Tíminn - 15.02.1989, Qupperneq 13
Miðvikudagur 15. febrúar 1989
Tíminn 13
---------------—
Aftur árás á her-
stöð í Argentínu
Árás var gerð á búðir argentínskra hermanna í fyrrinótt og er það þriðja
árásin sem gerð er á herstöðvar í Argentínu á einum mánuði. Hér eru
hermenn að draga særðan félaga sinn á brott í átökunum um La Tablada
herbúðirnar í Buenos Aires fyrir þremur vikum.
Hópur vopnaðra manna gerði árás
á herstöð argentínska hersins í Rio
Cuarto í gær og er þetta í þriðja sinn
á einum mánuði sem árás er gerð á
herstöðvar í Argentínu. Talið er að
vinstri sinnaðir borgarskæruliðar
hafi verið að verki í öll skiptin. í
kjölfar árásarinnar funduðu æðstu
menn hersins með varnarmálaráð-
herra Argentínu og mun ákvörðun
um það hvort herinn hefji sérstakar
aðgerðir gegn meintum vinstri sinn-
uðum skæruliðum verða tekin á
næstunni.
Talsmaður varnarmálaráðuneytis-
ins skýrði frá því að fimm til sjö
menn hefðu gert árás á vopnabúr
argentínska hersins í Rio Cuarto 715
km norðvestur af Buenos Aires rétt
fyrir dögun. Hermenn hafi tekið
hraustlega á móti árásramönnunum
og harður skotbardagi ríkt um stund
áður en árásarmennirnir lögðu á
flótta. Einn hermaður særðist í árás-
inni.
Ekki eru liðnar nema þrjár vikur
síðan fimmtíu skæruliðar réðust á
La Tablada herbúðirnar í úthverfi
Buenos Aires og tóku nokkrar bygg-
ingar þar herskildi. Þá umkringdu
hermenn og lögregla herbúðirnar og
náðu þeim á vald sitt á ný með
stuðningi skriðdreka og brynvarðra
bifreiða.
Þá féllu tuttugu og átta skæruliðar
og níu hermenn eftir þrjátíu stunda
bardaga. Skæruliðarnir sem féllu
voru meðlimir í hreyfingu öfgafullra
vinstri sinna
Fyrir viku gerði hópur vopnaðra
manna sem ekki hefur verði borin
kennsl á árás á stöðvar flughersins í
Mendoza héraði nærri landamærum
Chile. Þeir flúðu eftir snarpan bar-
daga. Enginn féll í þeim átökum.
Skæruliðar hafa ekki verið virkir í
Argentínu eftir að herinn tók þar
völdin árið 1976 og lagðist til atlögu
gegn skæruliðum og grunsamlegu
fólki af mikilli grimmd. Er talið að
um níuþúsund manns hafi látið lífið
og eða horfið í þeim aðförum.
Borgaraleg stjórn tók við völdum
að nýju árið 1983 og hafa skæruliðar
ekki látið á sér kræla fyrr en nú.
Herinn hótar
stjórnvöldum
í El Salvador
Varnarmálaráðherra E1 Salvador
varaði við því að herinn myndi taka
völdin í landinu ef stjórnvöld frest-
uðu forsetakosningunum og ganga
til móts við friðartillögur skæruliða.
Bandaríkjamenn hafa þrýst á E1
Salvadorstjórn að ganga til móts við
skæruliða og kanna hvort hugur
fylgir máli í friðartilboði þeirra.
-Ef forsetinn mun sitja degi lengur
í forsetastóli eftir að kjörtímabil
hans rennur út þá mun herinn þurfa
að grípa til sinna ráða og fjarlægja
hann, sagði Carlos Eugenio Vides
Casanova hershöfðingi á blaða-
mannafundi sem haldinn var á Costa
Del Sol í E1 Salvador þegar forsetar
Mið-Ameríku komu þangað til að
funda um leiðir til friðar á þessum
slóðum.
Ríkisstjórnin hefur hingað til ver-
ið samstíga hernum í andstöðunni
við friðaráætlun skæruliða og hafnað
þeim algerlega.
Hin vinstri sinnaða skæruliða-
hreyfing „Farabundo Marti Þjóð-
frelsishreyfingin" hefur barist gegn
ÚTLÖNB
UMSJÓN:
Hallur
Maqnússon t
öllum ríkisstjórnum landsins frá því
árið 1979 og hafa stóra hluta landsins
á sínu valdi. Eru allar líkur á að
skæruliðar hefðu fyrir löngu náð
yfirhöndinni ef Bandaríkjamenn
dældu ekki hergögnum og fjármagni
til ríkisstjórna E1 Salvador.
Skæruliðahreyfingin lagði fyrir
nokkru fram friðartilboð þar sem
heitið var vopnahléi og friði ef
stjórnvöld fresti forsetakosningun-
um fram á haustið og að tryggt verði
að kosningarnar verði frjálsar og fari
heiðarlega fram. f>á heita skæruliðar
því að taka þátt í kosningunum og
hlíta niðurstöðum þeirra. Þessu vilja
stjórnvöld og herinn ekki ganga að.
Talið er að um sjötíu þúsund
manns hafi látið lífið í borgarastyrj-
öldinni í E1 Salvador sfðastliðin tíu
Níkaragva:
60 Kontrar
í hungur-
verkfalli
Um sextíu Kontraliðar sem eru
í haldi í fangelsum sandínista-
stjórnarinnar í Níkaragva eru nú í
hungurverkfalli til að knýja á um
frelsun pólitískra fanga í Níkar-
agva.
Skæruliðarnir sextíu sitja í Tipit-
apa fangelsinu nærri Managva og
hófu hungurverkfallið síðstliðinn
miðvikudag. Rúmlega hundrað og
fimmtíu aðrir fangar hyggjast hefja
hungurverkfall á mánudaginn, að
sögn Kathy Martinez Gomez sem
er varaforseti samtaka er nefna sig
„Þjóðarhreyfing mæðra og skyld-
menna pólitískra fanga,“ í Níkar-
agva.
Tímasetningin á hungurverkfall-
inu var hugsuð með tilliti til fundar
forseta Mið-Ameríkuríkja í El
Salvador, en á þeim fundi ræða
forsetarnir leiðir til friðar á þessum
slóðum.
Samtökin hafa sent forsetunum
bréf til að fá þá til að taka upp mál
pólitísku fanganna á þessum fundi.
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönniim, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
i PRENTSMIÐIAN •
^^cídct
Smiðjuvegí 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
f Útboð -
41- Gatnagerð
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í gerð gatna og lagna í
Setbergi. Helstu magntölur eru:
Uppúrtekt 4000m3, fylling 7800m3, holræsalögn D er
sama sem 200mm 680 Im og holræsalögn D=300mm
425 Im.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu bæjarverkfræðings
Strandgötu 6, gegn 10.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 23.
febrúar kl. 11.
Bæjarverkfræðingur
Aðalfundur
Breiðfirðingafélagsins
Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins í Reykjavík verður haldinn miðviku-
daginn 22. febrúar kl. 20.30 í Sóknarsalnum, Skipholti 50A.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál.
Stjórnin
t
Eiginmaður minn
Kristján Karl Pétursson
frá Skammbeinsstööum,
Holtum
andaðist á Sjúkrahúsi Selfoss mánudaginn 13. febrúar.
Sólveig Eysteinsdóttir
og börnin
t
Útför bróður okkar
Björns Ásgeirssonar
Reykjum, Lundarreykjadal
verður gerð að Lundi laugardaginn 18. febrúar kl. 14.00
Leifur Ásgeirsson
Sigurður Ásgeirsson
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Kristófer Guðleifsson
Hjallaseli 29
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 17. febrúar kl. 13.30
Guðrún Guðmundsdóttir
Valgerður Eygló Kristófersdóttir Björn Sigurðsson
Guðmundur I. Kristófersson
Guðríður Kristófersdóttir
Sigurður Kristófersson
Ingveldur Þ. Kristófersdóttir
Hannes Kristófersson
Helgi Kristófersson
og barnabörn
Ósk Davíðsdóttir
Hallgrímur Jónasson
Hjördís Árnadóttir
Helgi Guðjónsson
Guðríður Ólafsdóttir
Guðrún Eysteinsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu samúð og vinarhug við
andlátog útföreiginkonu minnar, dóttur, móður, tengdamóður, ömmu
og systur.
Jenneyjar Sigrúnar Jónsdóttur
Borðeyri
Ottó Björnsson
Sigríður Magnúsdóttir
Erling Ottósson Gunnhildur Höskuldsdóttir
Björn Ottósson Sigríður Gísladóttir
Alda Ottósdóttir Halldór Þorvaldsson
Jónas Ingi Ottósson Helena Jónsdóttir
SigurðurÞórOttósson Malan Isaksen
HeimirOttósson Majbritt Hansen
barnabörn og systkini