Tíminn - 24.02.1989, Qupperneq 10
10 Tíminn
Föstudagur 24. febrúar 1989
Föstudagur 24. febrúar 1989
Tíminn 11
ITT
lítagónvarp
er fjárfestíng
ív-þýskum
gæðumog
fallegum
ITIEtum
BILALEIGA
meö utibú allt i kringurri
landiö, gera þér mögulegt
aö leigja bíl á einum staö
og skila honum á öörum.
Reykjavík ’
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendis
interRent
Bílaleiga Akureyrar
Akureyringar - nágrenni
Námskeið
Námskeiö í raddbeitingu, framsögn og ræöutækni fyrir ræöustól,
hljóðvarp og sjónvarp.
Kennarar: Kristján Hall og
Theodór Júlíusson.
Námskeiðið fer fram aö Hafnarstræti 90, Akureyri og hefst 24. febrúar
kl. 18 og stendur laugardaginn 25. febrúar frá kl. 13 og sunnudaginn
26. febrúar frá kl. 13.
Innritun í síma 21180 milli kl. 16 og 18 miðvikudag og fimmtudag.
Austur-Skaftfellingar:
Aðalfundur
Aðalfundur Framsóknarfélagsins verður haldinn í húsi Skinneyjar hf.,
föstudaginn 3. mars kl. 20.00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Húsnæðismál.
3. Önnur mál.
Stjórn Framsóknarfélagsins.
Kópavogur
Skrifstofan í Hamraborg 5 er opin þriðjudagaog miðvikudaga kl. 9-13.
Sími 41590. Heitt á könnunni.
Opið hús alla miðvikudaga kl.17-19. Félagsmenn eru hvattir til að
líta inn og taka með sér gesti. Eflum flokksstarfið.
Framsóknarfélögin í Kópavogi.
Reykjanes
Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er
opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 17 til 19. Sími 43222.
K.F.R.
Fjölnotaglösin
fyrir 1. mars, eigum til lítið eitt af glösum með flokksmerkinu. Pantanir
í síma 24480.
LFK.
Landssamband framsóknarkvenna
Nóatúni 21, - s. 24490.
;i!lílllll ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Körfuknattleikur:
ÍR og Njarðvík
í bikarúrslitin
New York. Stórtap Los Ang-
eles Lakers gegn Utah Jazz á mið-
vikudag í NBA-deildinni í körfu-
knattleik vekur nokkra athygli þegar
á úrslitin er litið. Að vísu er Macig
Johnson meiddur er fyrr má nú vera.
Úrslitin urðu þessi:
Utah Jazz-Los Angeles Lakers.........105-7
Denver Nuggets-Dallas Maver . . . 109-106
Detroit Pistons-Portland Tr..........105-94
Cleveland Cavaliers-N.J.Nets .... 130-111
Chicago Bulls-Charlotte Horn . . . 130-102
Philadclphia ’76ers-Miami H....... 139-108
Golden State Warr.-S.A.Spurs . . . 118-107
Boston Celtics-Sacramcnto Kings . . . 99-91
Lahty. Sigurganga Finna á
heimsmeistaramótinu í norrænum
greinum skíðaíþrótta hélt áfram í
gær er kvennasveit þeirra í 4x5 km
boðgöngu kom fyrst í mark. í sveit-
inni vrou Marja-Liisa Kirvesniemi,
Pirkko Maatta, Jaana Savolainen og
Marjo Matikainen. Sovéska sveitin
varð í öðru sæti eftir harða keppni
við þá finnsku. Sveit Noregs varð í
þriðja sæti.
í fyrradag sigraði eiginmaður
Marju-Liisu, Harri Kirvesniemi í 15
km göngu með hefðbundinni aðferð.
Pað er fyrsti sigur hans á stórmóti,
en hann hafði áður unnið 6 brons-
verðlaun á Ólympíuleikum og
heimsmeistarakeppni.
Frá Margréti Sanders frcttarítara Tímans á Suðurnesjum:
UMFN í úrslit
UMFN sigraði KR 95-90 í fjögurra liða
úrslitum bikarkeppninnar í gærkvöld.
Staðan í hálfleik var 53-42. Njarðvíkingar
sigruðu í fyrri leik liðanna 93-70 og eru því
komnir í úrslit, og leika bar gegn 1R-
ingum.
Stigahæstu menn: UMFN Teitur Örlygs-
son 28, Helgi Rafnsson 23, Kristinn Einars-
son 14, Hreiðar Hreiðarsson 12, Isak
Tómasson 8, Friðrik Rúnarsson 7 og
Friðrik Ragnarsson 3. KR: Jóhannes Krist-
björnsson 24, Guðni Guðnas. 21, Gauti
Gunnarsson 13, Lárus Árnason 10, Ólafur
Guðmundsson 8, ívar Webster 6, Birgir
Mikaelsson 6 og Lárus Valgarðsson 2.
ÍR í úrslit
ÍR og b lið Njarðvíkur léku í gær seinni
leik sinn í undanúrslitum bikarkeppni
KKÍ. ÍR-ingar fóru með sigur af hólmi eins
og í fyrri leiknum og eru því komnir í
bikarúrslitaleikinn sem fara mun fram 30.
mars.
Jafnt var á með liðunum fyrstu 10
mínútur leiksins og var staðan um tíma
20-20. Þá skiptu ÍR-ingar um gír og náðu
öruggri forystu fyrir hálfleik 68-38.
Seinni hálfleikur var fremur dapur á að
horfa og hélst munurinn u.þ.b. 20 stig allt
til loka. Lokatölur urðu svo 99-77 fyrir ÍR.
UMFNb: Þorsteinn Bjarnason 26,
Gunnar Þorvarðason 15, Árni Lárusson 12
og aðrir minna.
ÍR:Jón Örn Guðm. 20, Sturla Örlygsson
19, Björn Steffensen 18, Ragnar Torfason
12 og aðrir minna.
J.S.
1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2
Get-raunir!!!
Um síðustu helgi var sprengipottur í
íslenskum getraunum. En viti menn
sprengjan sprakk ekki og verður pott-
urinn því tvöfaldur um helgina.
Það var sem sé enginn með 12 rétta
um síðustu helgi, enda varla nema
von. Óvænt úrslit í ntörgum leikjum.
Það kom þó ekki í veg fyrir að 13 raðir
komu fram með 11 rétta og eru það
óvenjulega fáar raðir. Fyrir hverja
slíka röð voru 80.435. kr. í vinning.
Fyrsti vinningur, sem var kominn í
2.428.236 kr. flyst yfir á 8. leikviku og
búast má við því að potturinn verði
milli 4 og 5 milljónir um helgina.
BIS hópurinn er nú kominn með
góða forystu í hópleik getrauna eftir 6
umferðir. BIS hefur 62 stig, en næstir
koma FYLKISVEN og BIGGI með 60
stig. BOND SLÉTTBAKUR og
FÁLKAR hafa 59 stig. 11 rétta um
síðustu helgi voru FYLKISVEN,
GETOG, og DAGSSKOKK frá Sel-
fossi.
Framarar hafa verið duglegastir við
að merkja við félagsnúmer sitt af
stuðningsmönnum íþróttafélaganna,
síðan nýja sölukerfið var tekið upp.
Fram hefur fengið 11,47% af merktum
röðun, en Fylkismenn koma næstir
með 10,89 %. Þessi tvö félög eru í
nokkrum sérflokki, í næstu sætum
koma KR, ÍA, Valur, KA, Þór, Vík-
ingur, ÍBK og Breiðablik. Þessi félög
eru með um 53 % allra getraunaáheita
í landinu, en alls eru númershafar hjá
íslenskum getraunum 171. Ljóst er að
íþróttafélögin í landinu geta stóraukið
tekjur sínar með getraunasölu.
Ríkisútvarpið reif sig upp af botnin-
um í fjölmiðlaleiknum með því að hafa
8 rétta í síðustu viku. Þjóðviljinn náði
sér vel á strik með 7 rétta og Stöð 2~
hafði 6 rétta. Margir miðlar höfðu 5
rétta eða Tíminn, DV, Mbl. og
Bylgjan. Dagur og Stjarnan ráku lest-
! ina með 4 rétta.
! Staðan í fjölmiðlaleiknum er nú
j orðin all alvarleg fyrir undirritaðan
! Tíminn er nú einn í botnsætinu með 23
stig. Mbl. leiðir keppnina með 35 stig
og Bylgjan er í öðru sæti með 33 stig.
DV er í því þriðja með 32 stig. Næstir
koma Þjóðviljinn með 28 stig, RÚV og
Stöð 2 hafa 26 stig, Dagur 25, Stjarnan
24 og Tíminn rekur lestina sem
stendur, - eins og áður segir með 23
stig. Það er þó aðeins tímabundið, það
er næsta víst.
Undirritaður var búinn af lofa form-
legri afsökunarbeiðni ef Manchester
United ynni ekki sigur á Bournemouth
í bikarkeppninni. Jafntefli varð mörg-
um til mikillar skelfingar og er hér því
beðist afsökunar á spánni.
En lítum á næstu leikviku, sem er sú
8. í röðinni og nú springur sprengjan
sem ekki sprakk í síðustu viku.
Aston Villa-Charlton: x
Hér geta úrslit urðið á ýmsa lund, en
helst hallast ég að jafnteflinu og set x
á leikinn.
Derby-Everton: 1
Ég hika ekki við að treysta leikmönn-
um Derby til að sigra Everton á
Baseball Ground í Derby. Mínir menn
standa sig.
Millwall-Coventrv: x
Bæði þessi lið hafa komið mjög á óvart
á þessu keppnistímabili með góðum
árangri. Niðurstaðan verður jafntefli
eftir nokkrar vangaveltur.
Norwich-Maii. United: 2
Stórleikur helgarinnar. United liðið
hefur átt góðu gengi að fagna að
undanförnu og þrátt fyrir jafnteflið í
Bournemouth þá treysti ég þeim til
sigurs í þessum leik.
Southampton-Tottenham: 1
Tottenham liðið er hálfgert jójó-lið, á
ágæta leiki inná milli, en tapar síðan
jafnvel næsta leik. Ætla Dýrðlingarnir
hafi ekki sigur að þessu sinni.
Wimbledon-Sheffield Wed.: 2
Nú er komið að því hjá Sigga Jóns. og
félögum. Þeir finna sig vel undir stjórn
Atkinsons og leggja bikarmeistarana á
heimavelli þeirra.
Bournemouth-Portsmouth: 1
Bournemouthliðið er sterkt á heima-
velli, það fengum við að sjá síðastliðna
helgi gegn Man. United. Leikmenn
Portsmouth verða þeim ekki steinn í
götu á Dean Court.
Barnsley-Blackburn: x
Nú er það jafnteflið sem gildir í
þessum baráttuleik í 2. deildinni. Bæði
liðin eygja möguleika á 1. deildar sæti
að ári og gefa ekkert eftir.
Brighton-Watford: 2
Watford-liðið tekur nú á honum stóra
sínum leggur Brighton á útivelli. Liðið
er mun betra en Brighton eins og staða
þeirra í deildinni segir til um.
Oxford-Ipswich: 2
Þessi leikur getur farið á alla vegu, en
útisigur Ipswich hefur orðið fyrir valinu
að þessu sinni. Ekki væri úr vegi að
splæsa á þrítryggingu í þessum leik. f j
Stoke-Leicester: x
Sjaldan er ein báran stök og því kemur
hér enn eitt jafnteflið á seðlinum.
Sunderland-Hull: 1
Hér er á ferðinni öruggur heimasigur j
Sunderland og Hull liðið er enn eftirj
sig eftir leikinn gegn Liverpool um j
síðustu helgi.
skúli lúðvíks.
FJÖLMIÐLASPÁ
LEIKIR 25. FEB. ’89 J ffl 5 > Q TÍMINN Z z 3 > 8 2 | DAGUR | RÍKISÚTVARPIÐ | BYLGJAN 04 8 £ STJARNAN SAMTALS
1 X 2
Aston Villa - Charlton 1 1 X 1 1 1 1 1 1 8 1 0
Derby - Everton 1 X 1 X X 1 X 1 2 4 4 1
Millwall - Coventry 1 X X 2 X 1 1 X X 3 5 1
Norwich - Man. Utd. 1 X 2 X X X 2 1 2 2 4 3
Southampton - Tottenham X 2 1 2 2 2 2 2 2 1 1 7
Wimbledon - Sheff. Wed. 1 X 2 1 1 1 1 X X 5 3 1
Bournemouth - Portsmouth 1 X 1 1 1 1 1 X 2 6 2 1
Barnsley - Blackburn X X X 2 2 X 2 X 1 1 5 3
Brighton - Watford 2 2 2 2 2 2 2 1 X 1 1 7
Oxford - Ipswich 1 1 2 X X 2 X 2 1 3 3 3
Stoke - Leicester 1 1 X 2 1 1 1 1 2 6 1 2
Sunderland - Hull 1 1 1 1 1 1 1 1 X 8 1 0
1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2
Héðinn Gilsson hefur staðið sig mjög vel í leikjum íslenska landsliðsins í
B-keppninni í Frakklandi. í gær kom Héðinn inná í síðari hálfleik gegn
Hollendingum og skoraði 5 glæsileg mörk með þrumuskotum. Héðinn er
sannarlega maður framtíðarinnar í landsliðinu.
Handknattleikur:
Holland ekki hindrun
að settu takmarki
- frábær árangur íslands í B-keppninni í handknattleik
ísiand vann Hollendinga með 14
marka mun, 31-17, er liðið léku
síðasta leik sinn í milliriðli í B-
keppninni í handknattleik í Starborg
í gærkvöld. íslenska liðið hafði mikla
yfirburði í leiknum og lék á als oddi
Iengst af.
Kristján Arason gerði fyrsta mark
leiksins, en Hollendingar jöfnuðu
síðan 1-1. ísland gerði á næstu
mínútum tvö mörk fyrir hvert eitt
sem Hollendingar gerðu og munur-
inn jókst jafnt og þétt. Þegar blásið
var til leikhlés var munurinn orðinn
8 mörk 18-10, en lokakafli fyrri
hálfleiks var góður hjá íslenska lið-
inu.
Nokkurt bakslag kom í leik ís-
lenska liðsins í upphafi síðari hálf-
leiks og menn flýttu sér full hratt.
Leikmenn klúðruðu dauðafærum og
Hollendingar minnkuðu muninn í 7
mörk, 20-13. Þá kom til skjalanna
Héðinn nokkur Gilsson og þrumu-
skot hans þöndu netmöskva hol-
lenska marksins 5 sinnum á stuttum
kafla. Þar með var íslenska eimreið-
in komin að nýju á fulla ferð og
Jakob Sigurðsson sýndi mikið öryggi
í hraðaupphlaupunum. Munurinn
jókst að nýju og þrjú síðustu mörkin
í leiknum voru íslensk. Leiknum
Iauk með 14 marka íslenskum sigri
31-17.
Jakob Sigurðsson og Héðinn Gils-
son léku vel í þessum leik, en allir
leikmenn íslenska liðsins stóðu vel
fyrir sínu. Einar Þorvarðarson stóð
í markinu allan tímann og varði
mjög veúþar á meðal vítakast.
Hollenská liðið er ekki sterkt
þegar á heildina er litið, ert innborðs
hefur liðið á að skipa nokkrum
góðum leikmönnum.
Þessi leikur var erfiður fyrir ís-
lenska liðið þar sem markamunurinn
var aðalmálið. Pressan var mikil á
mönnum, en þeir stóðust þá raun og
kláruðu dæmið með sóma.
Mörkin skoruðu fyrir ísland: Jak-
ob Sigurðsson 8, Héðinn Gilsson, 5,
Þorgils Óttar Mathiesen 5, Kristján
Arason 4, Valdimar Grímsson 2,
Alfreð Gíslason 2, Sigurður Sveins-
son 2/2 og Sigurður Gunnarsson 1. í
hollenska liðinu var Van Moussel
var atkvæðamestur með 5 mörk.
Handknattleikur:
ísland í úrslita-
leikinn í París
- eftir jafntefli Rúmeníu og Sviss 16-16.
ísland varð í efsta sæti í sínum
milliridli í B-keppninni í Frakklandi
og leikur því tii úrslita á mótinu gegn
Pólverjum, sem sigruðu í hinum
milliriðlinum. Leikurinn verður kl.
13.00. á sunnudag og verður honum
bæði útvarpað og sjónvarpað hingað
til lands.
fsland fékk 8 stig í milliriðlinum,
en Rúmenar og Svisslendingar komu
næstir með 7 stig. Rúmenar höðfu
betra markahlutfall og.þeir leika því
um þriðja sætið við Spánverja. Svis-
slendingar leika um fimmta sætið við
Frakka. Þessar 6 þjóðir komast í
A-keppnina í Tékkóslóvakíu að ári,
en V-Þjóðverjar sem verið hafa í
fremst röð undanfarin ár sitja eftir
með sárt ennið. Þeir unnu Búlgari í
gærkvöld 25-13 en það dugði þeini
ekki.
í hinum riðlinum sigruðu Pólverj-
ar Frakka í gærkvöld og tryggðu sér
þar með réttinn til að leika til úrslita
gegn íslendingum. Spánverjar unnu
Kúbu 32-28 og Danir unnu stórsigur
á ísrael 32-17. Danir leika gegn
V-Þjóðverjum um 7. sætið á mótinu.
Kúbu-menn, Búlagarir, ísraelsmenn
og Hollendingar eru fallnir í C-
keppnina, en áður höfðu
Norðmenn, Kuwait-menn, Austur-
ríkismenn og Egyptar farið þá leið-
ina.
Árangur íslands í keppninni er
frábær og fjölmargir stuðningsmenn
liðsins ætla að bregða sér til Parísar
á sunnudaginn. Þegar er ein flugvél
orðin full í þá ferð og líkur eru til að
önnur vél verði fengin til. Til ham-
ingju strákar. BL
NU ER AÐ HROKKVA
EÐA STÖKKVA
Hver fær miiljónir m
á laugardaginn? l't
PS. Þú getur notað sömu tölurnar, viku eftir viku
- með því að kaupa tveggja, fimm, eða tíu vikna miða.
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511
SAMEINAÐA/SÍA