Tíminn - 09.05.1989, Blaðsíða 5

Tíminn - 09.05.1989, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 9. maí 1989 Tíminn 5 Samkomulag um það bil að takast í kjaradeilu BHMR í gær. Slitnaði upp úr vegna kröfu um markaðslaun: SAMNINGAR STEYTTU Á MARKADSLAUNASKERINU „Samningar sigldu í strand á því að mikill munur er á þeim grundvelli sem aðilar vilja semja á. Ég taldi ekki lengur grundvöll til lengri fundarsetu og sleit fundi en kvaðst mundi kanna það í dag hvort afstöðubreyting yrði.“ Þetta voru orð Guðlaugs Þor- valdssonar ríkissáttasemjara í gær er upp úr samningaviðræðum hafði slitnað. Mjög stíf fundalota hafði þá staðið yfír í kjaradeilu BHMR og ríkisins og reyna átti til þrautar að knýja fram úrslit í deilunni á hvorn veginn sem þau úrslit yrðu. Tilboð ríkisins hljóðaði upp á svipað og nýgerður samningur við háskólakennara og gert var ráð fyrir sérstöku framlagi í endurmenntun- arsjóð sem svipar til rannsóknafram- lagsins í samningi háskólakennara. Á fundinum í gær kom BHMR enn upp með hugmyndina um mark- aðslaun þar sem launagreiðslur taki mið af menntun og ábyrgð eins og gerist á almennum vinnumarkaði samkvæmt skilningi BHMR, en við- miðunarstétt þeirra er verkfræðing- ar, eins og komið hefur fram. Samningarnir sigldu í strand á mjög viðkvæmu augnabliki því að í gær benti ýmislegt til að deilan væri að leysast. Þegar framhaldsskóla- nemendur gengu á fund mennta- málaráðherra í gær var ráðherrann bjartsýnn á lausn og lýsti því yfir að hann hefði boðað fund með skóla- meisturum framhaldsskólanna í dag til að leggja á ráðin um hvernig unninn verði upp sá tími sem glatast hefur í skólunum af völdum verk- fallsins. Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari. Svanfríður Jónasdóttir varafor- maður samninganefndar ríkisins sagði að unnið hefði verið að sameig- inlegum samningsdrögum og ríkið hefði verið búið að teygja sig eins langt til málamiðlunar og unnt var að komast. í dag hefði hins vegar samninga- nefnd BHMR lagt á borðið sínar upprunalegu og ýtrustu kröfur um markaðslaun og kerfisbreytingar þar sem fólki yrði raðað í launaflokka eftir menntunarstigi. Svanfríður sagði jafnframt að þær málamiðlanir hefðu verið gerðar af ríkisins hálfu sem mögulegar hefðu verið og þær lægju fyrir og samninga- mönnum BHMR væru þær kunnar. Hún vildi engu spá um framhaldið en gat þess að lög mæltu svo fyrir að sáttasemjari ætti að boða nýjan sáttafund innan fjórtán daga, en fyrr þó ef annar hvor aðila óskar eftir fundi og telur sig hafa eitthvað nýtt fram að færa. - sá til þess að félagsmenn í BHMR gefi sér einn til tvo daga til að kynna sér í rólegheitum hvað fólst í þeim hugmyndum sem þarna var verið að ræða um, og geri það ítarlega. Aðspurður sagði Ólafur Ragnar það hefði alltaf legið ljóst fyrir að ef krafan um markaðslaun væri túlkuð sem 60 til 80% kauphækkun, jafnvel á tveim til þrem árum, þá hefði það aldrei verið gerlegt að semja um öruggar tryggingar fyrir því hér og nú. Sagðist Óiafur hafa haldið þegar sest var að sameiginlegri vinnu - og hann ásamt þeim búinn að vaka yfir málunum í tvo til þrjá sólarhringa - að þá væri sú vinna á þeim forsend- um að menn gerðu sér grein fyrir því að ýtrustu kröfur hvors aðilans fyrir sig voru komnar út af borðinu og í staðinn sameiginleg vinna. „Henni er síðan ýtt út af borðinu hjá BHMR og farið í hina upprunalegu kröfu,“ sagði Ólafur Ragnar. -ABÓ Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra: „Það er erfitt að átta sig á því,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra aðspurður hvers vegna slitn- að hefði upp úr viðræðum BHMR og ríkisins, sem stað- ið hafa síðan á laugardag. „Ég taldi að það hefði hafist á laugardagsmorgun sameiginleg vinna við gerð samnings þar sem menn skiptust á skjölum og hug- myndum hver frá öðrum og sérstak- ar vinnunefndir unnu að því verki í húsnæðinu Borgartúni 6,“ sagði Ólafur Ragnar. Hann sagðist hafa talið að þá hefðu menn verið í sameiningu að skapa hugmynd að samningi sem væri í ýmsum megin atriðum inni á þeim langtímasjónar- miðum sem BHMR hefur lagt áherslu á um nýtt launakerfi. „Sá texti tók tillit til fjölmargs sem þeir hafa verið með á undanförnum vik- um og fól í sér ýmsar breytingar frá því sem var fyrir nokkrum dögum,“ sagði Ólafur. Hann sagðist hafa staðið í þeirri meiningu í fyrrinótt og í gær að þarna væri um sameiginlega vinnu að ræða, en síðan virðist þessari vinnu allri vera hafnað og settar fram upphaflegar kröfur. Hvernig meturðu stöðuna og hvað með framhaldið? „Ég skal ekkert um það segja. En það er vont að þegar vinna, sem menn vinna sam- eiginlega að við að skapa samning, skilar ekki árangri og það er farið aftur á reit eitt. Því öll samningsgerð verður að byggjast á sameiginlegri vinnu,“ sagði Ölafur Ragnar. Aðspurður hvort nú yrði að byrja á öllu upp á nýtt, sagðist hann vonast til þess að svo yrði ekki og vonaðist Dagsbrún samþykkti samninginn Dagsbrúnarmenn samþykktu kjarasamninga sína á fjölmennum fundi í Bíóborginni í gær. Nokkrar umræður urðu um samningana á fundinum og fram kom að margir félagsmenn voru lítið ánægðir með launalið samninganna en flestir töldu þó að lengra hefði vart verið hægt að komast í stöðunni. Atkvæðagreiðslan um samning- inn var skrifleg og dreift var 591 atkvæðaseðli. 347 guldu samningn- um jáyrði. Nei sagði 221. Auðir seðlar voru 14 og ógildir 9. Alls greiddu því 568 manns at- kvæði og af þeim sagði 61,1% já en nei sögðu 38,9%. Dagsbrún var þriðja félagið sem samþykkti þennan kjarasamning en í fyrrakvöld var hann samþykkt- ur hjá verkalýðsfélaginu Boðanum í Þorlákshöfn og fyrir helgi sam- þykkti Verkakvennafélagið Fram- sókn hann. -sá Dagsbrúnarmenn samþykktu og staðfestu þar með kjarasamning sinn á félagsfundi í gær. 568 greiddu atkvæði og af þeim sagði 61,1% já en 38,9 voru á móti. Tímamynd; Pjctur. Páll Halldórsson formaður BHMR um viðræðuslit: Samningsgrundvöll skorti „Málið var að við vorum í viðræð- um við ríkið yfir helgina og þeir komu með hugmynd á sunnudags- kvöld, sem við töldum að yrði að leggja fyrir okkar samninganefndir. Við vorum búin að vera að þrátta um þetta heillengi og þeir fóru að ímynda sér að við værum einhverjir meðhöfundar að þessu, en við vor- um ekki meiri meðhöfundar en svo að við eigum ekki eintak af þessum textum og fengum ekki að taka með okkur inn á fundinn okkar nema 30 númeruð eintök sem við þurftum að skila aftur, þannig að það var alveg klárt mál hver átti þetta,“ sagði Páll Halldórsson formaður BHMR í samtali við Tímann. Hann sagði að plaggið hefði verið lagt fyrir stóru samninganefndina sem ákvað að það yrði látið fara til umræðu hjá samninganefndum fé- laganna. í gær var textinn ræddur í samninganefndum félaganna. „Niðurstaðan varð sú að mönnum fannst að hugmynd ríkisins gæti ekki orðið uppistaðan í samningi, en töldu hins vegar fulla ástæðu til að ræða áfram, vegna þess að í þessu væru hlutir sem ræða mætti og koma áfram," sagði Páll. Hann sagði að vandinn hefði verið sá að í þetta hefði vantað bæði þær kerfisbreyt- ingar að menntun og ábyrgð sé tekið inn í launakerfið og megin kröfu BHMR um að nálgast viðmiðunar- hópa þess úti í þjóðfélaginu. Ríkið hafí sagt að ekki væri hægt að ganga lengra sem aftur á móti hafi verið óaðgengilegt fyrir BHMR. - ABÓ Farið aftur reit eitt

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.