvers vegna hún hafi ekki lagt þetta fram í sjónvarpsþætti og látið fylgja myndir og allt sem hægt er, máli sínu til stuðnings. Sjálf hefur Gail aldrei séð Elvis og því síður skroppið til Kalamazoo til að freista þess að koma auga á hann þar. - Til hvers væri það? spyr hún. - Hann er fjarverandi allt að 3 mánuð- um í einu, ýmist á ferðalögum eða á Hawaii, þar sem hann á felustað. Gail heldur því statt og stöðugt fram að allan tímann sem hún hefur rannsakað dauða Presleys, hafi hún reynt áð vera eins hlutlaus og mögu- legt sé. En hún tarlar um heimsóknir hans til Graceland eins og hún hafi verið með honum þar. Þá er vert að hafa í huga að eftir 10 ára rannsóknir væri ekki heppilegt að fá allt í einu ótvíræðar sannanir þess að Presley væri látinn fyrir 11 árum. Slíkt borgar ekki reikningana. En það er ekki hægt að vísa öllu á bug, sem hún hefur safnað saman, það er allt of mikið og athyglisvert til þess. Hún segir líka að þó fólk sem rekst á Elvis í verslun, spyrji hann hvort hann sé ekki hræddur, nú þegar búið sé að hafa uppi á honum, geti hann bara svarað sem svo: - Hver heldurðu að trúi þér, þegar þú segist hafa séð Elvis úti í búð? - Élvis er kænn, segir Gail. - Hann veit að meira þarf til að draga hann fram í dagsljósið. Verður Gail Giorgio manneskjan sem flettir ofan af Elvis? Er í rauninni ofan af einhverju að fletta? Er Elvis lifandi eða látinn? - Hann er lifandi, segir Gail ósköp rólega og allar sannanir hennar benda auðvit- að til þess. Nú er það lesenda að dæma um hvort líklegt sé að heimur- inn fái á ný að sjá Elvis Presley ljóslifandi.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.