Tíminn - 21.02.1989, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 21. febrúar 1989
Tíminn 13
AÐ UTAN
Iltlllllllll
Rániö á Boeynants:
Komið í Ijós að hann er ekki
allur þar sem hann er séður
Fyrrverandi forsætisráðherra Belgíu, Vanden Boey-
nants, sem verið hefur í ræningjahöndum síðan um miðjan
janúar, var flæktur inn í alls kyns viðskipti sem ekki þola
dagsins Ijós. Ræningjar hans gera kröfu um að hann beri
fram játningu um giæpsamlegt athæfi áður en þeir láta
hann lausan, auk lausnargjalds.
Ræningjarnir hafa greinilega gaman af óvenjulegri
fyndni. Þeir hafa nú stungið upp á að lesendur tveggja
belgískra dagblaða skeri úr um það meðal hvaða fátæklinga
í landinu eigi að skipta lausnargjaldinu sem þeir ætla að fá
fyrir forsætisráðherrann fyrrverandi.
Dæmdur skatt-
svikari og sakaður um
mútuþægni
f>að er komið að léikslokum.
Hvað Paul Vanden Boeynants
varðar, 69 ára gamlan lærðan slátr-
ara og framleiðanda kjötvara, geta
leikslokin orðið þau að hann verði
að fella grímuná.
VdB, eins og þessi bæði umdeildi
og alþýðlegi stjórnmálamaður úr
flokki kristilegra demókrata kall-
aði sig á auglýsingaspjöldum í
síðustu borgarstj órnarkosningum,
fékk þriggja ára skilorðsbundinn
fangelsisdóm 1986 vegna skatt-
svika. Auk þess hafa árum saman
farið fram athuganir á framferði
þessa glaðlynda en slóttuga náunga
þar sem því hefur verið haldið
fram að hann hafi stungið í eigin
vasa fjárhæðum sem taldar eru í
milljónum, sem hann hafi þegið að
mútum þegar hann gegndi embætti
vamarmálaráðherra.
Mannræningjarnir hafa haft
samband við blöð í Belgíu og m.a.
haldið því fram að áreiðanlegt sé
að VdB gangi að kröfum þeirra um
að bera fram játningu um misgerðir
sínar. „Hann lifir og mun játa,“
segja þeir og senda persónuskilríki
hans og tvö blöð með rithönd hans
til sannindamerkis um að þeir hafi
forsætisráðherrann fyrrverandi á
sínu valdi. Þeir leggja fram kröfur
um yfir 40 milljónir ísl. kr. í
lausnargjald, ásamt játningu
Vanden Boeynants.
Skilaboð frá ræningjunum berast
belgískum blöðum á þriðjudögum
og eru undirrituð af „Brigade so-
cialiste révolutionnaire“. Þeir eru
álitnir vera úr röðum stjórnleys-
ingja lengst til vinstri og hafa valið
þessa undirskrift, sem má draga
saman í sömu skammstöfun og
sérdeild lögreglunnar sem fæst við
glæpaflokka og eiturlyfjasala geng-
ur undir - þ.e. „Brigade spéciale
de recherche".
komst dómurinn að þeirri niður-
stöðu að færðar hefðu verið sönnur
á réttmæti 82. Og dómsforsetinn
sagði ákærðan „fæddan skattsvik-
ara“.
En mesta skemmtun hafði al-
menningur af svindlinu með
„falska Francis“. VdB hafði aflient
skattarannsóknarmönnunum
skjal, þar sem fram kom að hann
hefði mörgum árum fyrr selt líb-
önskum sendiherra í Brussel, sem
löngu er látinn en bar sama nafn og
Paul Vanden Boeynants fyrrverandi forsætisráðherra Belgíu fær nú
tækifæri til að láta gott af sér leiða fyrir samfélagið, segja hjálpræðishers-
menn.
Fórnarlamb sem enginn
hefur samúð með
Þessir dularfullu gíslatökumenn,
sem virðast vera nokkurs konar
bandittar í Hróa hattar stíl, hafa
valið sér einstaklega heppilegt
fórnarlamb. Það er engin hætta á
því að fram komi eindregin samúð
með gíslinum, sem virðist hafa
horfið sporlaust. í blaðinu „Nou-
velle Gazette“ stendur að vissulega
verði þeir seku að fá refsingu, „en
maðurinn VdB hefur ekkert það
látið af sér leiða sem vekur samúð
okkar".
Fari svo að Vanden Boeynants
verði við kröfum kvalara sinna og
„játi“, hljóta margir í Belgíu að
óttast það sem þar kemur í ljós.
Blaðamaður einn hefur lýst starf-
semi slátrarans sem varð æðsti
maður ríkisstjórnarinnar þannig að
hann hafi stuðst við „mafíuaðferð-
ir“ þegar hann „ruglaði saman
stjórnmálum, viðskiptum og glæp-
samlegum starfsaðferðum".
Vinur vina sinna og
pólitískir andstæðingar
nutu líka góðs af
Aðferð VdB var m.a. að gera
stjórnmálaandstæðinga sér sam-
seka með því að útvega þeim
embætti og hlunnindi. Þegar hann,
kristilegur demókratinn, var varn-
armálaráðherra lagði hann áherslu
á að sósíalistar væru líka í hópi
samstarfsmanna. Undirvernd hans
blómguðust bygginga- og lóðasölu-
fyrirtæki vina hans. Nokkrir þeirra
hafa orðið að svara til saka fyrir
fjármálasvik fyrir dómstólum.
Það er t.d. skrifað á ábyrgð VdB
að heil röð heldrimanna húsa,
dýrmætra frá arkitektónisku sjón-
armiði, við Avenue Louise í Brus-
sel hafa orðið að víkja fyrir drunga-
legu stjórnarsetri bandaríska stór-
fyrirtækisins ITT. Því er haldið
fram að fyrirtækjarisinn hafi sýnt
þakklæti sitt á stórbrotinn hátt.
Skuggalegur
félagsskapur
Þegar VdB var forsætisráðherra
tók hann sér til föruneytis í opin-
berar heimsóknir t.d. forstjóra
kjötverksmiðjunnar sinnar, sem
notuðu tækifærið í fyrrum belgísku
nýlendunni Zaire og gengu frá
nokkrum viðskiptasamningum. En
það vöru fleiri sem lentu í föruneyti
forsætisráðherrans. Þar mátti líka
finna vafasama náunga eins og
„svarta baróninn", Benoit de Bon-
voisin, sem er sagður hafa styrkt
fjárhagslega hægriöfgasinnuðu
hreyfinguna „Front de la Jeu-
nesse". f belgískum blöðum er því
haldið fram að Vanden Boeynants
hafi hrærst í skuggalegum félags-
skap.
Skjalfest eru líka tengsl hans við
fyrrum lögreglumanninn og einka-
spæjarann Robert Bejer, stuðn-
ingsmann belgískra nasista, sem er
flæktur í vopnasölu og var að
öllum líkindum í sambandi við
„vitfirrtu morðingjana frá
Brabant“. Þessir ofbeldismenn
drápu 16 manns haustið 1985 í
þrem árásum á vörumarkaði Del-
haize-fyrirtækisins, en árásirnar
hafa ekki verið að fullu upplýstar
enn.
Það er undarlegt að skjöl varð-
andi fundi þessa vafasama fyrrver-
andi lögreglumanns og vafasama
fyrrverandi forsætisráðherra hurfu
eftir að Vanden Boeynants var
rænt.
Það sýndi sig í réttarhöldunum
vegna skattsvikanna að VdB er til
alls líklegur. Úrskurðurinn er
skráður á 200 blaðsíður og hljómar
líkt og belgísk útgáfa af „Guðföð-
urnum“. Af 136 ákæruatriðum
hann sjálfur, hluta eigna sinna.
Undirskriftin á sölusamningnum
var fölsuð, forskriftina hafði VdB
fengið hjá vinum sínum í fínum
einkaklúbbi.
Vann í borgarstjóra-
kosningum í Brussel en
afþakkaði embættið
í Belgíu, þar sem íbúarnir búa
við fáránlega háa skattaprósentu í
hæsta þrepi eða yfir 70%, er litið á
skattsvik sem þjóðaríþrótt. Það
kann að skýra þá staðreynd að
þrátt fyrir dóminn sem VdB fékk
felldi alþýðudómstóllinn þann úr-
skurð við borgarstjórnarkosning-
arnar í Brussel að hann vann
keppinautinn með 4000 atkvæða
mun. En hann fór að ráðum flokks-
félaga sinna, sem óttuðust frekari
uppljóstranir, og tók ekki við borg-
arstjóraembættinu, þrátt fyrir
kosningasigurinn. Með tárin í aug-
unum gaf Vanden Boeynants kjós-
endum sínum eftirfarandi yfirlýs-
ingu í sjónvarpi í október sl.: „Ég
er mjög hrærður, en hagur lands
míns og Brussel hefur forgang
fram yfir drauma VdB.“
Borgarstjóri í höfuðborg Evr-
ópu, sem ásakaður er um að hafa
á áttunda áratugnum, þegar hann
var varnarmálaráðherra, veitt við-
töku mörgum milljónum belgískra
franka frá vopnaframlciðandanum
Asco, sem endurgjald fyrir vígbún-
aðarsamninga - virtist jafnvel
frjálslyndustu Belgum einum of
langt gengið.
Fyrrverandi háttsettur starfs-
maður vopnaverksmiðjunnar hafði
haldið því fram að alls hafi hátt í
einum milljarði ísl. kr. verið varið
til að liðka fyrir samningum. Sam-
starfsmenn ráðherrans hefðu sótt
féð og borið burt í skjalatöskum.
Nægt efni í játningar
og næg verkefni fyrir
lausnargjaldið
Það er sem sagt nægt efni í
játningar fyrrverandi forsætisráð-
herra. Og það hafa líka þegar gefið
sig fram fulltrúar hópa þurfandi
fólks sem hafa næg verkefni fyrir
lausnargjaldið. Starfsmaður Hjálp-
ræðishersins segir að verði lausnar-
gjaldið greitt geti Vanden Boey-
nants loks látið eitthvað gott af sér
leiða fyrir samfélagið.
n AurirecTA "n
u ni- n
FÉLAGSMÁLASKÓLI
Gissur Pétursson
Egill H. Gíslason
Finnur Ingólfsson
Arnar Bjarnason
Hrólfur Ölvisson
Helgi Pétursson
Samband ungra framsóknarmanna og Kjördaemissambönd
Framsóknarflokksins hafa ákveðið að fara á stað með
Félagsmálaskóla þar sem boðið verður uppá eftirfarandi
námskeið:
A. Grunnnámskeið í félagsmálum:
Efni: Fundarsköp og ræöumennska, tillögugerð, stefnumál
Framsóknarflokksins o.fl.
Tímalengd: 8 klst.
Leiðbeinendur verða: Gissur Pétursson, Egill Heiðar Gísla-
son, Finnur Ingólfsson, Arnar Bjarnason og Hrólfur Ölvisson.
Stefnt er að því að halda námskeiðið í febrúar og mars á
eftirtöldum stöðum ef næg þátttaka fæst: Reykjavík, Keflavík,
Selfoss, Vestmannaeyjar, Höfn, Egilsstöðum, Akureyri, Sauð-
árkróki, ísafirði, Ólafsvík og Akranesi.
B. Fjölmiðlanámskeið:
Efni: Framkoma í sjónvarþi og útvarp. Undirstöðuatriði í
frétta- og greinaskrifum. Áhrif fjölmiðla.
Tímalengd: 16 klst.
Leiðbeinandi: Helgi Pétursson, fréttamaður. Stefnt er að því
að halda námskeið í Reykjavík og á Akureyri.
Þeir aðilar sem hafa áhuga á þessum námskeiðum eru hvattir
til að hafa samband við eftirtalda aöila:
Reykjavík: Skrifstofa Framsóknarflokksins, s. 91-24480
Reykjanes: Ágúst B. Karlsson, sími 91-52907
Vesturland: Bjarni Guðmundsson, sími 70068
Vestfirðir: Sigurður Viggósson, sími 94-1389
Norðurland vestra: Bogi Sigurbjörnsson, sími 95-71527
Norðurland eystra: Snorri Finnlaugsson, sími 96-61645
Austurland: Ólafur Sigurðsson, sími 97-81760
Suðurland: Guðmundur Búason, sími 98-23837
Samband ungra framsóknarmanna
Kjördæmissambönd Framsóknarflokksins
Framhalds-
námskeið
Baldvin
Kristján
Raddbeitingar og framsagnarnámskeið hefst miðvikudaginn 22.
febrúar kl. 20.00 að Nóatúni 21.
Kennarar: Baldvin Halldórsson, leikari
Kristján Hall
Getum enn bætt viö örfáum þátttakendum.
Upplýsingar i sima 24480.
Stjórn LFK
Fjölmiðla-
námskeið
Fjölmiðlanámskeiðið hefst fimmtudaginn 23. febrúar nk. kl. 17.30 og
stendur laugardaginn 25. febr. frá kl. 13.00 og sunnudaginn 26. febr.
frá kl. 13.00 að Nóatúni 21. Samtals 22 kennslustundir.
Kennari: Arnþrúður Karlsdóttir fjölmiðlafræðingur.
Getum enn bætt við örfáum þátttakendum.
Upplýsingar í síma 24480.
Stjórn LFK