Tíminn - 16.12.1988, Side 6
6 Tíminn
JÓLABLAÐ
Sagan af Hans
það bil sem yið vorum að fara.
Klukkan mun hafa verið um 12
þegar við komum út að Brekku. Var
þá undinn bráður bugur að því að
gefa hrakningsmönnum að borða og
búa þeim hvílu. Innan tiltölulega
lítillar stundar var svo þessi skip-
brotsmannahópur sofnaður, hópur-
inn, sem samanstóð af einni konu
hálffertugri, 16 og 12 ára telpum og
fimm börnum frá eins og hálfs til átta
ára að aldri. Og þó sváfu ekki ailir.
Konan, sem hafði barist náttlangt
við beljandi ána, gengið síðan drjúg-
an spöl inn með sjó eftir mannhjálp
í áframhaldandi húðarvatnsveðri á
meðan kolmórautt foraðið hélt
áfram að grafa undan húsinu hennar,
hún sá enga ástæðu til að fara að sofa
um miðjan dag, heldur kom niður
í eldhús til konu minnar með sína
hálfs annars árs gömlu dóttur, sem
heldur ekki var þá þegar tilbúin til
svefns.
(Hripað í flýti á ritvélina á meðan
beðið var eftir því að ná í Hans
bónda í síma, en hann er nú staddur
á Norðfirði í lækniserindum).
Kjarkur í kröggum
Framanskráð er til orðið eins og
þar segir, og hafa blöðin legið í
skrifborði mínu frá þeim degi, er
þetta gerðist. Það var ekki skrifað
með birtingu á prenti fyrir augum.
Ég er þó að hugsa um að láta það
fara svona. Vil aðeins bæta við
nokkrum orðum til glöggvunar fyrir
ókunnuga.
Askneseyrin, sem liggur innarlega
við Mjóafjörð sunnanverðan, er
mynduð af framburði Asknesárinn-
ar. Vatnasvæði hennar er tiltöiulega
mikið, miðað við smáárnar hérna,
enda verður hún vatnsmikil í rign-
ingum. Áin rennur í klettagili niður
brekkurnar, en þegar gilinu sleppir
er farvegurinn grunnur. Hún hefur
þó haldið sama farvegi um nokkurt
skeið, enda stundum dálítið að því
unnið.
Hans Guðmundsson og Anna
Jónsdóttir kona hans munu hafa
búið á Asknesi nálægt tveim tugum
ára. „Eyrin“ var grýtt og erfið til
ræktunar, en þau stækkuðu túnið og
græddu út smám saman. Á síðustu
árunum höfðu þau svo brotið til
nýræktar grasholt nokkur á hjalla
rétt ofan við eyrina. Var þetta nálega
eini staðurinn í grenndinni, þar sem
um nokkurn verulegan jarðveg var
að ræða. Gengu þau að þessu verki
með frábærri atorku, að mestu við
hin frumstæðustu skilyrði. Nýrækt
þessi spratt vel og mun hún vera
rúmur hektari að flatarmáli. Ekki
voru þó grasholtin nándamærri
svona stór. En þau ruddu stærsta
grjótinu af melnum í kring, óku
þangað jarðvegi og færðu þannig út
gróðurlendið.
Að kvöldi þess 6. ágúst 1946 er
svo Anna húsfreyja ein heima með
börnunum. Hans var þá sjúkur og
staddur á Norðfirði í lækniserindum
eins og fyrr segir. Það verður því
hlutverk Önnu að hafa forystuna þá
eftirminnilegu nótt, er í hönd fór.
Aðstaðan var lík og þegar herir sitja
um virkisborg í styrjöld. Anna mun
hafa séð þegar um kvöldið til hvers
kynni að draga, en hvergi varð
komist eins og sakir stóðu. Það
dimmdi óðum, regnið buldi á húsum
og dunur árinnar heyrðust öðru
hvoru - undirbúningur áhlaupsins.
Upp úr lágnættinu, þegar aldimmt
er orðið, myndast aurstífla við gils-
mynnið. Nokkurt vatnsmagn safnast
fyrir uns skarð kemur í stífluna - að
vestan. Var þá ekki að sökum að
spyrja, leiðin var opin beint á bæinn.
Það hefur þurft meira en meðal
„kvenmannskjark" til þess að fara í
náttmyrkrinu ofan í kjallarann, hálf-
fullan af vatni, á meðan trylltur
flaumurinn beljaði á húsgrunninum
með grjótkasti og aurburði, enda
sneri Anna frá í fyrstu. En rétt í
þeim svifum bauluðu kýrnar aumk-
unarlega á básunum. Varð henni
það nóg eggjan. Annars hygg ég, að
Anna hafi þessa nótt sýnt svo frábært
þrek og vaskleik, að meiri viður-
kenningar væri vert en orða einna.
Það náðist aldrei í Hans bónda í
símann þennan dag, 7. ágúst. Fórum
við til Norðfjarðar á vélbáti um
kvöldið og féll í minn hlut að segja
tíðindin. Er ég hafði greint frá
vegsummerkjum, hvemig áin hafði
grafið undan íbúðarhúsinu og flutt
grjót og möl víðsvegar um túnið á
eyrinni, þá sagði Hans aðeins þetta:
„Jæja, þá er starfi okkar lokið á
þessum stað.“
Hans kom svo heim með okkur
um kvöldið. Og árla næsta dag héldu
þau heim á leið, hjónin og börn
þeirra, og hófu störf að nýju. Þetta
sama haust fluttu þau búferlum að
Reykjum, næsta býli fyrir utan
Asknes. Þar er rýmra um og ræktun-
arskilyrði betri en á Asknesi, enda
munu þau hjónin, þrátt fyrir það að
Hans gengur ekki lengur heill til
skógar, hyggja gott til að njóta
afkasta þeirra stórvirku jarðvinnslu-
tækja, er skipað var á land í Mjóa-
firði í dag.
Á hvítasunnudag 1949.“
Ræktað á Reykjum
Enginn ábúandi hafði komið að
Reykjum þegar Bjarni Antoníusson
flutti til Norðfjarðar 1945. Gísli
Wíum (Guðmundsson) kaupmaður
í Vestmannaeyjum, hafði þá fyrir
nokkru keypt frampartinn, ef til vill
með það í huga að bróðir hans kynni
að vilja færa sig þangað sem land-
kostir væru betri en á Asknesi. En
lönd Reykja og Askness liggja
saman. Af því varð þó ekki - fyrr en
náttúruöflin gripu í taumana.
Hjálmar Vilhjálmsson á Brekku átti
útpartinn og seldi nú Hans bónda,
sem þá hafði eignast alla jörðina svo
skipting hennar í tvo hluta var úr
sögunni.
Þremur árum eftir búferlaflutn-
inginn frá Asknesi að Reykjum eign-
aðist nýstofnað Ræktunarfélag
Mjóafjarðar jarðýtu af minnstu gerð
(TD6). Var þegar hafist handa að
brjóta leið fyrir ökutæki frá hafnar-
stað á Brekku inn fyrir botn fjarðar-
ins og út Suðurbyggð.
Þetta tókst á tveimur sumrum, og
jafnskjótt hófust hjónin á Reykjum
handa um sléttun og útfærslu
túnsins. Var allt samfellt land heima
við unnið á fáum árum. Hús voru
lagfærð eftir þörfum en ekki byggt
upp að nýju, enda ekki hægt um vik
með aðdrætti - ýtuslóðin varð aldrei
nema jeppafær.
Hans mun yfirleitt ekki hafa
stundað sjó að marki í sínum
búskap, en lagt í fjörðinn til að fá sér
í soðið meðan hann bjó á Asknesi -
með ágætum árangri. Og eins og
flestir aðrir í sveitinni ræktuðu þau
hjónin garðávexti ríflega til heima-
nota.
Formleg ábúendaskipti urðu ekki
á Reykjum meðan Hans Guðmunds-
son lifði. Hann var mjög heilsu-
hraustur fram eftir ævi, harðskeyttur
dugnaðarmaður að hverju sem hann
gekk. En sjóndepra háði honum
snemma og mörg seinustu árin sá
hann afar illa.
Forystan fyrir búskapnum færðist
yfir á Önnu þegar Hans var um
sjötugt og sjónin nærri þrotin. En
Ólafur sonur þeirra og fleiri systkin-
in hjálpuðu til og létu foreldra sína
ekki eina eftir.
Anna var alla tíð mikil búkona,
lét sér jafn annt um hvort tveggja,
ræktun jarðarinnar og búfjárins.
Frjósemi ánna og vænleiki lambanna
á Reykjum, einkum seinni árin, var
með ólíkindum.
Anna Ingigerður Jónsdóttir lést á
Reykjum 6. september 1977. Hans
Guðmundsson íifði konu sína. Hann
andaðist á fjórðungssjúkrahúsinu í
Neskaupstað 24. júlí 1982.
Framlag til framtíðar
Anna og Hans eignuðust ellefu
börn.
Þórunn Stefanía fæddist 16. októ-
ber 1928. Hún hefur Iengi átt heima
í Fanö í Danaveldi og rekur þar
saumastofu og kennir.
Guðný Jóna er fædd 3. nóvember
1930, rak um skeið matsölu í
Reykjavík en er nú búsett í Nes-
kaupstað.
Inga Wíum er fædd 24. maí 1933.
Maður hennar er Bjami Bjamason
lögregluþjónn og búa þau í Reykja-
vík. Hún hefur lengi starfað við
hjálparstofnanir, nú síðast í Víði-
nesi.
Sesselja Þórama fæddist 11. janú-
ar 1936. Hún ólst upp hjá nöfnu
sinni, húsfreyju á Leiti. Hennar
maður er Nikulás Brynjólfsson, sjó-
maður í Keflavík.
Guðmundur Þór stýrimaður, nú
búsettur á Húsavík nyrðra, er fædd-
ur 2. mars 1938. Hann er kvæntur
Kristlaugu Pálsdóttur.
Jón Amar stýrimaður í Reykjavík
er fæddur 3. mars sama ár og em
þeir Guðmundur tvíburar. Kona
hans er Jóhanna Einarsdóttir.
Gísli Wíum múrari fæddist 10.
mars 1941, kvæntur Sigurlínu
Sveinsdóttur, og búa í Sandgerði.
Ólafur Óskar fæddist 5. júní 1943.
Hann býr í Neskaupstað og starfar
við sjávarútveg.
Nanna Guðfinna fæddist 19. mars
1945, gift Karli Jensen Sigurðssyni
flugvallarstarfsmanni og búa í Fella-
bæ.
Sigríður Lilja fæddist 18. nóvem-
ber 1948, gift Steinþóri Hálfdanar-
syni sjómanni í Neskaupstað.
Arnfríður er fædd 3. janúar 1951.
Hennar maður er Stefán Jónsson
vélstjóri. Þau eiga heima í Reykja-
vík.
Að lokum ber þess að geta, að
eftir fráfall Önnu 1977 stóðu systkin-
in Ólafur og Jóna fyrir búi á Reykj-
um meðan faðir þeirra lifði, og
dvaldi hann hjá þeim svo lengi sem
fært þótti heilsu hans vegna. En að
honum látnum hættu þau búskapn-
um og fluttust til Neskaupstaðar
1982. Hafa Reykir ekki verið í ábúð
síðan.
Sölnfélag Austur-Húnvetninga
Mjólkursamlag Austur-Húnvetninga
Blönduósi
óskar starfsfólki sínu og viðskiptavinum nær ogfjœr
gleðilegra jóla og farsœls komandi árs
Þökkum það liðna
i
%