Tíminn - 17.05.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 17. maí 1989
Handknattleikur:
Skellur í Magdeburg
jafntefli í Berlín
- hjá íslenska handknattleikslandsliðinu gegn því a-þýska
íslenska landsliðið í handknattleik
mátti þola stórt tap á laugardaginn
er liðið mætti því a-þýska í landsleik
■ Magdeburg. íslenska liðið, sem er
að mestu skipað leikmönnum sem
hingað til hafa lítið fengið að spreyta
sig með A-landsliðinu, tapaði 14-25,
eftir að A-Þjóðverjarnir höfðu gert
út um leikinn í fyrri hálfleik. Þjóð-
verjarnir gerðu 12 mörk í fyrri
hálfleik gegn 4 mörkum íslendinga
og þar með var eftirleikurinn auð-
veldur.
Gylfi Birgisson gerði 4 mörk úr
vítaköstum, Birgir Sigurðsson gerði
3 mörk, Óskar Armannsson 2, Þor-
gils Óttar Mathiesen, Gunnar Bein-
teinsson, Konráð Olavsson, Júlíus
Jónasson og Stefán Kristjánsson
gerðu 1 mark hver.
Upprisa í síðari ieiknum
f síðari leiknum sem fram fór í
Berlín á sunnudag náðu okkar menn
að rétta sinn hlut. Leikurinn var
liður í mikilli íþróttahátíð í Berlínar-
borg og fjölmargir áhorfendur fylgd-
ust með leiknum. íslendingar voru
yfir í upphafi og í hálfleik var staðan
14-13. í síðari hálfleik náðu A-Þjóð-
verjar að komast yfir og þeir voru
yfir 26-22 á lokamínútum leiksins.
íslenska liðinu tókst að jafna áður
en leiktíminn var úti og jöfnunar-
markið gerði Óskar Armannsson
Körfuknattleikur:
nokkrum sekúndum fyrir leikslok.
Leiknum lauk því með jafntefli 26-
26.
Óskar var markahæstur í leiknum
með 6 mörk, Bjarki Sigurðsson gerði
5, Héðinn Gilsson 4, Gunnar 4,
Júlíus 4, Birgir 1, Gylfi 1 og Guðjón
Árnason 1.
Með þessum leikjum gafst ungum
og óreyndum landsliðsmönnum
tækifæri á að öðlast reynslu í lands-
leik gegn einu besta landsliði heims.
Þá voru leikirnir mikilvægir fyrir
leikmenn 21 árs landsliðsins, en 21
árs landsliðið mætir Svisslendingum
í undankeppni HM síðar í mánuðin-
um ytra. BL
Island í botnsætið
íslenska landsliðið í körfuknatt-
leik hélt uppteknum hætti í síðustu
leikjum sínum í Evrópukeppninni í
Portúgal um helgina. Á laugardag
tapaði ísland fyrir ísrael 113-82 og á
mánudag fyrir Ungverjalandi 94-82.
Leikurinn gegn ísrael var öllu
skárri en leikir íslenska liðsins gegn
Belgum og Portúgölum fyrir helgina.
fsrael var fyrirfram talið með sterk-
asta liðið í mótinu. Tap með 35 stiga
mun er minna en búast mátti við
eftir útreiðina gegn Belgíu og Port-
úgal og oft hefur fsland tapað með
meira en 35 stiga mun fyrir fsrael. í
hálfleik var staðan 57-43 og ísrael ,
vann síðan öruggan sigur 113-82.
Teitur Örlygsson og Valur Ingi-
mundarson léku báðir vel í leiknum
og gerðu 20 stig hvor. Tómas Holton
og Guðmundur Bragason gerðu 9
stig hvor, Axel Nikulásson og Guðni
Guðnason 6, Magnús Guðfinnsson
og Guðjón Skúlason 5, og Birgir
Mikaelsson 2.
Ungverjar sterkari
Á mánudag lék íslenska liðið gegn
því ungverska og tapaði með 12
ur kl. 13:25
20. LEIKVI
20. MA11989
Leikur 1 Everton
- Liverpool
Leikur 2 Celtic
- Rangers
Leikur 3 Keflavík
- Valur
Leikur 4 F.H.
K.A.
Leikur 5 Þór
Víkingur
Leikur 6
K.R.
- Akranes
Leikur 7 H.S.V.
- Stuttgart
Leikur 8 Hannover - Köln
Leikur 9 Bayern M. - St. Pauli
Leikur 10
B.Leverkusen - Frankfurt
Leikur 11
B’Gladbach • Bochum
Leikur 12 B.Dortm. - B.Uerdingen
TTX
teningur
Símsvari hjá getraunum á laugardögum eftir
kl. 16:15 er 91-84590 og -84464.
Ath. breyttan lokunartíma !
GETRAUNIR í ALLT SÚMAR !
stigum 82-94. íslenska liðið tapaði
því öllum leikjum sínum í mótinu,
en það voru Belgar sem sigruðu og
ísrael varð í öðru sæti. Þessar tvær
þjóðir komast því í úrslitakeppni
EM.
íslenska liðið er nú komið til
Kýpur þar sem liðið mætir Andorra
í kvöld á Smáþjóðaleikunum. Á
leikunum keppa fjölmargir íslenskir
íþróttamenn, auk körfuknattleiks-
manna eru þar blakmenn, sund-
menn, frjálsíþróttamenn, júdómenn
og skotmenn. BL
Knattspyrna:
Liverpool
á toppinn
Meistarar Liverpool skutust í gær-
kvöld í toppsæti ensku 1. deildarinn-
ar í knattspymu, er liðið vann 2-0
sigur á QPR á Anfield Road.
John Aldridge skoraði fyrir Liv-
erpool þegar 2 sekúndur voru til
leikhlés og þegar 12 mín. voru liðnar
af síðari hálfleiknum bætti Ronnie
Whelan fyrirliði liðsins öðru marki
við. Liverpool hefur nú 73 stig í efsta
sæti deildarinnar, einu fleira en Ar-
senal, þegar liðin eiga 2 leiki eftir. Á
stigatöflunni hér í opnunni er staða
liðanna í deildinni eins og hún var í
eftir leiki helgarinnar.
Meistararnir spöruðu sig greini-
lega í leiknum í gær, samkvæmt
fréttaskeytum, en á laugardaginn
mætir liðið nágrönnum sínum í
Everton í úrslitaleik bikarkeppninn-
ar á Wembley.
Liverpool hefur ekki tapað í síð-
ustu 22 leikjum sínum, þar af sigrað
19 sinnum. BL
AMAZDIME
AMAZONE dreifarinn er með tveim dreifiskífum,
sem þú getur treyst til að gefa jafna og ðrugga
áburðardreifingu.
Vinnslubreidd er stillanleg á 9,10,12 og 15 m.
Einnig hægt að dreifa aðeins til annarrar hliðarinn-
ar, t.d. meðfram skurðum og girðingu.
Auðveldur í áfyllingu vegna þess hve lágbyggður
drei arinn er.
BúLeknideildarprófaður sumarið 1988, sem stað-
fest þessa eiginleika.
I
H , 1
F= ARMULAÍ11 SIMI 681500
Miðvikudagur 17. maí 1989
Tíminn 11
Enska knattspyrnan:
Staða Liverpool nú vænleg
Arsenal tapaði fyrir Derby á heimavelli, en Liverpool náði að sigra Wimbledon
Knattspyrna:
- Framarar sigruðu Val 3-1 í meistarakeppni KSÍ í gaprkvöld
íslandsmeisturar Fram sigruðu bikarmeist-
ara Vals 3-1 í fjörugum leik í meistarakeppni
KSÍ á geryigrasvellinum í Laugardal í
gærkvöld.
Mörk Fram komu á færibandi í fyrri hálfleik.
Eftir 13 mín. leik skallaði Guðmundur Steins-
son í netið eftir sendingu frá Pétri Ormslev.
Ómar Torfason bætti si'ðan öðru marki við á
17. mín. Ómar skoraði með þrumuskoti í
bláhornið á Valsmarkinu. Mínútu síðar skor-
aði Guðmundur Steinsson annað skallamark,
eftir góðan undirbúning Ragnars Margeirsson-
ar. Þessi markasúpa kom eins og köld vatns-
gusa framan í Valsmenn, sem náðujþó að rétta
sinn hlut í sfðari hálfleik, er AtH Eðvaldsson
skoraði úr vítaspymu. Þorsteinn Þbrsteinsson
vamarmaður Fram hafði fellt Lárus Guð-
mundsson innan vítateigs.
Framarar eru því meistarar meistaranna í 6.
sinn, en liðið hefur sigrað oftar í þessari keppni
en nokkurt annað lið. BL
Forskot Arsenal á Liverpool á
toppi 1. deildar ensku knattspyrn-
unnar er nú aðeins 2 stig, eftir að
Arsenal tapaði fyrir Derby County á
Highbury 1-2 á laugardaginn. Á
sama tíma vann Liverpool 2-1 sigur
á bikarmeisturum Wimbledon, eftir
að Wimbledon hafði haft yfir í
leiknum. Staða Liverpool (deildinni
er nú vænleg, liðið er tveimur stigum
á eftir Arsenal og á 3 leikjum ólokið.
Arscnal á 2 leiki eftir, en allar líkur
eru nú á því að innbyrðis leikur
þessara liða, sem verður á Anfield
Road í Liverpool 26. maí, verði
úrslitaleikur deildarinnar.
Það leit lengi vel út fyrir að
Wimbledon ætlaði að endurtaka
leikinn frá því í bikarúrslitunum í
fyrra, er liðið lagði Liverpool með
einu marki gegn engu. Það var ekki
fyrr en í síðari hálfleik sem John
Áldridge náði að jafna metin er
hann gerði sitt 26. mark á keppnis-
tímabilinu. John Barnes gerði síðan
sigurmark meistaranna. Líkurnar á
því að Liverpool vinni tvöfalt í
ensku knattspyrnunni í annað sinn á
þremur árum eru því sterkari eftir
' leiki helgarinnar.
Arsenal mátti ekki við tapi á
heimavelli, en Dean Saunders og
gamli maðurinn Peter Shilton létu
sig það engu skipta og Derby vann
2-1 sigur á ArsenaL Saunders gerði
bæði mörk Derby, sitt í hvorum
hálfleik, en Shilton varði eins og
berserkur f marki Derby og voru
þeir félagar mennirnir á bakvið sigur
Derby.
í botnbaráttunni bjargaði Shef-
field Wednesday sér frá falli með 1-0
sigri á Middlesborough, sem féll
fyrir vikið í 2. deild. Þrátt fyrir 1-3
tap West Ham gegn Everton, getur
liðið enn bjargað sér frá falli með því
að vinna þá 2 leiki sem eftir eru.
Gangi það eftir fellur Aston Villa í
2. deild, en slíkt verður að teljast all
ólfklegt. Aston Villa bjargaði sér að
öllum lfkindum frá falli með 1-1
jafntefli gegn Coventrý.
Á mánudag vann Everton 1-0
sigur á Derby í sínum síðasta leik
fyrir bikarúrslitaleikinn gegn Liver-
pool næsta laugardag. Fjóra fasta-
menn vantaði í lið Everton, en
sigurmark liðsins gerði Ian Wilson,
og var það hans fyrsta deildarmark
Körfuknattleikur NBA-deildin:
Lakers og Pistons
komin í úrslitin
Það blés ekki byrlega fyrir meisturum
Los Angeles Lakers eftir fyrsta leikhluta
í Ijórða leik liðsins gegn Seattle Super-
sonics í undanúrslitum Vesturdeildar
NBA-körfuknattleiksins á sunnudag.
Heimamenn í liði Seattle höfðu hvorki
meira bé minna en 29 stiga forskot 41-12.
Með sigri í leiknum gátu leikmenn
I.akers tryggt liði sínu sæti í úrslitum
Vesturdeildarinnar, þar sem Lakers vann
3 fyrstu leiki liðanna. Um miðbik annars
leikhluta fóru meistararnir í gang og skot
Sonics leikmannanna tóku að geiga.
Þegar blásið var til leikhlés hafði Lakers
minnkað muninn í 11 stig, 54-43. Átta
stig skildu liðin í lok þriðja leikhluta
71-63. Þegar 6:14 mín. voru til leiksloka
komst Lakers í fyrsta sinn yfir í leiknum,
er Orlando Woolridge skoraði úr tveimur
vítaskotum 81-80. Leiknum lauk síðan
með sigri Lakers 97-95. James Worthy
var stigahæstur í Lakers liðinu með 33
stig og hann var maðurinn á bak við
sigurinn. Xavier McDaniel var stigahæst-
ur hjá Seattle með 30 stig. Lakers hafa
því með þessum sigri tryggt sér sæti í
úrslitaleikjum Vesturdeildarinnar, lík-
lega gegn Phoenix Suns.
Aðspurður um möguleika Lakers á að
sigra í NBA-deildinni þriðja árið í röð
sagði miðherji liðsins, Kareem Abdul-
Jabbar: „Við eigum eftir að leika gegn
tveimur erfiðum liðum, þannig að við
verðum að bíða og sjá hvað gerist.“
Líklegir mótherjar Lakers í úrslita-
leikjum Vesturdeildarinnar, Phoenix
Suns, hafa nú 3-1 yfir gegn Golden State
Warriors, en liðin áttu að leika á ný í nótt
sem leið.
f Austurdeildinni er Chicago Bulls
með góða stöðu gegn New York Knic
3-1. Sú staða kemur á óvart því lið P
York Knicks hefur leikið mjög vel í
vetur. í fjórða leik liðanna á sunnudag
vann Bulls öruggan sigur 106-93.
Detroit Pistons vann Milwaukee Bucks
96-94 í fjórða leik liðanna á mánudags-
kvöld og hefur því sigrað í viðureignum
liðanna 4-0. í þriðja leik liðanna á
sunnudag vann Detroit 110-90 sigur.
Það er því margt sem bendir til þess að
það verði Los Angeles Lakers og Detroit
Pistons sem leiki til úrslita um sigur í
NBA-deildinni annað árið í röð, eins og
reyndar var spáð hér í blaðinu fyrir
úrslitakeppnina. Phoenix Suns og Chic-
ago Bulls ættu ekki að verða liðunum
fjötur um fót í úrslitum Austur- og
Vesturdeilda. Það er enn skoðun undir-
ritaðs að meistarar ■' NBA-deildinni í ár
verði Úetroit Pistons. BL
fyrir liðið. Peter Shilton átti enn
einn stórleikinn í marki Derby og 6
sinnum bjargaði hann Derby frá því
að fá á sig fleiri mörk.
Á mánudag náði Nottingham For-
est jafntefli gegn Coventry, er Nigel
Clough skoraði jöfnunarmarkið
þremur mín. fyrir leikslok. Leiknum
lauk með 2-2 jafntefli og öll mörkin
vorugerð ásíðustu lómín. leiksins.
Úrslitin í 1. deild á laugardag:
Arsenal-Derby...............1-2
Aston Villa-Coventry ......1-1
Everton-West Ham...........3-1
Luton-Norwich ..............1-0
Manch. United-Newcastle . 2-0
Millwall-Southampton .... 1-1
Nott.Forest-Charlton......4-0
Q.P.R.-Tottenham............1-0
Sheff.Wed.-Middlesbrough . 1-0
Wimbledon-Liverpool.........1-2
Úrslitin í 1. deild á mánudag:
Co ventry-Nott. Forest....2-2
Everton-Derby...............1-0
Staðan í 1. deild:
Arsenal....... 36 21 9
Liverpool..... 35 20 10
Nott.Porest .... 37 17 13
Norwich.......37 17 10
Dertiy.........38 17 7
Tottenbam .... 38 15 12
Coventry......38 14 13
Eveiton.......38 14 12
Q.PJL....... 37 14 11
MillwaU...... 38 14 11
Muuh.Dnitad .. 38 13 12
Wimbledon .... 37 14 8
Southampton .. 38 10 15
Charlton ......38 10 12
Lúton..........38 10 11
Sheff.Wed. .... 37 10 11
AstonVilla .... 38 9 13
Middlesbrough .38 9 12
Wect Ham ..... 36 9 8
Newcastle ..... 38 7 10
Úrslitin í 2. deild:
Boumemouth-Plymouth ... 0-0
Bradford-Manch.City ......1-1
Cr.Palace-Birmingham .... 4-1
Hull-WBA..................0-1
Ipswich-Blackbum.........2-0
Oldham-Swindon ...........2-2
Oxford-Watford.............0-4
Portsmouth-Chelsea.......2-3
Shrewsbury-Leeds.........3-3
Stoke-Brighton............2-2
Sunderland-Leicester.....2-2
Walsall-Bamsley ..........1-3
2. deild - lokastaðan:
Chelsea.... 46 29 12 5 95 50 99
Man. City ... 46 23 13 10 77 53 82
Cr.Palace .... 46 23 12 11 71 49 81
Watford...... 46 22 12 12 74 48 78
Blackburn ... 46 22 11 13 74 59 77
Swindon .... 46 20 16 10 68 53 76
Barnsley .... 46 20 14 12 66 58 74
Ipswich...... 46 22 7 17 71 61 73
WBA ........ 46 18 18 10 65 41 72
Leeds........ 46 17 16 13 59 50 67
Sunderland .. 46 16 15 15 60 60 63
Bournemth . 46 18 8 20 53 62 62
Stoke......... 46 15 14 17 57 72 59
Bradford .... 46 13 17 16 52 59 56
Leicester .... 46 13 16 17 56 63 55
Oldham........ 46 11 21 14 75 72 54
Oxford........ 46 14 12 20 62 70 54
Plymouth ..
Brighton ...
Portsmouth .
Hull ......
Shrewsbury
Birmingham
46 14 12 20 55 66 54
46 14 9 23 57 66 51
46 13 12 21 53 62 51
46 11 14 21 52 68 47
46 8 18 20 40 67 42
46 8 11 27 31 76 35
Walsall ...... 46 5 16 25 41 80 31
Nýju Wonder rafhlöðurnar,
Green Power, eru algerlega
kvikasilfurslausar. Þær eru því hlaðnar
„hreinni" orku og valda engri
umhverfismengun. Þess vegna má að
skaðlausu henda þeim að notkun lokinni.
Lífrænt efni hefur nú komið í stað
kvikasilfurs.
Green Power rafhlöðurnar eru lekafríar og
endast lengur en venjulegar rafhlöður.
Stuðlum að hreinu umhverfi - notum
Green Power rafhlöður.
Heildsala og smásala:
Olíuf élagið hf
SUÐURLANDSBRAUT 18
SfMI 681100
NUER HANN TVOFALDUR
Þetta eru tölurnar sem upp komu 13. maí.
Heildarvinningsupphæð var kr. 5.163.654,-
Enginn var með fimm tölur réttar og bætist því fyrsti vinningur, sem var kr. 2.380.521,-
við 1. vinning á laugardaginn kemur.
Bónusvinningurinn (fjórar tölur + bónustala) var kr. 412.888,- skiptist á 7 vinningshata
og fær hver þeirra kr. 58.984,-
Fjórar tölur réttar, kr. 712.209,-, skiptast á 129 vinningshafa, kr. 5.521,- á mann.
Þrjár tölur réttar kr. 1.658.036,- skiptast á 5.086 vinningshafa, kr. 326,- á mann.
Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi til laugardags og loka ekki tyrr en 15
mínútum fyrlr útdrátt.
Sími 685111. Upplýsingasfmsvari 681511.