Tíminn - 24.02.1989, Síða 12
12 Tíminn
Föstudagur 24. febrúar 1989
FRÉTTAYFIRLIT
TOKYO - George Bush for-
seti Bandaríkjanna átti langa
og stranga dagskrá framundan
er hann vaknaði í Tokyo í
gærmorgun, en hann mun
ræða við fjölda þjóðarleiðtoga
á meðan hann dvelur í Japan
vegna jarðarfarar Hirohitos
Japanskeisara. Hann hitti Mitt-
errand forseta Frakklands og
forsætisráðherra Japans No-
boru Takeshita að máli og var
umræðuefnið efnahagslíf
heimsins og ástandið í Mið-
austurlöndum.
KARÍÓ - Sovétríkin munu
taka upp stjórnmálasamband
við ísrael ef þeir samþykkja að
taka þátt í friðarráðstefnu um
málefni Miðausturlanda og
hefji viðræður við PLO. Þetta
kom fram hjá Eduarde Shévar-
dnadze á blaðamannafundi.
MOSKVA -Mikhaíl Gorbat-
sjov aðalritari sovéska komm-
únistaflokksins og forseti Sov-
étríkjanna sakaði ýmsar stofn-
anir Sovétrikjanna um að mis-
nota umbótaáætlun sína.
JERÚSALEM - Teddy
Kolleg borgarstjóri í Jerúsalem
sem er nær öruggur um endur-
kjör í kosningum í næstu viku
hét því að Jerúsalem yrði ald-
rei höfuðborg Palestínuríkis.
LUANDA - Pik Botha utan-
ríkisráðherra Suður-Afríku og
Magnus Malan varnarmála-
ráðherra landsins sögðust
vera reiðubúnir til að bera vitni
fyrir nefnd er kannar spillingu í
viðskiptalífi Suður-Afríku. Þeir
eru sakaðir um að vera viðriðn-
ir misferli í bankakerfinu.
VÍN - Flugvél með ellefu
manns innanborðs hrapaði í
Konstansvatn á landamærum
Vestur-Þýskalands og Austur-
ríkis og er nokkuð Ijóst að allir
hafi farist. Á meðal farþega í
flugvélinni var félagsmálaráð-
herra Austurríkis. Kafarar hafa
fundið brak flugvélarinnar en
ekkert lík fundið.
Flugvélin var í eigu austur-
rísks flugfélags og var á leið
frá Vín til héraðsins Vorarlberg
í vesturhluta Austrríkis. Flug-
völlurinn í Hihenemsábökkum
Konstantínsvatns var lokaður
svo flugmaður vélarinnar
freistaði þess að fljúga yfir
vatnið til flugvallar í Altenreihn
í Sviss.
ÚTLÖND
llllli
Leiðtogar hinna sjö skæruliðahreyfínga í Afganistan sem mynduðu loks bráðabirgðastjórn í gær. Mojaddedi forseti er fjórði frá vinstri og Sayyaf
forsætisráðherra er lengst til hægri.
RÍKISSTJÓRN AFGANSKRA
SKÆRULIÐA LOKS MYNDUD
Afganskir skæruliðar kusu hinn
hófsama Sibghatullah Mojadiddi
sem forseta Afganistans en skærulið-
ar komu sér loks saman um bráða-
birgðastjórn eftir karp og ósætti
undanfarnar vikur. Forsætisráð-
herra bráðabirgðastjórnarinnar
verður hins vegar strangtrúarmaður-
inn Abdurrab Rasul Sayyaf.
Mojadiddi er leiðtogi einnar af
þremur hófsömu skæruliðahreyfing-
um Afgana sem berjast undir merkj-
um Mujahideen hreyfingarinnarsem
hefur bækistöðvar sínar í Pakistan.
Sayyaf er hinsvegar leiðtogi einnar
af fjórum skæruliðahreyfingum
strangtrúaðra múslíma sem vinna
saman undir merkjum Mjahiddeen.
Hins vegar eiga skæruliðar sem
hafa bækistöðvar sínar í íran ekki
aðild að ríkisstjórnini vegna deilna
um hve stóran hlut þeir eiga í Shura,
þingsamkomu skæruliða.
Gorbatsjov heim-
sækir Tsémóbýl
Gorbatsjov leiðtogi Sovétríkj-
anna heimsótti kjarnorkuverið í
Tsérnóbýl í gær og er það í fyrsta
sinni sem hann kemur þangað eftir
að kjarnorkuslysið mikla varð þar í
apríl árið 1986. Þá létust þrjátíu og
einn er eldur og sprenging varð í
kjarnakljúf versins með þeim af-
leiðingum að geislavirkt ský lagðist
yfir hluta Evrópu.
í ferð sinni um Úkraínu ákvað
Gorbatsjov að hitta að ntáli fjölda
verkamanna er vinna í kjarnorku-
verinu í Tsérnóbýl og einnig að
heimsækja bæinn Slavutich sem
byggður var fyrir íbúa bæjarins
Tsérnóbýl sem fluttir voru þaðan á
brott.
Sovétmenn staðhæfa að geisla-
virkni á þessum slóðum sé minni en
í Kænugarði, höfuðstað Úkraínu og
að ekkert sé að óttast af þeim sökum.
Arafat býður
Shamír í dans
Yasser Arafat leiðtogi Frelsis
samtaka Palestínu kom mönnum í
opna skjöldu er hann hélt blaða-
mannafund með tsraelskum blaða-
mönnum í Katró í gær og sagðist
vera reiðubúinn til að hitta Yitzhak
Shamír forsætisráðherra ísraels að
máli. Hins vegar sagðist hann ótt-
ast um líf sitt færi hann til ísracls.
Shamír vill Itins vegar ekkert við
Arafat tala né aðra sem tengjast
PLO auk þess sem hann útilokar
friðarráðstefnu um málefni Mið-
austurlanda þar sem Palestína tæki
einnig þátt í viðræðum. Á þetta
lagði hann ríka áherslu í opinberri
heimsókn sinni til Frakklands eftir
að PLO hafði ítrekað boð sitt um
viðræður við ísraela um framtíð
hernumdu svæðanna í Gaza og á
Vesturbakkanum.
Arafat sem var vopnaður .38
kalíbera skammbyssu á blaða-
mannafundinum ítrckaði aö
Mossad, leyniþjónusta ísraels væri
stöðugt eftir lífi hans og að ágrein-
ingur væri innan ísraelsku ríkis-
stjómarinnar um hvort ætti að
drepa Arafat. Sagði hann að Shar-
on iðnaðarráðherra ísrael myndi
myrða sig með eigin hendi ef hann
fengi færi á því.
ísraelsku blaðamennirnir eru nú
í Kaíró vegna heimsóknar Oshc
Arens utanríkisráðherra fsraels
sem hitti Shévardnadze utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna að máli í
borginni í gær.
Kína og Indónesía:
T aka upp stjórn-
málasamband á ný
Kínverjar og Indónesíumenn hafa
ákveðið að taka á ný upp stjórnmála-
samband og hefja samvinnu á ýms-
um sviðum, en allt fór í hund og kött
milli ríkjanna tveggja fyrir 22 árum
þegar ríkisstjórn Indónesíu sakaði
Kínverja um að standa á bak við
uppreisnartilraun sent þá var gerð.
Ákvörðun þessi var tekin á fundi
Suharto forseta Indónesíu og utan-
ríkisráðhcrra Kína, Kían Kítsjen,
en þeir hittust að ntáli í Tokyo þar
sem þeir verða viðstaddir útför Hir-
ohitos Japanskeisara í dag.
Tengsl ríkjanna verða nánar út-
færð í sendiráðum ríkjanna tveggja
við Sameinuðu þjóðirnar í New
York.
Indónesía er fimmta fjölmennasta
ríki heimsins og ráða Indónesíu-
menn yfir sjóleiðinni frá Indlands-
hafi til Kyrrahafs. Þeir hófu við-
skiptatengsl við Kínverja á nýjan
leik árið 1985.
Suharto sem ríkt hefur í Indónesíu
frá því hann braut á bak aftur
uppreisn kommúnista árið 1965, hef-
ur hingað til sett sig á móti stjórn-
málatengslum við Kína, en nú hafa
mál greinilega breyst.
Talið er að rúm hálf milljón
manna hafi látið lífið í átökum í
Kvikasilfurmengun
Tonn af kvikasilfri sem notað
hefur verið í stórri gullnámu á Am-
azonsvæðinu hefur mengað stór
svæði þar í kring og rennur nú með
jarðvatni út í Amazonfljót og ógnar
öllu lífrrki þar. Vísindamenn skýrðu
frá þessu á miðvikudag.
Þrírbras’ilískir vísindamenn sem
fylgst hafa með kvikasilfurmengun-
inni á þessum slóðum birtu niður-
stöður rannsókna sinna sem sýna að
magn kvikasilfurs í hári fólks á
þessum slóðunt er fjórtán sinnum
nteira en talið er óhætt miðað við
viðmiðanir Alþjóða heilbrigðis-
stofnunarinnar. Rannsóknir þeirra
sýna einnig að kvikasilfrið er er
komið inn í fæðúkeðjuna á þessum
slóðum og er farið að hafa ógnvæn-
leg áhrif á índíánaor búa á Amazon
kringum uppreisnina 1965 og var
kommúnistaflokkur Indónesíu þá
þurrkaður út.
ÚTLÖ
ógnar lífi
svæðinu.
-Á hverjum degi er líður renna
stærri og stærri skammtar af kvika-
silfri í árnar kringum Amazonfljótið,
sagði vísindamaðurinn Geraldo se
Assis Guimaraes þegar niðurstöð-
urnar voru kynntar.
-Ef við gerum ekki róttækar ráð-
stafanir og ef við leysum ekki kvika-
silfursvandann þá munu afleiðing-
Japanskeisari lagður til
hinstu hvílu í dag:
Sverð ogsmá-
sjá í kistu
Hirohitos?
Hirohito keisari Japans mun fá
hundrað persónulega muni með
sér í gröfina, þar á meðal sverð
er hann svaf með á hverri nóttu,
þegar hann verður jarðsettur
seinnipartinn í dag. Þetta kom
fram í frétt japanska dagblaðsins
Yomiuri Shimbun í gær.
Blaðið staðhæfir að persónu-
legir munir muni fylgja keisaran-
um til hinstu hvílu, þar á meðal
sé vesturþýsk smásjá sem keisar-
anum var mjög kær, en með
henni rannsakaði hann jurtir í
grasagarði sínum, en Hirohito
hafði mikið yndi af grasafræði.
Þá munu fjölmargar leikskrár
Sumo glímu verða lagðar með
keisaranum, en hann var einlæg-
ur áhugamaður um Sumo.
í Amazon
arnar verða hræðilegar fyrir fólkið á
Amazonsvæðinu.
Vísindamennirnir telja að á síð-
ustu sjö árum hafi um 1800 rúmmetr-
ar af kvikasilfri runnið út í náttúruna
vegna gullvinnslunnar á þessum
slóðum. Telja læknar að nú þegar
séu fjölmargir indíánar þjáðir af
kvikasilfureitrun.