Tíminn - 24.11.1988, Blaðsíða 16

Tíminn - 24.11.1988, Blaðsíða 16
16 Tíminn lllllllllllllllllllllllllll DAGBÓK lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllÍÍÍ Priscilla Baskerville, sópransöngkona Michael Lofton, baritonsöngvari Bandarískir blðkkusöngvarar með Sinfóníuhljómsveitinni f kvöld heldur Sinfóníuhljómsveit fs- lands tónleika utan áskriftar í Háskóla- bíói og hefjast þeir kl. 20.30. Á efnisskrá verður tónlist úr þekktum og vinsælum söngleikjum þessarar aldar: Leikin verður tónlist úr Birtingi (Cand- ide) og Sinfónískir dansar úr West Side Story eftir Leonard Bernstein, lög úr söngleiknum Cats eftir Andrew Lloyd Webber og að lokum sönglög úr Porgy og Bess eftir George Gershwin. Til að syngja þessa söngva hefur hljómsveitin fengið til liðs við sig tvo bandaríska blökkusöngv- ara, Priscillu Baskerville, sópransöng- konu og Michael Lofton, baritónsöngv- ara. Hljómsveitarstjóri er Murry Sidlin. Ferðafélag íslands: ÞÓRSMÖRK - aðventuferð Sérstök aðventuferð til Pórsmerkur verður helgina 25.-27. nóv. Gist í Skagfjörðsskála/Langadal, en þar er aðstaða fyrir ferðafólk sú besta sem gerist í óbyggðum. Stór setustofa fyrir kvöldvökur, stúkað svcfnloft, tvö cldhús með nauðsynlegum áhöldum, miðstöðv- arhitun svo að inni er alltaf hlýtt og notalegt. Fararstjóri skipuleggur göngu- ferðir. Kvöldvaka og jólaglögg á laugar- dag. Fararstjóri: Kristján Sigurðsson Brottför kl. 20.00 föstudag. Upplýsing- ar og farmiðasala á skrifstofu F.Í., Öldu- götu 3. Ferðafélag íslands BILALEIGA meö utibú allt í kringum landiö, gera þér mögulegt aö leigja bíl á einum staö og skila honum á öörum. Reykjavík 91-31615/31815 Akureyri 96-21715/23515 Pöntum bíla erlendis interRent Bílaleiga Akureyrar Félag eldri borgara Opið hús í Goðheimum Sigtúni 3. Kl. 14: Frjáls spilamennska. Kl. 19.30: Fé- lagsvist, hálft kort. Kl. 21: Dans. Ath. Opið hús í Tónabæ nk. laugardag kl. 13.30. Félagar frá Selfossi koma kl. 17.30. Skemmtiatriði og dans. Veitingar verða til sölu á staðnum. Pantanir óskast í síma 28812 í dag og á morgun. Spilakvöld Snæfellinga Félag Snæfellinga og Hnappdæla í Reykjavík minnir á annað spilakvöldið í þriggja kvölda keppninni, sem verður fimmtudagskvöldið 24. nóv. kl. 20:30 að Hótel Lind við Rauðarárstíg. Stofnun félags eldri borgara í Kópavogi Að undanförnu hefur hópur eldri borg- ara í Kópavogi unnið að undirbúningi stofnunar hagsmunafélags aldraðra í Kópavogi, 60 ára og eldri. Stofnfundur félagsins er ákveðinn laugardaginn 26. nóv. kl. 14:00 í Félagsheimili Kópavogs á 2. hæð. Par mun undirbúningsnefndin leggja fram tillögu að stofnun slíks félags og einnig drög að samþykktum fyrir það. Á fundinum verða flutt ávörp og um- ræður munu fara fram um málefni aldr- aðra. Bergsteinn Sigurðarson, formaður Fé- lags eldri borgara í Reykjavík og ná- grenni, flytur ávarp á fundinum. Undirbúningsnefndin væntir þess að sem allra flestir Kópavogsbúar, 60 ára og eldri, komi á fundinn og taki þátt í stofnun þessara samtaka. Árbók Listasafns Sigurjóns Ólafssonar Árbók Listasafns Sigurjóns Ólafssonar 1987 og 1988 er komin út og er að þessu sinni tvíæringur. Er hún í sama broti og fyrsta árbók safnsins, sem kom út 1986, og hana prýðir fjöldi Ijósmynda af verkum Sigurjóns. Meðal efnis má nefna fróðlegt viðtal sem Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur átti síðastliðið sumar við Erling Jónsson myndhöggvara og fyrrum aðstoðarmann Sigurjóns um vinnubrögð Sigurjóns, grein Birgittu Spur um yfirlitssýningu þá sem nú er haldin á 50 vcrkum eftir Sigurjón í tilefni af vígslu safnsins og grein eftir Toru Raknes, fóstru og myndhöggvara, um myndtjáningu barna og fullorðinna í ljósi rannsókna sem hún hcfur unnið. Enn fremur eru kveðjur frá vinum erlend- is, skýrsla um byggingarframkvæmdir safnsins, ársreikningar safnsins og styrkt- arsjóðsins og nöfn stuðningsmanna og gefenda listaverka cftir Sigurjón. Árbókin fæst í Listasafni Sigurjóns á Laugarnesi og helstu bókabúðum í Reykjavík. Jólamerki Framtíðarinnar á Akureyri Jólamerki kvenfélagsins „Framtíöin" Akureyri er komið út. Merkið er teiknað af frú Kristjönu Tryggvadóttur, og prent- að hjá Prentverki Ödds Björnssonar h.f. Akureyri. Sölustaðir eru Póststofan Akureyri, Frímerkjahúsið og Frímerkjamiðstöðin Reykjavík. Félagskonur sjá um sölu á Akureyri. Merkið kostar 10 kr. og örkin 120 kr. Allur ágóði rennur í elliheimila- sjóð. Illllllllllllllll BÆKUR 11111 Vilhjálmur Hjálmarsson: Mjófirðinga- sögur II Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur gefið út annan hluta af Mjófirðingasögum eftir Vilhjálm Hjálmarsson á Brekku, en fyrsti hluti þeirra kom út 1987. Rekur höfundur að þessu sinni byggðarsöguna sunnan fjarðar og í botni hans og segir hressilega frá mönnum og atburðum. Útgefandi kynnir Mjófirðingasögur II þannig á kápu: „Annar hluti af Mjófirðingasögum Vilhjálms Hjálmarssonar, fyrrum alþingismanns og ráðherra, rekur byggðarsöguna í átthögum höfundar eystra og spannar sveitina sunnan fjarðar og í botni hans. Greint er frá bújörðum og landsnytjum á þeim slóðum og birt bændatöl með bólstaðalýsingunum. Inn á milli er svo skotið ítarlegum köflum um sild- og hvalveiðar Norðmanna í Mjóafirði og af Sveini Ólafssyni, héraðshöfðingja og alþingismanni, er sat óðahð Fjörð allan fyrri hluta aldarinnar, en af honum varð staðurinn víðfrægur. Fyrsti hluti af Mjófirðingasögum, sem út kom 1987, fjallaði um forfeður og ættgarð Vilhjálms Hjálmarssonar og vakti mikla athygli, en þar greindi höfundur einkum frá afa sínum og ömmu á Brekku og skylduliði þeirra, en einnig háttum og daglegu lifi þar. Hér á höfundur svipað erindi við lesendur, þó að frá öðrum segi, og ber atburði og örlög á Suðurbyggð og í fjarðarbotni hátt í annálum hans. Einnig sæta tíðindum kaflarnir um síld- og hvalveiðar Norðmanna og þátturinn af Eva Benjamínsdóttir Nýtt gallerí Nú um helgina opnar Eva Benjamíns- dóttir nýtt gallerí - Gallerí Eva - að heimili sínu Miklubraut 50. Þar sýnir hún vatnslitamyndir og myndir unnar með blandaðri tækni. Petta er önnur einkasýn- ing Evu hér á landi, sú fyrri var í Ásmundarsal 1983. Eva útskrifaðist frá School of the Museum of Fine Arts í Boston og lauk BFA gráðu frá Tufts University 1984. Hún hefur áður tekið þátt í samsýningum bæði hér og erlendis. Sýningin verður opnuð föstudaginn 25. nóvember og stendur til 6. desember, er opin alla daga kl. 15-21. Fimmtudagur 24. nóvember 1988 garpinum Sveini í Firði. Höfundur fer á kostum í frásögnum og mannlýsingum þegar hann teflir fram Suðurbyggjum og Býlamönnum og hermir kjör þeirra og afrek. Mjófirðingasögur lýsa tímabili mikUla breytinga í lifnaðarháttum, sviptinga í atvinnulífi og röskunar íbúafjölda. Sögusviðið er afmarkað, en þó vítt og sérstakt. Þar lifðu og störfuðu Mjófirðingar Vilhjálms á Brekku, dáðrakkir og eftirminnilegir þegnar sem lögðu af mörkum ærin drög að sögu lands og þjóðar." Mjófirðingasögur II eru 490 bls. að stærð og prýddar mörgum athyglisverðum myndum, en að lokum fylgir ítarleg nafnaskrá. Kápu gerði Sigurður Örn Brynjólfsson. Bókin er unnin í prentsmiðjunni Eddu. Fjölfræðibók um steinaríkið Vaka-Helgafell hefur hafið útgáfu á flokki fjölfræðibóka sem hlotið hefur nafnið Heimur í hnotskum. Fyrsta bókin er nýkomin út, heitir Steinarikið og ber undirtitilinn: Heillandi veröld í máh og myndum. Bókin Steinaríkið er unnin í samvinnu við Náttúrugripasafnið í London og kemur nú samtímis út í allmörgum Evrópulöndum. íslensku útgáfuna hafa jarðfræðingarnir Ari Trausti Guðmundsson og Halldór Kjartansson þýtt og staðfært. í bókinni er fjallað um steinaríkið á nýstárlegan og áhugaverðan hátt og birtur fjöldi litmynda af berg- og steintegundum, steingervingum, eðalmálmum, kristöllum, gimsteinum og steinum utan úr geimnum. Bókin hefst á yfirliti um innviði jarðar og er þá útskýrt hvernig helstu bergtegundir eru steindir eða steintegundir eru flokkaðar. Síðan er því lýst hvemig berg myndast, hvernig landslag verður til, hvernig jarðeldurinn markar ásýnd jarðar, hvernig neðanjarðarhellar myndast og sjávarsetið verður til. Að lokum er fjallað um það hvar málmar, jarðefni önnur og gimsteinar eru unnir í námum. í bókarkynningu Vöku- Helgafells segir meðal annars: „Bergið og steindirnar, þ.e. steintegundirnar undir fótum okkar, eru sjálfir innviðir jarðarinnar, reikistjömunnar sem við lifum á. Þrátt fyrir það ríkir oft misskilningur um grjótið og oftar en ekki lítum við framhjá því. í bókinni Steinaríkið hefur verið safnað glæsilegu og sérbúnu myndefni til þess að opna augu okkar fyrir fegurð og fjölbreytileika bergtegunda, steingervinga, steinda, dýrmætra málma, kristalla, gimsteina og safngripa úr steinaríkinu. Mörg sýnin em úr sérsöfnum og hafa myndir af þeim aldrei áður birst á bók. Fjölfræðibókaflokkur Vöku- Helgafells, Heimur í hnotskurn, hefur það markmið að veita myndræna leiðsögn og innsýn í náttúmna og lífið í kringum okkur. Bækurnar eiga að vera vandaðar og efnismiklar en jafnframt á hagstæðu verði vegna samstarfs margra útgáfufyrirtækja viða um heim.“ Prenttækni hf. í Kópavogi annaðist setningu og filmuvinnslu bókarinnar Steinaríkið, en prentun og bókband fór fram hjá A. Mondadori á Ítalíu. Jón úr Vör. Vaka-Helgafell gefur út Þorpið eftir Jón úr Vör - með myndskreytingum Kjartans Guðjónssonar Ljóðaflokkurinn Þorpið eftir Jón úr Vör er nú kominn út í nýrri útgáfu hjá bókaforlaginu Vöku- Helgafelli. Þetta er fjórða útgáfa bókarinnar sem verið hefur ófáanleg á markaði allmörg undanfarin ár. Þorpið var fyrsta safn óbundinna ljóða sem út kom hér á landi. Það var árið 1946. Bókin markaði þáttaskil á skáldferli Jóns úr Vör. Kvæðunum var heldur þurrlega tekið í fyrstu, enda nýstárleg, og það var ekki fyrr en við aðra útgáfu bókarinnar áratug síðar að hún hlaut þann sess í íslenskum skáldskap sem hún hefur haldið síðan. í nýjustu útgáfu ljóðanna, sem Vaka-Helgafell sendir nú frá sér, em listrænar myndskreytingar Kjartans Guðjónssonar, myndlistarmanns, sem þykja falla einkar vel að ljóðblæ Jóns. í kynningu Vöku-Helgafells á bókinni og höfundinum segir: „í Þorpinu yrkir Jón úr Vör um uppvaxtarár sín og æsku á Patreksfirði, minmst lífsbaráttu fólksins þar á tímum kreppu og staldrar í ljóðmáli sínu við hjá þeim sem honum em nákomnir. Jón úr Vör hefur lengi verið eitt virtasta ljóðskáld þjóðarinnar, enda á skáldskapur hans sér djúpar rætur í íslenskum vemleik. Óhætt er að fullyrða að ljóðin í Þorpinu vitni vel um næmni skáldsins, málleikni og listrænan aga.“ Jón úr Vör hefur gefið út tólf ljóðabækur og hafa ljóð úr þeim öllum verið þýdd og gefin út erlendis auk þess sem verk eftir hann hafa verið tilnefnd til bókmenntaverðlauna N orðurlandaráðs. Hann hefur verið meðal fremstu ljóðskálda íslenskra allt frá því að fyrsta kvæði hans birtist í Rauðum pennum fyrir rúmlega hálfri öld, árið 1935. Ljóðabókin Þorpið er sett og prentuð í Víkingsprenti hf. en bókband annaðist Arnarfell hf. Prenthúsið: Drauga- kastalinn Skáldsaga eftir Margit Sandemo höfund bókanna um ísfólkið Þessi bók er eftir höfund hinna vinsælu bóka um ísfólkið og ber sömu einkenni og þær, spennu, átakanleg örlög og sérstæðar sögupersónur. Auk 43 bóka um ísfólkið hefur Margit Sandemo samið um 50 aðrar sögur. Bókin fjallar um unga stúlku, Sharon að nafni. Hún var alin upp á barnaheimili og hafði ekki hugmynd um hverjir foreldrar hennar væm. Æskunni eyddi hún í vinnu og strit, og þegar hún varð fullorðin var henni kennt um morð sem vinkona hennar hafði framið. Sharon flúði - og hafnaði á lítilli námuey rétt untan við strendur Kanada. Þar komst hún í kynni við ógnvekjandi draugakastala, sem allir óttuðust. Og þar hitti hún Peter og Gordon — tvo karlmenn sem áttu eftir að hafa mikla þýðingu fyrir hana.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.