Tíminn - 29.04.1989, Síða 11
Laugardagur 29. apríl 1989
Tíminn 23
FRÉTTAYFIRLIT
PARÍS - Frakkar segjast
ætla að vísa þremur suðurafr-
ískum sendiráðsmönnum úr
landi til að mótmæla því að
stjórnvöld í Pretoríu reyndu að
kauþa og koma stolnu bresku
flugskeyti úr landi í Frakklandi.
Einn þeirra sem vísað verður
úr landi er Daniel Storm sem
tekinn var fastur 21 .apríl ásamt
þremur mótmælendum frá
Norður-írlandi. Einnig Banda-
ríkjamaður, sem ásamt Daníel
Storm var að gera samning um
vopnakaup.
ANTANANARIVO - Jó-
hannes Páll páfi kom til Ma-
dagaskar í fimmtu heimsókn
sinni til Afríku.
HÖFÐABORG - Nú þegar
eru ekki fleiri en 400 skæruliðar
Swapi í Namibíu virðist vera
að nást samkomulag milli
Kúbumanna, Angólumannaog
Suður-Afríkana um fram-
kvæmd friðaráætlunarinnar í
Namibíu og sjálfstæði þessar-
ar fyrrum nýlendu Suður-Afr-
íku. 1300 skæruliðar hafa nú
þegar yfirgefið Namibíu.
WASHINGTON - Bush
forseti Bandaríkjanna mun að
líkindum halda til Póllands
þegar hann fer í opinbera
heimsókn til Evrópu íjúlí.Hann
mun jafnvel heimsækja önnur
austantjaldsríki í leiðinni.
PARÍS - Raul Sendic, sem
leiddi hina öfgafullu og vinstri-
sinnuðu borgarskæruliða-
samtök Tupamaros í lok sjö-
unda og byrjun áttunda ára-
tugarins, lést á frönsku sjúkra-
húsi 64 ára að aldri.
MOSKVA-Sagnfræðingur-
inn Roy Medvedev sem var í
fangelsi um árabil vegna upp-
Ijóstra sinna um glæpaverk
Stalíns var tekinn inn í kom-
múnistaflokkinn 20 árum eftir
að honum var sparkað út í ystu
myrkur vegna sagnfræðirann-
sókna sinna.
VARSJÁ - Fyrsta löglega
útvarpssending hinna óháou
verkalýðssamtaka Samstöðu
undanfarin sjö ár var send út í
gær. Þar mátti heyra pólska
andófssöngva og ræður gegn
stjórnvöldum - og beiðni um
f kosningasjóði
ÚTLÖND
Danskur „Rambó“ myrðir
fjóra í Kaupmannahöf n
Tuttugu og sjö ára danskur „Rambó“ gekk berserksgang í
Kaupmannahöfn á fimmtudagskvöldið. Hann myrti vinkonu
sína, dóttur þeirra og tvær aðrar konur áður en hann framdi
sjálfsmorð með riffli. Eru þetta hryllilegustu morð í Dan-
mörku í manna minnum.
Þá er talið að Rene hafi staðið
fyrir tveimur skotárásum í Kaup-
mannahöfn á fimmtudagskvöldið. í
öðru tilvikinu var maður skotinn
þremur skotum í hnakkann þar sem
hann ók bifreið sinni um úthverfi
Kaupmannahafnar. Maðurinn er
þungt haldinn á sjúkrahúsi. Síðar
um kvöldið var ekið á tvo vegfarend-
ur í miðborg Kaupmannahafnar og
skotið á þá úr bílnum. Skotin geig-
uðu en fólkið meiddist lítilsháttar.
Maðurinn Rene Trollesoe var út-
búinn líkt og hin vafasama „kvik-
myndahetja" Rambó, vopnaður
haglabyssu, þremur skammbyssum,
handsprengjum og sverði. Morðin
framdi hann á svipaðan hátt og
tíðkast í hinum vinsælu ofbeldis-
myndum um Rambó.
Lögreglan fann lík Rene og vopn
hans í bifreið hans snemma í gær-
morgun að sögn lögreglu. Við húsleit
á heimili hans gekk lögreglan síðan
fram á lík 27 ára sambýliskonu Rene
og fimm ára dóttur hans. Síðar
fundust lík kvennanna tveggja á
heimili þeirra og er ljóst að Rene
myrti þær líka en hann þekkti þær
allvel. Bíll hans hafði sést á sveimi
nálægt húsi þeirra á fimmtudags-
kvöldið og öll ummerki voru þau
sömu og á heimili Rene.
Sylvester Stallone í gervi ofur-
mennisins og drápsvélarinnar
Rambó. Rambó var greinilega fyrir-
mynd Dana sem gekk berserksgang
i Kaupmannahöfn á fimmtudag og
myrti fjórar manneskjur.
Márítanar blóðþyrstir í Nouakchott:
M0RDALDA RIÐUR
YFIR SENEGALA
Senegalar sem flúið hafa til heimalands síns vegna kyn-
þáttaofsókna í Márítaníu segja að um fjögurhundruð manns
úr þeirra hópi hafi verið barðir eða stungnir til bana í
Nouakchott höfuðborg Márítaníu á mánudag og þriðjudag.
Það hafa engar opinberar tölur verið birtar um það hve
margir Senegalar hafa verið drepnir, en fréttir af sjúkrahúsum
hermdu að a.m.k. hundrað Senegalar hefðu verið drepnir.
farið stigmagnandi undanfarnar vik-
ur vegna deilna um beitarrétt á
landamærum ríkjanna, sérstaklega
eftir að tveir bændur frá Senegal
voru drepnir af landamæravörðum
frá Márítaníu 9. apríl. Slæmt efna-
hagsástand og rótgróin spenna milli
kynþátta hafa haft sitt að segja.
Senegalarnir sem flúið hafa Márí-
taníu hafa ekki haft fallegar sögur að
segja frá atgangi Márítana:
- Þeir brutust inn á heimili mitt og
rændu öllu áður en þeir drápu karl-
mennina með öxum, kylfum eða
hnífum, sagði kona sem flúið hafði
Nouakchott með tveggja ára barn
sitt.
Þessar fréttir frá Márítaníu voru
ekki Iengi að koma af stað ofbeldis-
öldu í Senegal þar sem fólk frá
Márítaníu fékk að gjalda grimmdar-
verka landa sinna á heimaslóðum.
Að minnsta kosti þrettán Márítanar
voru grýttir til bana í Dakar höfuð-
borg Senegal í gær.
Herinn í Senegal hafði komið á
röð og reglu í Dakar eftir þriggja
daga óeirðir þar sem verslanir fólks
af márítönsku bergi brotnu höfðu
verið rændar. Hins vegar hófust
morð á Márítönum í Senegal ekki
fyrr en í gær.
Spennan milli íbúa þessara
tveggja ríkja í Vestur-Afríku hefur
Senegalarnir sem sloppið hafa lif-
andi ásaka öryggislögregluna í Márí-
taníu um vísvitandi seinagang við að
koma í veg fyrir ofbeldisverkin.
Svo virðist að óeirðaseggir hafi
þyrmt konum og bömum í morð-
árásum sínum. Talið er að um sjö-
þúsund Senegalar hafi leitað sér
hælis í stærstu mosku Nouakchott-
borgar.
Það sama gerðist í Dakar, en talið
er að um 15 þúsund Márítanar hafi
leitað hælis í moskum þar. Þeir hafa
nú flestir verið fluttir í öruggt skjól.
Um 30 þúsund Senegalar, flestir
farandverkamenn dvelja að stað-
aldri í Márítaníu og um 300 þúsund
Márítanar, flestir kaupmenn, búa í
Senegal.
Tveir þriðju Márítana eru Márar
og ljósir á hörund á meðan flestir
Senegalar eru blökkumenn.
Ríkisstjórnin í Senegal hefur lýst
vilja sínum til þess að flytja heim
með flugi þá Senegala í Márítanfu
sem vilja yfirgefa landið.
Loks kemst
á vopnahlé
í Líbanon
Vopnahlé komst á í Líbanon á
hádegi í gær eftir að kristnir
menn samþykktu nýjar vopna-
hléstillögur Arababandalagsins.
Múslímar höfðu samþykkt tillög-
urnar í fyrrakvöld. Umferð hefur
verið hleypt gegnum varðstöðvar
á svokallaðri grænni línu sem
skiptir hverfi kristinna og mús-
líma í Beirút.
Það voru hermenn Sýrlendinga
og múslíma sem lokuðu fyrir
umferð milli austur- og vestur-
hluta Berlína eftir að kristnar
hersveitir höfðu lokað höfnum
þaðan sem hersveitir múslíma
höfðu fengið vopn og vistir.
Það verða fulltrúar Araba-
bandalagsins, sem fylgjast með
því að vopnahléið verði virt, en
átök síðustu fimm vikna hafa
kostað að minnsta kosti 230
manns lífið og neytt 1,5 milljón
íbúa Beirút að dvelja meira og
minna í kjöllurum og sprengi-
byrgjum.
Arababandalagið hvatti til
vopnahlésins í fyrradag eftir sér-
stakan fund utanríkisráðherra
Arabalandanna í Túnis. Araba-
bandalagið hefur gert fjölda til-
rauna til að stilla til friðar, en þær
hafa hingað til farið út um þúfur.
Sekir um manndráp
á Heyselleikvangi
Belgískur dómstóll dæmdi fjór-
tán breska knattspyrnuáhangendur
Liverpool í þriggja ára fangelsi
eftir að þeir höfðu verið fundnir
sekir um manndráp í Heysel árið
1985. Þá létu þrjátíu og níu manns
lífið, flestir ftalar þegar áhangend-
ur Liverpool gerðu aðsúg að
áhangendum Juventus á úrslitaleik
Evrópukeppni meistaraliða sem
háður var á Heysel leikvanginum.
Alls voru tuttugu og fjórir menn
ákærðir fyrir að hafa stofnað til
óeirðanna sem varð áhorfendunum
að aldurtila þegar girðing milli
áhangenda Liverpool og Juventus
brast og fólk tróðst undir þegar
fylkingunum laust saman. Pierre
Verlynde dómari sýknaði tfu
þeirra.
Dómarinn úrskurðaði einnig að
lögreglan í Heysel og belgíska
knattspyrnusambandið hefði
brugðist illilega í öryggisgæslu á
úrslitaleiknum og bæru því nokkra
sök á harmleiknum.
Dómarinn dæmdi Albert Roos-
ens forseta belgíska knattspyrnu-
sambandsins til að greiða 300 þús-
und franka sekt vegna þessa, en
hafnaði kröfum saksóknara um sex
mánaða fangelsi.
Dómarinn hafnaði kröfum ætt-
ingja þeirra er létust um að tveir
embættismenn Knattspyrnusam-
bands Evrópu yrðu sóttir til saka
vegna þessa máls.
Mótmæli stúdenta í Kína:
Stjórnvöld bjóða
upp á viðræður
Leiðtogar kínverskra stúdenta
hittust að máli í gær til að móta
samstæða afstöðu til tilboðs stjórn-
valda um viðræður. Eftir fjölmenn-
ustu kröfugöngu sem haldin hefur
verið í Peking, sem ein milljón
manna tók þátt í, sáu stjórnvöld sér
þann kost vænstan að bjóða upp á
viðræður um kröfu stúdentanna.
Fulltrúar frá háskólum í Peking voru
ekki sammála um það hvernig ætti
að bregðast við yfirlýsingu Ríkisráðs
Kína um að það vildi gjarnan ræða
kröfur stúdentanna sem leiða andóf-
ið.
Stúdentarnir krefjast þess að lýð-
ræði verði auki, málfrelsi og prent-
frelsi tryggt og að mannréttindi í
Kína verði bætt. Þá vilja þeir að
tekjur og hlunnindi leiðtoga komm-
únistaflokksins verði gerð opinber.
Þá hafa róttækustu stúdentarnir
krafist afsagnar Li Peng forsætisráð-
herra landsins og aðstoðarmanns
hans Jao Jilin.
Þó gangan mikla í Peking hafi
farið að mestu friðsamlega fram þá
var ekki það sama upp á teningnum
í Xian. Þar réðust námsmennirnir að
lögregunni með grjótkasti. Lögregl-
an svaraði með harkalegri barsmíð
og fengu áhorfendur einnig að kenna
á kylfunni.