Tíminn - 09.02.1989, Side 11
Fimmtudagur 9. febrúar 1989
Tíminn 11
illllilÍÁRNIAÐ HEILLA
Áttræö:
Frú Stefanía
Gissurardóttir
Það var undir haust árið 1959 að
mér barst orð frá sr. Sigurði Pálssyni
presti á Selfossi að finna sig ef ég ætti
þar leið um. Ég hefði fengið veitingu
fyrir Mosfelli í Grímsnesi frá 1. sept.
þetta ár, en sá hængur var á að húsið
þar var talið ónýtt og ég því á
götunni hafandi engan samastað inn-
an Mosfellsprestakalls. Það var með
nokkurri eftirvæntingu að ég fór til
fundar við sr. Sigurð Pálsson, því
ekki hafði ég kynnst honum per-
sónulega fyrr, þótt 7 ár væru liðin frá
því ég vígðist til prests, enda lengst
af verið langur vegur milli okkar
þessi ár.
Ég man það enn hve bjart var
þennan haustdag sem ég kom til
fundar við sr. Sigurð á Selfossi.
Húsið rauða á hæðinni ofan við
brúna á vesturbakka Ölfusár virtist
búa yfir einhverju leyndarmáli sem
ég kæmist kannski að á þessum
haustdegi, og ég gekk varlega yfir
grasflötina að vesturdyrunum með
þungan árniðinn í eyrum. Á móti
mér tók frú Stefanía, kona sr. Sig-
urðar, fríð kona og fagureyg, með
sínum bjarta hlátri og hlýja brosi,
fagnandi mér eins og ég væri einhver
sérstakur aufúsufestursem hún hefði
beðið með óþreyju í langan tíma.
Það var af mér öll varúð og varfærni
á samri stundu, ég fann að ég var
kominn til vina og mér var vísað til
sætis í flosmjúkum rauðum hæg-
indastól við arininn og hún bað mig
hafa biðlund, sr. Sigurður væri vant
við látinn, hjá honum væri maður
sem brátt mundi á förum. Að vörmu
spori var frú Stefanía komin með
rjúkandi kaffibolla til mín, settist á
móti mér, óskaði mér til hamingju
með prestakallið nýfengna og tók að
spyrja mig tíðinda.
Að sjálfsögðu hafði ég oft heyrt
þeirra hjóna getið sr. Sigurðar og frú
Stefaníu, en nú var ég kominn hér í
fyrsta sinn í þeirra hús og sjón er
sögu ríkari. Sú tilfinning er ég var
gripinn um leið og ég var sestur
þarna við arininn var hin sama og
menn hafa í sínum eigin húsum -
öryggi, hlýja, vinátta. Og sú hefur
líka orðið raunin þau mörgu ár sem
síðan eru liðin, að þessir eðlisþættir
frú Stefaníu og þeirra hjóna beggja
hafa einkennt heimili hennar og
samskipti öll við þá sem borið hafa
gæfu til að kynnast henni og þeim
sérstæða manni er sr. Sigurður var.
Þegar gesturinn sem fyrir var hafði
kvatt bauð sr. Sigurður mér inn á
skrifstofu sína sem var veröld út af
fyrir sig í þessu húsi við ána. Bækur
þöktu veggi, bækur á skrifborði,
bækur á stólum, helgimyndir, reyk-
elsi og hálfrökkur inni sem gerði ljós
af kerti enn fegurra. Erindi sr.
Sigurðar var að bjóða að útvega mér
húsnæði á Selfossi, og kennslu gæti
ég líka fengið við Iðnskólann ef ég
vildi. Ég þáði þetta með þökkum og
fann að hér fóru saman orð og verk
- þau hjón voru ekki að bjóða mig
velkominn til þessara nýju heim-
kynna á Mosfelli til þess eins að
hneykslast síðar á umkomuleysi
húsalauss og jarðnæðislauss prests -
þau vildu leysa vanda hans og það
óumbeðin. Þetta var eitt aðalsmark
þeirra hjóna sr. Sigurðar og frú
Stefaníu, að leysa vanda samferða-
manna sinna án málalenginga og
orðaskvaldurs og án allrar hugsunar
um endurgjald. Heimilið var um
áratugaskeið opið veitinga- og gisti-
hús öllum þeim fjölmörgu gestum
sem þar bar að garði, og enn býður
frú Stefanía til veislu og gistingar
gömlum vinum sem að garði ber.
Það er mikil gæfa að kynnast slíku
fólki og eignast vináttu þess.
Ég lít á þennan síðsumardag í húsi
frú Stefaníu og sr. Sigurðar sem einn
af mínum gæfudögum. Hann varð
upphaf þeirra kynna og vináttu sem
enn varir og vara mun okkar í milli.
Vissulega voru viðhorf ólík og
skoðanir skiptar bæði varðandi
menn og málefni, pólitík og guð-
fræði okkar sr. Sigurðar, en það
gerði hvern fund við þessi hjón
meira spennandi og fundi okkar
ævintýraríkari á komandi árum.
Bernsk róttækni ungs klerks og
gæðartk íhaldssemi prestshjónanna
á Selfossi kveiktu umræður er gerðu
margt vetrarkvöldið er í hönd fór
ógleymanlegt. Um flest var skrafað
og skeggrætt en ekki deilt, og ég leit
og lít enn á þessi hjón sem fulltrúa
þess besta sem íslenskt prestsheimili
hefur upp á að bjóða bæði í andleg-
um og veraldlegum skilningi. Marg-
ar athugasemdir sr. Sigurðar við
mitt háttalag voru þann veg frani
settar sem honum var öðrum mönn-
um betur lagið, svo að ekki gleym-
ast. Eitt kvöld þennan vetur erum
við staddir um miðnætti við ána og
ís á henni, hjarn yfir öllu og dauða-
kyrrð, og ég ber fram spurningu
þarna í frostkyrrunni sem ég vildi
gjarnan fá svar við. „Álíturðu mig
trúaðan mann, sr. Sigurður?" „Jú,
vinur minn, þú ert trúaður, en þetta
er óttalegur villigróður.“ Annað sinn
er hann staddur í heimsókn hjá mér
í herbergi mínu á Selfossi, á bóka-
hillu liggja nokkrar bækur eftir Ana-
tole France og Voltaire, og hann
tekur Micromegas sér í hönd, horfir
á mig og segir: „Og þú lest þennan
skelfilega mann.“ Síðan ekki meira
um það. - Margt fleira verður mér
minnisstætt frá þessum vetri, Iíka
þau hollráð til presta sem sr. Sigurð-
Lausar stöður
Eftirtaldar hlutastöður (37%) í læknadeild Háskóla íslands eru lausar
til umsóknar.
Lektorsstaða í barnasjúkdómafræði.
Lektorsstaða í fæðingar- og kvensjúkdómafræði.
Lektorsstaða í lyflæknisfræði. Staðan er bundin við Landakotsspítala.
Dósentsstaða í líffærameinafræði.
Dósentsstaða í sálarfræði.
Dósentsstaða í lyflæknisfræði. Staðan er bundin við Borgarspítalann.
Gert er ráð fyrir að stöðurnar verði veittar til fimm ára frá 1. júlí 1989
að telja.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda,
ritsmíðar og rannsóknir svo og námsferil og störf, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 8. mars
n.k.
Menntamálaráðuneytið,
7. februar 1989.
Vetur í Portúgal
1 upp í 10 vikur Ferðaskrifstofurnar EVRÓPUFERÐIR, RATVÍSog FERÐAVAL bjóða ykkur upp á 4, 6, 8 og 10 vikna ferðir til Portúgal í vetur. Hægt er að velja um gistingu á Madeira, í Algarve eða á Lissabon-ströndinni. Verð frá kr. 53.200,-
Lissabon Einnig standa ykkur til boða styttri feröir (3-30 dagar) með gistingu í íbúðum eða 3 til 5 stjörnu hótelum víðsvegar um Portúgal. Þið getið heimsótt heimsborgirnar Lissabon og London í einni ferð, spókað ykkur á strönd Algarve eða leikið golf á einhverjum bestu golfvöllum Evrópu.
Algarve
Madeira Þeim sem vilja hvílast og slappa af í fögru umhverfi býðst úrval af gististöðum á hinni margrómuðu eyju Madeira.
Golfferðir Golfhótel við 7 úrvals golfvelli í Algarve. Vallargjöld á sérstaklega lágu verði.
SUMARBÆKLINGURINN ER KOMINN
evrópuferðir áyavis
klapparstIg 25-27 _
KLAPPARSTÍG 25-27
101 REYKJAVÍK,
SÍMI628181.
'Tmvel
HAMRABORG1-3,200 KÓPAVOGUR
SÍMI641522
(föl'ALhf
TRAVEL AGENCY\3j£r
HAFNARSTRÆTI 18,
101 REYKJAVÍK, SÍMI 14480.
FERDA
ur bar heilagan Ambrosíus fyrir.
„Prestur á aldrei að vita það sem um
hann er sagt.“
Kertið er nærri útbrunnið og reyk-
urinn af reykelsinu stígur höfugur
upp af kerinu og snýst í gormlaga
hringi eins og loftspeglun af stór-
moskunni í Samarra, og mér finnst
á þeirri stundu ég ekki geta greint
hvort heldur ég sé búinn að ná fundi
margslungins kabbalista eða ábóta í
klaustri Dominikana, kannski hvort
tveggja þetta og meira til. Pá drepur
frú Stefanía hægt á dyrnar og býður
okkur kvöldmat. Frammi í borðstof-
unni stendur hringborðið tvöfalda
hlaðið krásum. Að borðbæn fluttri
hefjast fjörugar umræður sem bland-
ast björtum hlátri húsfreyju.
lllllllllllllllllllllll
Það er kominn tími til að halda af
stað til Reykjavíkur þegar gengið er
frá borðum. Þau standa í dyrunum
þegar ég kveð, og þar eru þau enn í
huga mínum saman í ljósinu og í
þessa mynd fellur áin, brúin og
kirkjan í birtu ljósa á haustkvöldi.
í huga mér er þetta fyrsta kvöld á
heimili frú Stefaníu Gissurardóttur
upphaf langs ævintýrs, þess ævintýrs
sem þau hjón eru höfuðpersónur í.
Frú Stefanía er gifturík í þess orðs
fyllstu merkingu. Hjónaband hennar
og sr. Sigurðar var farsælt, þau voru
eitt í öllu sem máli skipti, því verður
Itans ekki minnst nema hennar sé
getið og ekki um hana rætt nema um
hann sé talað. Guð gaf þeim góð og
gáfuð börn, vináttu og virðing allra
er þeim hafa kynnst. Frú Stefanía er
farsæl gæfukona fyrir eigið atgervi
og af Guðs náð. Nú þegar hún
fagnar með börnum sínum og vinum
80 ára afmæli sínu sendi ég henni
mínar dýpstu þakkir og okkar Krist-
ínar konu minnar fyrir þetta mikla
gestaboð sem mér finnst kynnin við
hana og sr. Sigurð hafa verið. Ég
þakka vináttu sem ekki þekkti neitt
kynslóðabil, vináttu sem hafin var
yfir öndverðar skoðanir og ólík
viðhorf. - Lifðu heil, kæra vina.
Rögnvaldur Finnbugason
Staðastað.
LESTUNARÁIETLIIN
I
I
I
I
I
I
I
kr.kg
I
Hvalrengi
Bringukollar 295
Hrútspungar 590 _
Lundabaggar 570 _
Sviöasulta súr 695 _
Sviðasulta ný 821 _
Pressuð svið 720 _
Svínasulta 379 _
Eistnavefjur 490 _
Hákarl 1-590 _
Hangilæri soðið 1-555 _
Hangifrp.soð. 1-155 _
Úrb. hangilæri 965 _
Úrb. hangifrp. 721
Harðfiskur 2.194 _
Flatkökur 43 kr
Rófustappa 130
Sviðakjammar 420
Marineruð síld 45 flakjö
Reykt síld 45 |<r.stk
Hverabrauð 78 kr,
Seytt rúgbrauð 41
Lifrarpylsa 507 kr.kg
Blóðmör 427
Blandaður súrmatur
í fötu 389
Smjör15gr. 6.70 kr.stk.
kr.kg
I
I
I
I
I
Tii
KlöfestöðiR
Glæsibæ
0 68 5168.
I
I
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Árhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla miðvikudaga
Gautaborg:
Annan hvern föstudag
Varberg:
Alla fimmtudaga
Moss:
Alla laugardaga
Larvik:
Annan hvern laugardag
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Schouwenbank......23/2
Gloucester/Boston:
Alla þriðjudaga
New York:
Alla föstudaga
Portsmouth/Norfolk:
Alla sunnudaga
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
LINDARGÖTU 9A-101 REYKJAVÍk