Tíminn - 11.03.1989, Blaðsíða 1

Tíminn - 11.03.1989, Blaðsíða 1
Óhug og skelfingu sló á menn árið 1912, þegar konungur Danmerkur og íslands fannst látinn á götu í hinu alræmda lausungarhverfi St. Pauli í Hamborg Herbergisþjónn konungsins tilkynn- ti honum skelfingu lostinn að kon- ungurinn væri horfinn og að enginn vissi Itvar hann væri niður kominn. Samstundis voru gerð boð fyrir for- stjóra hótelsins, Wache. Hann kom af fjöllum sem aðrir. Hann lét leita í dyrum og dyngjum á hótelinu, cn allt kom fyrir ekki. Konungurinn hlaut að hafa farið út. Hótelstjórinn sýndi aðdáunar- veröan skörungsskap við þessar erf- iðu kringumstæður. Hann lór að athuga málið á skemmtistað í grenndinni. Staöurinn hét Troca- dero, næturklúbbur, þar sem dans og aðrar lystisemdir voru á boðstól- um og þar var opið til sex á morgn- ana. En hér var cngan kóng að sjá. Þá rcyndi Wache fyrir sér á öðrum ámóta stað, ekki langt frá, Vietoria Bar. Þar varenginn Friðrik konung- ur heldur. Launtulegar fyrirspurnir báru ekki minnsta árangur, cnginn hafði séð hann. Menn fóru að gerast örvæntingu nær. En Wache hótelstjóri missti ekki móðinn. Eftir að hafa ráðgast viö Brockenhuus-Shack, hirðmar- skálk, fórhann á næstu lögrcglustöð. Eins og áður hefur veriö getið leyndi konungur nafni sínu og stöðu í ferðinni. Wache minntist Iteldur ekki á neinn konung er hann ræddi við varðstjórann. Hann sagði að danska „grcifans al' Kronborg" væri saknað af fylgdarliði hans og gaf lýsingu á manninum. Hafði lögrcgl- an í Hamborg nokkra hugmynd um hvar hann væri? Hræðilegur grunur vaknar Lögreglumennirnir báðu hótel- stjórann að sýna stillingu. Þeir vissu hvorki eitt eða neitt, en þeir lofuðu að málið yrði kannað daginp cftir. En þcgar hótelstjórinn ætlaði að fara kom lögreglumaður inn á stöð- ina. Hann heyrði hvað verið var að ræða um og hafði fréttir að færa, sent síður en svo voru til þess fallnar að bægja kvíðanum burtu úr hjarta Wache hótelstjóra: Fyrr um nóttina hafði líkið af snyrtilega klæddum, eldri manni verið flutt í líkhúsið á hafnarsjúkrahúsinu, Hafenkranken- haus. Hafenkrankenhaus var í miðju hafnarhverfi Hamborgar. St. Pauli, nánar tilgreint á horninu á aðalgötu þcss, Reeperbahn. Árið 1912 var hafnar og skemmtanahverfið St. Pauli hið alræmdasta í öllum heimi. í St. Pauii mátti kaupa sér hvaða lystisemdir sent var - allra handa bólfélaga og eiturlyf og þar voru framdir allir þeir glæpir sem hugsast máttu. Hafcnkrankcnhaus var það sjúkrahús sem allir vegalausir sjúkl- ingar í Hamborg voru fluttir á, og þar var líka líkhús, la Morgue, Hamborgarlögreglunnar. Þangað voru færð lík manna, sem ekki hafði tekist að bera kennsl á og höfðu fundist í höfninni eða rennusteinin- um, lík sem höfðu fundist falin í skúmaskotum cða eftirlegukindur hnífa- og skotbardaga. Á líkhúsinu í Hafenkrankenhaus var sem sé að Síðdegis hinn 8. ágúst 1907 er ólga meðal manna í Reykjavík. Ritstjórar Þjóðólfs og ísafoldar grípa andann á lofti og svo fer ritsíminn að tifa og fréttin hefur brátt borist yfir lönd og höf: Uppi á Kolviðarhóli hefur Friðrik konungur áttundi í skálaræðu talað um ísland og Danmörku, sem „BÆÐI RÍKIN SIN“! Talaði hans hátign af sér um þetta ofurviðkvæma og stórpólitíska mál - eða hvað...? Frá Kolviðarhóli er fimm stunda reið til Reykjavíkur og þótt blaðamenn brenni af eftirvæntingu þegar konungur og fylgdariið hans kemur til bæjarins, þykir ekki hæfa að ganga á konung með nærgöngulum spurningum, enda má ekkert varpa skugga á gleðilega og hátíðlega nærveru hans í íslandsheimsókninni. En í mörgu horni eru vindlar reyktir og margt koníaksstaupið tæmt, meðan velt er vöngum yfir þýðingu þessara orða og svo verður lengi á eftir, þótt konungur sé þá löngu kominn í faðm beykiskóga sinna við Eyrarsund. Ekki síst vegna þessa atviks hefur Friðrik konungur áttundi löngum verið heldur vel séður á íslandi. Hann var ólíkur hinum stranga föður sínum, Kristjáni 9., gleðimaður mik- l og samkvæmismaður, enda fór vel á með þeim Hannesi Hafstein, ráð- herra, sem gjarna hyllti vín og kvennaástir í Ijóði. En fimm árum eftir íslandsheimsóknina var jöfur allur og það við kringumstæður, sem danska hirðin hefði mikið viljað gefa fyrir að legið hefðu í þagnargildi: Hátignin fannst sálaður á götu í hinu alræmda lausungarhverfi, St. Pauli í Hamborg, og var fluttur sem hver annar umrenningur í líkhús á fá- tækraspítala. Um þetta viðkvæma mál hafa nánari upplýsingar að von- um ekki legið á lausu, en fyrir skemmstu aflaði ungur, norskur sagnfræðingur, Öystein Sörensen, sér upplýsinga um málsatvik, sem við tökum hér traustataki, lesendum Helgar-Tímans til fróðleiks. Á heimleið frá Riviérunni Síðdegis þann 14. maí 1912 kom Friðrik 8. til Hamborgar. Hann hafði með sér fámennt fylgdarlið. í þessu fylgdarliði var Lovísa drottn- ing og þrjú yngstu börnin, þau Thyra prinsessa, Dagmar, prinsessa og Gústav prins. Þá yfirhirðmar- skálkurinn, Franz Brockenhuus- Shack, greifi og kammerherra, og Oscar Bloch, líflæknir. Nokkrir þjónar voru og með, en elsti sonur konungs, Kristján, var heima í Kaupmannahöfn. Sonurinn Karl, sem árið 1905 hafði verið valinn Noregskonungur undir nafninu Hákon 7., var að vonum ekki í foreldrahúsum lengur. Konungurinn og fylgdarlið hans voru á heimleið frá frönsku Riviér- unni. Ætlunin var að dvelja eina nótt í Hamborg í því skyni að járnbrautarferðin reyndi ekki um of á konunginn. Hann hafði átt við hjartakvilla að stríða og árið áður höfðu læknar greint að hann þjáðist af kransæðastíflu. En í Suður-Frakk- landi hafði hann hvílt sig vel og notið hins milda loftslags nokkrar vikur. hirðir í Evrópu hafði hann verið kallaður „eilífðarkrónprinsinn" því faðir hans hafði setið í hásætinu í 43 ár, eða frá því er hann tók við af síðasta Aldinborgarkonunginum, Friðriki 7., 1863. Hinn tigni hópur fékk inni í við- hafnarherbergjunum á hótelinu Hamburger Hof. Konungur hafði ekki viljað láta vita hver liann var í ferðinni og var því skráður í bækur hótelsins sem „greifinn af Kronborg". En hinir reyndu og nærgætnu starfsmenn hótelsins vissu þó vel hver maðurinn var. „Greifinn af Kronborg" hafði verið í Hamborg áður og alltaf gist á Hamburger Hof. Um kvöldið borðaði Friðrik kon- ungur og föruneyti á hótclinu. Kon- ungurinn var í besta skapi. Þegar drottningin og prinsessurnar tvær fóru upp á herbergi sín um níuleytið, sat hann áfram í reyksalnum og spjallaði við þá Bloch, Brocken- huus-Shack og Gústav prins. Skömmu síðar gengu þcssir menn einnig til náða. En ekki Friðrik konungur. Hon- um þótti full snemmt að fara í rúmið og sat enn um stund niðri - aleinn. Um klukkan tíu fór konungur í Greifinn af Kronborg Friðrik var 68 ára árið 1912 og hann hafði verið konungur frá árinu 1906. Bæði í Danmörku og við aðrar Wache hótelstjóri fær í nógu að snúast Um klukkan tvö um nóttina vakn- aði Brockenhuus-Shack, greifi, við það að barið var ákaft á dyr hans. Jungfemstieg við Alstervatnið í Hamborg, er gatan sem blasir við til vinstri hér á myndinni. Myndin er tekin eftir stríð og hótel Ham- burger Hof er ekki að finna lengur á sínum gamla stað. gönguferð út í borgina. Hann lét engin orð falla um hvert hann ætlaði og samferðafólkið liélt að hann mundi einnig hafa farið í rúmið. Friðrik 8. á yngri árum. Hann var þægilegur maður í umgengni og gefinn fyrir munúðarlíf. Það orð sem af honum fór í hvíslingum „elti hann uppi um síðir“.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.