Tíminn - 30.04.1988, Side 11
Laugardagur 30. apríl 1988
Tíminn 21
Hnefaleikari settur
í bann sökum eyðni
Breska hnefaleikasambandið
bannaði á dögunum einum besta
hnefaleikara Zimbabve, Langton
Tinago að keppa þar í landi, vegna.
þess að hann er haldinn sjúkdómn-
um AIDS.
Tinago sem er 38 ára, átti að
keppa við Lennie Gloster í Peter-
borough á Suður-Englandi. Hann
er fyrsti útlendi hnefaleikarinn sem
fær á sig dóm hnefaleikasambands-
ins, en samkvæmt reglum þess
þurfa allir útlendingar sem ætla að
keppa í hnefaleikum í Bretlandi að
gangast undir eyðnipróf.
Framkvæmdastjóri breska
hnefaleikasambandsins sagði að
það væri undir hnefaleikasambandi
Zimbabve komið, hvort Tinago
fengi almennt að keppa í hnefaleik-
um. Eins og stendur, sagði fram-
kvæmdastjórinn, þurfa breskir
hnefaleikarar ekki að gangast und-
ir eyðnipróf í Bretlandi, en þetta
mál gæti vel orðið til þess að þeir
yrðu skyldugir til þess. Möguleikar
þess að menn smitist af eyðni í
hringnum eru hverfandi, sagði
hann ennfremur.
Breska löggan fær
skömm í hattinn
*
Lögreglumönnum í London sem
týna sjálfum sér í langloku orða-
gjálfri, hefur verið skipað að taka
sig á og tala og skrifa einfalda
ensku. Talsmaður Skotland Yard
sagði fyrr í vikunni að nú væri átak
í gangi meðal eldri lögreglumanna
og hefðu þeir fengið í hendur
atriðisorðaskrá sem þeir gætu not-
að til að sjá hversu skilmerkilega
þeir tala eða skrifa opinberar
skýrslur.
Það er ekki ætlun okkar, sagði
taismaðurinn, að uppræta allt þok-
ukennt málfar sem notað er innan
lögreglunnar eða á veigalitlum
skýrslum. Heldur ætlum við að
skera upp herör gagnvart þeim
sem fást við flóknu og viðkvæmu
málin, því þar er meiri hætta á
ferðum. Það eru einkum þeir sem
eru hærra settir sem senda oft frá
sér óskiljanlegar skýrslur.
VÉLAR & ÞJÓNUSTA HF. — Vélaborg
JÁRNHÁLSI 2 - SÍMI 83266 - 686655
NORDSTEN Turbo-matic
Áburðardreifarar-500 og 800 lítra
Frá þekktasta fyrirtæki á Norðurlöndum í framleiðslu á sáðvélum. Verð frá kr. 49.400
1. Dreifibúnaður úr ryðfríu stáli. - Dreifibreidd 12 m.
2. Reiknistokkur til nákvæmra útreikninga á áburðarmagni pr. hektara.
3. Kögglasigti hindrar að áburðarkögglar komist niður í dreifibúnaðinn og loki fyrir
aðrennsli til dreifiskífunnar og valdi þar með ójafnri dreifingu. Hleðsluhæð 500 I
dreifarans er aðeins 82 cm og 800 I aðeins 90 cm.
4. Kapalstýring úr ekilshúsi fyrir stillingu á áburðarmagni og áburðardreifingu til hægri
eða vinstri, þegar dreift er meðfram skurðum og girðingum.
5. Áburðartrektin er á hjörum, sem auðveldar þrif á dreifibúnaði og tenging'u vió dráttárvél.
6. Aukabúnaður: Lok sem ver áburðinn í trektinni fyrir raka.
Nordsten: Viðurkennd vara fyrir gæði og nákvæmni.
Sendum félögum okkar,
verkafólki til lands og sjávar
bestu kveðjur og árnaðar-
óskir í tilefni 1. maí.
Verkalýðsfélagið Jökull,
Ólafsvík.
Sendum öllum
launþegum bestu
árnaðaróskir
í tilefni afl. maí
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur.
Trésmiðafélag
Reykjavíkur
hvetur félagsmenn sína til að fjölmenna í
kröfugönguna ogáfund verkalýðsfélaganna 1.
maí, og síðan í 1. maí kaffið að Suðurlands-
braut 30.
Sendum félögum okkar, verkafólki til
lands og sjávar bestu kveðjur og árnað-
aróskir í tilefni 1. maí
Landssamband
iðnverkafólks
Sendum félögum okkar,
verkafólki til lands og sjávar
bestu kveðjur og árnaðar-
óskir í tilefni 1. maí.
Verkalýðsfélagið Vaka,
Siglufirði.