Tíminn - 24.11.1988, Blaðsíða 5

Tíminn - 24.11.1988, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 24.'nóvémb'ér Íðé8 Tíminn 5 Einkareknar hjartaskurðstofur í Bretlandi standa hálfnotaðar á meðan opinbera kerfið getur ekki sinnt þörfinni: Islendingum boðið upp á afslátt á hjartaaðgerðum Bretland - sem er orðið að læknisfræðilegri Mekka í augum fjölmargra íslenskra hjartasjúklinga sem þurfa á uppskurði að halda - stendur nú frammi fyrir gríðarlegum vandamálum í hjartaskurðlækningum. Þó svo að íslenskir hjartasjúklingar sem þurfa á bráðaþjónustu að halda fái inni um leið á sjúkrahúsum í Bretlandi, þá þurfa breskir hjartasjúklingai1 að bíða allt upp í 7 mánuði eftir aðkallandi uppskurði - og hundruð þeirra deyja á meðan á biðinni stendur. íslenskir hjartasjúklingar hafa talið bresk læknavísindi gulls ígildi - en fyrir hjartasjúka þjáningar- bræður þeirra í Bretlandi leiðir kreppa hjartaskurðlækninga þar þá oft beinustu leið í kirkjugarðinn. Hjartasjúklingar í Bretlandi sem þurfa á bráðaþjónustu að halda verða að bíða eftir aðgerð í 12 til 28 vikur, en í samanburði þurfa íslenskir sjúklingar sem koma til Bretlands ekki að bíða nema í innan við viku, oft á sömu spítulun- um. Sé ekki um bráðatilfelli að ræða þurfa breskir hjartasjúklingar að bíða 36 tii 52 vikur eftir meðferð en fslenskir sjúklingar sem fara í aðgerð í Bretlandi aðeins 4 vikur og einnig í þessum tilvikum er um sömu spftalana að ræða. Hundruð breskra sjúklinga deyja áður en þeir komast í aðgerð og á milli eitt og tvö hundruð til viðbótar hafa dáið í ár eftir misheppnaða aðgerð sem fyrst og fremst má rekja til aukinnar áhættu vegna langs bið- tíma. íslendingar fara um „heilbrigðishrað- brautina“ Árlega fara um 130 íslendingar til Bretlands á vegum íslenska heilbrigðiskerfisins í hjarta- skurðaðgerð, einkum til að láta skipta um hjartaiokur, setja inn nýjar kransæðar eða víkka þær út (angioplasty). íslensku sjúkiing- arnir fá meðferð í „hraðbraut“ breska kerfisins, þ.e. á einka- sjúkrahúsum eða á einkavæddum deildum ríkisreknu spítalanna. Hins vegar stendur fæstum bresk- um hjartasjúklingum þessi „heil- brigðishraðbraut" til boða. Breska sjúkrasamlagið greiðir undir venjuiegum kringumstæðum ekki kostnaðinn sem hlýst af því að setja „venjulega“ sjúklinga inn á slíkar einkadeildir, og opinbera heilbrigðiskerfið hefur ekki að- stöðu til að sinna þörfinni í sínum stofnunum. Yfirgnæfandi meiri- hluti „venjulegra“ sjúklinga hefur ekki efni á að borga þau 5000-7000 sterlingspund eða 400-700 þúsund ísl. krónur sem það kostar að fara í slíka aðgerð. Einkaaðilar bjóða Skandínövum afslátt Ástandið verður í raun hálfu hörmulegra þegar þess er gætt að mörg af einkasjúkrahúsunum standa hálf auð - og nokkuð er um það að „sölumenn" eða talsmenn þessara sjúkrahúsa hafi að undan- förnu farið á milli sendiráða Norðurlandanna í London, þar á meðal íslenska sendiráðið, og boð- ið verulega afslætti á hjartaaðgerð- um. Þannig mun einum þessara einkaspítala hafa verið svo mikið í mun að ná til sín „viðskiptum“ frá íslandi að hann bauð t.d. að lækka verð á ákveðinni skurðaðgerð úr 7000 sterlingspundum niður í 5400 pund. Flestir Bretar hafa ekki hug- mynd um að Bretland er læknis- fræðileg Mekka í augum fjöl- margra hjartasjúklinga frá fslandi og öðrum lönduni og þeir gera sér heldur ekki grein fyrir því að aðstaða til hjartaskurðlækninga liggur að miklu leyti ónotuð í Bretlandi á sama tíma og hundruð manna deyja vegna þess að þeir komast ekki í aðgerð. Prátt fyrir forystu breska sjúkrasamlagsins í heilbrigðismálum í heiminum fyrir mörgum árum ríkir þar nú hálfgert neyðarástand. Víðtæk þjáning á sér nú stað í landinu og má nefna sem dæmi að gláku- og liðagigtar- sjúklingar þurfa að bíða árum saman eftir aðgerðum. Stór hópur glákusjúklinga er nú orðinn meira og minna blindur á meðan á biðinni hefur staðið. Orsök vandamálsins má rekja til fjárskorts og skorts á hjúkrunar- fræðingum. Fjölmargir spítalar hafa augiýst eftir útiendum hjúkr- unarfræðingum. Innflutningur hunda á tímabilinu 1978 til 1987: 67 rakkar álOárum Steingrímur Sigfússon land- búnaðarráðherra hefur gefið svar við fyrirspurn frá Inga Birni Al- bertssyni um innflutning á hund- um síðast liðin 10 ár, frá ’78 til ’87. Alls bárust 192 skriflegar umsóknir á þessum tíu árum, 99 þeirra var synjað en 64 undanþág- ur voru veittar. Flestar voru á síðasta ári eða 9 talsins. Sendimönnum erlendra ríkja voru veittar 27 undanþágur á þessum árum. íslenskum sendi- herrum er fluttust heim voru veittarfjórarundanþágur. Hjálp- arsveitir, björgunarsveitir og lög- regla, þar með talin fíkniefna- deild lögreglunnar, fengu að flytja inn að meðaltali hálfan hund á ári, eða fimm hunda alls á tíu árum og loks var tuttugu og átta einstaklingum heimilað að flytja inn rakka á umræddu tfma- bili. Ekki komu fram í svarinu nöfn einstaklinga er fluttu inn hunda eins og óskað var eftir í fyrirspurninni. Flestir komu hundarnir frá Bandaríkjunum og Danmörku, eða 17 og sextán frá hvoru um sig. ■ ág Bíó í skólum Borgarráð samþykkti á fundi sínum í fyrradag að kaupa á móti Námsgagnastofnun afnotarétt af kvikmyndinni „Land og synir“ til næstu 12 ára. Skólamálaráð Reykjavíkur hafði áður samþykkt að leggja til við borgarráð að þetta yrði gert og verða samningar með líku sniði og gert var með kvikmynd- ina Útlagann. -sá Sala hlutabréfa ríkisins í Útvegsbanka hf. hefur legið í gerjun í rúmt ár: Kemst skríður á sðlu bankans í desember? Sala á hlutabréfum ríkisins í Útvegsbanka íslands hefur legið niðri um hríð, en nýlega boðaði Björn Friðfinnsson, formaður sölunefndar viðskiptaráð- herra, til fundar með nokkrum bankastjórnum. Hafa óformlegar þreifingar átt sér stað milli aðila í Verslunarbankanum, Iðnaðarbankanum og Samvinnubankanum, en fulltrúar Alþýðubankans hafa ekki verið tilbúnir til viðræðna fyrr en að loknu yfirstandandi þingi ASÍ. Að sögn heimildarmanna Tímans meðal bankastjórna eru þeir orðnir frekar þreyttir á fræðilegri afstöðu viðskiptaráðherra, sem vill skoða alla möguleika í stöðunni, jafnvel þótt ekki sé útlit fyrir að það séu raunhæfir möguleikar. Hefur nefnd sú, sem ætlað er að fjalla um sölu hlutabréfa ríkisins í Útvegsbankan- um, boðað til næsta fundar í byrjun desember og er búist við að þá fari að komast skriður á málin að nýju. Alls teljast nú tæplega 160 þjónustu- aðilar á íslenskum fjármagnsmark- aði og þykir mörgum sá fjöldi keyra úr hófi. Umræða í hverjum banka t nýjasta fréttabréfi Verslunar- bankans til hluthafa sinna, er sagt að tilboð ráðherra knýi á um mikilvæg- ar ákvarðanir. Segir í féttabréfinu að bankinn hafi verið í öflugri sókn og skili hluhöfum sínum arði. „Á hinn bóginn býðst nú tækifæri á þátttöku í stærri einkabanka, sem einnig gæti átt bjarta framtíð fyrir sér.“ Um frekari þróun í þessa átt segir bankastjórinn, Tryggvi Pálsson, að hann geri ráð fyrir að í hverjum banka sé verið að íhuga möguleika á kaupum hlutabréfa í Útvegsbankanum. „Það hafa engar formlegar viðræður farið fram, en vegna tilmæla nefndarinnar er verið að taka afstöðu til málsins í heild,“ sagði Tryggvi. Valur Valsson, bankastjóri Iðnað- arbankans, sagði að það eina sem gerst hafi í þessum málum, sé einn fundur með Birni Friðfinnssyni, nefndarformanni ráðuneytisins. Svipaða sögu var að heyra hjá bankastjóra Samvinnubankans, Geir Magnússyni. Flestir þeir sem Tíminn ræddi við voru þó tilbúnir að viðurkenna að auðvitað hafi menn átt símtöl sín á milli og væri ekki fráleitt að kalla það þreifingar. Beðið eftir ASÍ þingi Samkvæmt heimildum Tímans bíða menn þó með nokkurri eftir- væntingu eftir hugsanlegri umfjöllun Alþýðusambands íslands um framt- íð Alþýðubankans í þessu samhengi. Líklegt er að ef einhver formleg umfjöllun eigi að fara fram um framtíðarstöðu Alþýðubankans, verði umræðurnar í dag eða á morgun. Talið er líklegt að ekki hafi verið farið af stað með fund sölu- nefndarinnar fyrr en nú að menn sjá fyrir endann á þingi ASÍ. Hefur ekki verið talið raunhæft að blanda Al- þýðubankanum inn í hugsanleg hlut- abréfakaup og sameiningu við aðra banka fyrr en nú. Kaup Sambandsins í fyrra Svo virðist sem söguleg kaup Sam- bandsins á hlutabréfum ríkisins í Útvegsbankanum í fyrra, hafi minni áhrif á umræðuna núna. Segja við- mælendur að aðstæður flestra aðila í þeirri deilu hafi breyst svo mjög að hvorug stóra blokkin eigi möguleika á því að leggja fram viðlíka tilboð og þá. Einnig er bent á að ríkið hefur lagt til gífurlegt fjármagn til að hressa við eiginfjárstöðu bankans og hleypi það verðinu frekar upp en hitt. í því sambandi hefur verið á það bent að eigið fé Útvegsbankans hf. sé svipað, eða jafnvel meira en samanlagt eigið fé Verslunar- og Iðnaðarbanka, svo dæmi sé tekið. Öll þessi umræða núna miðast að sjálfsögðu við að einstakir aðilar kaupi einstaka hluti ríkisins í bank- anum, en ekki að einhverjir hópar bjóði í meirihluta hlutabréfanna. Fylgir þessum kaupum einnig sú kvöð eða hvatning að með sölu bréfanna verði stuðlað að samein- ingu bankastofnana. Einnig verði eignaraðild dreifð. 157 aðilar fjármagnsmarkaðar Núna eru í landinu sjö viðskipta- bankar, 35 sparisjóðir, 19 fjárfest- ingarlánasjóðir, 86 lífeyrissjóðir, fjórar eignaleigur, þrjú greiðslu- kortafyrirtæki, og a.m.k. þrjú verð- bréfafyrirtæki sem kallast geta „stór“. Samtals eru þetta 157 þjón- ustuaðilar á fjármagnsmarkaði. Þessi mikli fjöldi veldur aðstandend- um þeirra stöðugt meiri áhyggjum og má segja að það knýi nú meir en nokkru sinni áður á einhverja sam- einingu, eða aukna sérhæfingu stofn- ana. KB

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.