Tíminn - 24.11.1988, Blaðsíða 6

Tíminn - 24.11.1988, Blaðsíða 6
6 Tíminn Fimmtudágur 24. nóvember 1988 Jarðgöng eða rör til Vestmannaeyja: Sérfræðingar Vegagerðar- innar kanna kostnaðinn Verið er að kanna möguleika á gerð jarðganga til Vestmannaeyja, og hefur Guðni Ágústsson, alþingis- rnaður, falið sérfræðingum Vega- gerðarinnar að athuga kostnaðar- hliðina. Jarðgöng undir sjávarbotni myndu kosta um 5 milljarða króna, en samkvæmt norskum stöðlum kostar einn kílómetri af röri um 1,5 milljarða króna, og þýðir það 13-14 milljarðar. í Vestmannaeyjum huga menn nú í auknum mæli að gerð slt'kra ganga til meginlandsins, og víst er að samgöngur myndu gjörbreytast við tilkomu þeirra. Jarðgöng kosta fimm sinnum meira en nýr Herjólfur, en á móti kæmi að rekstrarkostnaðuryrði mun minni en nú er. Á þessu ári kostar það Vestmannaeyinga um 100 milljónir að flytja fólk og vörur, auk 24 milljóna úr ríkissjóði, og þannig mætti lengi telja. Verði jarðgöngin gerð, verða að- eins 10 kílómetrar á milli lands og eyja, og um 150 kílómetrar til Reykjavíkur. Og nú er bara að bíða og sjá hvort draumurinn verður að veruleika. elk Bráðabirgöalög ríkisstjórnar- innar og launafrystingin: Desemberuppbót verður greidd Margir Itafa velt því fyrir sér hvaða áhrif bráðabirgðalög ríkis- stjórnarinnar um launafrystingu komi til með að hafa á svokallaða desemberuppbót. Nú liggur ljóst fyrir, ef ntarka má fréttabréf ASÍ og VR blaðið, að uppbót þessi verður greidd. í fréttabréfi ASÍ kentur fram m.a. „að samkvæmt samdóma túlkun að- ila vinnumarkaðarins er desember- uppbót einstaklingsbundin launa- greiðsla, réttur, sent launantaður ávinnur sér með starfi hjá atvinnu- rekenda. Hér er ekki um að ræða áfangahækkanir, en bráðabirgðalög- in taka fyrst og fremst til þeirra.“ Launafólk sem hefur samið um desemberuppbót í kjarasamningum á því að fá hana greidda. í lokin má geta þess að starfsald- urshækkanir eiga líka allar að koma til greiðslu á réttum tíma. Því tekið er fram í bráðabirgðalögunum að einstaklingsbundnar hækkanir og starfsaldurshækkanir séu undan- skildar þeirri frystingu launa sem nú er í gildi. ssh Skýrsla Ríkismats sjávarafuröa um ástand hreinlætis í fiskvinnslunni: Niðurstöður mun betri en í fyrra í nýútkominni skýrslu Ríkismats sjávarafurða um ástand hreinlætis- og búnaðarmála fiskvinnslunnar kemur í ljós að ástandið hefur stór- lega batnað síðan í fyrra, en í saltfiskvinnslunni er enn ýmsu ábótavant. Þetta er önnur skýrslan sem Ríkis- matið sendir frá sér undir heitinu: „Fiskvinnsla til fyrirmyndar“. í fyrri skýrslunni sem kom út 15. október á síðasta ári var eingöngu greint frá ástandi hraðfrystihúsa, en nú var bætt við rækju- og saltfiskvinnslum. Niðurstöður í ár benda ótvírætt til þess að frystihúsin hafi bætt sig mikið frá því í fyrra og að þróunin sé í jákvæða átt, enda voru niður- stöður úttektarinnar í fyrra notaðar til að hvetja til dáða, m.a. veitti sjávarútvegsráðherra nokkrum fisk- vinnslustöðvum viðurkenningu. Við greininguna skoðaði Ríkismat sjávarafurða 347 fiskvinnslufyrir- tæki. Helstu niðurstöður urðu þær að rækjuvinnslurnar komu best út hvað varðar hreinlætis- og búnaðar- hætti. Af þeim voru 72% í lagi eða til fyrirmyndar þegar á heildina er litið. Af frystihúsunum voru 56% í lagi eða til fyrirmyndar, en þar af fengu 10% húsanna fyrirmyndar- einkunn. Af saltfiskvinnslunum var aðeins 1,5% vinnslunnar til fyrir- myndar, í lagi reyndust vera 31,6%, ábótavant reyndist 61,3% en í tæp- um 6% tilvika var ástandið slæmt eða óhæft. ssh Síldarsöltunin rekin með tapi? „Ég óttast það því miður að tap verði á síldasöltun í haust,“ sagði Hermann Hansson formaður féiags sOdarsalt- enda á Norður- og Austurlandi í samtali við Tímann, ástæðuna sagði hann fyrst og fremst vera verulega lækkun doilars. „Menn reyndu í haust þegar verðlugning fór frarn að tcygja sig svo langt sem hægt var til sam- komuiags. Menn náðu síðan samn- ingum við Sovétmenn sem, ég held að hafi veriö hagstæöir útaf fyrir sig. Það sem veldur okkur kannski öðru frernur áhyggjum núna, er að þessi stóri samningur við Sovét- menn er allur í dollurum ogdollar- inn lækkar og skerðir þar af leið- andi afkomuna hjá okkur mjög verulega, þannig að ég óttast þaö því miður að það gæti orðið til þess að menn tapi á síldarsöltun í haust," sagði Hcrmann. Hermann^agði að sá samningur sem gcrður var við Sovétmenn á þessu hausti hafi verið mönnum til hagsbóta, þar sem meiri verðmæta- sköpun væri eftir í landinu og meiri nýting á hráefninu. En sem kunn- ugt er var samiö um hausskorna og slógdregna síld við Sovétmenn, ólíkt því sem var tvö undanfarin ár, en þá var síidin heilsöltuð. í fyrrakvöld var búiö að salta í 201.289 tunnur, en búist má við að saltað hafi verið í fjögur til fimm þúsund tunnur í gær. Veiði undan- farna daga hefur verið góð, einkum í Mjóaíirði og Reyðarfirði. Mest var búið að salta á Eskifirði í fyrrakvöid. eða 34.693 tunnur. Hornfirðingar veita Eskfirðingum harða samkeppni, því þar var búið að salta í 33.612 tunnur og í þriðja sæti er Seyðisfjörður með 23.850 tunnur. 1 Grindavík hefur vcrið saltað í 21.321 tunnu. - ABÓ Aukefnanefnd skipuö af Heilbrigðisráðuneytinu: Kannar umsóknir um aukefni Skipuð hefur verið af Heiibrigðisráðuneytinu, Aukefna- nefnd, skv. regiugerð nr. 409/1988, um aukefni í matvælum og öðrum neysluvörum. Hlutverk nefndarinnar, sem starfar á vegum Hollustuverndar ríkisins, er að athuga umsóknir um notkun aukefna, taka ákvarðanir um bráðabirgðaleyfi til notkunar þeirra, gera breytingartillögur á aukefnalista og annast eftirlit með auglýsingum um aukefni. Næstu fjögur árin eiga sæti í aukefnanefnd, þau Jón Gíslason, næringarfræðingur, Brynhildur Briem, nær.fr., Guðmundur Hall- grímsson, stórkaupm., Elín Hilm- arsdóttir, matvælafr. og dr.med. Þorkell Jóhannesson, prófessor. Hlutaðeigandi aðilum er bent á að snúa sér beint til nefndarinnar, hyggist þeir sækja um að fá að nota aukefni, sem ekki eru heimiluð, samkv. reglugerð nr. 409/1988, eða óski þeir eftir breytingum á magni eða annarri notkun, en reglugerðin gerir ráð fyrir. Svipaðar reglur gilda hér eftir um skráningu aukefna í matælum og öðrum neysluvörum, og þær sem gilda um lyf og eiturefni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.