Tíminn - 24.02.1989, Side 13
Föstudagur 24. febrúar 1989
Tíminn 13
UTLÖND
IIU
Blökkustúlka
tengd Mandela
myrt í Soweto
Þrettán ára blökkustúlka sem
tengdist lífvörðum Winnie Mandela
var skotin í bana í skotárás sem
óþekktir menn gerðu á heimili stúlk-
unnar sem er við sömu götu og
Maxwell Madondo lífvörður Winn-
iear var stunginn og grýttur til bana
í síðustu viku.
Þetta er nýjasta dauðsfallið sem
verður í tengslum við morðmál þar
sem lögreglan í Suður-Afríku segir
að lífverðir Winnie Mandela séu
riðnir við.
í varfærnislegri yfirlýsingu lög-
reglunnar segir að hugsanlega sé
árásin hefndarárás vegna morðsins á
Madondo, en kona er bjó í sama
húsi og stúlkan sem myrt var hafði
verið handtekin vegna aðildar að
morðárásinni á lífvörðinn.
Winnie Mandela, sem er einn
aðalleiðtogi baráttumanna fyrir
mannréttindum blökkmanna í Suð-
ur-Afríku, hefur beðið mikinn álits-
hnekk vegna þessa morðmáls. Hún
er nú litin hornauga af umheiminum
og öðrum blökkumannaleiðtogum
sem staðhæfa að félagar í Knatt-
spyrnufélaginu Mandela, sem í raun
eru lífverðir Mandela, hafi innleitt
tímabil óhugnaðar og hryllings í
blökkumannahverfið Soweto.
Tveir lífverðir Mandela hafa verið
ákærðir fyrir morðið á þrettán ára
dreng, Stompie Seipei, en rotnandi
lík hans fannst í pytti í byrjun
janúar. f kjölfar þess var læknir sem
sagður er hafa skoðað meiðsl drengs-
ins eftir barsmíðar lífvarðanna,
myrtur. Þá kom morðið á Madondo
og síðast lát stúlkunnar.
Arnaldo Forlani kemur fram hefndum í Kristilega
demókrataflokknum á italíu eftir sjö ára bið:
De Mita felldur
I formannskjöri
Forsætisráðherra Ítalíu Ciriaco
De Mita hefur verið sparkað sem
formanni Kristlegra demókrata-
flokksins þar í landi. Þetta setur
stjórnmálin á Ítalíu enn einu sinni í
óvissu þar sem ekki er ljóst hvort De
Mita hafi nú styrk til að leiða ítölsku
ríkisstjórnina. Stjórnarkreppur hafa
verið landlægar á Ítalíu undanfarna
áratugi.
De Mita var felldur í formanns-
kjörinu af Arnaldo Forlani helsta
andstæðingi De Mita innan
flokksins. De Mita hefur gegnt for-
mannsembættinu í sjö ár. Er al-
mennt talið að það sé mun valda-
meira en embætti forsætisráðherra.
De Mita laut í raun í lægra haldi
De Mita forsætisráðherra Ítalíu sem
var sparkað sem formanni Kristilega
Demókratafloksins af helsta keppi-
naut sínum, Farlani. De Mita bolaði
Farlani úr formannsembættinu árið
1982.
fyrir flokksbarónum er nú stóðu
sameinaðir gegn honum vegna
þeirra miklu valda sem hann hefur
haft undanfarna sjö mánuði sem
forsætisráðherra og formaður
flokksins. Þótti þeim hlutur sinn
orðinn heldur rýr.
Talið er að nú muni mikil valda-
barátta hefjast innan ríkisstjórnar
Italíu, en að henni standa fimm
stjórnmálaflokkar. Kristilegi demó-
krataflokkurinn er stærstur en sós-
íalistaflokkurinn undir stjórn Be-
nottis Craxi er næstur að fylgi og er
talið að hann muni reyna að semja
við Arnaldo Forlani um forsætisráð-
herraembættið framhjá De Mita.
Forlani var forsætisráðherra Ítalíu
í átta mánuði þar til hann neyddist
til að segja af sér vegna hneykslis-
málsins í kringum leyniregluna P-2,
en það mál felldi ríkisstjórnina 1981.
Þá sá De Mita sér leik á borði og
felldi Farlani í formannskjöri árið
1982. Nú hefur hann komið fram
hefndum.
vr\i\^v> ■ Mnr
FÉLAGSMÁLASKÓLI
Gissur Pétursson
Egill H. Gíslason
Finnur Ingólfsson
Hrólfur Ölvisson
Helgi Pétursson
Arnar Bjarnason
Samband ungra framsóknarmanna og Kjördæmissambönd
Framsóknarflokksins hafa ákveðið að fara á stað með
Félagsmálaskóla þar sem boðið verður uppá eftirfarandi
námskeið:
A. Grunnnámskeió í félagsmálum:
Efni: Fundarsköp og ræðumennska, tillögugerð, stefnumál
Framsóknarflokksins o.fl.
Tímalengd: 8 klst.
Leiðbeinendur verða: Gissur Pétursson, Egill Heiðar Gísla-
son, Finnur Ingólfsson, Arnar Bjarnason og Hrólfur Ölvisson.
Stefnt er að því að halda námskeiðið í febrúar og mars á
eftirtöldum stöðum ef næg þátttaka fæst: Reykjavík, Keflavík,
Selfoss, Vestmannaeyjar, Höfn, Egilsstööum, Akureyri, Sauö-
árkróki, ísafirði, Ólafsvík og Akranesi.
B. Fjölmiðlanámskeið:
Efni: Framkoma í sjónvarpi og útvarp. Undirstöðuatriði í
frétta- og greinaskrifum. Áhrif fjölmiðla.
Tímalengd: 16 klst.
Leiðbeinandi: Helgi Pétursson, fréttamaður. Stefnt er að því
að halda námskeið í Reykjavík og á Akureyri.
Þeir aðilar sem hafa áhuga á þessum námskeiðum eru hvattir
til að hafa samband við eftirtalda aðila:
Reykjavík: Skrifstofa Framsóknarflokksins, s. 91-24480
Reykjanes: Ágúst B. Karlsson, sími 91-52907
Vesturland: Bjarni Guðmundsson, sími 70068
Vestfirðir: Sigurður Viggósson, sími 94-1389
Noröurland vestra: Bogi Sigurbjörnsson, sími 95-71527
Norðurland eystra: Snorri Finnlaugsson, sími 96-61645
Austurland: Ólafur Sigurðsson, sími 97-81760
Suðurland: Guðmundur Búason, sími 98-23837
Samband ungra framsoknarmanna
Kjördæmissambönd Framsóknarflokksins
SUF í Viðey
Miðstjórnarfundur Sambands ungra framsóknarmanna verður hald-
inn laugardaginn 18. mars ( Viðeyjarstofu.
Dagskrá og sérmál fundarins auglýst síðar.
Framkvæmdastjórn SUF
Fjölmiðlanámskeið SUF
Fyrsta fjölmiðlanámskeið SUF og kjördæmissambandanna hefst
laugardaginn 11. mars kl. 10 í Nóatúni 21, Reykjavík.
Framkvæmdastjórn SUF
Fjölmiðla-
námskeið
Fjölmiðlanámskeiðið hefst fimmtudaginn 23. febrúar nk. kl. 17.30 og
stendur laugardaginn 25. febr. frá kl. 13.00 og sunnudaginn 26. febr.
frá kl. 13.00 að Nóatúni 21. Samtals 22 kennslustundir.
Kennari: Arnþrúður Karlsdóttir fjölmiðlafræðingur.
Getum enn bætt við örfáum þátttakendum.
Upplýsingar í síma 24480.
Stjórn LFK