Tíminn - 24.02.1989, Page 7
Föstudagur 24. febrúar 1989 .
Tíminn 7
Ný snjóruöningstæki reynd
á gangstéttum í Reykjavík:
Smávélar í
snjómokstri
Hjá embætti gatnamálastjóra
stendur nú yfir athugun á hentugum
tækjum, sem hægt er að nota til að
hreinsa snjó af mjóunr gangstéttum
og sem smogið geta milli Ijósastaura,
brunahana og eftir þröngum gang-
stígum.
Þorgrímur Hallgrímsson rekstrai-
fulltrúi hjá embætti gatnamálastjóra
sagði í samtali við Tímann að þeir
hefðu fengið litla Bobcat-vél í eigu
Gámaþjónustunnar að láni og hefur
hún verið til reynslu sl. tvo daga og
reynst vel. Vélin er enn sem komið
er með skóflu að framan, en til
stendur að fá svokallaðan fjölplóg á
hana, en hann er tvískiptur og má
ýmist nota sem tönn eða plóg. Búast
má við að fjölplógurinn verði tilbú-
inn eftir tvær til þrjár vikur, en hann
er í smíðum.
Þorgrímur sagði að bundnar væru
miklar vonir við að tækið gæti tekið
við af þeim dráttarvélum sem gatna-
málastjóri hefði yfir að ráða í dag.
Tækið er mun mjórra. eða um 1,20
m á breidd, og smýgur á milli þar
sem dráttarvélarnar komast ekki á
milli.
Þá er hugmyndin að reyna svokall-
aðan mini-traktor, sem notaður hef-
ur verið til að standsetja húsalóðir á
sumrin.
Talsvert hefur þurft að flytja burtu
snjó í öllum borgarhverfum að
undanförnu, en reynt er að halda því
í lágmarki þar sem kostnaðurinn við
þær framkvæmdir er mjög mikill, en
í sumum tilfellum verður ekki kom-
ist hjá þvf.
- ABÓ
Atvinnuleysi á
Norðvesturlandi
Sicil Angola:
Fimm lík hafa
fundist, allir
eru taldir af
Sautján manna áhöfn Sicil Ang-
ola, sem fórst í fyrradag um 180
mílur vestur af írlandsströndum,
er talin af. Björgunarþyrlur breska
flughersins og dönsk og norsk skip
sem voru á svipuðum slóðum höfðu
fundið lík fimm áhafnarmeðlima
síðdegis í gær, en mennirnir
sautján voru allir frá Suður-Kóreu.
Aftakaveður var á leitarsvæðinu
og sóttust björgunaraðgerðir seint.
Nimrodþota frá breska flughernum
sveimaði yfir svæðinu í fyrradag,
fram í myrkur.
Sicil Angola var á leið til íslands
frá Torrevieja við Miðjarðarhafs-
strönd Spánar með saltfarm í eigu
Saltsölunnar hf. og var búist við að
skipið kæmi til Vestmannaeyja í
vikulokin. - ABÓ
Frá Erni Þórarinssyni fréttaritara Tímans,
Fljótum.
Verulegt atvinnuleysi er um þess-
ar mundir í Skagafjarðar- og Húna-
vatnssýslum, meira en hefur verið
mörg undanfarin ár. Um síðustu
mánaðamót voru um 180 manns
atvinnulausir á þessu svæði og
samanlagður fjöldi atvinnuleysis-
daga í janúar var liðlega 4200.
Astandið er nokkuð misjafnt milli
þéttbýlisstaðanna á svæðinu. Lang-
best er ástandið á Skagaströnd, þar
er nánast ekkert atvinnuleysi. Á
Hvammstanga er staðan hinsvegar
miklu lakari, þar voru 42 á atvinnu-
leysisskrá um síðustu mánaðamót
og útlit er fyrir að starfsfólk rækju-
vinnslunnar Meleyrar bætist fljót-
lega í þann hóp þar sem kvóti
rækjubátanna á Hvammstanga er á
þrotum og hráefnisskortur því fyrir-
sjáanlegur. Á Blönduósi voru 47
skráðir atvinnulausir en voru 13 á
sama tíma fyrir ári. Nokkur hluti
þessa fólks er í sveitunum í kringum
kaupstaðinn en í Austur-Húnavatns-
sýslu hefur orðið mikill samdráttur í
sauðfjárbúskap síðustu árin, einkum
vegna riðuveiki. Á Hofsósi voru
liðlega 20 manns á skrá urn síðustu
mánaðamót og stafar það meðal
annars af fádæma óstilltu tíðarfari
það sem af er þessu ári þannig að
nánast ekkert hefur verið hægt að
sækja sjó af smærri bátunum.
Líkur eru á að atvinnuástand
batni á Sauðárkróki og Hofsósi þeg-
ar togararnir sem keyptir voru frá
Suðurnesjum um áramótin koma til
veiða í næsta mánuði en þeir eru nú
í slipp erlendis.
Ný reglugerð um
áfengisauglýsingar:
Bannað að
auglýsa
Sett hefur verið ný reglugerð þar
sem kveðið er nánar á um bann við
áfengisauglýsingum.
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið setti reglugerðina
vegna komu áfengs öls um mán-
aðamótin. 1 henni er leitast við að
skilgreina hvað átt sé við með
auglýsingu. Er þá í veigamiklum
atriðum tekið mið af sömu reglum
og gilda um auglýsingar á tóbaki.
Samkvæmt reglugerðinni tekur
hugtakið auglýsing bæði til beinna
auglýsinga og óbeinna. Með óbein-
um auglýsingum er vísað til þess
þegar neysla eða önnur meðferð
áfengis er sýnd í auglýsingum um
aðra vöru en áfengi.
Þetta á einnig við um firmanafn
eða merki áfengisframleiðanda
nema hann framleiði einnig
óáfenga drykki. f>á skal koma skýrt
fram að um óáfengan drykk sé að
ræða í viðkomandi auglýsingu.
Nokkar undanþágur eru frá
reglugerðinni. Til að mynda má
áfram flytja inn erlend blöð sem
innihalda auglýsingar á bjór og
öðru áfengi. Glös og glasabakka
Timamynd: Árni Bjarna
F.v. Páll Sigurðsson, Guðmundur Bjarnason og Ingimar Sigurðsson skýra frá nýrri reglugerð vegna komu áfengs öls.
má einnig merkja með firmanafni
eða merki áfengisframleiðanda.
Sem og flutningstæki, vöruumbúð-
ir, bréfsefni og annað sem beinlínis
tengiststarfsemi fyrirtækisins. Með
refsingar vegna brota á reglugerð-
inni verður farið samkvæmt áfeng-
islögum. jkb