Tíminn - 21.02.1989, Síða 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 21. febrúar 1989
37. þing Norðurlandaráðs verður haldið um næstu mánaðamót. Líklegt talið
að umræður um sameiginlegan Evrópumarkað setji svip sinn á þingið:
HVAUR OG SELIR
EKKIDEILUEFNI?
„Ég lít svo á að þau ummæli sem
Svíakonungur lætur sér um munn
fara séu hans einkamál," sagði Páll
Pétursson þingflokksformaður
Framsóknarflokksins er hann var
inntur eftir því hvort ræða Karls
Gustavs Svíakonungs um Gro Har-
lem Brundtland kæmi til með að
hafa áhrif á störf þings Norðurland-
aráðs sem hefst 27. þessa mánaðar.
Páll kvaðst ekki trúaður á að
ummæli Karls Gustavs um að ekki
væri hægt að ætlast til að Gro
Harlem gæti stjórnað á norska
þinginu fyrst hún gæti ekki stjórnað
selveiðum Norðmanna, kæmu til
með að hafa áhrif á störf Norður-
landaráðsþingsins. Þó er vitað að
einn af þingmönnum græningja-
flokksins í Svíþjóð mun flytja til-
lögu um fordæmingu selveiða
Norðmanna.
Reiknað er með að það mál sem
mest fari fyrir á þinginu verði
sameiginlegur markaður Evrópu
en í desember 1992 munu efna-
hagsleg landamæri innan Evrópu
lögð niður samkvæmt samþykkt
Evrópubandalagsins. Frí verður
gefið í viku á Alþingi vegna
Norðurlandaráðsþingsins dagana
27. feb. til 6. mars. . Þetta er gert
vegna þess að 8 þingmenn munu
fara til útlanda til þess að sitja
þingið, auk flestra ráðherranna
sem sitja munu fundi á vegum
þingsins, og yrði þess vegna lítið
gert hér heima á meðan.
Páll Pétursson sagðist ekki geta
gert sér grein fyrir hvort náttúru-
verndarmál hefðu áhrif á störf
þings Norðurlandaráðs í kjölfar
sýningar mynda af selveiðum
Norðmanna og hvalveiðideilu fs-
lendinga og grænfriðunga. -ág
Páll Pétursson reiknar ekki með
að orð Svíakonungs komi til með
að hafa mikil áhrif á störf 37. þings
Norðurlandaráðs.
Sjö varaþingmenn á Alþingi:
6 konur
-1 karl
Nokkuð margir varaþingmenn
sitja á Alþingi um þessar mundir,
eða sjö alls. Af þeim eru þrír frá
Kvennalista. Afsjö fjarverandi þing-
mönnum eru tvær konur, en af þeim
varaþingmönnum sem inn koma í
staðinn eru sex konur.
Sigríður Hjartar hefur setið á
þingi fyrir Guðmund G. Þórarins-
son, Sólveig Pétursdóttir fyrir Eyjólf
Konráð Jónsson, Auður Eiríksdóttir
situr sem varamaður Stefáns Val-
geirssonar og Björn Grétar Sveins-
son í forföllum Hjörleifs Guttorms-
sonar. Kvennalistakonurnar Dan-
fríður Skarphéðinsdóttir, Kristín
Einarsdóttir og Málmfríður Sigurð-
ardóttir hafa verið fjarverandi af
þingi og í stað þeirra setið Birna K.
Lárusdóttir, Jóhanna Þorsteinsdótt-
ir og Sigrún Helgadóttir.
Það er nokkuð sérstætt að Sigríður
Hjartar og Auður Eiríksdóttir eru
báðar varamenn númer tvö fyrir
sína þingmenn og Sigrún Helgadótt-
ir er fjórði varamaður Kristínar
Einarsdóttur. -ág
Það ganga ekki allar fjallaferðir
eins og í sögu og virðist sem stundum
sé það sjálfsagður hluti af óbyggða-
ferðum að eitthvað komi fyrir öku-
tækin eða leiðangur verði fyrir ósvik-
inni festu. Stöku sinnum verður að
ganga frá fjallabílnum biluðum og
reyna aftur síðar. Tíminn hafði
spurnir af einum jeppa, sem skilja
varð eftir í áramótaferð inn í Land-
mannalaugar og hafa eigendur ekki
enn getað sótt hann vegna veðurs,
sjö vikum síðar, þótt búið sé að gera
út tilraunaleiðangra tvisvar. Einnig
hefur frést af a.m.k. tveimur öðrum
jeppum nær Landmannalaugum sem
skildir hafa verið eftir og ckki hefur
reynst unnt að sækja.
Jeppi sá sem nú hefur verið hvað
lengst tepptur á leiðinni inn að
Landmannalaugum, strandaði fyrst
í námunda við Frostastaðavatn. Þar
varð eigandinn, Örn Arason, fyrir
því að pinnjónn brotnaði í afturdrifi
og drifskaftið gekk út, en auk þess
molnuðu báöar fjaðrirnar að aftan.
Við slíku óhappi er fátt að gera á
staðnum, þar sem fáir eru bæði með
auka fjaðrir og auka pinnjón í drifið,
í farangrinum. Þetta var um áramót-
in. Síðan hafa verið gerðir út tveir
leiðangrar til að ná í jeppann á hús
en ekki tekist. í þeim fyrri komust
leiðangursmenn ekki að jeppanum
vegna fannfergis, en viku síðar var
reynt aftur, en þá var um mánuður
liðinn frá áramótaferðinni. í þessum
öðrum leiðangri tókst að setja undir
hann nýjar fjaðrir og gera við drifið,
en þegar til átti að taka var undir-
vagninn allur frosinn fastur og tókst
ekki að draga hann til byggða. Er
Frá og meö fyrsta mars verður:
Plastpokasalan
tekin upp á ný
Plastpokar verða seldir í verslun-
um frá og með fyrsta mars næstkom-
andi.
Kaupmannasamtökin sendu
Verðlagsráði umsókn um undan-
þágu frá ákvæði í lögum um verðlag,
samkeppnishömlur og óréttmæta
viðskiptahætti. En í þessum lögum
er hverskonar samráð milli verslana
um verðlagningu bannað.
Verðlagsráð hefur fjallað um
þessa umsókn og samþykkt heimild
til undanþágu. Söluverð pokanna er
fimm krónur fyrir þá stærri og fjórar
krónur fyrir þá minni.
Fjárhæðinni verður skipt á eftir-
farandi hátt: af hverjum fimm krón-
um fær ríkisvaldið eina krónu í
formi söluskatts, tvær krónur renna
til Landverndar og afgangurinn
gengur upp í innkaupsverð verslan-
anna á pokum sem er 4,80 krónur.
Kaupmannasamtökin segjast
vona að viðskiptavinir taki þessu
vel. Þau benda á að staða verslana
hafi versnað og telja þetta koma til
með að létta undir baggann og
stuðla að lækkuðu vöruverði. Einnig
vilja þau ítreka mikilvægi gróður-
verndar og minna á kjörorð Land-
verndar „Hreint land fagurt land“.
jkb
Jeppinn hans Arnar í Höfuðlausn eins og hann var á sig kominn þegar hann var skilinn eftir um áramótin. Enn
liefur ekki tekist að ná honum í hús nærri sjö vikum síðar. 'límamynd Skúii
Ein lengsta jeppafesta síðari tíma á Fjallabaksleið:
7 vikna strand eftir
áramótaferð í Laugar
ætlunin að reyna til þrautar næstu
tvær þrjár helgar að ná farkostinum
til byggða.
Tíminn hcfur einnig frétt af a.m.k.
tveimur jeppum sem svipað er ástatt
með og eru þeir fastir inni í Land-
mannalaugum. En þar sem ekki
hefur verið veður til ferðalaga inn á
hálendið undanfarnar vikur, hefur
ekki fengist úr því skorið hversu
margir jeppar eru strandaðir á þess-
ari leið, sem er ein sú fjölfarnasta til
fjalla allt árið um kring. KB
Afí staðan til
EB mótuð
sai neiginlega
Nýlega mynduðu atvinnurekend-
ur í sjávarútvegi með sér samstarfs-
hóp sem þeir kalla Samstarfsncfnd
atvinnurekenda í sjávarútvegi. Eftir-
talin samtök eiga aðild að nefndinni:
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna,
Sölusamband íslenskra fiskfram-
leiðenda, Félag sambands fiskfram-
leiðenda, Landssamband íslenskra
útvegsmanna og Samtök fiskvinnslu-
stöðva.
Rauði Kross Islands heldur:
Námskeið fyrir foreldra
Rauði Kross Islands mun á næst-
unni gangast fyrir námskeiðum fyr-
ir foreldra.
Á námskeiðunum verður fjallað
um börn frá fæðingu til sex ára
aldurs. Haldnir verða fyrirlestrar
um heilsuvernd, barnasjúkdóma,
þroska og þarfir ungra barna, leik-
föng. slys, slysavarnir, skyndihjálp
og margt fleira.
Fyrirlesarar eru sérfræðingar
hver á sínu sviði. Fyrsta námskeið-
ið byrjar á mánudaginn kemur og
stendur yfir fjögur kvöld. Allra
nánari upplýsinga má leita á skrif-
stofu RKI. jkb
Tilgangur nefndarinnar er m.a.
eftirfarandi:
1. Að móta sameiginlega afstöðu
íslensks sjávarútvegs til þeirrar
þróunar, sem á sér stað innan
Evrópubandalagsins og sam-
skipta íslands á þeim vettvangi.
2. Að efla umfjöllun og umræðu um
mikilvægi sjávarútvegs fyrir ís-
lenskan þjóðarbúskap.
3. Að safna upplýsingum um þróun
sjávarútvegs í samkeppnislönd-
um Islendinga og meta hvaða
áhrif sú þróun hafi á íslenskan
sjávarútveg.
Formaður Samstarfsnefndar at-
vinnurekenda í sjávarútvegi er
Magnús Gunnarsson og varaformað-
ur Kristján Ragnarsson. Aðrir í
nefndinni eru Friðrik Pálsson,
Brynjólfur Bjarnason, Árni Bene-
diktsson. Ríkarður Jónsson, Dag-
bjartur Einarsson. Arnar Sigur-
mundsson. Ágúst Einarsson og Jón
ingvarsson. Starfsmaður nefndar-
innar er Halldór Árnason.