Tíminn - 09.05.1989, Blaðsíða 16

Tíminn - 09.05.1989, Blaðsíða 16
16 Tíminn Þriðjudagur 9. maí 1989 lllllllllllllHlllllllllllll DAGBÓK Aðalfundur Húnvetningafélagsins Húnvétningafélagið í Reykjavík heldur aðalfund sinn fimmtudaginn 11. maí kl. 20:00 í Húnabúð, Skeifunni 17. Aðalfundur Félags raungreinakennara Félag raungreinakennara boðar til aðalfundar í Kvennaskólanum í Reykja- vík, Fríkirkjuvegi 9, fimmtudaginn 11. maí kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kristján Jónasson flytur erindi sem hann nefnir: Hvernig reikna reiknivélar sínusa og kvaðratrætur. Stjórnin Gestafundur Kvenfélags Kópavogs Gestafundur verður haldinn fimmtu- daginn 11. maí í Félagsheimilinu í Kópa- vogi kl. 20:30. Skemmtiatriði og kaffiveit- ingar. Frá Samtökum herstöðvaandstæðinga Samtökin boða til fundar á hernáms- daginn, 10. maí, í Risinu, Hverfisgötu 105 kl. 20:30. Fundurinn er haldinn í tilefni áætlana um heræfingar hér á landi í júní. Samtökin vilja skipuleggja mót- mæli gegn heræfingunum og er skrifstofa þeirra opin á mánudögum og föstudögum kl. 14:00-16:00, sími 17966. BILALEIGA meö utibu allt i kringurri landiö, gera þer mögulegt aö leigja bíl á einum staö og skila honum á öörum. Reykjavík 91-31615/31815 Akureyri 96-21715/23515 Pöntum bíla erlendis interRent Ðilaleiga Akureyrar Vortönleikar í Mosfellsbæ Karlakórinn Stefnir í Mosfellsbæ held- ur vortónleika í Hlégarði þriðjud. 9. maí kl. 21:00 og Hlégarði miðvikud. 10. maí kl. 21:00. Stjórnandi kórsins er Lárus Sveinsson, undirleikari er Guðrún Guðmundsdóttir. Einsöngvarar eru: Sigrún Hjálmtýsdóttir, Þórður Guðmundsson og Ármann Sig- urðsson. Ráðgert er að kórinn fari í söngferð til Danmerkur og Noregs. Einnig er ráðgerð heimsókn til vinakórs Stefnis í Levanger í Noregi. 57 söngmenn syngja f karlakórnum Stefni. Formaður er Björn Ó. Björgvins- son. Orgeltónleikar í Hallgrímskirkju Dagana 8.-12. maí verða orgeltónleik- ar daglega kl. 12:30 frá mánudegi til föstudags. Hallgrímskirkja: Vesper Vesper. Dagana 8.-12. maí flytja guð- fræðinemar og félagar úr ísleifsreglunni tíðagjörð hvern dag kl. 18:00 með kirkju- gestum. Minningarkort Styrktarsjóðs bamadeildar Landakotsspítala Styrktarsjóður barnadeildar Landa- kotsspítala hefur látið hanna minningar- kort fyrir sjóðinn. Sigríður Bjömsdóttir myndlistarmaður og kennari teiknaði fjögur mismunandi kort. Eftirtaldir staðir selja minningarkortin: Apótek Seltjamamess, Vesturbæjar- apótek, Hafnarfjarðarapótek, Garðsapó- tek, Holtsapótek, Mosfellsapótek, Ár- bæjarapótek, Lyfjabúð Breiðholts, Reykjavfkurapótek, Háaleitisapótek, Kópavogsapótek, Lyfjabúðin Iðunn. Blómaverslanimar; Burkni, Borgarblóm, Melanóra Seltjamamesi og Blómaval Kringlunni. Einnig eru þau seld á skrif- stofu og barnadeild Landakotsspítala. Minningarkort Áskirkju Eftirtaldir aðilar hafa minningarkort Safnaðarfélags Áskirkju til sölu: Þuríður Ágústsdóttir, Austurbrún 37, sími 681742 Ragna Jónsdóttir, Kambsvegi 17, sími 82775 Þjónustuíbúðir aldraðra, Dalbraut 27 Helena Halldórsdóttir, Norðurbrún 1, Guðrún Jónsdóttir, Kleifarvegi 5, sími 681984, Holtsapótek, Langholtsvegi 84, Verslunin Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27, Verslunin Rangá, Skipasundi 56. Þá gefst þeim, sem ekki eiga heiman- gengt, kostur á að hringja í Áskirkju, sími 84035 milli kl. 17:00og 19:00og mun kirkjuvörður annast sendingu minningar- korta fyrir þá sem þess óska. TÖLVUNOTENDUR Við í Prentsmiðjunni Eddu hönnum, setjum og prentum allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu. Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000 t Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem auðsýndu okkur samúð við fráfall og útför mannsins míns, sonar, föður, tengdaföður og afa Gísla Guðmundssonar, bifreiðastjóra Stffluseli 14 (áður Tunguseli 3) Sérstakar þakkir til starfsfólks Landsvirkjunar og deildar 11-E á Landspítalanum. Guð blessi ykkur öll. Guðrún Árnadóttir Guðmundur Matthíasson Jóhanna G. Gísladóttir Guðmundur J. G íslason Ólöf B. Jónsdóttir Árni J. Steinþórsson Hulda D. Jónasdóttir og barnabörn. Listasafn íslands: MYND MÁNAÐARINS Mynd aprílmánaðar í Listasafni íslands er MOSIVIÐ VlFILSFELL eftir Jóhann- es S. Kjarval. Myndin er unnin í olíu árið 1940, stærð hennar er 115 X 143.5 sm og var hún keypt til Listasafnsins árið 1941. Mosi við Vífilsfell hangir nú uppi í sal 1. Leiðsögnin „Mynd mánaðarins" fer fram í fylgd sérfræðings á flmmtudögum kl. 13:30-14:45 og er leiðsögnin ókeypis. Listasafnið er opið alla daga kl. 11:00- 17:00 og er veitingastofa hússins opin á sama tíma. Pennavinur í Bandaríkjunum Borist hefur bréf frá 36 ára gömlum einhleypum manni í Bandaríkjunum, sem hefur áhuga á að komast í bréfasamband við lslendinga, - einkum konur, en svarar öllum bréfum. Hann segist hafa áhuga á myndatökum, frímerkjasöfnun, mynt- söfnun, smíði úr tré, ferðalögum og sportbílum. Utanáskrift til hans er: Mr. Jack M. Colbert, Somerset County Jail P.O. Box 3000 Somerville, NJ 08876 USA Hvítasunnuferðir F.í. 12.-15. maí Öræfajökull. - Lagt upp frá Virkisá við Svínafell, gengið upp Virkisjökul, utan í Falljökli og áfram sem leið liggur á Hvannadalshnúk (2119 m) Gist í svefn- pokaplássi á Hofi í Öræfasveit. Þórsmörk - Fimmvörðuháls Gengið á skíðum yfir Fimmvörðuháls. Gönguferðir um Mörkina. Gist í Skag- fjörðsskála í Langadal. Snæfellsnes - Snæfellsjökull. Gengið á Snæfellsjökul (1446 m) og farnar skoðun- arferðir á iáglendi. Gist í gistiheimilinu Langaholti, Staðarsveit. Brottför í allar ferðirnar kl. 20:00 föstudaginn 12. maí. Upplysingar og farmiðasala á skrifstofu F.I. Óldugötu 3. Greiðslukortaþjónusta. TU athugunar fyrir ferðamenn: Um hvítasunnu verður ekki leyft að tjalda á umsjónarsvæði Ferðafélagsins í Þórs- mörk vegna þess hve gróður er skammt á veg kominn. Ferðafélag ísiands Útivist, Simar 14606 og 23732 , Hvítasunnuferðir Útivistar 12.-15. maí 1. Skaftafell-Öræfasveit. Svefnpoka- gisting að Hofi. Skoðunar- og gönguferðir um þjóðgarðinn ogm.a. ekið að Jökulsár- lóni. 2. Öræfajökull-SkaflafeU. Gengið á hæsta fjall landsins og gönguferðir í Skaftafelli. Gist að Hofi. 3. Snæfellsnes-SnæfeUsjökull. Frábær gisting á Lýsuhóli. Sundlaug, heitur pottur. Göngu- og skoðunarferðir um strönd, fjöll og á Jökulinn eftir vali. 4. Snæfellsnes-Breiðafjarðareyjar. Sameiginleg ferð nr. 3. Boðið upp á dagsferðir út í Breiðafjarðareyjar. 5. Þórsmörk og Fimmvörðuháls. Fimmvörðuháls fyrir þá sem vilja, annars gönguferðir við allra hæfi um Mörkina. Góð gisting í Útivistarskálunum Básum. Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni Grófinni 1, símar: 14606 og 23732. Utanlandsferð - Gönguferð um Jötun- heima í Noregi. Brottför 18. ágúst, 10 dagar. Takmarkað pláss. Pantið sem fyrst. Allar upplýsingar á skrifstofunni. Fararstjóri verður 'Kristján M. Baldurs- son. vertu í takt við Tímann AUGLÝSINGAR 686300 Afgreiésla Tímans er opin kl. 9-5 daglega nema laugardaga 9-12. Sími afgreiöslu 686300 Kjarvalsstaöír: Sýning Helga Þorgils Friðjónssonar Laugardaginn 6. maí kl. 16:00 var opnuð að Kjarvalsstöðum sýning á nýjum verkum eftir Helga Þorgils Friðjónsson, í boði Menningarmálanefndar Reykjavík- urborgar. Þetta er önnur boðsýning Lista- safns Reykjavíkur á þessu ári og stendur hún fram til 21. maí. Sýningin mun einnig sýnd erlendis; fyrst í Norrænu listamið- stöðinni í Sveaborg, og opnuð þar 16. júní, þá í Galleri NEMO í Eckernförde og loks verður sýningin send til Rovan- iemi listasafnsins í Finnlandi. Helgi Þorgils hefur haldið einkasýning- ar bæði hér heima og erlendis, ennfremur tekið þátt í fjölda samsýninga og verk hans er að finna í erlendum söfnum, t.d. í Rooseum safninu í Malmö, Statens Museum for Kunst í Kaupmannahöfn og Kunshalle í Kiel í Þýskalandi. Sýningin verður opin daglega kl. 11:00- 18:00 til 21. maí. ni'un; GRÓÐUR&GARÐAR l.tbl. 6. árg. Tímaritið er 90 bls. að stærð með mörgum litprentuðum myndum. Af efni má nefna: Eiríkur St. Eiríksson ritstjóri skrifar ritstjóraspjall, sem hann nefnir Skuld þjóðarinnar við landið. Frásögn og myndir eru af „Gullsóp f Garðabæ", en gullsópur er runni sem ber gullin blóm. Grein Sigríðar Hjartar um Garðyrkjufé- lag íslands nefnist: 2% þjóðarinnar í sama félaginu. Þá eru greinar um kostnað við gerð garða á nýrri lóð, og sagt er frá setlaugum í garða, gróðurhúsum o. fl. Myndir eru frá verðlaunagarði í Kópavogi. Rokkað og ræktað í kúluhúsi á ísafirði nefnist frásögn þaðan að vestan. Grein er um Alaskaösp á íslandi og í blaðinu er kynning fyrir útivistarfólk á loftmyndum og kortum Landmælinga íslands. Ýmis- legt fleira er í blaðinu fróðlegt fyrir áhugafólk um garðrækt. Útgefandi er Frjálst framtak hf. ItfíÍRLKr \«l»l U\U.\K1MH SIAH! \íl \H Skímir - vorhefti koraið út Vorhefti Skímis, Tfmarits Hins ís- lenska bókmenntafélags, 163. árg. er • komið út. I heftinu em 12 greinar og fjalla þær um bókmenntir, sögu og fslenska búhætti. Einnig er annað efni í ritinu, svo sem grein eftir Guðberg Bergsson er nefnist „Um ásthneigð í bókmenntum og lífinu". Um íslenska búhætti skrifar Loftur Gutt- ormsson og í „Skírnismálum“ er fjallað um skipan mála í íslenskum sveitarfélög- um. Þar skrifar Sigurður Líndal „Vörn fyrir hreppa og þúsund ára gamalt stjóm- kerfi“. I heftinu birtist í fyrsta sinn í heild á íslensku inngangur danska bókmennta- fræðingsins Georgs Brandesar að tíma- mótaverkinu Meginstraumum. Þýðandi er Jón Karl Helgason. Einnig birtist eftir hann ritgerð um tengsl milli Brandesar og þeirra Gests Pálssonar og Hannesar Haf- stein. Örn Ólafsson skrifar um einkenni expressjónisma í smásögum Halldórs Stefánssonar. Tvær greinar í ritinu em um Sturlungu: „Hart er í heimi hórdómur mikill“, eftir Úlfar Bragason og „Eitt sinn skal hverr deyja“ eftir Guðrúnu Nordal. Margar greinar og umfjallanir eru um bækur og einnig bókaþýðingar. Skáld Skírnis er að þessu sinni Wallace Stevens og hefur Sverrir Hólmarsson þýtt ljóð eftir hann. Ritstjóri Skírnis er Vilhjálmur Áma- son. Meðritstjóri þessa heftis er Ástráður Eysteinsson. Skírnir kemur út tvisvar á ári, vor og haust. Vorheftið 1989 er 250 bls. að stærð. g^NYI RENAULT TXE VERKFÆRI Bíllinn 2. tbl. 7. árg. Bílapistill Leós M. Jónssonar ritstjóra er fremst í blaðinu. Þá eru myndir og umsagnir um bíla af ýmsum tegundum. Sagt er frá reynsluakstri á nýjum Renault 19 í Norður-Frakklandi. Einnig eru grein- ar með myndum um mótorhjól og jeppa. Ýmsar tækninýjungar era kynntar. Sagt er frá dýrasta jeppa á landinu, nýjum Scania vörabíl o. m. fl. er f þessu bílablaði, sem er yfir 60 bls. að stærð og gefið út af Frjálsu framtaki hf. m hraöa « I avallt vló I KaóstæöuiM "1 c || UfjflFERÐAR J

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.