Tíminn - 30.04.1988, Síða 4

Tíminn - 30.04.1988, Síða 4
HELGIN Laugardagur 30. apríl 1988 Stjörnugjöf= * ★ * * I djörfum dansi á myndbandaleigur danskennara og voru þeir sam- mála að Dirty Dancing hefði almennt aukið áhuga íslendinga á samkvæmisdönsum. „Hingað kemur fólk á öllum aldri og heimtar hreinlega að læra dans- ana úr myndinni.“ sagði Sigurð- ur Hákonarson danskennari í samtali við Tímann þegar hann var spurður hvort mikil aðsókn á myndina hefði komið fram í áhuga fólks á að læra dansana í myndinni. Hugljúf mynd DD er mjög góð mynd. Leik- ur Patrick Swayze og Jennifer Grey er á köflum stórkostlegur. Söguþráðurinn er ekki marg- flókinn en engu að síður klass- ískur. Jennifer Grey (Baby) dvelst ásamt foreldrum sínum í sumarleyfisbúðum. í stað þess að taka þátt í dagskrá þeirri sem í boði er fyrir dvalargesti, leggur Baby lag sitt við starfsfólkið og vini þess. Þar kynnist hún Patr- ick Swayze (Johnny). Johnny þessi er atvinnudansari og ásamt dansfélaga sínum skemmta þau orlofsgestum. Babb kemur í bát- inn þegar dansfélagi Johnnys reynist vera barnshafandi. Hún lætur eyða fóstrinu, en skottu- læknirinn sem annast aðgerðina getur ekki framkvæmt hana nema sama kvöld og þau Johnny eiga að dansa fyrir fullu húsi. Baby fellst á að taka hlutverk dansfélagans. Það hlutverk reyndist hafa 'eftirmála fyrir bæði Baby og Johnny. Þann eftirmála kannast flestir við og ef ekki þá er bara að taka spóluna eftir 12. maí og komast að því. -ES Stjörnugjöf = ★ ★ V2 Myndbandamarkaðurinn: Hverjir eru í aukahlutverki? Eigi alls fyrir löngu var gefin út hér á landi mynd í eldri kantinum, sem ber hið mjög svo óaðlaðandi nafn, Deadly Tower. Myndin greinir frá ósköp venjulegum manni, Charles Whitman, (Kurt Russel), sem breytist í miskunnarlausan fjöl- damorðingja. Eftir að hafa drep- ið móður sína og konu, hertekur hann háskólaturninn í heima- borg sinni, Austin í Texas, og hefst handa við að skjóta niður fólk. Söguþráðurinn er nú ekki flóknari en þetta. Myndin er komin vel til ára sinna, en það sést eingöngu á því að Kurt Russel (The Thing, Big Trouble in Little China, auk fjölda Walt Disney mynda), er unglegur. Þá kemur fatatískan líka upp um aldurinn, (ekki það að Ameríkanar hafi nokkurn tíma verið þekktir fyrir að klæða sig almennilega. Þeir eru náttúr- lega alltaf í útsniðnum gallabux- um, köflóttum vinnuskyrtum með baseballhúfur!). Aldurinn sést hins vegar ekki á leiknum eða myndinni í heild. Á umslagi myndarinnar er greint frá því að „John Forsythe (úr Dynasty)“, leiki aðalhlut- verkið á móti Russel. Hvílíkt bull og hvílík vitleysa. John er í aukahlutverki í myndinni, og það þyrfti að klippa hana heldur betur til ef hann ætti að komast í aðalhlutverk. En nóg um það. Myndin sleppur vel frá sínu. Nokicur góð spennuatriði eru í myndinni, og ef þú rekst á myndina í videoleigunni, þá skaðastu ekki af því að taka hana með þér heim og horfa á hana. -SÓL SPURNINGALEIKUR í BETRISÆTUM: Svaraðu einhverjum þremur af þessum fjórum spurningum rétt, og þú átt möguleika í að fá gefins eitt eintak af hinni geysivinsælu dans-, söngva- og gleðimynd, Dirty Dancing. Svörum skal skilað í umslagi, merkt: Tíminn, c0 í Betri Sætum, Síðumúla 15, 108 Reykjavík, fyrir 12. maí næst komandi, en þá verða dregnar út þrjár réttar lausnir. Nöfn vinningshafa verða síðan birt í Tímanum laugardaginn 14. maí. Verið með frá byrjun, en við í Betri Sætunum, hyggjumst halda uppteknum hætti og efna til getrauna annað veifið. SPURNINGAR: IHver leikur aðalkvenhlutverkið í Dirty ■ Danc-ing? 2Hver er rétthafi að Dirty Dancing hér á ■ landi? 3Hvað heitir eigandinn að sumarhótelinu ■ sem myndin gerist á? jg Hlaut Dirty Dancing einhver Óskarsverð- laun í ár, og ef svo er, hver voru þau? ÞAÐ VAR HELST í VÍDEOFRÉTTUM... ... að J.B. myndbönd senda frá sér tvær myndir á mánudag. Það eru myndirnar Big Shots og Six Against the Rock. Sú fyrrnefnda var jóla- mynd í Bíóhöllinni síðastliðin jól. Sú síðarnefnda er spennandi framlag fyrir spennumyndaaðdáendur. Myndin fjallar um uppreisn fanga og vonlausa baráttu þeirra við ofurefli. Meðal leikenda í myndinni eru þeir David Carradine og Jan Michael Vincent. ... að aðrar myndir sem væntanlegar eru á næstunni frá J.B. myndbönd- um eru: Made in Heaven, aðalhlut- verk eru í höndum Kelly McGillis (Top Gun) og Timothy Hutton (Ordinary People). Rent-A-Cop með Burt Reynolds og Lizu Minelíi kemur á leigur 9. maí. Þá er vert að geta um þrjár myndir sem koma á næstunni. Ævintýramyndin The Princes Bride, gamanmyndina The Woo Woo Kid og spennumyndina The Whistle Blower, sem hefur á að skipa fjölda þekktra leikara. Dirty Dancing verður gefin út á myndbandi 12. maí. Áður hefur verið auglýst að hún kæmi á leigur 7. maí. Ekki gat orðið af því, þar sem handhafi kvik- myndaréttarins ákvað að nýta sér hann til hins ýtrasta, en það mun sjaldgæft að slíkt gerist. Kvikmyndarétturinn rennur út á miðnætti 11. maí og verður Dirty Dancing fáanleg á mynd- bandaleigum þann 12. Það eru J.B.Myndbönd sem eiga réttinn og þar eru menn alveg tilbúnir til að dreifa mynd- inni og þó fyrr hefði verið. Þetta er mynd sem vart þarf að kynna. Þjóðin er búin að sjá hana. Hvers vegna þá að gefa hana út á myndbandi? Jú, fólk hefur horft á þessa mynd einu sinni, tvisvar, þrisvar, fjórum, fimm og jafnvel sex sinnum. Af hverju fer fólk svo oft að sjá sömu myndina þegar nóg er úrvalið í kvikmyndahúsunum af nýjum myndum? „Hannþarna Patrick er meiri- háttar. Eg get ekki staðist hann.“ - Þrítug húsmóðir á Sogaveginum. „Lögin maður. Það eru lögin maður sem ég vil heyra.“ - Unglingur á besta aldri í Árbæn- um. „Komdu á hana aftur.“ Kona í sambúð við Rauðavatn. Þessi ummæli vitna um vin- sældir þessarar myndar á meðan hún var á hvíta tjaldinu í Regn- boganum. Áhugi á samkvæmisdönsum Tíminn hafði samband við HELST.I. VIDEO- ... að í næsta ntúnuði eru væntaniegar á inyndbandamark- aðtnn frá Wamer Bros að minnsta kosti fjórar góðar myndir. Sú fyrsta er að sjálfsögðu Full Mctal Jacket, þá Dogs of War, Eureka og loks The Pope of Greenwich Village... ... að frá Virgin eru væntanleg- ar myndir eins og Dudes, Remote Control og Slamdance... ... að CBS gefur út t maí myndimar Secret Witness og Shakcdown at Sunset Strip... ... að á meðan gefur Tri Star út Night of The Creeps... ... flciri góðar eru væntanleg- ar, til dæmis White Ghost frá Virgin og Sharing Richard frá CBS/FOX... ... að loks er búið að gefa út myndir cíns og Kaising Arizona frá CBS/FOX, Night Flyers frá Virgin, Drcam Warriors (Night- mare on Elmstreet part III) frá Warner, Jumpin' Jack Flash frá CBS/FOX, Sharky‘s Machine frá Wamer, No Mercy frá Tri Star, Pee Wee‘s Big Adventure og Living Daylights, báðar frá Warner... I BETRI SÆTUM

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.