Tíminn - 15.02.1989, Síða 12
12 Tíminn,
Miðvíkudagur 15. febrúar 1989
FRÉTTAYFIRUT
ÍHÖFÐABORG - Erki
^biskupinn Desmond Tutu
skoraöist undan að hefja hung-
urverkfall til að styðja við bak
þeirra pólitísku fanga sem nú
eru í hungurverkfalli í Suður-
Afríku til að knýja á að mál
þeirra verði tekin fyrir eða að
þeim verði sleppt ella. Nokkrir
klerkar hafa hins vegar hafið
hungurverkfall. Tutu hyggst
hins vegar fasta þrjá daga
vikunnar til stuðnings föngun-
um og hvatti alla kristna menn
að gera slíkt hið sama.
BRUSSEL - Fyrrum for-
sætisráðherra Belgíu Paul
Vanden Boeynants sem rænt
var fyrir mánuði var horaður og
gugginn, en þó á lífi. Mann-
ræningjarnir slepptu honum
eftir að hafa haldið honum
innilokuðum í myrkvuðu her-
bergi allan tímann.
BONN - Utanríkisráðherra
Vestur-Þýskalands Hans-
Dietrich Genscher varaði
bandamenn sina innan NATO
við að láta frestun þess að
skammdrægar kjarnaflaugar
verði endurnýjaðar verða til
þess að skapa óeiningu. Hann
ítrekaði að afstaða vestur-
þýskra stjórnvalda um frestun
beindist ekki gegn bandalags-
ríkjunum.
KHARTOUM - Um 150
þúsund manns eru nú á mörk-
um hungursneyðar í bænum
Malakal í Súdan, en bærinn er
einangraður vegna umsáturs
skæruliða. Skæruliðar hafa nú
hætt að veita flugvélum er
fljúga með hjálpargögn til
bæjarins grið.
MAJDAS SHAMS
- Bæjarbúar í Majdal Shams
sem er á yfirráðasvæði Israela
í Gólanhæðum sem áður til-
heyrðu Sýrlendingum lokuðu
verslunum sínum og marser-
uðu um snjóugar götur bæjar-
ins og hrópuðu slaoorð gecjn
innlimun Gólanhæoanna í
ísrael fyrir sjö árum.
AMM AN - Utanríkisráðherr-
ar Egyptalands, íraks, Jórdan-
íu og Norður-Jemen hittust til
að undirbúa ný efnahagssam-
tök sem nefnast munu Ara-
bíska samvinnuráðið. Utanrík-
isráðherrarnir staðhæfa að
stofnun þessara samtaka bein-
ist ekki gegn Samavinnuráði
Persaflóans né Maghreb
Arababandalagsins sem fyrir
eru á þessum slóðum.
EL AVIV - ísraelskir em-
bættismenn segja að leyni-
þjónustur Vesturlanda nafi
komist að því að Shítar og
Palestínumenn sem unnið hafi
eftir skipunum Irana hafi
grandað Pan Am þotunni sem
sprengd var í loft upp yfir
Skotlandi rétt fyrir jólin. Hins
vegar hafi Sýrlendingar hvorki
verið hreinsaðir af verknaðin-
um né aðild þeirra sönnuð..
ÚTLÖND
Upplausn í röðum afganskra skæruliða:
Engin bráðabirgðastjórn
skæruliða í Afganistan
Skæruliðum í Afganistan ætlar ekki að takast að mynda
bráðabirgðastjórn eins og ráðgert var þegar sovéskt herlið
hefði yfirgefið landið.
Upplausn virðist nú ríkja innan raða skæruliða, en
skæruliðasamtök sem höfuðstöðvar hafa í íran drógu sig út
úr myndun ríkisstjórnar.
Þá gerðist það í gær að leiðtogi
stærstu fylkingar hófsamra skæruliða
innan Mujahideen skæruliðasamtak-
anna ákvað að sniðganga þing
skæruliðasamtakanna. Því er grund-
völlurinn fyrir stofnun bráðabirgða-
stjórnar á breiðum grundvelli
brostinn, en sú stjórn átti að verða
mótvægi við ríkisstjórnina í Kabúl.
Þetta er vatn á myllu stjórnvalda
í Kabúl sem í gær kváðust standa í
friðarviðræðum við nokkra leiðtoga
Mujahideen skæruliðasamtakanna.
- Við munum sniðganga Shuruna
þar til afgönskum bræðrum okkar í
íran hefur verið boðið til þingsins,
sagði talsmaður Afgönsku þjóðfrels-
isfylkingarinnar sem er ein af þremur
hófsömu skæruliðafylkingunum sem
barist hafa undir merkjum Mujahi-
deen.
Leiðtogi Afgönsku þjóðfrelsis-
fylkingarinnar Sibghatullah Mo-
jaddidi tók þessa ákvörðun í gær-
morgun þegar ljóst var að írönsku
skæruliðafylkingunum yrði ekki
boðið til þingsins, en Mojaddidi hélt
í síðustu viku til írans og undirritaði
samkomulag við skæruliðahreyfing-
arnar þar að þær fengju alls 100 sæti
í Shurunni, en hún er þing skæruliða.
Þá mun það ekki hafa bætt úr skák
að nokkrir fulltrúar skæruliðahreyf-
ingar hans fengu ekki staðfestingu
annarra skæruliðasamtka sem full-
gildir meðlimir.
Ekki var ljóst hvort hinar hófsömu
fylkingarnar tvær myndu fylgja Af-
gönsku þjóðfrelsishreyfingunni í
jtessu máli. Allar þessar hreyfingar
hafa bækistöðvar sínar í Pakistan og
er hverri skæruliðahreyfingu þar ætl-
uð 60 þingsæti.
Eftir að leiðtogar öfgafullra
skæruliðahreyfinga sunníta múslima
sem bækistöðvar hafa í Pakistan
gerðu sér grein fyrir því að þær gætu
orðið undir í atkvæðagreiðslum á
þinginu ef hófsömu skæruliðahreyf-
ingarnar með sín 180 þingsæti og
hinar þrjár skæruliðahreyfingar
öfgafullra shíta múslima í írans með
samtals 100 þingsæti legðust á eitt.
Þess vegna hafa öfgafullir shítar
neitað því að ættbálkar shíta fái 100
þingsæti í samræmi við styrk sinn og
vilja einungis úthluta þeim 60 þing-
sætum.
Aðstoðarforsætisráðherra írans,
Alireza Moayyeri, hefur reynt að
miðla málum, en hvorki hefur geng-
ið né rekið hjá honum.
- Við höfum ekkert nálgast sam-
komulag, sagði Mohammad Karim
Khalili leiðtogi skæruliðahreyfing-
anna í íran í gær, en hann gerði
einmitt samkomulagið við Mojadd-
idi í síðustu viku.
Eins og áður sagði þá skýrði
ríkisstjórnin í Kabúl frá því að
undanfarna daga hefðu staðið yfir
friðarviðræður við ýmsa skæruliða-
foringja sem berjast undir merkjum
Mujahideen hreyfingarinnar. En-
Afganskir skæruliðar leiða saman hesta sína í þjóðaríþrótt sinni sem líkist
póló að öðru leyti en því að í stað bolta er notaður geitaskrokkur. Leiðtogar
skæruliða leiða nú saman hesta sína á öðru sviði, en mikil átök virðast ríkja
milli skæruliðahreyfínga um valdahlutföll á Shurunni sem er þing þeirra. Þeir
hugðust mynda bráðabirgðastjóm en sú tilraun virðist hafa rannið út í
sandinn.
bættismenn ríkisstjórnarinnar halda
því fram að þessar viðræður séu nú
mögulegar eftir að sovéskt herlið
hafi yfirgefið landið.
- Þeir telja að áframhaldandi
blóðbað sé ekki lengur „jihad“ (heil-
agt stríð), heldur eingöngu dráp
múslima á múslimum, sagði í yfirlýs-
ingu stjórnvalda í Kabúl.
Ekki er ljóst hvort einhver fótur
er fyrir þessum yfirlýsingum stjórn-
valda eða hvort yfirlýsingin sé ein-
ungis ætluð til að auka tortryggnina
milli mismunandi skæruliðasam-
taka.
í yfirlýsingu stjómvalda eru
skæruliðar hvattir til að taka þátt í
viðræðum og þeim lofað hlutdeild í
stjóm landsins og almennum skæru-
liðum lofað atvinnu.
Þá berast þær fréttir frá Sovétríkj-
unum að hermenn stjómarhersins í
Afganistan sem tekið hafa við vel
vopnum búnum varðstöðum sov-
éskra hermanna, hafi strax yfirgefið
þær eftir að sovésku hermennirnir
voru á brott og skilið vopn og
tækjabúnað eftir óskemmdan til að
skæruliðar gætu haft gagn af stöðv-
unum. Þetta kom fram í Trud,
dagblaði verkalýðshreyfingarinnar í
Sovétríkjunum.
Hin umdeilda bók „Söngvar satans“ kemur höfundinum á svartan lista:
KHOMEINIVILL
DREPA RUSHDIE
' Hin umdeilda bók breska rithöf-
undarins Salmon Rushdie „Söngvar
satans" hefur gert allt vitlaust í
heimi múslima sem telja bókina
guðlast. Nú hefur andlegur leiðtogij
öfgafullra írana, Ayatollah Ruholl-f
ah Khomeini, lýst því yfir að Rush-
die sé kominn á dauðalista og það
beri að taka hann af lífi fyrir guðlast.
- Ég upplýsi stolta múslima heims-
ins að höfundur „Söngva satans“
sem er árás á íslam, spámanninn og
Kóraninn, að allir þeir sem eru
viðriðnir útgáfu bókarinnar og vissu
um innihatd hennar, eru hér með
dæmdir til dauða, sagði í yfirlýsingu
Khomeinis sem lesin var upp í
útvarpinu í Teheran.
- Eg bið alla múslima um að taka
þá er ábyrgð bera af lífi hvar sem
þeir finnast, sagði Khomeini einnig.
Hann bætti því við að ef múslimar
létu lífið vegna skipunar hans um að
taka Rushdie af lífi, þá yrðu þeir
lýstir píslarvættir.
Rushdie sagðist taka þessar hótan-
ir hins öfgafulla klerks mjög alvar-
lega og hefur útgefandi hans lýst því
yfir að öryggisgæsla rithöfundarins
verði hert.
Rushdie er sjálfur múslimi, fædd-
ur á Indlandi. Hann segir að bókin
sé á engan hátt móðgun við íslam,
spámanninn né Kóraninn. Hins veg-
ar sé hún ádeila á þá menn sem vinna
grimmdarverk í nafni íslams.
í mótmælum sem gerðar hafa
verið gegn bókinni í Pakistan og á
Indlandi undanfarna daga hafa sex
manns látið Iífið, en heittrúaðir
múslimar telja bókina móðgun við
Múhameð spámann.
Union Carbide fær aö punga út á Indlandi:
Miskabætur vegna
slyssins í Bhopal
470 milljón dalir
Hæstiréttur Indlands úrskurðaði
í gær að bandaríska fyrirtækið
Union Carbide skuli greiða 470
milljónir Bandaríkjadala í skaða-
bætur vegna slyssins í efnaverk-
smiðju fyrirtækisins í Bhopal á
Indlandi árið 1984, en þá lak
banvænt gas út úr verksmiðjunni
út yfir tbúabyggð og drap á fjórða
þúsund manns.
R.S. Pathak forseti hæstaréttar
las upp dóminn og sagði hann
bæturnar vera sanngjarnar fyrir
það manntjón og þær framkvæmdir
sem orðið hefur að gera til að
hreinsa svæðin kringum verksmiðj-
una.
Fulltrúar indversku ríkisstjórn-
arinnar samþykktu strx fyrir sitt
leyti þessa upphæð og mun Union
Carbide að öllum líkindum sættast
á að greiða þessa upphæð.
Hæstiréttur ákvað einnig að öll
kærumál á hendur Union Carbide
frá fómarlömbum slyssins yrðu
látin niður falla og einnig málssókn
gegn yfirmönnum fyrirtækisins sem
kærðir hafa verið fyrir glæpsamlegt
athæfi.
Verkalýðs-
leiötogi í
Perú myrtur
Leiðtogi verkalýðssamtaka námu-
verkamanna í Perú, Saul Cantoral,
var myrtur í gær og er talið nær
öruggt að sérstakar dauðasveitir
hægri manna hafi staðið fyrir ódæð-
inu.
Cantoral var formaður einna öfl-
ugustu verkalýðssamtaka landsins
með 60 þúsund meðlimi innanborðs.
Stóðu samtökin fyrir tveimur alls-
herjarverkföllum á síðasta ári sem
lömuðu mestallan námugröft í land-
inu, en margskonar námuvinnsla er
ein helsta tekjulind Perúmanna.
Cantoral hafði fengið morðhótun
frá dauðasveitum öfgafullra hægri-
manna, sem reyndar hafa hótað
öllum verkalýðsforingjum lífláti.
Dauðasveitirnar hafa verið nokkuð
iðnar við að drepa vinstri sinnaða
menn í Perú. Þá hafa þær einnig
hótað blaðamönnum og stjórnmála-
mönnum lífláti.
24 fallnir í
kosningaslag
Tuttugu og fjórir féllu í valinn á
einum sólarhringi í kosningaslagn-
um á Sri Lanka sem nú er í fullum
gangi. Fyrstu almennu þingkosning-
arnar í tólf ár fara þar fram um
helgina.