Tíminn - 09.02.1989, Side 10
10 Tíminn
Fimmtudagur 9. febrúar 1989
m
í umræðunni steingrímur
Steingrímur Hermannsson forsætisráöherra og formaður Fram-
sóknarflokksins verður í umræðunni á hádegisverðarfundi Félags
ungra framsóknarmanna Gauki á Stöng mánudaginn 13. febrúar.
Steingrímur mun ræða um Fjármagnsmarkaðinn og Hvað tekur við
af verðstöðvun. Hann mun síðan svara fyrirspurnum fundargesta.
Allir velkomnir á fundinn sem hefst kl. 12.00.
Súpa, fiskréttur og kaffi á aðeins krónur 535,-
FUF í Reykjavík.
Keflavík
Fundurverðurhaldinn í Framsóknarfélögunum í Reykjavík mánudag-
inn 13. febrúar kl. 20.45 að Austurgötu 26.
Fundarefni:
1. Stjórnmálaviðhorfið.
Jóhann Einvarðsson fjallar um stjórnmálaviðhorfið.
2. Húsnæðismál Framsóknarfélaganna.
3. Önnur mál.
Kaffiveitingar.
Mætið stundvíslega.
Framsóknarfélögin.
Fóðurmelta
Eigum ávallt til fyrsta flokks fiskmeltu sem viö
afgreiöum af tönkum í Þorlákshöfn. Jafnframtfæst
meltan í KÁ Selfossi, KR Hvolsvelli, Þríhyrningi
og Kaupfélaginu Þór, Hellu.
Meltan er úrvals fóður fyrir svín, hross og sauðfé.
Haffóður hf.
Hafnarskeiði 28, Þorlákshöfn.
Sími 98-33679.
t
Faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi
Þorgrímur Einarsson
Síðumúlaveggjum, Hvítársíðu
er lést á Sjúkrahúsi Akraness 2. febrúar verður jarðsunginn frá
Síðumúlakirkju laugardaginn 11. febrúar kl. 14.00. Bílferð verður frá
B.S.Í. kl. 11 árdegis.
Guðmundur Þorgrímsson
Svanbjörg Eiríksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
ÍÞRÓTTIR
lllfllllllllll
Keila:
Keilarar með mörg
járn í eldinum
Keila er unc en ört vaxandi íþrótt
á Islandi og á höfuðborgarsvæðinu
eru tveir keilusalir. Nú eru mörg
verkefni hjá þeim keilumönnum,
keppni erlendis og hingað er kominn
frægur keilari sem ráðinn hefur verið
landsliðsþjálfari í íþróttinni.
Heimsleikar
Fyrstu heimsleikarnir í íþróttum,
sem ekki er keppt í á Ólympíuleik-
um, voru haldnir í Santa Clara í
Kaliforníu árið 1981. Meðal þeirra
íþróttagreina sem keppt var í var
keifa. Frá hverju þátttökulandi
komu tveir keppendur, karl og kona.
Keppt var í einstaklingskeppni karla
og kvenna ásamt parakeppni. í ann-
að sinn voru leikarnir haldnir í
London og nú í jffiðja sinn hefur
verið ákveðið að halda þessa leika í
Karlsruhe í Vestur-Þýskalandi í lok
júlí 1989.
Ákveðið hefur verið að íslending-
ar keppi í keilu á þessum leikum í
fyrsta skipti í sumar. ísland er eitt af
18 löndum sem fá að senda keilara í
þessa keppni. Eftirtalin lönd senda
keppendur: Bandaríkin, Brasilía,
Kanada, Ástralía, Japan, Kórea,
Taiwan, Filippseyjar, Malaysía,
Svíþjóð, Finnland, Noregur,
Bretland, Frakkland, Holland,
Vestur-Þýskaland, Belgíaogísland.
Á íslandi verður haldið úrtöku-
mót 17.-19. febrúar, þar sem valdir
verða fulltrúar Islands á Heimsleik-
ana.17. og 18. febrúar verður keppt
í kvennaflokki og 18. og 19. febrúar
í kitrlaflokki. Úrslitakeppni verður f
báðum flokkum sunnudaginn 19.
febrúar. Úrtökumótin eru opin öll-
um íslendingum, sem nú eiga mögu-
leika á að keppa við marga af
heimsins bestu áhugamönnum í
keilu á leikunum í Karlsruhe.
Norræna unglinga-
meistaramótið í keilu
Þann 5. mars 1989 er fyrirhugað
að ísland sendi keppendur í fyrsta
skipti á Norræna unglingameistara-
mótið sem haldið verður í Ósló.
Keppendur verða sex, þrjár stúlkur
og þrír piltar, sem ekki verða orðin
19 ára þegar keppt er.
Formaður KFR ásamt landsliðs-
þjálfaranum, Gösta Zellén, hafa val-
ið eftirfarandi lið: Ásdís Ósk Smára-
dóttir, Guðrún Soffía Guðmunds-
dóttir og Guðný Kristinsdóttir. I
piltaliðinu verða Hörður Sigurjóns-
son, Róbert Spano og Björn Vil-
hjálmsson.
Svíþjóð, Noregur, Danmörk og
Finnland senda sex stúlkur og sex
pilta hvert land. Keppt verður í
tveggja-, þriggja- og fimm-manna
liðum pilta og stúlkna.
Alþjóðleg páskamót
I páskavikunni verða haldin nokk-
ur stór alþjóðleg keilumót í Svíþjóð
og Danmörku. Verðlaunin í þessum
mótum eru um ein milljón sænskar
krónur. í þessum mótum verða þrír
þátttakendur frá íslandi, þau Þor-
björg Kristjánsdóttir, Ingveldur
Sævarsdóttir og Halldór Ragnar
Halldórsson. Þau hafa verið skráð í
eftirtalin mót: Copenhagen Masters,
Olympia Masters í Helsingborg,
Easter International, Stórhátíðamót
í Malmö og einnig í Les Lions Cup
í Norrköping. Með í ferðinni verður
þjálfari fslendinga, Gösta Zellén,
sem mun þjálfa þau í nokkra daga
og leggja þeim línurnar fyrir keppn-
ina.
Til gamans má geta þess að móts-
haldararnir hafa boðið íslendingum
þátttöku, þeim að kostnaðarlausu,
þar sem fsland er nú þátttakandi í
þessum mótum í fyrsta skipti. Það
má og geta þess að þátttakendur í
þessum mótum eru bestu keilarar í
Evrópu, svo að íslensku keppend-
urnir fá eflaust tækifæri til þess að
sjá og læra heilmikið.
Koma landsliðsþjálfara
Þann 7. febrúar kom til landsins
Gösta Zellén, landsliðsþjálfari, og
mun hann byrja að þjálfa unglinga-
landsliðið sem fer til Ósló í mars.
Einnig mun hann þjálfa alla þá
keilara sem valdir hafa verið í úr-
tökuhóp fyrir landslið.
Kennsla
Föstudaginn 17. febrúar mun
KFR bjóða upp á ókeypis kennslu í
keilu frá kl. 16 til kl. 19 í Keiluiandi
í Garðabæ og eru þeir sem lítið hafa
spilað og telja sig ekki hafa náð
fullum tökum á keilunni hvattir til
að koma. Aðalleiðbeinandi verður
Gösta Zellén, landsliðsþjálfari og
forseti Evrópusambands keilufé-
laga. Leikmenn munu þurfa ■ að
greiða fyrir leiki sína, en ekki fyrir
kennsluna.
íþróttir og heilsa:
Heilsuvika í Kringlunni
- hefst á morgun. Golfmót á dagskránni á sunnudag!
Klippið hér
Dagana 10. til 18. febrúar nk.
verður efnt til sérstakrar „heilsu-
viku“ í Kringlunni undir kjörorðinu
„Bætt heilsa - betra líf“. í göngugöt-
um Krínglunnar verða svokölluð
„heilsutorg“ þar sem félagssamtök
og opinberir aðilar, sem starfa að
heilsuvernd og heilbrigðismálum,
munu veita viðskiptavinum nýjustu
upplýsingar er lúta að heilbrigðara
líferni og bættu heilsufari. Þá verða
íþrótta- og danssýningar í göngu-
götunum. Dagskráin er miðuð við
að fólk á öllum aldri geti komið.og
haft skemmtan af sýningaratriðum
Tímiiiii
og aflað sér margvíslegra upplýsinga
hjá sérfræðingum.
í fyrra var efnt til svipaðrar
dagskrár í Kringlunni sem vakti
almenna athygli og viðskiptavinir
hússins voru mjög áhugasamir.
Dagskrá á heilsutorgunum er
breytileg frá degi til dags en upplýs-
ingar verða kynntar í auglýsingum í
Kringlunni og í fjölmiðlum. Af aðil-
um sem verða með kynningar á
heilsutorgunum í vikunni má nefna
Landlæknisembættið, heilbrigðis-
ráðuneytið, Vinnueftirlitið, Hjarta-
vernd, Rauða krossinn, tannlækna,
n
I
□ ER ASKRIFANDI
□ NÝR ÁSKRIFANDI
Dags.:
I I Samkort EH
Kortnr.: □□□□□□□□□□□□□□□□
Gildir út: fTTT
Nafnnr.:
BEIDNI UM
MILLIFÆRSLU
ÁSKRIFTARG J ALDS
Ég undirrituð/aöur óska þess að áskriftar-
gjald Tímans verði mánaðarlega skuld-
fært á greiðslukort mitt.
UNDIRSKRIFT.
ÁSKRIFANDI:..............................................
HEIMILI:................................................
PÓSTNR. — STAÐUR:.................. SÍMI:............... SENDIST AFGREIÐSLU BLAÐSINS
LYNGHÁLSI 9. 130 REYKJAVÍK
hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfa,
ljósmæður, meinatækna, íþrótta-
kennara, Vímulausa æsku, Banda-
lag skáta, Kiwanis og Félag eldri
borgara. Þá munu margar heilsu-
ræktarstöðvar og dansskólar kynna
starfsemi sína og verða með sýningar
á heilsuvikunni. Einnig verður kynnt
örvunarleikfimi á vegum Trimm-
nefndar ÍSÍ, íþróttafélag fatlaðra
kynnir boccia og sýnir borðtennis og
sýnt verður karate. Alls eru það 27
aðilar og fyrirtæki sem koma fram á
heilsuvikunni.
Á hverjum degi heilsuvikunnar
sér Studio Jónínu og Ágústu um
léttar morgunteygjur fyrir starfsfólk
og viðskiptavini í Kringlunni. Morg-
unteygjurnar hefjast kl. 10:15 á
hverjum morgni í norðurenda
göngugötu á 2. hæð og munu standa
í um 10 mínútur.
Þá verða verslanir í Kringlunni og
Lýsi hf. með vörukynningar og
kynningartilboð í göngugötum og
matsölustaðirnir bjóða upp á nýja
hollusturétti í tilefni vikunnar.
Starfsfólk fyrirtækja í Kringlunni
fær auk þess tækifæri ti! að taka þátt
í námskeiði í skyndihjálp í heilsuvik-
unni í samvinnu við Rauða krossinn
og hlýða á fyrirlestra um skaðsemi
reykinga og hvernig á að bera sig að
vilji fólk hætta að reykja. Fyrirlestr-
arnir eru á vegum Reykjavíkurdeild-
ar Krabbameinsfélagsins.
Sunnudaginn 12. febrúarfrákl. 11
til kl. 17 verður Kringlumótið í golfi.
Um er að ræða „púttmót" sem fram
fer á sérstökum brautum á göngugöt-
um Kringlunnar. Keppt verður í
þrehiur flokkum án forgjafar. Fyrir-
tæki í Kringlunni leggja til verðiaun.
Ágóði af mótinu rennur til unglinga-
starfs Golfsambands fslands.