Tíminn - 09.05.1989, Blaðsíða 12

Tíminn - 09.05.1989, Blaðsíða 12
12 Tíminn FRÉTTAYFIRLIT TÚNIS - Arababandalagiö hefur hætt við aö senda fulltrúa til Líbanons, en þeir áttu aö fylgjast með því að vopnahlés- skilmálar bandalagsins yröu haldnir. Svo viröist sem Sýr- lendingar hafi ákveðið aö grafa vopnahléið endanlega í rústir Beirútborgar því hersveitir Sýrlendinga hófu aö nýju öflug- ar stórskotaliðsárásir á hverfi kristinna manna á sunnudag- inn og svöruöu kristnir í sömu mynt. Sveitir kristinna saka Sýrlendinga um að beita fos- fórsprengjum. PANAMA Guillermo Endara forsetaframbjóðandi stjórnarandstöðunnar í Pa- nama hvatti til mótmælaað- gerða eftir að bæði hann og frambjóðandi stjórnarinnar höfðu lýstyfirsigri i kosningun- um á sunnudag. MOSKVA - Pravda mál- gagn sovéska kommúnista- flokksins hvatti til þess að neyðaráætlun yrði gerð í efna- hagsmálum og sagði að áfram- haldandi prentun á rúblum til að mæta hækkandi kostnaði skaðaði efnahag Sovétríkj- anna stórlega. NIKOSIA - franskar herþot- ur, tundurspillar og froskmenn gerðu árásir á ímynduð skot- mörk á Persaflóa að sögn Irna fréttastofunnar. Árásir þessar eru hluti fimm daga heræfinga, en þær hafa aukíð spennuna á Persaflóa þar sem ekkert gengur í friðarviðræðum Irana og íraka. AÞENA - George Petsos fyrrum ráðherra í ríkisstjórn Grikklands slapp naumlega við bráðan bana þegar kröftug sprengja sprakk í loft upp í bifreið hans. Til allrar hamingju fyrir George var hann ekki kominn inn í bíl sinn. Hann liggur nú særður á sjúkrahúsi. Talið er nokkuð Ijóst að vinstri sinnaðir skæruliðar hafi komið sprengjunni fyrir. WELLINGTON -Geoffrey Palmer varaforsætisráðherra Nýja Sjálands sagði að Frakk- ar væru um það bil að hefja nýja lotu kjarnorkutilrauna á Suður-Kyrrahafi. Nýsjálend- ingar eru ekki par hrifnir af þvl uppátæki Frakka. Þriðjudagur 9. maí 1989 ÚTLÖND Mikil ólga meðal gyðinga eftir útför ísraelsks hermanns og krefst múgurinn þess að blóð araba renni: Israelsher ritskoðar fréttaskeyti Reuters Mikii ólga ríkir nú meöal gyðinga í ísrael eftir útför ísraelsks hermanns sem taliö er að palestínskir mannræningj- ar hafi myrt. Útgöngubann hefur verið sett á hernumdu svæðunum þar sem 1,7 milljónir Palestínumanna búa. ísraelsher hefur ritskoðað og fellt út hluta úr fréttaskeytum Reuters frá bænum Ashoud þar sem útförin fór fram, en þó er ljóst að gyðingar fóru hamförum um götur bæjarins aðfaranótt mánudags og kröfðust þess að blóð araba rynni í hefndar- skyni fyrir morðið. Þá réðust íbúar þorpsins með grjótkasti að bifreið- um araba eftir útförina, ef marka má ritskoðuð fréttaskeyti Reuters fréttastofunnar. Lögreglan þurfti að beita táragasi gegn æstum mannfjöldanum í As- houd heimabæ hins látna hermanns sunnudagsnóttina. Ríkisútvarpið í ísrael skýrði frá því að þrír gyðingar hafi verið handteknir í Ashoud, en sjónarvottar halda því fram að nær hundrað manns hafi verið handtekn- ir. í gær var minnst hins fallna her- manns í ísrael, en það er árleg venja og í dag er þjóðahátíðardagur ísra- els. Er greinilegt að herinn í ísrael gerir ráð fyrir miklum róstum hjá Palestínumönnum í tilefni dagsins. Rósturnar voru samt nægar um helgina, en níu Palestínumenn voru særðir skotsárum á hinni hernumdu Gazaströnd sem er steinsnar frá Ashoud. Palestínumennirnir fóru með grjótkasti gegn ísraelskum hermönnum. Hermaðurinn sem talið er að pal- estínskir mannræningjar hafi myrt hvarf ásamt félaga sínum um miðjan febrúarmánuð. Lík hans fannst í síðustu viku, en ekkert hefur frést af félaga hans. ísraelskir hermenn syrgja félaga sinn sem talið er að palestínskir mannræn- ingjar hafi myrt. Mikil ólga er meðal gyðinga vegna þessa og hefur enn bætt á arabahatur sem blossaði mjög upp í síðustu vikur þegar Palestínumaður stakk tvo eldri gyðinga til bana í Jerúsalem. Ekki er Ijóst hvað gengur á á þessum slóðum þar sem ísraelsher hefur ritskoðað fréttaskeyti Reuters og fellt hluta þeirra á brott. Sextán menn látast í flugslysi í Oskarshamn í Svíþjóð: Sænsk þingnefnd fórst í slysinu Sextán manns létust í flugslysi við Oskarshamn í Svíþjóð í gær, en sérstök þingnefnd sem fjallaði um fjarskiptatækni var um borð í vél- inni. A meðal þeirra er fórust var Anna Wohlin-Anderson þingmaður Miðjuflokksins og jafnaðarmaður- inn John-Olle Person sem var for- maður nefndarinnar og náinn vinur og samstarfsmaður Ingvars Carlson Verkalýðssamtökin Samstaða gáfu í gær út fyrsta löglega stjórnar- andstöðudagblað í Austur-Evrópu í fjörutíu ár. Dagblaðið nefnist Elec- tion Gazette og var fyrsta upplagið prentað í 150 þúsund eintökum, en samstöðumenn hyggjast gefa það út í hálfri milljón eintaka i framtíðinni svo fremi sem nægur pappír fáist. - Það er ekkert frelsi án Sam- stöðu, voru upphafsorð forsíðu- greinar sem Lech Walesa leiðtogi Samstöð ritaði í þetta fyrsta tölublað sem var átta síður að stærð. Útgáfa þessa dagblaðs er eitt af þeim atriðum sem stjórnvöld og Samstaða sömdu um í umbótasam- komulagin sem miða á að auknu lýðræði í Póllandi. f blaðinu voru lauslega kynntir allir frambjóðendur stjórnarands- töðunnar fyrir þingkosningarnar sem fram fara í Póllandi í júní. Þá verður kosið í alfrjálsum kosningum til nýrrar 100 manna efri deildar ..... i nlftV' forsætisráherra Svíþjóðar. Hlé var gert á störfum sænska þingsins þegar fréttist af slysinu og hefur Ingvar Carlson sent ættingjum hinna látnu samúðarkveðjur. Ekki er vitað hvað olli því að hin tveggja hreyfla Beechcraft-99 flug- vél skall til jarðar skammt frá flug- vellinum í Oskarshamn, en mikil sprenging varð er vélin skall til pólska þingsins og um 153 sæti af460 í neðri deild þingsins, en þar mun kommúnistaflokkurinn skipa í 307 þingsæti. Þrátt fyrir að Samstaða hafi náð samkomulagi við stjórnvöld um úr- bætur í stjórnmálum og efnahags- málum landsins þá eru nú um 20 Skæruliðar Pólisaríóhreyfingar- innar í Vestur-Sahara hyggst sleppa 200 marokkönskum stríðsföngum úr haldi og sýna með því góðan vilja sinn til að liðka fyrir friðarviðræðum við Marokkó. Skæruliðar Pólisaríó hafa barist við Marokkó fyrir sjálf- stæði Saharavi þjóðarinnar sem byggir Vestur-Sahara allt frá því Spánverjar yfirgáfu þetta landsvæði árið 1976. Marokkómenn hafa hins jarðar og gaus eldur upp í flakinu. Flugmaðurinn hafði ekki sent frá sér neyðarkall áður en slysið átti sér stað. Flugslys þetta er það mesta sem orðið hefur í Svíþjóð frá því árið 1977 þegar Vickers Viscounts flugvél hrapaði á íbúðahverfi rétt utan við Stokkhólm og tuttugu og tveir létu Iífið. þúsund koparnámuverkamenn í verkfalli í Rudnanámunum. Veldur þetta verkfall bæði Samstöðu og stjórnvöldum miklum áhyggjum, en leiðtogar verkalýðsmanna koma bæði úr röðum Samstöðu og OPZZ, hinna opinberu verkalýðssamtaka Póllands. vegar gert tilkall til þessa landsvæðis, enda eru þar auðugar fosfatnámur að finna. Það var Mahfoud AIi Beiba for- sætisráðherra í útlagastjórn Saharavi þjóðarinnar sem skýrði frá þessu eftir viðræður við Giulio Andreotti utanríkisráðherra Ítalíu í gær. Beiba mun hafa tjáð Andreotti að nokkrir þeirra fanga sem leystir verða úr haldi hafi verið í haldi í Leiðinleg mistök ítalskrar útfararstofnunar: Sendu lík virðulegs ítala til Indlands! Það voru niðurlútir starfsmenn útfararstofnunar á Ítalíu sem skýrðu frá því fyrir helgi að þeir hefðu sent lík aldins og virts ítala til Indlands í stað líks lítilsiglds innflytjanda frá Sri Lanka. Embættismenn útfararstofnun- arinnar í Lecce á Suður-Ítalíu sögðu að lík hins 79 ára Gaerano Giangreco væri á flugvellinum í Bombay og þeir vonuðust til að líkið kæmist aftur til Ítalíu nú í byrjun vikunnar. Mistökin uppgötvuðust þegar ekkja Giangreco fékk „eigin- mann“ sinn sendan heim í fínni líkkistu og nánustu ættingjar ætl- uðu að votta honum hinstu virð- ingu sína. Maðurinn í kistunni var ekki sá sami og ekkjan hafði verið gift í áratugi svo konan hafði samband við útfararstofn- unina að nýju og kvartaði. þrettán ár. Beinar friðarviðræður milli Pólis- aríó og Hassan Marokkókonungs hófust í Marrakesh í janúar síðast- liðnum og slaknaði eitthvað á spenn- unni þá. Talsmaður Pólisaríóhreyf- ingarinnar í Róm skýrði frá því í síðustu viku að hreyfingin væri reiðubúin að halda áfram friðarvið- ræðum í þessum mánuði. Fyrsta löglega stjórnarandstöðublaðið í Austur-Evrópu í fjörutíu ár komið út í Póllandi: SAMSTADA HEFUR ÚTGÁFU DAGBLADS -xssitot*.,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.