Tíminn - 16.12.1988, Qupperneq 16
16 ‘tíminn
JÓLABLAÐ
Formáli að Ijóðasafni Sveins frá Elivogum:
Sveinn frá Elivogum. Kannast
ekki margir við þetta nafn? Jafnvel
enn, þegar Iiðin eru meira en fjöru-
tíu ár frá andláti hans, tala menn um
hann og skáldskap hans. Flestir
samtíðarmanna hans, að ég tali ekki
um jafnaldra, eru nú komnir undir |
græna torfu. Á næsta ári eru liðin j
hundrað ár frá fæðingu þessa minnis-
stæða alþýðuskálds og manns.
Snemma varð hann landskunnur
fyrir smellnar vísur sínar, ekki síst
ádeilustökur. Hann var við sjóróðra
upp úr tvítugu í Grindavík og lék þá
fjúka í kviðlingum. Frá þeim tíma er
hin landskunna staka, er þannig
hefst: Lífs mér óar ölduskrið. Hann
var vinnumaður á Höskuldsstöðum |
á Skagaströnd fardagaárið 1910—11'
og sendi þar frá sér stökur er flugu
manna á milli. Vísast hér til ljóða-
safnsins í því efni. f>á var Sveinn í
vinnu við byggingu brúarinnar yfir
Eystri-Héraðsvötn og orti um alla
verkamennina, sem þar stóðu að
verki. Með honum þar voru nokkrir
sem síðar urðu þjóðkunnir menn,
eins og Hermann Jónasson. Sveinn
átti afar auðvelt með að yrkja, hann
var það sem kallað er bráðhagmælt-
ur. Móðir hans mun svo sannarlega
ekki hafa latt hann við yrkingarnar,
en eitt sinn þótti henni Sveinn full
níðskár, þegar hún orti hina frægu
vísu, og beindi máli sínu til sonarins:
Gættu þess, að Guð er einn
gáfuna sem léði.
Efþú yrkir svona, Sveinn,
sál þfn er í veði.
Þetta er rifjað hér upp, þó að
fjölmargir muni hafa heyrt þessa
vísu og kunni hana jafnvel. Sveinn
byrjaði að yrkja sem barn. Skáldgáfa
hans var úr báðum ættum. í föðurætt
má rekja þetta þannig: Arnþóra
Ólafsdóttir, amma Sveins, móðir
Hannesar, og Vatnsenda-Rósa
Guðmundsdóttir voru systradætur.
Rósa var dóttir Guðrúnar Guð-
mundsdóttur frá Lönguhlíð í Hörg-
árdal og Guðmundar Rögnvaldsson-
ar í Fornhaga, manns hennar, en
Þóra, systir Guðrúnar, var gift Ólafi
Jónssyni. Arnþóra dóttir Þóru og
Óiafs, var fædd í Flöguseli í Hörgár-
dal. Frekari upplýsingar um föður-
og móðurætt Sveins er að finna í riti
Rósbergs G. Snædals: Skáldið frá
Elivogum og fleira fólk, er út kom
hjá Iðunni 1973. Ég vil þó aðeins
gera litla grein fyrir móðurætt
Sveins. Móðir hans, Þóra, var dóttir
Jóns Sveinssonar, Auðunssonar frá
Skálahnjúk, en þar dó hann nálægt
1784. Var Auðunn þessi langa-
langa-langafi þess sem þetta ritar, og
þaðan er nafnið komið. Sveinn frá
Elivogum var af alþýðufólki
kominn, bjargálna jafnan. Hann var
sjálfur aldrei ríkur maður, en ekki
fátækur. Honum var það ætíð keppi-
kefli að vera sjálfstæður maður og
ekki undir aðra gefinn.
Sveinn var fæddur í Móbergsseli
3. apríl 1889. Faðir hans, Hannes
Kristjánsson, var Húnvetningur,
fæddur að Kirkjuskarði á Laxárdal
árið 1841, en móðirin, Þóra Jóns-
dóttir, var Skagfirðingur, fædd að
Sævarlandi árið 1849. Sveinn átti því
ættir að rekja til fyrrnefndra ná-
grannasýslna. í báðum þessum sýslu-
félögum bjó hann; tuttugu síðustu
árin rúmlega í Húnava'tnssýslu.
Hann var bóndi alla ævi og erfiðis-
maður, bjó aldrei stórbúi, en snotru,
og fór vel með fénað sinn. Afurðir
eftir hverja skepnu voru því jafnan
ofan við meðallag. Þrifinn var hann
með hey. Hestasár var hann og
hlífði sér ekki, bar hey í tóft af túni
fremur en að sækja hest til að létta
af sér erfiðinu. Hann kunni vel við
sig í margmenni við og við, en oft
var honum mikil þörf á að vera einn
með sjálfum sér. Hefur þá vafalaust
verið að yrkja.
Um uppvöxt Sveins verð ég fáorð-
ur hér, enda er vitneskja mín þar um
af skornum skammti. En fráfæðingu
og til fermingaraldurs dvelur hann á
þremur kotum: Móbergsseli, þar
sem hann fæddist, Gvendarstöðum
á Víðidal og að Hryggjum í Hryggja-
dal. Á þeim bæ missir hann föður
sinn, árið 1903, úr lungnabólgu.
Grandaði sá sjúkdómur mörgum
manninum á besta aldri á þeim
tímum. Sveinn var þannig um ferm-
ingu, er hann varð föðurlaus. Fluttist
þá Þóra með börn sín að Elivogum
á Langhoiti, þar sem hún bjó í yfir
tvo áratugi. Ándaðist hún á bænum
Þröm, ekki langt frá Elivogum.
Sveinn var yngstur systkina sinna,
en systur átti hann fjórar: Siguríaugu
Ingibjörgu, Jónínu, Hannínu og
Þóru. Giftust Sigurlaug og Hannína,
en hinar ekki. Bróðir Sveins, Árni
Frímann, dó á fyrsta árinu. Þau af
börnunum sem lengst bjuggu hjá
móður sinni voru Jónína og Sveinn.
Hann var „fyrir framan" hjá móður
sinni og var þar heimilisfastur fram
yfír þrítugsaldur, að hann festi ráð
sitt og fluttist vestur í Húnavatns-
sýslu. Kemur síðar að greina frá því.
Lítur út fyrir að Sveinn hafi ekki
ætlað sér að flytjast frá Elivogum,
því að hann kynntist konu þarna í
nágrenni við sig, Sigríði Önundar-
dóttur að nafni, og átti með henni
tvö börn: Þórarin, f. 1918, og Maríu,
f. 1916. Sveinn og Sigríður giftust
eigi, og börnin ólust upp á hennar
vegum til fullorðinsára.
Sveinn frá Elivogum í Skagafirði
Þegar Sveinn var orðinn 32 ára og
vel það kemst hann í kynni við unga
stúlku frá Skollatungu í Göngu-
skörðum, er Elín hét. Var hún þá
aðeins 18 ára, dóttir Lilju Kristjáns-
dóttur og Guðm undar Þorleifssonar,
er þá bjuggu að Tungu. Nafninu var
síðar breytt í þetta horf. Með Elínu
eignaðist Sveinn tvö börn: Þóru
Kristínu, sem lengi hefur verið bú-
sett í Bandaríkjunum, og þann sem
þetta ritar. En vísan sem þannig
hefst: Ég úr læðing leyst hefsnák, á
við samband Sveins og Sigríðar.
Hér að framan hefur verið vikið
að uppvexti Sveins. Vitanlega fór
hann snemma að taka til hendi, eins
og raunar var venja um börn þess
tíma. Um nám var ekki að tala.
Fræðslulög voru ekki enn gengin í
gildi á æskuárum Sveins. Börnunum
var þá komið í kennslu eða í læri,
eins og það var kallað, til einstakra
kennara, sem sjálfir höfðu einhverr-
ar menntunar notið; höfðu stundað
nám í búnaðar- eða gagnfræðaskóla.
Sveini var komið fyrir fyrir ferming-
una í þrjár vikur hjá bóndanum á
Refsstöðum á Laxárdal í Austur-
Húnavatnssýslu, Stefáni Eiríkssyni,
er lokið hafði gagnfræðaprófi frá
Möðruvallaskóla. Sonur Stefán er
hinn virti kennari Eiríkur, afi hins
kunna söngvara Eiríks Haukssonar.
Þarna lærði Sveinn það sem hann
þurfti að læra fyrir Iífið. Þætti víst
lítið núna. Og kostnaðurinn varekki
hár, eða fimmtán krónur! Eitthvað
smávegis mun Sveinn hafa stundað
nám í unglingaskóla þeim, er Árni
Jónsson, síðar Hafstað, rak að heim-
ili sínu að Vík í Skagafirði. Voru
þeir jafnan miklir mátar eftir það.
En skóli þessi starfaði stutt.
Þá er ekki meira af námi Sveins að
segja, en við tók lífsins skóli, sem
mörgum reyndist notadrjúgur, að
minnsta kosti fyrr á tfð. Sveinn las
jafnan mikið og hratt. Oft sat þó
dagsönnin í fyrirrúmi, eins og nærri
má geta um einyrkja í sveit á fyrri
hluta þessarar aldar, þegar tæknin
hafði ekki enn hafið innreið sína og
vöðvaaflið varð að leysa allt erfiði af
hendi. Þá var oft staðið við (þúfna)
slátt langt fram á nætur eða á
nóttunni, til þess að nota rekjuna, er
þá var helst til að dreifa. Sveinn bjó
á fjallajörðum, nema í þrjú ár er
hann bjó úti á Skagaströnd og átti og
nýtti stórbýlið Vindhæli. Á Laxárdal
fremri bjó hann á þremur býlum:
Selhaga á Skörðum í eitt ár, Refs-
stöðum á Laxárdal í tveimur áföng-
um, alls í átta ár, og á Sneis í sama
dal í níu ár. Líklega hefur Sveini
vegnað einna best á Sneis. Þá var
hann á besta starfsaldri. Á Refsstöð-
um bjó hann sjö síðustu æviárin. Þá
jörð þótti honum verulega vænt um,
eins og fram kemur í ljóðum hans.
Það var líka landmikil jörð og kosta-
rík á margan hátt. Þangað fluttist
hann með fjölskyldu sína vorið 1938
af höfuðbólinu Vindhæli á Skaga-
strönd. Þar varð bóndinn fyrir mikl-
um áföllum. Missti þriðjungfjársíns
í sjóinn í ofsaveðrinu 14. desember
1935. Svo kom mæðiveikin í fénað
hans, fyrst í Austur-Húnavatnssýslu.
En Sveinn fór þó ekki frá Vindhæli
vegna þessara áfalla. Hann kunni
einfaldlega ekki við sig þarna. Hann
vildi fara fram á dalinn. Þar vildi
hann bera beinin, þótt ekki yrði
honum að þeirri ósk sinni. Um
Vindhælisdvölina kvað hann,
samanber ljóðasafnið, og skal það
ekki endurtekið hér. En í bréfi til
Bjama Gíslasonar, vinar síns, er var
Skagfirðingur og fluttist vestur í
Dalasýslu, kvað hann þessa vísu um
fjárskaðann, 14. desember 1935, og
var ekki að barma sér:
Ennþá drýgi ég óðarskraf
amafrí og kátur,
þó að flygju á feigðarhaf
fjörutíu skjátur.
Hér er um æviágrip en ekki neina
ævisögu að ræða. Stiklað er á stóru.
Ekki er ólíklegt að ævisaga Sveins
verði síðar tekin saman, hver sem
kann að sinna því. Hér er engin þörf
að gera í smáatriðum grein fyrir ævi
þessa skálds, sem alla ævi kenndi sig
við Elivoga, og var raunar orðinn
goðsögn eða þjóðsaga í lifanda lífi.
Ævikjörin voru í engu samræmi við
meðfæddar gáfur hans og hæfileika.
Hann var á rangri hillu í lífinu, þótt
hann væri snotur bóndi í afdal og
nyti aldrei aðstoðar samfélagsins.
Vafalaust er þetta sú vísan sem lýsir
best viðhorfi hans til lífsins, eins og
það horfði við honum:
Hlaut í fangið hríð og frost,
hreppti stranga villu,
þreytti gang við knappan kost,
komst á ranga hillu.
Ég vil benda lesendum þessarar
bókar á ljóðið Á slætti. Sjáum við
ekki glöggt í þessu ljóði hvers virði
skáldgáfan var þessum afdalabónda,
hvílík köllun hefur búið innra með
honum, sem ógjömingur var að
bæla niður, nema með því að eyði-
leggja um leið það helgasta og besta
í honum sjálfum?
Ljóðið Dalabóndinn er ort sumar-
ið 1941. Þá var stríðsgróðinn tekinn
að streyma inn í landið, góðæri til
lands og sjávar. Að vonum verður
þetta skáldinu að yrkisefni, og
blandast það inn í efni kvæðisins.
Mér er nær að halda, að þarna gefi
skáldið mest af sjálfu sér í ljóði.
Innileikinn, trúin á sveitina, sumar-
blíðan og árgæskan auðkenna þetta
kvæði, sem alls er 43 erindi. Man sá
sem þetta ritar, þá unglingur, eftir
þeim dögum er skáldið var að yrkja
þetta kvæði. Aldrei var hann frjórri,
ef svo má að orði kveða, en þá. En
fljótlega upp úr þessu tók hann að
kenna þess meins, sem átti eftir að
binda enda á líf hans, er hann var
aðeins rúmlega hálfsextugur.
Mannlýsingar orti Sveinn margar
síðustu æviár sín. Þar kemst hann
víða hnyttilega að orði. Vísurnar
eru hér án fyrirsagna að öðm en
yfirskriftinni. Ein vísan er einkar
snjöll:
Margan blekkti mannsins skraf,
miðlaði rógi í eyra.
Drengskap þekkti ’ann afspum
af,
- ekki heldur meira.
í lok bókarinnar er vísnaflokkur,
sem ber yfirskriftina Síðustu vísur.
Jón Sveinsson.
Nonrd
Bókin Nonni er ..omin út
hjá AB
Sagan Nonni er ein af
. eftirminnilegustu barna- og
unglingasögum sem út hafa
komið á íslensku. Hún er einnig
meðal þeírra íslenskra bóka sem
víðast hafa farið um heiminn og
mestra vinsælda notið.
Jón Sveinsson var aðeins tólf
ára þegar undarleg örlög ollu
straumhvörfum í lifi hans
síðsumars 1870. Faðir hans var
látinn og móðir hans stóð ein uppi
með börn sín. Þá bar svo til að
erlendur maður, mikils metinn og
tiginn, bauðst til að taka að sér
blásnauðan drenginn, sjá honum
fyrir góðu uppeldi og menntun.
Varð það úr að þvi boði var tekið
og Nonni hélt út í heim.
Nonni lagði af stað til
Kaupmannahafnar í lok
ágústmánaðar 1870. Hann tók sér
far með lítilli skútu.
Fráskilnaðinum við móðurina og
ævintýrum sem Nonni lenti í á
leiðinni út segir frá í þessari bók.
Nú hefur verið gerð kvikmynd
um ævintýri Nonna og bróður
hans Manna. Er líklegt að það veki
enn áhuga á Nonnasögunum sem
hefur alltaf verið mikill, ekki
einungis hér á landi heldur
víðsvegar um heim.
Bókin er 328 bls. að stærð.
Prentvinnslu annaðist Steinholt
hf. Bókband: Félagsbókbandið-
Bókfell hf. Hönnun kápu: Guðjón
Ingi Hauksson.
Undirheimar
íslenskra
stjórnmála
Reyfarakenndur
sannleikur um
pólitísk vígaferli
eftir Þorleif Friðriksson
sagnfræðing
„í kjölfar „hallarbyltingar"
Hannibals Valdimarssonar í
Alþýðuflokknum 1952 hófust
einstæð pólitísk vígaferli með
margvíslegum og oft á tíðum
nýstárlegum vopnaburði.
Alþýðuflokkurinn hafði um árabil
flotið á fjárhagsaðstoð norrænu
bræðraflokkanna en við yfirtöku
Hannibals sá Stefán Jóhann
Stefánsson til þess að skrúfað var
fyrir alla slíka fyrirgreiðslu til
flokksins".
Þannig hefst kynning á baksíðu
hinnar nýju bókar sem
Bókaútgáfan öm og örlygur
hefur gefið út en samin er af
Þorleifi Friðrikssyni sagnfræðingi,
en hann hefur um margra ára
skeið kynnt sér þessi mál og
kannað mikinn fjölda gagna,
hérlendis sem erlendis. Ekki er að
efa að bók þessi mun vekja mikla
athygli og tæpast munu allir vera
sammála því sem þar er sagt. í
bókarkynningu á kápu segir
ennfremur:
Launráð að tjaldabaki. Átökin
innan Alþýðuflokksins og
verkalýðshreyfingarinnar náðu
hámarki á ámnum 1953-1956, en
nú vom það ekki bara norrænir
skoðanabræður sem seildust til
áhrifa i skjóli
fjármálafyrirgreiðslu. Erlendir
andstæðingar hins ógnvænlega
„hannibalisma", bæði austan hafs
og vestan, tóku höndum saman
við hægri krata hér heima og
beittu gjarnan fyrir sig næsta
reyfarakenndum aðferðum. Slík
HEIWAR
ÍSLENSKRA
STJORNMALA
KCVrAKAW.,h!?10CR
SWKÍiXllUÍK L!M nXíTfSn
VíaVTKU
ÖRN OG ÖRLYCUR
leynd lá yfir aðgerðunum að sumir
þeirra sem stóðu mitt í
hringiðunni höfðu í raun ekki
hugmynd um hvað átti sér stað;
hvaða launráð vom bmgguð að
tjaldabaki. Þeim kemur þess
vegna sumt á óvart af því sem
segir frá í þessari bók.