Tíminn - 24.11.1988, Page 2
2 Tíminn
1 :FimVn'túdsígur 24. nóvember 1988
Aöstoöarlandlæknirog form. landsnefndar um alnæmisvarnir telur „fóöringu" eða „smokkfyrir konur“ áhugaverðan kost:
Ný getnaðar- og smitvöm
gæti aukið öryggi kynlífs
« iw ti ■ l ■ K * ■ ” II . I ■lraiimr n TO nrnt O A i;i*Y*10 hi'tci - .... ... i ■ i ■■ i — " ■ — -
Deilt hefur verið um gildi smokkaherferðarinnar svokölluðu
sem iandlæknisembættið stóð að fyrir u.þ.b. ári. Minnihluti fólks
virðist geta fellt sig við notkun á smokkinum, en nú er væntanleg
á markaðinn ný getnaðarvöm sem hugsanlega kemur til með að
auðvelda fólki að stunda það sem kallað er öruggt kynlíf.
Guðjón Magnússon aðstoðar-
landlæknir og formaður nýskipaðr-
ar landsnefndar um almæmisvamir
sagði í viðtali að innflutningur á
smokkum hefði aukist verulega
eftir að áróðurinn fór í gang. „Við
trúum ekki öðru en að þetta þýði
meiri notkun.*' Guðjón sagði enn-
fremur að það væru þó skiptar
skoðanir um þetta atriði. „Við
höfum náð að fjölga útsölustöðun-
um mjög mikið, t.d. eru komnir
sjálfsalar á bensínstöðvum, einnig
víða í framhaldsskólum og á
skemmtistöðum. Ég held að það sé
alveg ljóst að salan hefur aukist á
smokkum frá því að við hófum
áróðurinn 1985. Því er ekki að
leyna að eftir sem áður er það lítill
hluti fólks sem notar smokka.“
Guðjón var einnig spurður um
það hvort áherslan yrði áfram á
smokkinn, t.d. í þeim áróðri sem
fer fram vegna alnæmisvikunnar.
„Það er alveg ljóst að ef um er að
ræða kynmök við einhvern sem þú
ekki veist deili á, þá er verulega
aukið öryggi fólgið f því að nota
smokkinn. Rannsóknir hafa sýnt
að sé smokkur notaður frá byrjun
til enda samfara þá eru hann vörn
gegn alnæmi, veiran fer ekki í
gegnum smokkinn. Aftur á móti
má segja að við höfum ekki verið
að halda þessu sérstaklega að fólki
því við teljum að núorðið viti fólk
þetta.“
„Smokkur“ fyrir konur
A næsta ári er væntanleg á
markaðinn ný getnaðarvörn, en
hér er um að ræða e.k. smokk fyrir
konur. Á ensku kallast þessi verja
„femshield“ sem í beinni þýðingu
myndi kallast „kvenskjöldur".
Dæmi um önnur íslcnsk heiti sem
hafa verið nefnd cru „fóðring“ og
„hlíf“.
í>essi nýja getnaðarvörn er e.k.
poki sem er 15 sentímetrar að
lengd og 7 sentímetrar í þvermál.
Hann er úr mjúku gerviefni sem
kallast pólýúretan. Verjunni er
komið fyrir í leggöngunum og
virkar sem e.k. „fóðring" á þeim.
1 verjunni er sæðisdrepandi krem
sem jafnframt auðveldar samfar-
Tilraunir hafa sýnt að verja þessi
veitir sama öryggi og smokkurinn,
bæði hvað varðar getnað og smit á
kynsjúkdómum, þar er meðtalinn
HIV veiran sem veldur ainæmi.
Notkun veldur ekki aukaverkun-
um, verjan er einnota og verður
seld í lausasölu eins og smokkurinn
og mun kosta jafnmikið. Helsti
munurinn á notkun þessarar nýju
varnar og smokksins er að mögu-
leiki er á að koma henni fyrir með
lengri fyrirvara en gildir um
smokkinn. Þessi verja felur einnig
í sér nýjan möguleika fyrir konur,
þ.e. þær hafa með tilkomu hennar
kost á einnota verju sem þær nota
sjálfar við samfarir.
Meirihluti þess fólks sem hefur
tekið þátt t prófunum á verjunum,
bæði karlar og konur, líkaði jafn
vel eða betur við þessa nýju verju
heldur en smokkinn. Einnig álitu
langflestar konur sem notuðu hett-
una áður að nýja verjan væri betri
og mun þægilegri kostur.
í fyrrnefndu viðtali var Guðjón
Magnússon spurður að því hvort
þeir hjá landlæknisembættinu
hefðu heyrt um, eða kynnt sér
þessa nýju getnaðarvörn. Hann
sagði að svo væri ekki. „Ég hef
aftur á móti séð að það er nokkuð
um það að áróður er rekinn fyrir
hettunni sem vörn gegn alnæmi, á
Á þessari skýringarmynd er sýndur munurinn á hefðbundnum smokk og
hinum nýja kvensmokk eða fóðringu (efri mynd). Skýringarmynd þessi
er fengin úr IPPF Medical Bulletin.
þeirri forsendu að hetta með sæðis-
drepandi kremi sé um leið vörn
gegn alnæmi. Við vitum það að út
af fyrir sig dregur verulega úr
likum á alnæmissmiti ef sæðið
kemst ekki að leghálsinum en hett-
an er ekki nægilega örugg vöm
gegn alnæmi. Þetta sem þú ert að
lýsa er ugglaust betri kostur fyrir
konuna. Petta er mjög eftirtektar-
vert ef þessi verja kemur á markað-
inn og sérstaklega ef konum geðj-
ast að því að nota hana.
Nýja getnaðarvörnin er þróuð
og framleidd af fyrirtækinu Medic-
or Ltd. í Bretlandi, en Stefán
Thorarensen hf. mun hafa umboð
fyrir þessa vörn hér á landi. ssh
Forseti og tveir varaforsetar ASÍ kjörnir í gær. Ásmundur Stefánsson forseti:
„Þurfum að vinna af festu“
Gæslan sótti
slasaðan mann
Þyrla Landhelgisgæslunnar
sótti slasaðan sjómann um borð í
Drangavík ST 71 sem staddur var
um 40 sjómílur norður af Siglun-
esi í gærmorgun. Þyrlan fór frá
Reykjavík um 10 leytið í gær-
morgun og var komin með sjó-
manninn, sem hafði fengið höf-
uðhögg og var álitinn höfuðkúpu-
brotinn, til Akureyrar upp úr
hádegi. Þar tók við sjúkraflugvél
frá Norðurflugi og flaug hún með
manninn til Reykjavíkur og var
hann kominn á Borgarspítalann
um þrjú leytið. -ABÓ
Bilun í Öskjunni:
Kemur sér illa
Strandferðaskipið Askja er í
lamasessi þessa dagana. Meinið er
brotinn sveifarás í vél skipsins sem
telst tiltölulega alvarleg bilun.
Að sögn Guðmundar Einarssonar
forstjóra Ríkisskipa standa vonir
manna til þess að viðgerðum á
skipinu verði lokið ekki seinna en
12. desember næstkomandi. Hann
sagði að ekki væri gott að segja til
um hver áhrif bilun skipsins kæmi til
með að hafa á flutninga félagsins
fyrir jólin en reynt hefði verið að
draga sem mest úr slíkum áhrifum.
Ferðum annarra skipa útgerðarinnar
hefði verið breytt eftir því sem hægt
væri, auk þess sem önnur skip hefðu
verið fengin til aðstoðar eftir því
sem þurfa þótti hverju sinni. Guð-
mundur sagðist vonast til þess að
þessar aðgerðir yrðu til þess að
menn yrðu ekki fyrir miklum óþæg-
indum vegna þessa.
Það má ef til vill teljast lán í óláni
að bilun Öskjunnar ber ekki upp á
háannatíma útgerðarinnar sem er á
vorin, þó vissulega sé framundan
mikill annatími. Guðmundur sagði
þó ljóst að eitthvað af flutningum
Ríkisskipa myndi flytjast yfir á aðra
flutningsaðila. -áma
„Ég vil satt að segja ekkert fara að
ræða um þær sögusagnir sem hafa
gengið hér í húsinu. Sú uppstilling
sem kom fram um varaforseta er á
ábyrgð kjörnefndarinnar sem var
sammála um hana,“ sagði Ásmund-
ur Stefánsson er Tíminn ræddi við
hann stuttu eftir að hann hafði verið
kjörinn forseti ASÍ í þriðja sinn.
Ásmundur var kjörinn með lófa-
taki þar sem ekki bárust aðrar tillög-
ur um forseta en tillaga kjörnefndar.
Ásmundur Stefánsson hafði, eftir
því sem næst verður komist, sett það
skilyrði fyrir því að hann yrði áfram
forseti að Þóra Hjaltadóttir yrði
ekki varaforseti. Þóra fékk flest
atkvæði í kjöri til miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins á dögunum og var
það túlkað sem ósk um að hún yrði
í kjöri til varaforseta ASÍ.
Ásmundur sagði í gær að hann
væri sannfærður um að nýkjörnir
varaforsetar ASÍ myndu standa sig
vel í sínu starfi. Hann sagðist hafa
langa reynslu af samstarfi við Rögnu
Bergmann og Örn Friðriksson hefði
verið farsæll leiðtogi starfsmanna
ísals.
„Ég hef fullt traust á því að hér sé
samhentur hópur sem geti unnið
vel,“ sagði Ásmundur.
Heffði Þóra sprengt ASÍ?
- En hvað segir Ásmundur um
þau ummæli Þóru Hjaltadóttur um
að hún mæti hreyfinguna meir en
svo að hún vilji sjá hana springa í loft
upp við að hún byði sig til fram til
varaforseta?
„Ég vil ekki fara út í neinar
rökræður um það,“ sagði Ásmundur
stuttaralega.
Ásmundur sagði að ekki þyrfti að
vænta umbyltingar í stjórn ASÍ en
ljóst væri að ná þyrfti samhentum
hóp þar sem aðstaða hreyfingarinnar
væri um margt erfiðari en jafnvel
nokkru sinni áður.
„Bæði eru samningar bannaðir og
atvinnuástand ótraustara en verið
hefur um langa hríð og það gerir
tilkall til þess að við vinnum að
okkar málum af festu og ákveðni, að
við sýnum frumkvæði og við náum
að hafa þau áhrif á stjórnvöld að þau
hverfi frá hinum eilífu kjaraskerð-
ingaleiðum sem þau hafa viðhaft.
Kjaraskerðingin
gjaldþrota, þjóðin
ágætlega em
Ástandið núna sýnir okkur skýrt
óg greinilega að kjaraskerðingar-
leiðin er gjaldþrota, ekki þjóðin, og
í þessu efni þarf að verða stefnu-
breyting hjá stjórnvöldum.“
- Aukin harka af hálfu launþega?
„Við hljótum að verða að vinna af
festu, það er alveg ljóst,“ sagði
Ásmundur Stefánsson.
Ámælisverður dráttur
Ásmundur dró það þar til í fyrra-
dag að gefa yfirlýsingu um forseta-
framboð sitt og olli það verulegri
óánægju og einn þingfulltrúa sagði í
gær að þetta hátterni Ásmundar
væri verulega ámælisvert. Mikil
spenna hefði hlaðist upp vegna for-
setakjörsins og þingið því verið lítt
starfhæft það sem af er.
Framboð Ásmundar var fyrst til-
kynnt á þinginu seinnipart dags í
fyrradag af Benedikt Davíðssyni for-
manni kjörnefndar og sagði viðmæl-
andi Tímans að það hefði verið f
síðustu lög áður en flokksbönd riðl-
uðust og mörg og óvænt framboð
kæmu upp.
Þá hafði kjörnefndin samþykkt að
stilla upp Rögnu Bergmann sem
fyrsta varaforseta en síðan stóð valið
milli þeirra Arnar Friðrikssonar og
Vilborgar Þorsteinsdóttur.
Hagsmunir
hreyfingarinnar fyrst
Ásmundur hafði að sögn ekki
viljað sætta sig við Þóru Hjaltadóttur
vegna þess að hann taldi hana of
halla undir Steingrím Hermannsson
og ríkisstjórn hans, en hvað segir
Þóra sjálf, af hverju var hún ekki í
framboði?
„Ég sagði það fyrir hálfum mánuði
að ég ætlaði ekki að bjóða mig fram.
Ég vildi einfaldlega ekki auka á
þann ágreining sem ríkti innan ASÍ.
Maður verður fyrst og fremst að
hugsa um að hreyfingin komi fram
sem ein heild. Það verður að ganga
fyrir öðru í starfi fólks í hreyfing-
unni, það er ekkert sem heitir með
það.
Ég er ágætlega ánægð með forset-
ana. Það er talsverð breidd í þessu.
Ásmundur er verslunarmaður,
Ragna er frá Verkamannasamband-
inu og Örn er iðnaðarmaður.“
- Ágreiningurinn sem þú minntist
á, tengist hann á einhvern hátt
núverandi ríkisstjórn?
„Því vil ég ekki svara,“ sagði Þóra
að lokum. -sá