Tíminn - 24.02.1989, Qupperneq 20
AUGL.VSINGASÍMAR: 680001 —686300
RÍKISSKIP
NÚTIMA FLUTNINGAR
Hatnarhúsinu v/Tryggvagotu,
S 28822
eru
Ætb
okkar jfaö!
tfERBBRtFftWHBKIPn
SHHUMMBAMCftNS
SUÐURLANOSSRAUT 1B, StMl: 688588
ÖNNUMST SMÍÐI OG
VIÐHALD LOFTRÆSTI-
KERFA OG ALLA
ALMENNA BLIKKSMÍÐI
OBDBBftBBUKXSF
Vagnhöfða 9, 112 Reykjavík
© 68 50 99
NÝJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
GÓÐIR BÍLAR
ÁG/ETIR BlLSTJÓRAR
Iíiniiin
FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚÁR 1989
Oli K. á fundi tveggja
Tíminn telur sig hafa heimildir fyrir því að nýverið hafi
tveir ráðherrar, tveir bankaráðsmenn Landsbanka íslands
og forstjóri Olís hist á fundi í utanríkisráðuneytinu til að
ræða málefni Olís.
Óli K. Sigurðsson forstjóri Olís neitaði í samtali við
Tímann í gær að hafa verið á ofangreindum fundi.
Yfirhöfuð sagðist hann ekki kæra sig um að tjá sig frekar
um allt þetta mál, fyrr en fallinn væri dómur varðandi
innsetningarkröfu Landsbankans hjá borgarfógeta. Það
gerist í dag.
Á áðurgreindum fundi sem
heimildarmenn Tímans fullyrða
að átt hafi sér stað voru ráðherr-
arnir Jón Baldvin Hannibalsson
og Ólafur Ragnar Grímsson.
Einnig voru mættir bankaráðs-
mennirnir Eyjólfur K. Sigurjóns-
son og Lúðvík Jósefsson. Fimmti
maðurinn var Óli í Olís að því er
okkar heimildir segja. Hvað rætt
hefur verið á þessum fundi er
erfitt að geta sér til um, og ekki
tókst að ná í ráðherrana í gær þar
sem þeir sátu ríkisstjórnarfund
fram eftir kvöldi.
Björn Björnsson bankastjóri
Alþýðubankans staðfesti í sam-
tali við Tímann í gær að Alþýðu-
bankinn hefði gengið í ábyrgð
fyrir Olís að upphæð um 22,5
milljónir króna til olíuflutninga.
Líkast til er hér um að ræða olíu
þá er Texaco á í birgðatönkum
Olís.
Óli K. staðfesti að Alþýðu-
bankinn hefði gefið út ábyrgðina
en vildi ekki tjá sig um hana að
öðru leyti en því að hann sagði að
mammmammmam
Landsbankinn hefði gefið það út
að hann fengi ekki ábyrgðir þar
og því hefði hann leitað annað til
bjarga sínu fyrirtæki. Það hefðu
allir gert slíkt hið sama í hans
sporum. Hann vildi ekki greina
frá þeim tryggingum sem hann
setti fyrir ábyrgðinni.
í dag verður kveðinn upp úr-
skurður varðandi innsetningar-
kröfu Landsbankans á hendur
Olís hjá borgarfógeta. Úrskurð-
inn kveður upp Valtýr Sigurðsson
borgarfógeti. _ES
ráðherra um Olísmálið?
Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráöherra, í hreingerningum:
Guðrún Ásta Sigurðardóttir, hjá tolladeild, Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, og Snorrí Olsen, í skattadeild.
Tímamynd Ámi Bjama
Fjármálaráðherra, Ólafur
Ragnar Grímsson, hefur haf-
ið tilraun til að leysa mikinn
vanda þeirra sem komust í
vanskil með greiðslu tekju
og eignaskatta þegar breytt
var yfir í staðgreiðslu. Fjöldi
einstaklinga virðist hafa ver-
ið í þeim vítahring að ýta
stöðugt vangoldnum skatti
sínum á undan sér og vera
þannig u.þ.b. einu til tveimur
árum á eftir með greiðslur.
Staða þeirra versnaði veru-
lega þegar þeir þurftu að
standa skil á staðgreiðslunni.
Á fundi í gær með blaða-
mönnum sagðist Ólafur
Ragnar halda að áætluð van-
skil af þessu tagi næmu um
þremur og hálfum milljarði
króna.
Fjármálaráðherra hefur nú ákveð-
ið að gefa þeim 10.000 einstaklingum
sem eru í mismiklum vanskilum af
þessu tagi, kost á að sækja um föst
afborgunarkjör á þriggja til fimm
ára skuldabréfum. Umsóknarfrest-
urinn er til 15. apríl og er gert ráð
fyrir að lokið verði við uppgjör í
síðasta lagi fyrir júnímánuð næst-
komandi. Er þá gert ráð fyrir að
fyrsta greiðsla á slíku skuldabréfi
verði 15. júní á þessu ári. Skulda-
bréfin verða verðtryggð miðað við
lánskjaravísitölu og bera frekar lága
raunvexti, eða frá 1,5% til 3,5%
eftir afborgunartíma.
„Það er alls ekki verið að fella
niður skattaskuldir eða gefa vanskil-
amönnum neinar ívilnanir umfram
á sem staðið hafa í skilum til
þessa,“ sagði Ólafur Ragnar. „Við
erum að bjóða þessum einstakling-
um samningsbundnar afborganir,
sem þeir geta staðið undir af því að
við erum að reyna að hreinsa til í
vanskilaskránni.“
Sagðist hann vera vongóður um
að fólk tæki þessu vel. Sagði hann að
frá því í ágúst hafi einstaklingar
verið að koma sjálfviljugir upp í
fjármálaráðuneyti til að leita eftir
viðlíka greiðslufyrirkomulagi og það
gæfi ráðuneytismönnum von um að
gera megi út um þetta vandamál.
Þeir einstaklingar sem þar um ræðir,
hafa samtals gert upp með ýmsu
móti um 600 milljónir króna.
Inni í tölu þeirri sem fjármálaráð-
herra áætlar að séu útistandi í van-
skilum, eru allir vanskilamenn nema
þeir sem lokið hafa málum sínum
fyrir skiptarétti. Þeir sem eiga yfir-
standandi mál fyrir skiptarétti eða
eru til skiptameðferðar eru inni í
þessari tölu. Þannig má búast við að
þessi þrír og hálfur milljarður rýrni
nokkuð, en ekki vildi ráðherra áætla
nokkuð um endanlegan árangur
þessara aðgerða.
Þess má geta að innan fárra daga
verða tilbúin í fjármálaráðuneytinu
sérstök eyðublöð fyrir vanskila ein-
staklinga sem sækja vilja um þessi
málalok. Ekki er gert ráð fyrir að
ríkið selji aftur þessi skuldabréf,
sem verða að vera með fasteignaveði
eða tvcggja manna sjálfskuldar-
ábyrgð. heldur verði þau þess í stað
til innheimtu hjá ríkisféhirði. KB
Aldarafmælis Kennarafé-
lags íslands minnst:
Fengu
gamla
kennara-
skólann
að gjöf
f gær voru hundrað ár liðin frá
stofnun fyrsta Kennarafélags
fslands. í afmælishófi sem var
haldið í tiiefni dagsins tilkynnti
Svavar Gestsson að íslenska
Kennarafélagið og Kennarasam-
band íslands fengi að gjöf frá
ríkinu gamla Kennaraskólann við
Laufásveg. Sá fyrirvari var þó
settur að Alþingi leggi blessun
sína yfir þessa ráðstöfun. þar sem
ekki var gert ráð fyrir afmælis-
gjöfinni á fjárlögum og fjárveit-
ingarnefnd hefur ekki fjallað um
málið. Það skilyrði er einnig sett
að Rannsóknastofnun uppeldis-
mála hafi áfram aðsetur í
Kennaraskólanum.
í lögum fyrsta kennarafélagsins
var tilgangur þess sagður vera
„að efla menntun hinnar íslensku
þjóðar, bæði alþýðumenntunina
og hina æðri menntun, auka sam-
vinnu og samtök miili íslenskra
kennara og hlynna að hagsmun-
um kennarastéttarinnar í öllum
greinum andlegum og líkamleg-
um.“
Undirbúningsnefnd á vegum
KÍ og HKÍ hefur jafnframt lagt
drög að fleiri uppákomum síðar
á árinu vegna afmælisins. Þegar
hefur verið farið þess á leit við
menntamálaráðherra að rituð
verði skólasaga íslands. Einnig
er unnið að því að kanna hvort
hægt sé að koma á fót skólaminja-
safni. Fyrsti vísirinn að slíku
safni yrði þá sýning sem haldin
yrði í ár. JKB/SSH